Fréttablaðið - 27.03.2009, Blaðsíða 47
FÖSTUDAGUR 27. mars 2009 23
UMRÆÐAN
Bergþóra Snæbjörns-
dóttir skrifar um
sumarannir
Síðastliðna helgi lenti heiðlóa í Höfn í Horna-
firði og má því fullyrða, að
gamalli íslenskri hefð, að
sumarið sé á næsta leiti.
Ekki eru þó allir sem fagna því
að lóan sé komin að kveða burt
snjóinn þetta árið en það er deg-
inum ljósara að fyrir stóran hóp
þjóðarinnar vekur vorboðinn ekki
upp tilhlökkun og fiðrildi í magan-
um heldur þvert á móti áhyggju-
sting og magakrampa. Meginþorri
stúdenta mun að líkind-
um sitja uppi atvinnu- og
tekjulausir í sumar. Stúd-
entar eiga takmörkuð rétt-
indi til atvinnuleysisbóta
og námslán fá þeir ekki
nema vera skráðir í nám.
Löngu fyrir áramót var
fyrirséð að þarna væri
vandi á ferð, að alvarleg
staða myndi koma upp
fyrir þá 13.500 einstakl-
inga sem stunda nám við Háskóla
Íslands nema eitthvað yrði að gert.
Því var það ein af kröfunum sem
Stúdentaráð, undir stjórn Röskvu,
settu fram á menntavitanum hinn
1. desember síðastliðinn, að boðið
yrði upp á nám fyrir stúdenta
næsta sumar. Í kosningunum til
Stúdentaráðs voru sumarannir
eitt stærsta kosningamál Röskvu
og eru báðar fylkingar sammála
um að þetta sé eitt mikilvægasta
hagsmunamál stúdenta um þess-
ar mundir og hefur verið unnið
að því ötulum höndum síðan nýtt
Stúdentaráð tók til starfa.
Formaður Stúdentaráðs Háskóla
Íslands hefur sent opið bréf frá
ráðinu til rektors, Kristínar
Ingólfsdóttur, þar sem óskað er
eftir því að Háskóli Íslands axli
ábyrgð og sjái til þess að boðið verði
upp á sumarannir fyrir nemend-
ur nú í sumar. Enn bólar þó ekki á
neinni staðfestingu þess að Háskól-
inn ætli sér að bregðast við.
Nú hefur Háskólinn í Reykjavík
tilkynnt að þar á bæ ætli menn að
svara kalli tímans, eins og þeir
orða það. Að þeir ætli að koma til
móts við þá nemendur sem vilja
nýta sumarið til náms þar sem
litla vinnu sé að fá og bjóði því
upp á mun fleiri námskeið í sumar
en undanfarin ár. Það er með öllu
ótækt að Háskóli Íslands, stærsti
háskóli landsins, bjóði ekki upp
á sams konar úrræði fyrir sína
nemendur. Ætlar Háskóli Íslands,
flaggskip íslenskrar menntunar,
virkilega að vera eftirbátur félaga
sinna í Háskólanum í Reykjavík?
Stúdentar við Háskóla Íslands
geta ekki beðið svara mikið leng-
ur. Lóan er komin og það þarf að
sjá til þess að kvíðaraskanir og
gjaldþrot séu ekki skilaboð dirr-
indís lóunnar til þeirra ríflega
3% þjóðarinnar sem stunda nám
við Háskóla Íslands. Röskva hvet-
ur forsvarsmenn Háskóla Íslands
til að kveða burt kvíða náms-
manna fyrir næsta sumri með því
að bregðast við breyttum aðstæð-
um og sýna fram á að hér sé rekin
lifandi stofnun – allt árið.
Höfundur er oddviti Röskvu,
samtaka félagshyggjufólks við
Háskóla Íslands.
Ráðamenn – kveðið burt kvíða stúdenta
BERGÞÓRA
SNÆBJÖRNSDÓTTIR
Löngu fyrir áramót var fyrir-
séð að þarna væri vandi á ferð,
að alvarleg staða myndi koma
upp.
