Fréttablaðið - 27.03.2009, Blaðsíða 42
föstudagur FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS
3
5
27. MARS 2009
„Haffi Haff er fæddur 28.09.1984. Það
gefur útkomutöluna 41 sem er jafnt
og 5. Að hafa útkomutöluna 41 í lífs-
tölu gefur manni mikla heppni og fær
fólk til að hjálpa manni við hina ótrú-
legustu hluti yfir lífsleiðina. Þetta er
mikil gæfutala, sérstaklega í sambandi við framkvæmd-
ir, kraft og áræðni, sem Haffi Haff að sjálfsögðu hefur í
ótakmörkuðum mæli.
Haffi er að fara inn á árstöluna 3, en til að fá þá útkomu
leggjum við saman, afmælisdag, mánuð og árið í ár og þá
verður útkoman 3. Haffi er á ári þar sem hann á að taka
áhættu og það verður allt iðandi í lífi í kringum hann. Ég
get ekki betur séð en að það séu afskaplega margir skotn-
ir í honum Haffa og ættu endilega að láta hann vita af því.
Ég sé það að Haffi á eftir að spekúlera mikið í útlöndum
yfir þessa tíð og get ekki betur séð en að sú freisting gæti
orðið yfirsterkari: að fara frekar en að vera. Hann mun þó
aldrei í raun yfirgefa Íslendinga því hér verður hann með
annan fótinn og hinn fótinn í Ameríku. Ameríkanar elska
Haffa jafnmikið og við Íslendingar dáum hann og hann er
kominn með sína framtíðarást árið 2012. Ég sé fyrir mér
að það er ákveðin ást sem á eftir að spila mikið á hjarta
hans á næstunni.
Haffi á eftir að sjá um viðburði fyrir heimsþekkt fólk í fram-
tíðinni og ná svakalega langt með myndbönd sín og, að
mér sýnist, allt sem honum dettur í hug. Haffi Haff er að-
eins 24 ára en er búinn að gera hluti sem marg-
ir gera yfir mannsævi, svo það þarf nú ekk-
ert mikinn spámann til að sjá að ef hann
heldur jákvæðninni í hjarta sínu og blik-
inu í augum sínum þá verður heimurinn
hans.“ www.klingenberg.is
KLINGENBERG SPÁIR
Haffi Haff tónlistarmaður og förðunarfræðingur
FRÁBÆR
FÖSTUDAGUR
Katrín Jakobsdóttir
menntamálaráðherra
Ná í eldri soninn
á leikskólann
og fara með
fjölskyldunni í
göngutúr.
2Hafa tíma til að borða há-degismat í rólegheitum, jafnvel með einhverjum skemmtilegum.
Elda góðan mat
og fá góða gesti
er alltaf frábær
endir á degi.
4Líta inn á eins og eina góða listasýningu í göngutúrnum.
1Gefa sér tíma til að drekka gott kaffi að
morgni áður en
maður leggur
af stað í hark
dagsins.