Réttur - 01.01.1985, Síða 57
manna og Sýrlands. Bandalag PLO,
þjóðlegu aflanna í Líbanon og Sýrlands
er ákaflega mikilvægt. Ágreiningur sá,
sem við og við stingur upp kollinum innan
þessa bandalags, verður ávalt að víkja
fyrir því sem er mikilvægast, baráttunni
gegn síonismanum og heimsvaldastefn-
unni.
Frelsisbarátta Palestínu — baráttan
gegn afturhaldinu í Líbanon — baráttan
í Mið-Ameríku, Suður-Ameríku, í
Suður-Afríku — barátta allra kúgaðra
þjóða fyrir frelsi og sjálfstæði mun bera
árangur að lokum. Bandaríska heims-
valdastefnan skal ekki komast upp með
að kúga okkur að eilífu. Við berjumst við
hlið ykkar, kommúnískra verka-
manna og framsækins fólks um allan heim, ,
gegn sama fjandmanni: Afturhaldinu —
Heimsvaldastefnunni.
NIÐUR MEÐ HEIMSVALDA-
STEFNUNA!!!
LIFI PALESTÍNA!!!
Frá þýðanda
Ræðan hér að framan var haldin sl.
sumar og til stóð að hún birtist í 3. hefti
Réttar í haust en vegna plássleysis hefur
hún orðið að bíða birtingar.
Mikið vatn hefur runnið til sjávar á því
rúma hálfa ári sem liðið er síðan ræðan
var haldin er hér verður látið nægja að
fjalla örfáum orðum um þróun þeirra
deilna innan PLO sem Samir minnist á í
ræðu sinni. Eins og þar kemur fram hefur
makk Arafats við Jórdaníukonung og
uppgjafarstefna hans, sem gengur þvert
á ákvarðanir Þjóðþings Palestínu og leið-
ir beint í fangið á Bandaríkjunum, mælst
illa fyrir hjá Palestínumönnum. Vinstri-
armur PLO ásamt hluta A1 Fatah krafðist
þess að Arafat yrði gerður ábyrgur gerða
sinna. Vinstriarminum var umhugað um
að bjarga einingunni innan PLO og vildi
ekki kveðja til þings fyrr en öll samtök
sem þar eiga sæti hefðu komist að sam-
komulagi.
Nú gerist það í nóvember að Arafat
tekur sér það bessaleyfi að efna til þings í
andstöðu við forseta þess Khaloum sem
skv. lögum á að kveðja það saman.
Arafat lét heldur ekki á sig fá að Khaloum
hafði í fórum sínum undirskriftalista með
nöfnun 177 þjóðþingsfulltrúa sem kváð-
ust ekki ætla að koma til þings en á þingi
eiga sæti 384 fulltrúar og verða % þeirra
að vera viðstaddir til að þingið sé ákvarð-
anahæft.
Ping Arafats var þannig á allan hátt
ólöglegt. Til þess mættu jáSræður hans úr
A1 Fatah ásamt Arabísku Frelsisfylking-
unni sem nýtur stuðnings íraks. Kusu þeir
sem kpmu til þings nýja menn í skörðin.
Ekki er að furða að vestrænir fjölmiðlar
gætu flutt þá frétt að þessi samkunda
stæði einhuga að baki Arafati.
Andstæðingar Arafats í A1 Fatah ætl-
uðu að efna til eigin „þjóðþings“ en vinstri-
öflunum innan PLO tókst að telja þá af
því. Samkvæmt Abu Khalil, alþjóðafull-
trúa PLFP, er ekki öll nótt úti enn:
„Arafatsamkundan kaus nýja fram-
kvæmdanefnd, nokkurs konar daglega
forustu PLO. En aðeins ellefu þeirra
fjórtán fulltrúa sem þar eiga sæti voru
kosnir. Þrjú sæti voru skilin eftir auð og
þess farið á leit að þar tækju sæti fulltrúar
frá PFLP, DFLP og A1 Saiqa.
Til er arabískur málsháttur sem segir
að svo lengi sem glufa sé á glugga hátt á
vegg sé ekki öll von úti. Við reynum að
halda þessari glufu opinni, leitumst við að
finna lausn á deilunum, koma á einingu
innan PLO og bjarga byltingunni.“
57