Fréttablaðið - 27.03.2009, Síða 26
4 föstudagur 27. mars
Marín Manda
Magnúsdóttir,
fatahönnuður og
verslunareigandi, býr í
Kaupmannahöfn ásamt
dönskum kærasta og
tveimur börnum. Marín
Manda stóð á tímamót-
um þegar eldra barnið
fæddist, tók pásu á
hönnuninni og ákvað að
opna barnafataverslun.
Viðtal: Indíana Ása Hreinsdóttir
Ljósmyndir: Valgarður Gíslason
Æ
tlunin var aldrei
a ð b ú a h é r
svona leng i .
Ég hafði hugs-
að mér að klára
námið og fara svo í framhalds-
nám eitthvert annað,“ segir Marín
Manda Magnúsdóttir, fatahönnuður
og verslunareigandi. Marín Manda
býr í Kaupmannahöfn ásamt fjöl-
skyldu sinni en hún flutti frá Ís-
landi árið 2001. „Ég komst inn í
fatahönnunarskóla og var tilbúin
að kveðja vini og vandamenn og
byrja nýjan kafla í mínu lífi. Ég fór
ein og var svolítið alein í heimin-
um fyrstu mánuðina. Fyrsta árið
var mjög erfitt og öðruvísi en allt
sem ég var vön en ég var ákveð-
in í að upplifa ævintýri og fljótlega
kynntist ég skemmtilegu fólki.“
HEILLAÐIST STRAX AF
KÆRASTANUM
Marín Manda og kærastinn hennar,
Danny T. Nielsen, eiga saman tvö
börn: Alba Mist er þriggja og hálfs
árs og Bastian Blær níu mánaða.
Danny er yfirmaður hjá fyrirtæk-
inu Comeat og sér um að reka
veitingastaðinn Messen sem er í
nágrenni við stærstu kvikmynda-
fyrirtæki Danmerkur svo á meðal
viðskiptavina eru stjörnur á borð
við kvikmyndaleikstjórann Lars
Von Trier. Danny hafði verið innan
skemmtanabransans í fimmtán
ár en seldi staðinn sinn Konrad í
fyrra. „Honum fannst tími til kom-
inn að taka pásu og prófa krafta
sína annars staðar. Hann tekur líka
föðurhlutverkið mjög alvarlega og
fannst ómögulegt að vera í burtu
allar helgar,“ segir Marín Manda.
Þau Danny kynntust á Konrad og
Marín Manda segist hafa heillast
við fyrstu sýn. „Við vorum hins
vegar bæði tiltölulega nýkomin úr
löngum samböndum og vorum því
ekkert að drífa okkur í að verða
kærustupar. Þess vegna eigum við
engan svokallaðan afmælisdag eins
og svo mörg pör. Við gáfum okkur
bara góðan tíma í að kynnast og
hafa gaman,“ segir hún og bætir
við að Danny hafi verið kletturinn
hennar í gegnum tíðina. „Við erum
rosalega ólík en höfum sömu lífs-
gildi. Við eigum mörg góð samtöl
þar sem við erum ósammála en það
er í góðu lagi því þá höfum við allt-
af eitthvað að tala um. Mér myndi
leiðast ansi fljótt með manni sem
væri alltaf sammála mér og Danny
hefur kennt mér að sjá það besta í
fari annarra og hjá sjálfri mér.“
ÆÐRI MÁTTUR GREIP Í
TAUMANA
Marín reyndi um tíma fyrir sér sem
fatahönnuður en tók pásu á hönn-
uninni þegar hún varð mamma.
