Fréttablaðið - 27.03.2009, Blaðsíða 31
FÖSTUDAGUR 27. MARS 2009 5
BIOVÖRUR
geðhjálp ●
VINNUSTOFA SÍBS • Hátúni 10c • SÍMI 5628500 • WWW.MULALUNDUR.IS
löndunum verða kynnt en fyrirles-
arar koma frá Norðurlöndunum og
Evrópu. Frummælendur verða:
Tor-Johan Ekeland, prófessor við
háskólann í Volda í Noregi, Kristi-
an Wahlbeck, prófessor við THL-
National Institute for Health and
Welfare í Finnlandi og Danuta
Wasserman, prófessor við Karól-
ínsku stofnunina í Svíþjóð, en hún
fékk meðal annars norrænu lýð-
heilsuverðlaunin árið 2008 fyrir
árangursríkt starf gegn geðsjúk-
dómum og sjálfsvígum.
Alain Topor, prófessor við
Stokkhólmsháskóla, kemur einnig
fram en Topor hefur áður flutt er-
indi hérlendis. Topor vann meðal
annars að því að afstofnanavæða
geðheilbrigðiskerfið í Svíþjóð og
kom á þróun samfélagslegra úr-
ræða og einstaklingsmiðaðrar um-
önnunar. Einnig tala á ráðstefn-
unni Roberto Mezzina, stjórn-
andi WHO Collaborating Centre
í Trieste á Ítalíu og Karin Rings-
berg og Stefan Thorpenberg próf-
essorar frá Svíþjóð.
Nánari upplýsingar er að finna
á vef Geðhjálpar, www.gedhjalp.
is og þar er hægt að skrá þáttöku
á ráðstefnuna allt til 5. apríl. - rat
S kilgreining Alþjóðaheilbrigðismálastofnunar (WHO) á heilbrigðum einstaklingi er eftirfarandi: Einstaklingur sem býr við líkamlega,
andlega og félagslega vellíðan.
Forsendur fyrir slíkri vellíðan er geta einstaklingsins til að mæta
kröfum umhverfisins og uppfylla eigin þarfir og væntingar. Almennt
er talað um mikilvægi þess að huga að heilsunni og þegar við heyrum
það hugsum við flest um líkamlega heilsu. Geðheilbrigði er hluti af
almennu heilbrigði, en það fær oft litla umfjöllun, bæði á opinberum
vettvangi og samtölum fólks.
GÓÐ GEÐHEILSA EINKENNIST AF ÞVÍ AÐ:
● hafa jákvæða sjálfsmynd
● vera virk(ur) og nota bjargráð sín
● taka sjálfstæðar ákvarðanir
● einangra sig ekki
● vera rauntengdur með getu til samhygðar
● geta tengst djúpum tilfinningaböndum
Geðraskanir, sem eru raskanir á geðheilbrigði, eru algengar og hafa
fylgt mannkyninu frá örófi alda. Meðferð, hugmyndafræði og viðhorf til
geðraskana tengjast menningu og aðstæðum hverju sinni.
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin telur að 22-24 prósent Vesturlanda-
búa þjáist af geðheilbrigðisvanda einhvern tíma á ævinni. Geðraskanir
kosta íslensku þjóðina um 30 milljarða á ári hverju ásamt því að höggva
stór skörð í mannauð þjóðarinnar.
Upplýsingar um geðraskanir má finna á www.gedhjalp.is/content/
view/68/
Tekið af vefsíðu Geðhjálpar. Unnið upp úr efni frá Guðbjörgu
Sveinsdóttur geðhjúkrunarfræðingi.
Um geðheilbrigði
Góð geðheilsa einkennist meðal annars af virkri þátttöku í samfélaginu.
FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
ðir við geðheil-
jónustu kynntar
Ráðstefnan verður sett miðvikudaginn
6. maí á Hótel KEA á Akureyri. Næstu tvo
daga verða haldnir fyrirlestrar og fund-
að í vinnuhópum þar sem leitað verður
nýrra leiða að fyrirmyndarþjónustu í
geðheilbrigðismálum. MYND/BJARNI EIRÍKSSON
Danuta Wasserman, prófessor við Karól-
ínsku stofnunina í Svíþjóð, flytur erindi
á ráðstefnunni en hún hlaut norrænu
lýðheilsuverðlaunin 2008 meðal annars
fyrir fyrirbyggjandi starf gegn sjálfsvíg-
um tengdum geðsjúkdómum.
MYND/EVA WERNLID