Fréttablaðið - 27.03.2009, Blaðsíða 10
10 27. mars 2009 FÖSTUDAGUR
Það er eitthvað villt við bláberjasteik
– nýjustu lambasteikina frá SS
www.ss.is
Hann er sérlega lokkandi bláberjakryddlögurinn enda kemur hann
þægilega á óvart og gefur lambakjötinu einstakt bragð.
Bláberjalambasteik fæst bæði sem helgarsteik eða heilt læri.
Prófaðu endilega bláberjasteikina frá SS,
hún er jafngóð í ofninn og á grillið.
F
íto
n
eh
f.
/ S
ÍA
DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur dæmt
móður einhverfrar stúlku til að
greiða kennara stúlkunnar 9,7
milljónir króna í bætur fyrir skaða
sem stúlkan olli honum. Stúlkan,
sem er ellefu ára, skellti rennihurð
af öllu afli á höfuð kennarans.
Hæstiréttur kemst þar með að
sömu niðurstöðu og héraðsdómur
gerði í mars í fyrra.
Atvikið varð á Seltjarnarnesi
árið 2005 þegar stúlkan flúði ein-
elti samnemenda sinna inn í vinnu-
rými kennarans. Þegar kennarinn
fór að huga að henni skellti hún
rennihurð af öllu afli á höfuð henn-
ar. Kennarinn hlaut 25 prósenta
varanlega örorku.
Kennarinn stefndi bæði stúlk-
unni og Seltjarnarnesbæ. Bær-
inn var hins vegar sýknaður með
þeim rökum að ekki mætti rekja
áverkana til þess að rennihurðin í
skólanum væri hættuleg sem slík.
Móðir stúlkunnar áfrýjaði mál-
inu og bar við að einhverfa stúlk-
unnar og áhrif hennar á hegðun
hafi ekki verið metin með fullnægj-
andi hætti við aðalmeðferð málsins
í héraði. Því bæri að vísa málinu
frá. Hæstiréttur kemst að þeirri
niðurstöðu að sýknukrafan í aðal-
meðferð í héraði hafi ekki nema
að litlu leyti byggt á því að stúlk-
an væri einhverf og að það ylli því
að hún gerði sér ekki grein fyrir
afleiðingum gjörða sinna.
Tryggingarfélag móðurinnar
mun borga skaðann þar sem hún
er með heimilistryggingu. - sh
Hæstiréttur úrskurðar að móðir ungrar stúlku greiði fyrir höfuðmeiðsl kennara:
Ábyrgð einhverfrar stúlku staðfest
MÝRARHÚSASKÓLI Atvikið átti sér stað í
skólanum árið 2005. ALLT Á FLOTI Sjálfboðaliðar flytja sand-
poka að heimilum á bökkum Rauðár
í Norður-Dakótaríki í Bandaríkjunum.
Þar hafa flóð komið í veg fyrir atvinnu-
starfsemi og skólahald undanfarna
daga. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SJÁVARÚTVEGUR Einhvers konar
viðskiptahöft á Íslendinga voru
ekki til umræðu og það var
aldrei á dagskrá að ræða eitthvað
slíkt á fundum Helgu Pedersen,
sjávarútvegsráðherra Noregs, og
Huw Irranca-
Davies, starfs-
bróður hennar
frá Bretlandi, á
dögunum.
Hins vegar
hefur norski
ráðherrann til
athugunar hvort
Norðmenn muni
banna íslensk-
um skipum sem veiða makríl að
veiða hvaða tegund sem er innan
norskrar lögsögu.
Þetta kemur fram í svari frá
norska sjávarútvegsráðuneytinu
til Fréttablaðsins. Þar segir enn
fremur að ákvörðun Íslendinga
um að úthluta sér markílkvóta
einhliða hafi vissulega verið rædd
á fundum ráðherranna.
Afstaða Norðmanna er sú að
ef Íslendingar vilji veiða makríl
í sátt við önnur strandríki verði
þeir að gera tilkall til ákveðins
veiðisvæðis. Slíkt tilkall yrði
þó að vera byggt á niðurstöð-
um rannsókna sem Íslendingar
hafa þó enn ekki gert. Norska
sjávarútvegsráðuneytið segir það
því skref í rétta átt hjá Íslend-
ingum að þeir hafi í hyggju að
taka þátt í rannsóknarverkefni
með Norðmönnum og Færey-
ingum en það felst í því að mæla
makrílstofninn.
Íslendingar hafa lengi sóst eftir
að fá að setjast að samningaborði
um ákvörðun makrílkvóta.
- jse
Norðmenn segja Íslendinga á réttri leið en of skammt komna fyrir makrílveiðar:
Pedersen íhugar að setja veiðibann
HELGA PEDERSEN
NORSKA STRANDGÆSLAN Íslenskir sjómenn sem veiða makríl gætu fengið að kenna
á þessum innan norskrar lögsögu ef Helga ákveður að refsa fyrir makrílveiðarnar.
DÓMSMÁL Héraðsdómur Reykja-
víkur hefur dæmt mann á fimm-
tugsaldri í fjögurra mánaða
skilorðsbundið fangelsi fyrir að
ráðast á konu sína. Málið vakti
nokkra athygli á sínum tíma
þegar konan, sem er frá Venesú-
ela, sakaði manninn, sem er flug-
maður, um að hafa smyglað sér til
landsins í fraktflugvél.
Héraðsdómur hafði áður dæmt
manninn í átta mánaða óskilorðs-
bundið fangelsi. Hæstiréttur
ómerkti þann dóm vegna þess að
ekki hafði verið notaður löggiltur
dómtúlkur og vísaði málinu aftur
heim í hérað. Konunni eru dæmd-
ar 400.000 krónur í bætur. - sh
Dæmdur fyrir árás á unnustu:
Mildari refsing í
annarri tilraun
Kannabis í miðbænum
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
stöðvaði kannabisræktun í húsi í
miðborginni í fyrrinótt. Við húsleit
fundust um 200 kannabisplöntur,
þriðjungur þeirra á lokastigi ræktunar.
Lögregla minnir á fíkniefnasímann
800 5005.
LÖGREGLUFRÉTTIR
Læsti höndum í fótlegg
Karlmaður hefur verið dæmdur í
þriggja mánaða skilorðsbundið fang-
elsi í Hæstarétti. Hann læsti höndum
sínum um fótlegg lögreglumanns,
sem féll í jörðina.
DÓMSTÓLAR
Fíkniefnaakstur og þjófnaðir
Karlmaður á þrítugsaldri hefur verið
dæmdur í sex mánaða fangelsi, skil-
orðsbundið, fyrir brot á fíkniefnalög-
gjöfinni, umferðarlögum og þjófnaði.
Hann var sviptur ökuréttindum í
fjögur ár.