Fréttablaðið - 27.03.2009, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 27.03.2009, Blaðsíða 6
6 27. mars 2009 FÖSTUDAGUR ■ Sendið umboðsmanni neytenda ábendingar eða sparnaðarráð á neytendur@ frettabladid.is DR. GUNNI neytendur@ frettabladid.is Gorenje ísskápur RK60358DBK Svört hönnun. Nýtanlegt rými kælis 230 l. Nýtanlegt rými frystihófs 86 l. Hljóðstig 40 dB(A). Hæð: 180 cm. Tilboð 115.900 Gorenje ísskápur Reykjavík . Borgartún 24 . Sími 562 4011 Akureyri . Draupnisgata 2 . Sími 460 0800 Reyðarfjörður . Nesbraut 9 . Sími 470 2020 Reykjanesbær . Hafnargata 52 . Sími 420 7200 Stilling hf. • Sími 520 8000 • www.stilling.is • stilling@stilling.is Demparar Í Fjölsmiðjunni við Kópa- vogsbraut starfa um sjötíu krakkar við ýmis störf. Krakkarnir standa á kross- götum og eru að fóta sig á ný í tilverunni, meðal ann- ars með starfsþjálfun. „Við erum með bílaþvottastöð og vinnum helst bara með umhverfisvæn efni,“ segir Halldór Hafdal deildarstjóri. „Við bjóðum upp á alþrif á bílum á mjög góðu verði. Bílarnir eru teknir algjör- lega í gegn og líta út eins og nýir þegar þeir koma héðan eftir þriggja tíma nostur. Við bjóðum líka upp á að bílarnir séu sóttir út í bæ.“ Halldór segir mikla aðsókn í alþrifin og að öll næsta vika sé bókuð. Í Fjölsmiðjunni er einnig boðið upp á ýmsa aðra þjón- ustu, til dæmis pökkun og tölvuþjónustu. „Það eru ein- tómir snillingar sem starfa við tölvuviðgerðirnar og fátt sem þeir geta ekki lagað,“ segir Halldór. Hann bætir við að fólk sé ekki einungis að styðja gott málefni þegar það leitar til Fjölsmiðjunnar, heldur sé það líka að fá þjón- ustu á því sem hann kallar „kreppublúsverðlagi“. Nán- ari upplýsingar er að finna á heimasíðu Fjölsmiðjunnar, www.fjolsmidjan.is. STJÓRNMÁL Grétar Berndsen, eig- andi veitingastaðarins Óðals, varar við því að nektardans verði bann- aður með lögum eins og gert er ráð fyrir í aðgerðaáætlun stjórnvalda gegn mansali. „Verði það gert er ljóst að í upp- siglingu er skaðabótamál af hálfu allra þeirra aðila og einstaklinga sem verða fyrir tjóni af þeim sökum og myndu bótakröfurn- ar geta numið að minnsta kosti hundruðum milljóna króna,“ segir Grétar í bréfi sem hann hefur sent alþingismönnum. Grétar bendir á þann þátt aðgerðaáætlunarinnar þar sem segir að girða eigi fyrir undan- þágumöguleika í lögum þannig að nektarstaðir verði alfarið bann- aðir. „Er beinlínis gefið í skyn, án nokkurs rökstuðnings, að slík alvarleg lögbrot eigi sér stað á mínum veitingastað“, segir í bréfi Grétars sem kveður meðal ann- ars bæði Ragnheiði Ástu Jóhann- esdóttur félagsmálaráðherra og Atla Gíslason alþingismann rang- lega hafa bendlað nektardansstaði við glæpastarfsemi. „Ásakanir sem þessar eru með öllu ólíðandi fyrir starfsfólk Óðals, sérstaklega í ljósi þess að engin rannsókn hefur sýnt fram á að mansal eða vændi hafi verið stundað af starfsfólki staðarins,“ skrifar Grétar. Grétar segir rangt sem full- yrt hafi verið að undanþágu fyrir nektardans hafi verið „laumað“ í gegnum Alþingi. „Umræddri undanþágu var ekki laumað inn heldur var hún sett inn til þess að tryggja að staðir sem áður voru skilgreindir sem næturklúbbar gætu haldið starfsemi áfram.“ Þá hvetur Grétar þá sem um þessi mál fjalla til að hafa það í huga að starfsmenn og eigendur umræddra veit- ingahúsa eigi börn í skólum og séu hluti samfé- lagsins. Með því að væna þetta fólk um alvarleg lögbrot sé vegið að heiðri þeirra og líf þeirra jafnvel rústað. „Ekki má held- ur gleyma þeim fjölda fyrrver- andi dansara sem starfað hafa hjá Óðali og hafa kvænst á Íslandi og eiga börn í íslenskum skólum. Það getur varla verið gaman fyrir þær núna þegar fjallað er um þær með þessum ósæmilega hætti í fjöl- miðlum.