Fréttablaðið - 18.03.2009, Síða 42
22 18. mars 2009 MIÐVIKUDAGUR
sport@frettabladid.is
Íslenska landsliðið í handknattleik á fyrir höndum erfitt verkefni í
kvöld er liðið mætir sterku liði Makedóniu í Skopje. Leikurinn er
liður í undankeppni EM 2010.
Íslenska liðið á harma að hefna gegn Makedónum í Skopje
eftir að liðið var kjöldregið þar síðasta sumar með átta marka
mun. Fyrir vikið komust strákarnir okkar ekki á HM í Króatíu.
Þvi hefur Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari ekki
gleymt.
„Við erum sko ekki búnir að gleyma þessum leik og
eigum harma að hefna,“ sagði Guðmundur en hann
mætir með talsvert veikara lið til leiks núna enda
liðið án fjölda lykilmanna.
Nú síðast gengu þeir Logi Geirsson og Einar Hólm-
geirsson úr skaftinu og svo var Sigurbergur Sveins-
son að togna í baki til að bæta gráu ofan á svart.
„Við erum búnir að ganga í gegnum ýmislegt. Þessi
meiðslahrina ætlar engan enda að taka. Við verðum
samt að gera það besta úr þessu. Ég geri mér grein
fyrir því að þetta verður mjög erfitt og við verðum að
eiga toppleik til þess að eiga möguleika. Þetta er gott lið sem
stóð sig vel á HM. Þeir eru náttúrlega sérstaklega erfiðir heim
að sækja og það þekkjum við vel. Við ætlum að selja okkur
dýrt,“ sagði Guðmundur sem leggur mikla áherslu á varnar-
leikinn.
„Vörnin verður að vera í lagi. Ég stilli líklega upp með 6/0-vörn
í upphafi leiks og ég vonast til þess að við náum mörgum
hraðaupphlaupum. Við munum reyna að keyra á þá og
létta á sóknarleiknum hjá okkur. Við verðum að gera
okkur grein fyrir okkar möguleikum og þeir liggja
þarna meðal annars. Vörn og markvarsla verður
samt að vera í lagi ef þetta á að ganga upp,“ sagði
Guðmundur.
„Ástandið á Snorra er þokkalegt en hann er að
spila sig í form þó svo hnéð sé að trufla hann.
Guðjón Valur er kominn í ágætt form sem er
ánægjulegt. Við erum samt raunsæir fyrir leikinn
og munum gera allt sem við getum til þess að ná
hagstæðum úrslitum,“ sagði Guðmundur.
GUÐMUNDUR GUÐMUNDSSON: LANDSLIÐSÞJÁLFARINN RAUNSÆR FYRIR LEIKINN Í SKOPJE Í DAG
Við verðum að eiga toppleik til að eiga möguleika
SENDU SM
S ESL KSV
Á NÚMER
IÐ 1900
- ÞÚ GÆTI
R UNNIÐ B
ÍÓMIÐA!
VINNINGAR:
BÍÓMIÐAR, T
ÖLVULEIKIR,
DVD MYNDIR
, GOS OG MA
RGT FLEIRA!
F R U M S Ý N D 2 0 . M A R S
ÆSISPENNANDI ÞRILLER MEÐ DIANE LANE
OG MICKEY ROURKE Í AÐALHLUTVERKUM!
WWW.SENA.IS/KILLSHOT
9. HVER
VINNU
R!
Vinningar verða afhendir hjá ELKO Lindum
Skógarlind 2. M
eð því að taka þátt er tu kom
inn í SM
S klúbb. 149 kr/skeytið.
Iceland Express deild karla:
Njarðvík - Keflavík 92-104
Stig Njarðvíkur: Logi Gunnarsson 25, Heath
Sitton 24, Magnús Gunnarsson 22, Friðrik Stef-
ánsson 7, Hjörtur Einarsson 5, Grétar Garðarsson
4, Sævar Sævarsson 3, Fuad Memcic 2.
Stig Keflavíkur: Jesse Rosa 44, Sigurður
Þorsteinsson 20, Gunnar Einarsson 14, Hörður
Axel Vilhjálmsson 12, Sverrir Sverrisson 8, Jón
Hafsteinsson 5, Elvar Sigurjónsson 1.
Breiðablik - KR 75-102
Stig Breiðabliks: Nemanja Sovic 34, Emil
Jóhannsson 11, Rúnar Erlingsson 10, Kristján
Sigurðsson 8, Hraunar Guðmundsson 7, Hjalti
Vilhjálmsson 3, Ágúst Orrason 2.