UMRÆÐAN
Fanný Gunnarsdóttir skrifar
um Framsóknarflokkinn
Nú styttist í kosningar sem verða við aðrar og erfiðari
aðstæður á Íslandi en við höfum
áður upplifað. Samfélagið allt –
þar með taldir stjórnmálamenn
og stjórnmálaflokkar – standa á
tímamótum. Hver og einn verður
að endurmeta
lífsgildi sín og
stefnu. Fram-
sóknarflokkur-
inn er fyrsti og
eini stjórnmála-
flokkurinn sem
kosið hefur nýja
forystu og fram-
sóknarmenn um
allt land hafa
að undanförnu
skoðað og endurmetið málefna-
áherslur. Hvað sem líður for-
mannaskiptum í öðrum flokkum
eru þær breytingar sprottnar af
veikindum fráfarandi formanna en
ekki sjálfsprottin ákvörðun þeirra
eða af kröfum innan úr flokkunum
um ábyrgð og breytingar.
Á síðasta flokksþingi var sam-
þykkt tímamótaályktun þar sem
framsóknarmenn ákváðu að semja
siðareglur sem allir þeir sem
starfa í nafni flokksins verða að
vinna eftir. Framkvæmdastjórn
flokksins skipar nú nefnd sem
hefjast skal handa við að semja
reglurnar. En þingmenn Fram-
sóknar hafa um árabil gefið upp-
lýsingar á heimasíðu flokksins
um fjárhagsleg tengsl hlutabréfa-
eða stofnfjáreign, atvinnurekstur
o.fl. Einnig var samþykkt á þing-
inu ályktun um stjórnlagaþing.
Við viljum skýra og skerpa skilin
á milli þrískiptingar valds, auka
gegnsæi og auka tækifæri lands-
manna til lýðræðislegrar þátt-
töku. Með því að koma fram og
bjóða núverandi minnihlutastjórn
að verja hana falli sýndi ný forysta
að Framsóknarflokkurinn er til-
búinn í óhefðbundið samstarf sem
kallar á aukna samvinnu stjórn-
málaflokkanna á Alþingi. Þing-
menn allra flokka hafa ítrekað lýst
yfir áhyggjum af valdaleysi sínu
gagnvart ráðherravaldi.
Þetta kom berlega í ljós þegar
þingmaður Framsóknar fór ekki að
vilja núverandi minnihlutastjórnar
og fylgdi sannfæringu sinni þegar
afgreiða átti mál úr þingnefnd.
Framsóknarflokkurinn vill með
nýjum vinnubrögðum og áhersl-
um leggja sitt af mörkum, hafa
forgöngu um umbætur í íslenskum
stjórnmálum og væntir stuðnings
landsmanna við að hrinda þeim í
framkvæmd.
Höfundur skipar 4. sæti á lista
Framsóknarflokksins í Reykja-
vík norður.
Boðberi nýrra
vinnubragða
FANNÝ
GUNNARSDÓTTIR
Auglýsingasími
– Mest lesið
D
Y
N
A
M
O
R
E
Y
K
JA
V
ÍK
–fegurðin býr í bókum
Barónsstíg 27 | Sími 511 0910 og 899 7839 | crymogea@crymogea.is
GIRNDARGRIPUR
Flora Islandica er ein veglegasta og glæsilegasta bók íslenskrar útgáfusögu. Hún geymir safn
teikninga Eggerts Péturssonar af íslenskum háplöntum sem hann gerði fyrir bókina Íslensk
flóra með litmyndum eftir Ágúst H. Bjarnason, alls 271 teikningu sem birtar eru í sinni
upprunalegu stærð með skýringartextum. Bókin kemur aðeins út í 500 tölusettum og
árituðum eintökum. Aðeins rétt um helmingur upplagsins er enn fáanlegur.
Verið velkomin í sýningarsal Crymogeu að Barónsstíg 27 og skoðið þessa einstöku bók sem
fékk verðlaun FÍT 2009 í flokknum Grafísk hönnun fyrir prentmiðla.
Fæst aðeins hjá útgefanda. Tekið við pöntunum hjá crymogea@crymogea.is.
FÍT 2009 – Grafísk hönnun á Íslandi
Snæfríð Þorsteins & Hildigunnur Gunnarsdóttir
Verðlaun í flokknum Grafísk hönnun fyrir prentmiðla
„Bókverk eins og það gerist fínast.“
–Páll Baldvin Baldvinsson, Kiljan.
„Girndargripur sem maður vill eignast.
Eins dýrt kveðinn og hægt er.“
– Guðmundur Oddur Magnússon, prófessor LHÍ, Kiljan
Í tilefni af HönnunarMarsi
2009 er sérstök sýning á
bókinni og hönnun hennar á
Barónsstíg 27.
Opið til kl. 19.00
föstudaginn 27. mars og frá
kl. 10.00 til 15.00
laugardaginn 28. mars.