Fréttablaðið - 27.03.2009, Síða 8
8 27. mars 2009 FÖSTUDAGUR
1. Hvað sat Geir H. Haarde
lengi á Alþingi?
2. Hver er besti knattspyrnu-
maður heims að mati Frakkans
Zinedine Zidane?
3. Í hvaða kvikmynd Jackie
Chan leikur Magnús Scheving
stórt hlutverk?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 38
LÖGREGLUMÁL „Okkur varð hræði-
lega við þegar við áttuðum okkur
á hvað hafði verið í gangi hérna og
erum gjörsamlega í rusli. En úr því
sem komið er, er lán í óláni að þetta
skyldi hafa komist upp.“
Þetta segir Jón Þ. Magnússon,
eigandi húsnæðis í Þykkvabæ, þar
sem upp komst um umfangsmikla
kannabisræktun í fyrrakvöld. Lög-
regla lagði hald á um fimm hundr-
uð kannabisplöntur í húsnæðinu,
auk annars búnaðar til vatnsrækt-
unar, þar á meðal á annan tug
gróðurhúsalampa.
Jón segir enn fremur að þótt sér
hafi verið farið að þykja hlutirn-
ir eitthvað skrítnir, meðal annars
hversu erfitt hefði verið orðið að
ná sambandi við þá sem hlut áttu
að máli, hefði verið svo víðs fjarri
að nokkrum manni hefði dottið í
hug að þeir væru að fást við eitt-
hvað ólöglegt. Ekki síst í ljósi þess
að einn þeirra sé sonur hans. Hann
segir fólkið hafa verið algjörlega
grunlaust um það sem fram fór í
húsnæðinu, sem alla jafna hefur
verið notað sem vélageymsla. Í
nóvember hefði hann hins vegar
leigt hluta af því til piltanna sem
grunaðir eru um að standa að
ræktuninni. Hann hefði verið far-
inn að leggja drög að því að hætta
útleigunni þar sem hann hefði
ætlað að fara að nota húsnæðið.
Jón hefur unnið að því ásamt
félaga sínum að koma upp hesta-
tengdri atvinnustarfsemi á staðn-
um. Hann óttast að málið muni
skaða hana, jafnvel verulega.
„Maður hefur verið að reyna að
brölta í atvinnuleysinu og koma af
stað sjálfstæðum rekstri með góðu
fólki í rólegheitum þó og þetta er
ekki til þess að hjálpa manni, því
almannarómurinn er harður dóm-
ari,“ útskýrir Jón enn fremur. „En
ég vil halda í trúna því hana hef
ég. Ef maður á sér enga trú þá er
náttúrlega næsta skref að hoppa í
sjóinn. En þetta var ekki manns-
lát, heldur mannorðslát kannski.
Það er svo skammt um liðið síðan
þetta komst upp að maður er bara
að reyna að jafna sig og hugsa
rökrétt.“
„Þó að þetta virðist vera að ger-
ast á hverju götuhorni nú, þá skil
ég bara ekki hvernig menn halda að
þeir komist upp með þetta,“ segir
hann og kveðst undrast hversu auð-
velt sýnist að hefja iðju af þessum
toga og komast yfir efnivið sem til
hennar þurfi. jss@frettabladid.is
ENN EIN RÆKTUNIN Kannabisræktunin í Þykkvabænum var með sama sniði og sú
sem tekin var á Kjalarnesi fyrir skömmu og myndin er af. Um var að ræða vatnsrækt-
un með lömpum og næringarefnum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Húseigandi grunlaus
um kannabisræktun
Eigandi húsnæðisins í Þykkvabæ, þar sem lögregla fann umfangsmikla kanna-
bisræktun í fyrrakvöld, er sleginn og miður sín. Hann hafði leigt húsnæðið út í
góðri trú. Engan á staðnum grunaði að þar færi fram ólögleg iðja.
TRÚMÁL Smokkar hjálpa ekki til í
baráttunni gegn alnæmi heldur
gera þeir illt verra, segir staðgeng-
ill kaþólska biskupsins á Íslandi,
séra Patrick Breen.
