Fréttablaðið - 18.03.2009, Side 48
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
BAKÞANKAR
Jóns Sigurðar
Eyjólfssonar
Í dag er miðvikudagurinn 18.
mars, 77. dagur ársins.
7.35 13.36 19.38
7.20 13.21 19.23
Þegar ég var ungur drengur vestur á fjörðum fannst mér
ég eiga ráð undir rifi hverju þegar
lífið sneri verri hliðinni að mér.
Ég brást oft hinn versti við þegar
óréttlætið varð á vegi mínum og
ef svo bar undir fór ég í rógsferð
mikla gegn þeim sem sýndu mér
óréttlæti. Það bar ekki nógu skjót-
fengan árangur svo ég brá einnig
á það ráð að svara líku með líku og
svindlaði eins og ég frekast gat á
svindlurunum. Knattspyrnuleik-
ir gátu orðið afar skoplegir þegar
þannig bar við þar sem hendur
urðu að fótum og mörkin, sem
voru samansett af tveimur stein-
um, stækkuðu og minnkuðu eftir
því hver átti í hlut.
ÞAÐ versta var að þegar ég ætl-
aði svo að fara að gera hlutina upp
við svindlarana og bera upp á þá
svindlið þá var ég náttúrlega löngu
orðinn sekur um hið sama. Jafnvel
eitthvað verra því það er erfitt að
hætta svindlinu þegar byrjað er á
því. Oftast fóru nú þessi leikir vel
fram enda ekki oft sem óréttlætið
rataði í leik okkar þarna á Slökkvi-
liðstúninu. Enda voru aðstæður
nógu erfiðar við að eiga svo það
var ekki á það bætandi að þurfa að
glíma við óréttlætið líka.
EN svona getur þessi heilaga reiði
ruglað réttlætiskennd manna en
þetta kom ekki fyrir mig á full-
orðinsárum fyrr en mér þótti lýð-
ræðið eiga undir höggi að sækja.
Þá stofnaði ég flokk og sendi frá
mér fréttatilkynningu:
„Ég krefst þess, sem formaður
Flokks lýðræðissinna Íslands, að
ég fái tafarlaust að fara í Kast-
ljósið að kynna málefni flokks-
ins. Einnig krefst ég þess að Þóra
Tómasdóttir verði ekki viðstödd
útsendinguna svo að karlmenn
taki einnig eftir því sem ég hef
að segja. Ég mun líka nýta ferð-
ina upp í Efstaleiti til að segja
Páli Magnússyni útvarpsstjóra
upp störfum þar sem hann hefur í
engu hlýtt fyrirmælum mínum og
tilmælum undanfarin misseri.
ÉG tilkynni hér með að Sigurður
Marías Sigurðsson hefur verið val-
inn í annað sæti flokksins í Norð-
vesturkjördæmi. Ég, sem efsti
maður á lista, hef tekið ákvörðun
um þetta erfiða mál. Hann verður
nú, gjör oss svo vel, að hafa uppi
í hvívetna kjörorð flokksins „Lýð-
ræði öllu ofar“.“
ÞEGAR ég hafði sent fréttatil-
kynninguna frá mér kom yfir
mig sama tilfinningin og þegar
ég skoraði með hendinni.
Lygasaga
um lýðræði
„Veita
persónulega
ráðgjöf.“ Kona, 39 ára.
Í dag, miðvikudag, sitja ráðgjafar
okkar lengur við símann.
Ráðgjafar Eignastýringar, Almenna lífeyrissjóðsins og
Fjármögnunar svara spurningum ásamt ráðgjöfum
Íslandsbanka.
Hringdu í okkur á milli kl. 17 og 21
í síma 440 4000.
Getum við aðstoðað?
Frá því í nóvember höfum við kallað eftir skoðunum viðskiptavina í
útibúum og á heimasíðu okkar um það hvernig þeir vilji að nýr banki
starfi. Við notum þessar ábendingar til að móta nýjan banka.
Á islandsbanki.is getur þú einnig pantað fjármála-
viðtal þar sem við bjóðum þér að setjast niður með
okkur og fara ítarlega yfir stöðuna.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
0
8
-2
2
5
4
Opið 07 til 02
Lyfja Lágmúla
- Lifið heil
www.lyfja.is