Fréttablaðið - 27.03.2009, Blaðsíða 24
2 föstudagur 27. mars
núna
✽ algjör snyrtipinni
Útgáfufélag 365 miðlar ehf. Forsíðumynd Valgarður Gísla-
son Útlitshönnun Kristín Agnarsdóttir Auglýsingar Sigríður
Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is sími 512 5462
Föstudagur Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000
JÓHANNES HAUKUR JÓHANNESSON LEIKARI
„Ég er að fara að leika í Fló á skinni í Borgarleikhúsinu, en sýningar nálgast nú
að vera 150 talsins. Svo er bara að vakna, borða og sofa og undirbúa
mig fyrir helgi leikarans sem er mánudagur og þriðjudagur.“
helgin
MÍN
Ég ætlaði mér alltaf að stofna nýtt vörumerki, en bjóst
kannski ekki alveg við því að byrja
í mestu kreppu í sögu Íslands,“
segir Anna María Ragnarsdóttir
um nýstofnað snyrtivörufyrirtæki
sitt Signatures of Nature. Anna
María starfaði fyrir Clarins um
árabil og hjá snyrtivörudeild
Pier.
„Ég fór frá flottu merki
eins og Clarins til að taka við
merki sem var ekkert þekkt á Ís-
landi og selt í húsgagnabúð, því
ég sá visst tækifæri í því. Fyrir jól
var hins vegar öllum sagt upp í
Pier og öllu lokað í Bretlandi. Mér
var boðið að halda áfram á lægri
launum, en þó ekki í snyrtivöru-
deildinni því þeir vildu ekki eyða
peningum í hana. Þegar þeir úti
afgreiddu síðustu snyrtivöru-
sendinguna til Pier í janúar og
fréttu að ég væri hætt buðu þeir
mér umboðið hér á Íslandi sem
ég er nú komin með,“ segir Anna
sem mun opna vefverslun rétt
fyrir páska á signaturesofnat-
ure.is.
„Ég ætla að gefa landsbyggð-
inni möguleika á góðri þjónustu
og heimsendingu í gegnum net-
verslunina, svo verð ég komin
með vörurnar í Faxafen fyrir
páska, í húsnæðið þar sem Out-
let Center er nú. Þar eru margir
byrgjar að fara að standa saman
að lífsstílshúsi þar sem fólk mun
geta verslað allt fyrir heimilið á
góðu verði,“ bætir hún við.
„Ef ég hefði byrjað fyrir tveim-
ur árum hefði ég ekki átt séns
því þá höfðum við öll efni á að
kaupa dýr merki. Við Íslendingar
tengdum gæði og útlit við verð,
sem fer ekki endilega saman, sér-
staklega ekki í snyrtivörum. Ég
ætla að bjóða upp á snyrtivörur á
góðu verði, en engu að síður frá-
bær innihaldsefni,“ útskýrir Anna
og viðurkennir að hún hafi fund-
ið fyrir mótbyr við stofnun fyrir-
tækisins. „Fólk á það til að draga
úr mér út af ástandinu, jafnvel
ómeðvitað, en ég hef samt fund-
ið fyrir ómældum stuðningi frá
fjölskyldu og vinum. Við megum
ekki gleyma því að í kreppunni
eru tækifæri og ég trúi að fólk eigi
að elta sinn draum hvort sem það
er í góðæri eða harðæri.“ - ag
Anna María Ragnarsdóttir:
Stofnar snyrtivöru-
fyrirtæki í kreppunni
Náttúrulegt Snyrtivörur Signature of
Nature munu fást á signatureofnatures.
is og í nýju lífsstílshúsi í Faxafeni. þetta
HELST
Eignaðist litla stelpu
Fatahönnuðurinn Birta Björnsdótt-
ir og eiginmaður hennar Jón Páll
Halldórsson húðflúrmeistari eign-
uðust litla stelpu í vikunni. Þetta
mun vera annað barn þeirra hjóna
því fyrir eiga þau soninn Storm
Björn sem fæddist árið 2005. Birta
og Jón Páll eru búsett í miðbæn-
um, en Birta rekur verlunina Júní-
form í Ingólfsstræti 8.