Hann var spurður um afstöðu
safnaðarins til ummæla Benedikts
páfa, sem hélt þessu fram í Afríku
á dögunum. Vöktu ummælin mikla
umræðu og reiði margra. Heil-
brigðisráðherra Frakklands kall-
aði þetta meðal annars „risavaxin
vísindaleg ósannindi“ sem gerðu
afrískum konum erfiðara fyrir
í lífsbaráttunni. Spænsk stjórn-
völd brugðust
við með því að
senda mi l lj -
ón smokka til
Afríku.
„Ég er alveg
sammála honum
[páfanum].
Þetta er kenn-
ing kirkjunn-
ar og rétt hjá
honum að segja það sem þarf kjark
til að segja. Okkur vantar stund-
um kjark til að segja það sem er
satt, það sem er sannleikur,“ segir
Patrick. „Ég held að þessir smokk-
ar hjálpi ekki í raun og veru.“
Spurður hvort hann væri einn-
ig sammála þeim ummælum páfa,
að smokkar gerðu illt verra, segir
hann að almennt séð sé það rétt.
Þannig séu smokkar ekki not-
aðir í Úganda og þar hafi gengið
betur í baráttunni gegn alnæmi
en í Suður-Afríku, þar sem smokk-
ar séu mikið notaðir. „Það skiptir
mestu hvernig fólk hugsar,“ segir
Patrick, en páfinn telur að notkun
smokka leiði til lauslætis.
- kóþ
Séra Patrick Breen segir hugarfar skipta meira máli en getnaðarvarnir:
Staðgengill kaþólska biskupsins á
Íslandi sammála páfa um smokka
BENEDIKT PÁFI
Sumarbúðir
KFUM og KFUK
Vatnaskógur
Vindáshlíð
Kaldársel
Hólavatn
Ölver
Skráning hefst á vorhátíð KFUM og KFUK
28. mars kl. 12 á Holtavegi og
í Sunnuhlíð á Akureyri
KFUM og KFUK - Holtavegi 28 - 104 Reykjavík - Sími 588 88 99 - www.kfum.is
Sjá flokkaskrá
sumarbúðanna 2009
á kfum.is
56 flokkar í
5 sumarbúðum,
29 leikjanámskeið
á 3 stöðum
DÓMSMÁL Tvítugur maður hefur
verið dæmdur í eins árs skilorðs-
bundið fangelsi fyrir að hafa mök
við fjórtán ára stúlku. Maðurinn
hafði þrívegis samræði við stúlk-
una frá desember 2007 og fram í
janúar 2008, og hafði einu sinni
við hana munnmök.
Maðurinn játaði brotin. Sam-
ræðið fór fram með samþykki
stúlkunnar, en samræði við börn
undir fimmtán ára aldri er hins
vegar ólöglegt og var maðurinn
því dæmdur sekur. Refsingin var
skilorðsbundin vegna ungs aldurs
gerandans og þess að hann hafði
hreint sakavottorð. Bótakröfu
stúlkunnar var vísað frá dómi. - sh
Tvítugur maður á skilorð:
Hafði mök við
14 ára stúlku
DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur dæmt
Sævar Sævarsson, 27 ára, í fimm
ára fangelsi fyrir að reyna að
stinga mann til bana á Hverfisgötu
í ágúst í fyrra. Með þessu staðfest-
ir Hæstiréttur dóm Héraðsdóms
Reykjavíkur frá því í nóvember.
Maðurinn réðst á annan af
erlendu bergi brotinn fyrir utan
skemmtistað á Hverfisgötu og
stakk hann í handlegg og bak.
Fórnarlambið hlaut lífshættulegt
stungusár inn í brjósthol og inn í
lunga, svo af hlaust loftbrjóst og
blæðing í brjóstholi. Þá skaddaðist
ölnartaug í framhandlegg manns-
ins. Maðurinn missti mátt í fingri
og fær hann jafnvel ekki aftur fyrr
en eftir hálft annað ár.
