Réttur - 01.04.1969, Blaðsíða 19
mannsbarn 1948 og „Endurminningar" fjög-
ur bindi 1948 til 1951.
Þegar við sósíalistar tókum við útgáfu
„Réttar" 1926, snerum við okkur til Nexö,
til þess að fá leyfi hans til að birta þætti úr
sögusafni hans „Auðu sætin", sem Finnur
Jónsson á Isafirði hafði þýtt. Veitti skáldið
okkur það leyfi í elskulegu bréfi, sem mynd
birtist hér af, og í „Rétti" 1926 birtist síðan
„Inngangurinn" að „Auðu sætin" og „Sonur
guðs og óskabarn andskotans".
Síðast sá ég Martin Andersen Nexö 1947
í Stokkhólmi. Konnnúnistaflokkur Svíþjóðar
átti 30 ára afmæli og hann var þar fulltrúi
danska Kommúnistaflokksins en ég Sósíal-
istaflokksins. Tign og reisn þessa 78 ára öld-
ungs gleymist ekki þeim, sem báru gæfu til
að kynnast honum eigi aðeins skáldinu heldur
og persónunni.
Martin Andersen Nexö og skáldbörnin
hans, — Pelle, Ditta, Morten rauði og önnur
— munu lifa í hjörtum þess verkalýðs, sem
þekkir þau, rís upp í fátækt sinni og berst
fyrir sósíalismanum, fyrir frelsi alþýðunnar.
Eggjan hans og áminning mun vaka í hug-
skoti þeirra, meðan undirokun enn er til og
h'tilmagninn órétti beittur. Og eftir að sigur
inn er endanlega unninn, mun minningin um
hugumstóran brautryðjenda, þakklætið til
mikils skálds, sem aldrei brást málstaðnum,
';fa hjá sigursælli alþýðu framtíðarinnar.
Einar Olgeirsso/i.
Gerð var í Danmörku ágœt kvikmynd um fyrri
hlutann af „Ditta mannsbarn" með Tove Maes
í aðalhlutverkinu. Hér eru nokkrar myndir úr
henni.
67