„Þarna stóð ég á tímamótum og
fannst ég þurfa að taka mig saman
í andlitinu og fullorðnast. Ekki var
ég að lifa á þessu og ég varð að
finna mig í öðru hlutverki þar sem
ég gæti borgað reikninga.“ Hún
segir komu Ölbu Mistar í heim-
inn hafa fyllt upp í líf hennar og
allt í einu snerist allt um dóttur-
ina og börn yfirhöfuð. „Ég var eitt
kvöldið að vafra um Netið og skoða
barnaföt og eftir það gengu hlut-
irnir hratt. Í sjálfu sér vissi ég lítið
um fyrirtækjarekstur en ég var til-
búin að taka áhættu,“ segir Marín
Manda sem ákvað þetta kvöld að
opna sína eigin barnafataversl-
un. „Upphaflega hugmyndin var
að opna netverslun og hanna sjálf
einstaka hluti. Það hefur hins vegar
ekki orðið að veruleika enn þá þar
sem boltinn rúllaði strax af stað og
innan hálfs árs var ég búin að opna
verslun og stuttu seinna netverslun
líka.“ Í dag rekur Marín Manda net-
verslunina www.baby-kompagni-
et.dk þar sem búðin sjálf varð fyrir
vatnstjóni svo endurnýja varð hús-
næðið. „Í kjölfarið lentum við í stríði
við leigusalann sem okkur fannst
ekki vera að standa sig og tókum
fyrir vikið þá ákvörðun að segja
húsnæðinu upp og reka eingöngu
netverslun um sinn,“ segir hún
og bætir við að það hafi verið erf-
itt að flytja úr litlu huggulegu búð-
inni. „Það er samt engu líkara en
hér hafi æðri máttur gripið í taum-
ana því við lentum í svo mörgum
óhöppum á sama tíma. Rétt eins
og einhver væri að benda mér á að
opna augun. Nú rek ég fyrirtækið
á annan hátt og er með skrifstofu
og „showroom“ þar sem viðskipta-
vinir geta óskað eftir að koma í
heimsókn og skoðað í hillurnar
sem er sniðugt fyrir t.d. mömmu-
klúbba. Svo þegar við erum með út-
sölu býð ég viðskiptavinum í heim-
ókn svo ég er enn þá að hitta fólk
persónulega þótt verslunin sé ekki
opin lengur. Fyrir vikið hef ég meiri
tíma fyrir fjölskylduna svo kannski
hefur þetta verið lán í óláni. Það á
eftir að koma í ljós.“
GLÖÐ MAMMA BETRI
MAMMA
Marín Manda segir mun færri Ís-
lendinga á ferli í Danmörku í dag
en áður en efnahagskreppa skall á.
„Já, miklu færri. Á síðasta ári voru
bestu kúnnarnir mínir Íslending-
ar en það hefur breyst, skiljanlega.
Þó eru margir Íslendingar að skella
sér til Kaupmannahafnar í svokall-
aða upplifunarferð og þá minna
sem verslunarferð. Nú eru engir
Lifir lífinu til full
✽
b
ak
v
ið
tj
öl
di
n Stjörnumerki:
Vatnsberi með
meiru.
Besti tími dagsins:
Er þegar allt gengur að
óskum.
Geisladiskurinn í spilar-
anum:
AMPOP
Uppáhaldsverslunin:
Forvandlingskuglen og OZ.
Uppáhaldsmaturinn:
Austurlenskur, sushi
eða taímatur.
Líkamsræktin:
hmm … að labba um
bæinn með börnin á
herðunum eða hjóla.
Mesta dekrið:
Að fara í Zoneterapy og
einnig nudd hjá Nímat.
Mesta freistingin:
Að skjótast til Barcelona í smá frí.
Ég lít mest upp til …
Forfeðra minna. Svo finnst mér líf Baracks Obama algjörlega
hægt að taka til fyrirmyndar.
Áhrifavaldurinn?
Tvímælalaust foreldrar mínir, hvort á sinn eigin máta.
Draumafríið?
Þegar við Danny fórum til Máritíus. Einnig er yndislegt á
Toskana á Ítalíu.
Hverju myndirðu sleppa ef þú yrðir að spara?
Óþarfa.
Fullkomin öryggiskerfi með miklum möguleikum og þráðlausum
skynjurum. Henta vel fyrir heimili, sumarhús og fyrirtæki og fást
í mörgum útfærslum. Uppsetning í boði ef óskað er.
TILVERAN
getur verið
streitulaus...
ÖRYGGI ÁN MÁNAÐARGJALDA
www.sm.is
UMBOÐSMENN UM LAND ALLT
MEÐAL MÖGULEIKA:
REYKSKYNJARI
VATNSSKYNJARI
HITASKYNJARI
GASSKYNJARI
ÖRYGGISHNAPPUR
MEÐ ÍSLENSKU TALI OG TEXTA
ÁTTU SUMARBÚSTAÐ?
BJÓÐUM UPP Á VÖNDUÐ GSM ÖRYGGISKERFI SEM HENTA
VEL ÞAR SEM EKKI ER SÍMALÍNA, T.D. Í SUMARBÚSTÖÐUM