Réttur


Réttur - 01.01.1985, Side 14

Réttur - 01.01.1985, Side 14
ELÍSABET PORGEIRSDÓTTIR: Innan eða utan kerfis Smásaga Ég sá honum bregða fyrir frammi á gangi, eins og hann væri að leita verk- stjórans. Ég stóð við borðið mitt, hinu megin við glerdyrnar, með hníf í hönd og grálúðu að beita skapi mínu á. Hann hvarf strax aftur, birtist rétt eins og skot í kvikmynd, eitt augnablik. Kannski talaði hann við verkstjórann. Líklega náði hann ekki sambandi við þann mann frekar en vinkona mín, sem skar sig í dag og var svo auðmjúk að spyrja það háa yfirvald hvort hún mætti skreppa yfir á sjúkrahús, því kannski þyrfti að sauma. Eftir skotin sem hún fékk frá þeim hæsta, gekk hún rauðeygð framhjá okkur, heim og grét í tvo tíma áður en hún fékk sig til að fara og láta binda um. Hann sagði nefnilega að ef hún endilega vildi fá læknisvottorð og frí í viku, mætti hún fara annars væri það óþarfi. Verkstjórinn var að útskýra nýjung fyr- ir mönnum að sunnan, vél sem er í hönnun í húsinu og kemur til með að vinna helming starfs okkar, sjálfvirk pökkunarvél með samvalsvog. Skorinn fingur skiptir þá engu máli og því síður hann, sem ég sá bregða fyrir eitt augna- blik á ganginum. Hann hafði unnið hjá fyrirtækinu að minnsta kosti í tíu ár, reyndar ekki hvern dag, en þegar hann mætti vann hann vel og var harður. Þegar hann mætti ekki, fékk hann einfaldlega ekki kaup, því hann vissi ekki að hann ætti rétt á læknis- vottorðum eins og aðrir. Hann bjó í litlu herbergi upp í risi á eldgömlu húsi. Einu sinni bauð hann mér heim til sín, eftir að ég hafði farið fyrir hann í Ríkið og keypt hálfa Martini, til hátíðabrigða frá bökunardropunum. Á meðan beið hann við húshorn, hundrað metrum fjær. En hann vildi endilega gjalda mér viðvikið. - Nu kommer vi 14

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.