Sævar játaði að hafa stungið
manninn en neitaði að hafa ætlað
að ráða hann af dögum. Í niður-
stöðu dómsins segir að tilviljun
ein hafi ráðið því að fórnarlambið
hafi ekki beðið bana af stórhættu-
legri árásinni. Sævari er gert að
greiða manninum rúmar 800 þús-
und krónur í bætur. - sh
Hæstiréttur staðfestir dóm yfir stungumanni:
Í fimm ára fangelsi
fyrir morðtilraun
FINNLAND Forsætisráðherra Finn-
lands, Matti Vanhanen, er enn í
vandræðum vegna kvennamála.
Blaðið 7 päi-
vää segir frá
því að Vanhan-
en hafi sent
frambjóðanda
Miðflokksins í
sveitarstjórn-
arkosningunum
í október gróf
tölvuskeyti, til
dæmis um að
númer hans
sem frambjóðanda væri 69.
Blaðið segir frá því að í fyrstu
hafi forsætisráðherrann sent
konunni, sem er einstæð móðir,
tölvuskeyti til að ræða kosninga-
baráttuna. Konunni hafi hins
vegar ekki líkað tvíræð skeytin,
að sögn Hufvudstadsbladet.
Vanhanen segir að ekki hafi
verið um tvíræðni að ræða, birta
megi tölvuskeytin hans vegna.
- ghs
Forsætisráðherra Finnlands:
Enn í vanda
vegna kvenna
MATTI VANHANEN
PERSÓNUVERND Nýi Landsbankinn
mátti ekki krefjast kennitölu af
manni sem var að greiða nokkra
gíróseðla fyrir annan mann í
nóvember. Þetta kemur fram í
úrskurði Persónuverndar. Upp-
hæðin sem um ræddi var 90 þús-
und krónur. Bankinn neitaði að
taka við greiðslu því maðurinn
neitaði að gefa upp kennitölu sína.
Hann vísaði málinu þá til Per-
sónuverndar sem sagði upphæð-
ina til muna lægri en þá fjárhæð
sem miðað sé við í lögum um
aðgerðir gegn peningaþvætti og
fjármögnun hryðjuverka.
„Viðskiptin sjálf, það er greiðsla
á ýmsum reikningum, voru að
auki þess eðlis að ekki verður
séð að önnur atvik hafi gefið sér-
stakt tilefni til þess að fara fram á
kennitölu kvartanda.“ - gar
Fékk ekki að borga gíróseðla:
Má ekki heimta
kennitölu fólks
LANDSBANKINN Neitaði að taka við
greiðslu frá manni sem gaf ekki upp
kennitölu.
STJÓRNSÝSLA Vel á annað hundr-
að skriflegra erinda hefur bor-
ist fjármálaráðuneytinu frá því
neyðarlögin voru sett síðastliðið
haust. Þá eru símtöl ekki með-
talin en þau eru ófá. Frá þessu
er greint í Vefriti fjármálaráðu-
neytisins.
Í byrjun var helst spurt um
inneignir í hlutabréfum og pen-
ingasjóðum bankanna. Enn frem-
ur hvort og til hvaða aðgerða ætti
að grípa fyrir ellilífeyrisþega,
námsmenn og öryrkja.
Frá því um áramót hafa flest-
ir haft áhyggjur af lífeyrissjóð-
unum og útgreiðslu á séreignar-
sparnaði. Þá hafa margir viljað
vita meira um greiðslu barna-
bóta. - she
Óvissa í kjölfar bankahruns:
Spyrjast fyrir í
ráðuneytinu
HÆSTIRÉTTUR ÍSLANDS Í dómnum segir
að tilviljun hafi ráðið því að fórnarlamb-
ið beið ekki bana.
Skip tekið við Sómalíu
Norskt olíuflutningaskip, Bow Asir,
sem er skráð á Bahamaeyjum, hefur
verið tekið af sjóræningum fyrir utan
strönd Sómalíu. Skipstjórinn segir að
sextán til átján vopnaðir sjóræningar
hafi komið um borð. Tæplega þrjátíu
filippseyskir og pólskir sjómenn er á
skipinu en lítið hefur heyrst frá þeim.
NOREGUR
VEISTU SVARIÐ?