Stig KR: Jakob Sigurðarson 20, Fannar Ólafss. 14,
Jón A. Stefánsson 13, Pálmi Sigurgeirss. 10, Helgi
Magnússon 10, Darri Hilmarsson 9, Skarphéðinn
Ingason 8, Jason Dourisseau 8, Brynjar Björnsson
5, Ólafur Ægisson 3, Baldur Ólafsson 2.
Iceland Express-deild kvk:
Hamar - Haukar 65-59
Stig Hamars: Íris Ásgeirsd. 17, L. Barkus 15, J. Dem-
irer 12, Jóhanna Sveinsd. 6, Fanney Guðmundsd.
6, Dúfa Ásbjörnsd. 6, Sóley Guðgeirsd. 3.
Stig Hauka: Kristrún Sigurjónsd. 24, M. Knight
13, Telma Fjalarsd. 12, Ragna Brynjarsd. 9, Sara
Pálmad. 4, S. Dimovska 4, Helena Hólm 2, Kristín
Reynisd. 1.
Enska bikarkeppnin
Arsenal - Hull 2-1
0-1 Nick Barmby (13.), 1-1 Robin van Persie (74.),
2-1 William Gallas (84.)
Enska B-deildin
Doncaster - Reading 0-1
Brynjar Björn Gunnarsson lék allan leikinn fyrir R.
Ipswich - Burnley 1-1
Jóhannes Guðjónsson kom inn sem varamaður.
QPR - Swansea 1-0
Heiðar Helguson kom inn sem varamaður (QPR)
ÚRSLIT
FÓTBOLTI Í gær var dregið í undan-
keppni HM í knattspyrnu kvenna
sem fer fram í Þýskalandi 2011.
Ísland lenti í riðli með Frakk-
landi, Serbíu, Norður-Írlandi,
Króatíu og Eistlandi. Ísland var
einnig með Frakklandi í riðli í
undankeppni EM 2009 og liðin
verða einnig í sama riðli í úrslita-
keppninni í Finnlandi í sumar. - esá
Undankeppni HM 2011:
Aftur Frakkar
KÖRFUBOLTI KR er komið í undanúr-
slit úrslitakeppni Iceland Express-
deildar karla eftir sigur á Breiða-
bliki í gærkvöldi, 102-75, og þar
með 2-0 í einvígi liðanna í fjórð-
ungsúrslitum.
Blikar hófu leikinn af miklum
krafti og settu niður fimm þrista á
fyrstu mínútunum. Það dugði þeim
til að ná átta stiga forystu að lokn-
um fyrsta leikhluta, 30-22.
En KR skellti þá í lás og Blik-
ar skoruðu ekki nema fimm stig í
öllum öðrum leikhluta á meðan að
KR skoraði 31. Þar með var ljóst í
hvað stefndi og sigur KR aldrei í
hættu í síðari hálfleik.
„Við förum inn í sumarfríið á
þessum fyrsta leikhluta,“ sagði
Einar Árni Jóhannsson, þjálfari
Breiðabliks, eftir leik. „En það var
ljóst að við vorum að spila við lang-
besta lið landsins hér í kvöld og ég
er stoltur af þessum strákum. Við
erum nýliðar og með litla reynslu
í þokkabót. Þar að auki vorum við
án þriggja lykilmanna í kvöld.“
Hann sagðist því ánægður með
tímabilið í heild sinni. „Miðað við
tjónið á mannskapnum get ég ekki
kvartað. Við vorum nánast aldrei
með fullmannað lið.“
Fannar Ólafsson sagði lið Breiða-
bliks ungt og efnilegt en ljóst að
leikmenn hafi mætt ofjörlum sínum
að þessu sinni. „Þeir mættu betur
undirbúnir til leiks en við og við
vorum værukærir í byrjun. En við
vissum að um leið og við myndum
„kveikja á“ okkar leik myndum við
klára þetta – ég verð að vera alveg
hreinskilinn með það.“ - esá
KR í undanúrslitin eftir sigur á Breiðabliki:
Blikar lítil fyrirhöfn
20 STIGA MAÐUR Jakob Sigurðarson var stigahæstur KR-inga í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
> Haukar í úrslitin
Haukar tryggðu sér í gær sæti í úrslitum úrslitakeppni
Iceland Express deildar-kvenna eftir sigur
á Hamar í Hveragerði í gær, 69-65. Hamar
leiddi með fjórtán stiga mun í hálfleik en
deildarmeistararnir létu til sín taka í síðari
hálfleik og náðu yfirhöndinni þegar
tæpar þrjár mínútur voru til leiksloka.