“ Að sögn Grétars er mikilvægt að smekkur eða viðhorf sumra skerði ekki frelsi annarra til athafna eins og fjölmörg dæmi séu um í sög- unni. „Siðapostular hafa í gegnum tíðina viljað banna allt milli himins og jarðar vegna þess að það sam- ræmdist ekki þeirra eigin smekk eða siðferðisvitund.“ Að sögn Grétars hefur hann engin viðbrögð fengið frá alþingis- mönnum. Allsherjarnefnd Alþing- is afgreiddi í gær frumvarpið með nektardansbanninu og bíður það frekari meðferðar þingsins. gar@frettabladid.is Vill hundruð milljóna fyrir nektardansbann Eigandi Óðals sakar alþingismenn um rangfærslur með því að tengja íslenska nektardansstaði við mansal og aðra glæpastarfsemi. Hann segir að verði nekt- ardans bannaður með lögum stefni í skaðabótamál upp á hundruð milljóna. GRÉTAR BERNDSEN ERÓTÍSKUR DANS Eigandi Óðals segir engin gögn sýna að mansal eða vændi sé stundað á staðnum. Atvinnuréttindi og lifibrauð tuga kvenna og karla séu borin fyrir borð verði nektardans bannaður. MYND/AFP NORDICPHOTO Auglýsingasími – Mest lesið Neytendur: Gott málefni og kreppublúsverðlag Ýmis þjónusta hjá Fjölsmiðjunni Er í lagi að foreldrar kaupi áfengi fyrir 18 eða 19 ára börn sín? Já 53,6% Nei 46,4% SPURNING DAGSINS Í DAG: Finnst þér í lagi að hægt sé að kaupa fjórhjól fyrir börn frá þriggja ára aldri? Segðu þína skoðun á vísir.is SAMGÖNGUR Aldrei hefur jafn mikið verið flutt af fiski með ferjunni Baldri en í þessari viku. Hátt í 600 tonn fóru með henni yfir Breiða- fjörðinn frá mánudegi til miðviku- dags. „Venjulega hafa tveir flutninga- bílar komið í hverri ferð en síðustu daga höfum við tekið fimm í ferð,“ segir Unnar Valby Gunnarsson, skipstjóri á ferjunni. Sigurður Viggósson, fram- kvæmdastjóri Odda á Patreks- firði, og Guðjón Indriðason, framkvæmdastjóri Þórsbergs á Tálknafirði, segja að nú þegar meira þurfi að hafa fyrir sölunni fari stærri fiskfarmar loks þegar sala næst. „Og síðustu vikurnar hefur aðeins verið að losna um tregðuna hjá kaupendum,“ segir Sigurður. Hann segir enn frem- ur að ef Breiðafjarðarferjunnar nyti ekki við væri löngu búið að loka í Odda. „Kaupendur vilja fá vöruna strax og þeir spyrja ekk- ert hvort fært sé yfir Kletthálsinn eða ekki.“ Báðir segja þeir það í raun nógu hamlandi að þurfa að stíla inn á áætlanaferðir ferjunnar, tími sé til kominn að Vestfirðingar fái að njóta heilsárs vegsamgangna, álíka þeim sem eru annars stað- ar á landinu. „Fyrst var vega- framkvæmdum frestað vegna fjárskorts, síðan vegna þenslu og nú aftur vegna kreppu þannig að það er ekki gott að segja hvenær við fáum að njóta þessara þæg- inda sem þekkjast annars staðar á landinu,“ segir Guðjón. - jse Fiskútflytjendur á Vestfjörðum langþreyttir á lélegum vegsamgöngum: Aldrei fleiri fiskar yfir fjörðinn BALDUR Ef ferjunnar nyti ekki við væri búið að loka Odda segir framkvæmda- stjórinn. SKIPULAGSMÁL Hópur sem stendur fyrir söfnun undirskrifta meðal Hafnfirðinga stefnir enn að því að safna nógu mörgum nöfnum til að knýja fram nýja íbúa- kosningu um deiliskipulag fyrir stækkun álversins í Straumsvík. Að sögn Gylfa Ingvarssonar, for- svarsmanns söfnunarinnar, var 570 undirskriftum af rúmlega 5.000 hafnað af bæjaryfirvöldum. Fjórðung atkvæðisbærra bæj- arbúa þurfti til að fá fram nýja kosningu. Það svari til á milli 4.500 og 4.600 manna. Ætlunin sé að safna um 250 undirskriftum til viðbótar. Gylfi segir að farið verði yfir stöðuna í næstu viku. - gar Endurtekin íbúakosning: Undirskriftum enn safnað KJÖRKASSINN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.