Réttur


Réttur - 01.01.1985, Síða 20

Réttur - 01.01.1985, Síða 20
opinbera þjónustu og eftirláta hana einkarekstrinum og hinum frjálsa mark- aði. Ekkert er fjær lagi, ef menn vilja halda uppi því velmegunarstigi, sem við höfum náð. Þótt ekki henti alltaf að fara með tölur í svona erindi, má ég til með að bregða upp nokkrum tölum úr hagskýrslum OECD, sem eru upplýsandi fyrir þessa umræðu. Þegar samneyslutölur þjóða í helstu iðnríkjum heims eru bornar saman, kem- ur í ljós, að samneyslan er mest í Svíþjóð, 29%, og minnst í Japan, 10%, hvort tveggja miðað við verga þjóðarfram- leiðslu. Sem hópur í Evrópu eru Norðurlöndin efst með meðaltalssamneyslu um 23% og ísland þeirra neðst með tæp 19% og ligg- ur því í meðaltali Evrópuríkjanna. Allt eru þetta hundraðshlutföll af vergri þjóð- arframleiðslu 1981. Vegna langvinnrar umræðu hérlendis um „fjárlagagatið“ svonefnda, eru þær tölur forvitnilegar í hagskýrslum OECD, sem lúta að rekstrarútgjöldum hins opin- bera. Rekstrarútgjöld hins opinbera á íslandi 1981 námu 29% af vergri þjóðarfram- leiðslu. Á hinum Norðurlöndunum námu ríkisútgjöldin að meðaltali á sama ári 49% af vergri þjóðarframleiðslu. Við erum í rekstrarútgjöldum hins opinbera langt fyrir neðan Bandaríkin, Þýskaland, Frakkland, Bretland, Ítalíu, samkvæmt sömu viðmiðun. Meðaltalstala Efnahags- bandalagsríkjanna í rekstrarútgjöldum hins opinbera 1981 nam 46% af vergri þjóðarframleiðslu á meðan okkar hlut- fallstala var 29%. En mesta athygli vekja samanburðar- tölur úr þessum hagskýrslum, er lúta að opinbera geiranum í heild, þ.e. heildarút- gjöld ríkis og sveitarfélaga, rekstrarút- gjöld í þrengri merkingu, fjárfesting öll og allar fjármagnstilfærslur úr opinbera geiranum til einstaklinga. Slík heildarútgjöld á íslandi 1981 námu 36,6% af vergri þjóðarframleiðslu og er það ekki nema % af meðaltalshlutfalli hinna Norðurlandanna, sem var 53%. Sambærilegt hlutfall Efnahagsbandalags- ríkjanna var 50% að meðaltali eða rúm- lega þriðjungi meira en hér. Ég er að rekja þessar tölur af þeirri ástæðu einni, að þessar samanburðarstað- reyndir vilja gleymast í umræðunni, þar sem því er mjög einhliða haldið að fólki, að í samneyslu og umsvifum hins opin- bera séum við íslendingar komnir út yfir öll skynsamleg mörk. IV. Ég sagði í upphafi, að okkur hefði tek- ist býsna vel að byggja hér upp þjóðfélag á grundvelli samhjálpar og félagshyggju, þótt ýmislegt stæði enn til bóta. Svar mitt við fyrri spurningunni: Hverju þjónar sala ríkisfyrirtækja verður því á þá leið, að með hliðsjón af því sem ég hefi hér að framan rakið, þjónar sala ríkisfyrirtækja ekki framþróunartilgangi þjóðfélagsins og er því spor aftur á bak á íslandi. Nú er að vísu ekki hægt að setja öll ríkisfyrirtæki á sömu hilluna og gildir svarið því ekki um hvert einstakt þeirra, heldur þýðir svarið, að almennt vil ég ekki draga úr umsvifum ríkis og sveitarfé- laga og fá þjónustuhlutverk þessara aðila í hendur einkarekstrinum á frjálsmarkaðs- grundvelli. Þetta þarfnast frekari útskýr- inga. Til einföldunar er rétt að skipta fyrir- tækjum hins opinbera í tvo megin flokka, þar sem annar flokkurinn sinnir félags- 20

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.