Kristrún Sigurjónsdóttir skoraði 24
stig fyrir Hauka sem mæta KR í
úrslitunum.
KÖRFUBOLTI Arfaslakur fyrri hálf-
leikur var Njarðvíkingum dýr í
gær þegar þeir máttu bíta í það
súra epli að falla úr úrslitakeppn-
inni gegn erkifjendum sínum úr
Keflavík, 2-0. Keflavík vann leik-
inn með tólf stiga mun, 104-92.
Skotsýning heimamanna í síðari
hálfleik dugði ekki og Njarðvík-
ingar komnir í sumarfrí snemma.
„Ætli þetta hafi ekki verið
kvennalið Njarðvíkur, svona með
fullri virðingu fyrir þeim,“ sagði
Magnús Gunnarsson þegar Frétta-
blaðið spurði hann út í fyrri hálf-
leikinn hjá Njarðvíkingum í gær.
„Menn vinna ekki leik ef þeir spila
svona í tuttugu mínútur og það er
ömurlegt bæði fyrir mig og Njarð-
víkinga að falla úr leik fyrir Kefla-
vík,“ bætti Magnús við svekktur,
en hann lék áður með Keflavík.
Njarðvíkingar voru með bakið
uppi að vegg fyrir leikinn og þurftu
nauðsynlega á sigri að halda eftir
tap í fyrsta leiknum. Heimamenn
mættu hins vegar ískaldir til leiks
og fyrri hálfleikurinn var eign
Keflavíkurliðsins frá a til ö. Sig-
urður Þorsteinsson og Jesse Rosa
fóru mikinn í liði Keflavíkur og
staðan var 58-34 í hálfleik.
Varnarleikur Njarðvíkurliðs-
ins var slakur í fyrri hálfleik og
sóknarleikurinn virkaði á löngum
köflum vandræðalegur. Það var
því eins og allt annað lið mætti til
leiks í þeim síðari. Þeir Magnús
Gunnarsson, Heath Sitton og Logi
Gunnarsson settu á svið skotsýn-
ingu og þar náðu heimamenn að
minnka muninn í sex stig þegar
skammt var eftir, en Jesse Rosa
var frábær í liði Keflavíkur og
framlag hans í sókninni reynd-
ist liðinu ómetanlegt. Keflvíking-
ar lönduðu verðskulduðum sigri
104-92 og verða að teljast til alls
líklegir með svona spilamennsku.
Sigurður Ingimundarson, þjálfari
Keflavíkur, tekur undir það.
„Þetta var frábær körfubolta-
leikur. Við vorum góðir í fyrri
hálfleik en slakir í þeim síðari
þegar þeir duttu í þetta svaka-
lega stuð. Magnús (Gunnarsson)
var farinn að setja skotin niður
utan af Sunnubrautinni og því má
kannski segja að við höfum verið
dálítið heppnir að sleppa héðan
með sigur. Þessi leikur gefur góð
fyrirheit fyrir úrslitakeppnina og
við getum spilað betur en þetta,“
sagði Sigurður. baldur@365.is
Slæmur fyrri hálfleikur felldi Njarðvík
Keflvíkingar komust í gær í undanúrslit Iceland Express-deildar karla með 104-92 sigri á grönnum sínum í
Njarðvík í annarri viðureign liðanna í Ljónagryfjunni í Njarðvík. Keflavík mætir KR eða Grindavík næst.
GÓÐ VIÐBÓT
Bandaríkjamaðurinn Jesse Pelot-Rosa
hefur verið lykilmaður í liði Keflavíkur
í einvíginu gegn Njarðvík. Hann fór á
kostum í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/JÓN BJÖRN
FÓTBOLTI Arsenal tryggði sér í
gær sæti í undanúrslitum ensku
bikarkeppninnar með 2-1 sigri
á Hull í gærkvöldi. Liðið mætir
Chelsea í undanúrslitunum.
Hull komst yfir snemma leiks
með marki Nick Barmby en Ars-
enal skoraði tvívegis á síðustu
sextán mínútum leiksins. Sigur-
markið skoraði William Gallas en
það þótti umdeilt þar sem hann
virtist rangstæður þegar hann
skoraði markið. - esá
Enska bikarkeppnin:
Arsenal áfram
BARÁTTA Robin van Persie og Nick
Barmby berjast um boltann. GETTY IMAGES