Fréttablaðið - 18.03.2009, Page 22
SUÐURPÓLSFARAR sem fóru á fjórum breyttum
Toyota Hilux-jeppum frá Arctic Trucks á pólinn segja
ferðasögu sína og sýna myndir í kvöld klukkan 20 í
húsakynnum Arctic Trucks að Kletthálsi 3.
Gönguskíðaferð á vegum Ferðafé-
lags Akureyrar verður farin um
helgina í Flateyjardal og gist eina
nótt. „Við leggjum af stað á laug-
ardagsmorgun 21. mars frá Akur-
eyri og keyrum í Dalsmynni að
bænum Þverá þar sem farið verð-
ur á skíðin og gengið inn í Heiðar-
hús,“ útskýrir Helga Guðnadóttir
en hún hefur annast fararstjórn
hjá Ferðafélagi Akureyrar.
Alls er gangan 40 kílómetr-
ar fram og til baka en Heiðarhús
liggja um miðja vegu í dalnum.
Helga segir ferðina geta hentað
flestum. „Þarna verður ekki geng-
ið á mikinn bratta þannig að ferðin
er þægileg þó hún sé löng. Ef fólk
er að byrja á gönguskíðum gæti
þetta kannski verið fulllöng ferð,
en annars hentar hún hverjum sem
er. Við áætlum aðra helgarferð að
Eilífsvötnum þar sem gist verður í
Hlíðarhaga og Þeistareykjum. Það
er lengri ferð og þá fyrir vanara
skíðafólk, en flestar okkar ferðir
eru fyrir fólkið af götunni.“
Helga segir dagskrána í vetur
hafa gengið vel. Sjaldan hefur
þurft að aflýsa ferðum en dagskrá-
in er alltaf háð veðri og vindum.
„Við reynum að hafa vissan fjölda
af helgarferðum þar sem við gist-
um í skála. Við verðum svo allt-
af að meta það á föstudagskvöldi
hvort hægt er að fara í ferðirn-
ar en það hefur gengið mjög vel í
vetur. Færið hefur verið alla vega
en aðsóknin mjög góð og allar ferð-
irnar gengið vel. Síðustu helgi fór
til dæmis fimmtán manna hópur á
skíðum yfir í Þelamörk í góðu færi
og endaði í heita pottinum þar.“
Í Ferðafélagi Akureyrar eru um
500 félagsmenn og heldur félag-
ið úti fjölbreyttu starfi árið um
kring. Fararstjórar í ferðum koma
úr röðum féagsmanna en allt starf
er unnið í sjálfboðavinnu. Um
Norðurlandið hefur félagið gisti-
og gönguskála á sínum vegum sem
félagsmenn og aðrir ferðamenn
geta nýtt sér. „Við erum með skála
meðal annars í Laugarfelli upp af
Eyjafirði og skálana Dyngjufell
og Botna á Ódáðahraunssvæðinu.
Bræðrafell er vestur af Herðu-
breið og einnig erum við með skála
í Herðubreiðarlindum. Allir geta
notað þessa skála en það þarf þó
að hafa samband við okkur og skrá
sig.“
Nánar er hægt að forvitnast um
dagskrá Ferðafélags Akureyrar á
heimasíðu félagsins www.ffa.is og
skrá sig í ferðina um helgina.
heida@frettabladid.is
Gengið að Heiðarhúsum
Snjóað hefur duglega undanfarna daga og vikur og því fagnar skíðaáhugafólk. Ferðafélag Akureyrar
stendur fyrir fjölbreyttum helgarferðum og verður gengið á skíðum í Flateyjardal um helgina.
Ferðir Ferðafélags Akureyrar hafa verið vel sóttar í vetur.
Hvannadalshnjúkur 2110 m
Bárðarbunga 2000 m
Kverkfjöll 1920 m
Snæfell 1833 m Herðubreið 1682 m
Hekla 1488 m
Snæfellsjökull 1446 m
Esja 914 m
Loðmundur 1477 m
Hraundrangi 1075 m
Bláfell 1204 m
Hengill 803 m
Ármannsfell 768 m
Valahnjúkur 458 m
Esja 914 m
Helgafell 338 m
Vífilsfell 677 m
Stóra-Dímon 178 m
Drangaskörð 250m
Kerling 1538 m
Mælifellshnjúkur 1138 m
Bláhnjúkur 940 m
Hornbjarg 534 m
Keilir 379 m
Öskjuhlíð 61 m
Skráðu þau fjöll sem þú gengur á í Fjallabók FÍ.
Í lok árs eru veittar viðurkenningar fyrir hverja fjallabók sem
þú hefur fyllt út og ferðafélagi hefur staðfest með undirskrift.
SKRÁÐU ÞIG INN – DRÍFÐU ÞIG ÚT!
SAFNAÐU
FJÖLLUM
MEÐ FERÐAFÉLAGI ÍSLANDS