Halda 100 ára afmæli
Útvarpsvinirnir Andrea Jóns-
dóttir og Ólafur Páll Gunnars-
son, betur þekktur sem Óli Palli,
verða samtals 100 ára núna í
apríl. Af því tilefni hafa þau ákveð-
ið að fagna þessum tímamótum
með sameiginlegri veislu á Nasa 8.
apríl, en Andrea verður sextug 7.
apríl og Óli Palli fertugur 25. apríl.
Vinum og velunnurum er boðið á
Nasa og ekki er við öðru að búast
en að boðið verði upp á góða lif-
andi tónlist, enda afmælisbörnin
bæði miklir tónlistarunnendur.
„Þetta kom mér á óvart og þó
ekki,“ segir Bryndís Baldursdótt-
ir 45 ára hlaupari og nýkjörin Af-
rekskona Létt Bylgjunnar 2009.
Bryndís bar sigur úr býtum í hópi
fimm hörku kvenna en hún ákvað
fyrir níu árum að gera breytingu
á sínum lífsstíl, þá 36 ára. „Ég var
algjört sófadýr og hafði þyngst
hratt og var þannig á mig komin
að ég gat ekki staðið upp af gólfi
án hjálpar. Ég byrjaði að skokka
daglega og nú er ég í mínu besta
formi,“ segir Bryndís sem hefur
hlaupið sex maraþon og klárað
tvö „Ironman“ og 100 km hlaup
svo eitthvað sé nefnt.
Bryndís segir þolíþróttamenn
hafa fengið litla athygli á Íslandi
en þeir veki mikla athygli erlend-
is. „Hér erum við aðallega spurð
hvort svona mikil hreyfing sé
ekki óholl eða hreinlega fíkn. Það
er hins vegar afskaplega óhollt að
sitja kyrr á rassinum allan daginn
og fara svo heim og leggjast í sóf-
ann. Þá er betra að vera á stans-
lausri hreyfingu.“ Bryndís segir
aldrei of seint að byrja og hún
segir margar goðsagnir um hreyf-
ingu ósannar. „Það er alltaf talað
um að hreyfa sig þrisvar í viku
en hættan er á að eftir hvíldar-
dag komi eitthvað upp á svo það
er orðið jafn erfitt að koma sér
upp úr sófanum og í byrjun. Þá
er betra að fara daglega en gera
minna. Önnur sagan er sú að
hreyfing hafi engan tilgang nema
hún standi í að minnsta kosti í
20 mínútur en það er bara bull.
Hverjar fimm mínútur gera mikið
gagn fyrir manneskju sem hefur
ekkert hreyft sig. Maður á bara að
nota þann tíma sem maður hefur
og vera ánægður með sig að hafa
byrjað. Ég þekki konur sem byrj-
uðu að hlaupa löngu eftir fimm-
tugt og eru hraðari hlauparar en
ég. Það er um að gera að vera ekk-
ert að flækja hlutina. Eins og Nike
segir: Just do it.“ - iáh
Nýkjörin Afrekskona Létt Bylgjunnar 2009:
Aldrei of seint að
byrja að hreyfa sig
Eltir draum-
inn Anna
María lætur ekki
kreppuna stöðva
sig, heldur
ákvað að láta
drauminn
rætast og
stofna eigið
snyrti-
vörufyr-
irtæki.
Afrekskona Bryndís Baldursdóttir, 45
ára hlaupari, var kjörin Afrekskona Létt
Bylgjunnar 2009.Þura Stefánsdóttir,
höfundur bókarinnar.
Falleg bók um grunntækni í förðun
Fermingargjöfin
hennar