Réttur


Réttur - 01.01.1985, Blaðsíða 30

Réttur - 01.01.1985, Blaðsíða 30
III. Er hugsjónin um „farsældar Frón“ og „frjálsa þjóð“ týnd og auð-tröllum gefin? 1942 hafði íslenskur verkalýður brotið gerðardómslög afturhaldsins á bak aftur með „skæruhernaðinum“, stórhækkað kaupgjald sitt svo gerbylting varð á lífskjörum hans, kveðið aldalanga áþján fátæktarinnar í kútinn og sýnt sig jafnsterkan auðmannastétt landsins í baráttunni. Hinn pólitíski sigur verkaiýðsins var svo festur í sessi um skeið með efnahagslegum ráðstöfunum 1944-47: nýsköpun íslensks atvinnulífs. En 1947 tók bandaríska auðvaldið til sín valdið í íslensku efnahagslífi með Marshalláætluninni og áratuga barátta við íslenska alþýðu var hafin. Yfirlýst takmark hins erlenda auðvalds var að svifta verkalýðinn mestöllu því, sem hann hafði áunnið sér síðan 1942. Jafnframt að koma á atvinnuleysi með banninu á hús- byggingum nema með leyfi hinna erlendu yfirboðara. Og með lögum, fyrirskipuð- um af amerísku yfirboðurunum, var doll- arinn, er verið hafði rúmar 6 kr. 1945, hækkaður í rúmar 16 kr. 1950. Ennfrem- ur var í 2. gr. frumvarps þess eins og það var lagt fyrir Alþingi, ákveðið að ef kaup verkalýðsins hækkaði skyldi dollarinn hækkaður að sama skapi.6 Þessa grein þorðu hinir nýju valdsmenn ekki að láta standa. Það átti bara að framfylgja henni og var gert dyggilega: dollarinn var úr 6 kr. 1945 kominn upp fyrir 600 kr. um 1980! — En eilíf barátta var háð um þessa amerísku fyrirskipun.7 Það var ekki fyrr en núverandi ríkisstjórn kom til valda og kom með bráðabirgðalögum á launakúg- un, fátækt, réttindasviftingum alþýðu og vægðarlausri gengislækkun, ef svarað var, — að níðingsskapurinn gagnvart fátækara launafólki var lög-festur á ný. Og nú á með endalausum hótunum að reyna að gera vinnandi íslendinga þá „minni menn“ að þeir þori ekki að skapa farsæld á Fróni á ný: drepa skal draum- inn, kæfa hugsjónina. — Svo hugsar rík- asta yfirstétt, sem á íslandi hefur lifað, — og ætlar sér að láta alþýðu borga erlendu skuldirnar, sem drottnarar hennar hafa steypt landinu í. Jóhannes úr Kötlum spurði eitt sinn í ljóðinu „Frelsi“, er hann hafði lýst fegurð landsins: „Og samt á hér að búa þýlynd þjóð og þræla, greiða auðsins drottni skatt, og bera enn á klakann list og ljóð og láta slokkna hjartans innstu glóð? — Vér spyrjum þá, sem braska með vort blóð: Var borguð með því skuldin? Er það satt?“ En það er ekki aðeins farsæld alþýðu, sem drepa skal. Draumurinn um frelsi lands og þjóðar skal fara sömu leið. Uppljóstun Archins um djúpsprengj- urnar 49 sýnir hvernig hervald Bandaríkj- anna tekur sínar ákvarðanir um ísland — og mun framkvæma þær, hvað sem nú- verandi skósveinar þess valds þykjast ætla að segja. Þeir hafa fyrr beygt sig fyrir 24 tíma úrslitakostum Kanans — og það meiri menn en Geir og Steingrímur. Það er ekkert ráð í þessum efnum, nema gera strax það, sem gera á: Reka herinn burt og segja ísland úr Nató — allt 30
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.