Fréttablaðið - 27.03.2009, Side 28
27. MARS 2009 FÖSTUDAGUR2 ● geðhjálp
Geðhjálp hefur nú starfað í 30 ár.
Hope Knútsson iðjuþjálfi fluttist
til Íslands frá New York árið 1974
en hún var formaður Geðhjálpar
á árunum 1981 til 1986. „Ég starf-
aði sem geðiðjuþjálfi í New York.
Ein ástæða þess að ég flutti til Ís-
lands var að stofna námsbraut í
iðjuþjálfun en ég er með BA-próf
í sálfræði og heimspeki og mast-
erspróf í iðjuþjálfun,“ segir Hope
sem vann fyrstu árin á Íslandi sem
geðiðjuþjálfi á Kleppsspítala.
„Mér ofbauð það sem ég sá við
vinnu mína á Kleppi en meðferð-
irnar sem boðið var upp á voru
tuttugu árum á eftir í tíma. Mér
fannst geðheilbrigðiskerfið mann-
skemmandi, bæði fyrir sjúkling-
ana og starfsfólkið. Ég vildi ekki
taka þátt í svona kerfi og hætti
eftir rúmlega tveggja ára vinnu.
Ég vildi starfa úti í samfélaginu
og hjálpa fólki að byggja sig upp í
sínu venjulega umhverfi.“
Meðfram því að taka þátt í að
stofna Iðjuþjálfafélag Íslands,
vann hún að hugsjónastarfi fyrir
Geðhjálp, meðal annars við upp-
byggingu þjónustu sem byggðist
á sjálfshjálparhugmyndafræði.
„Við komum á fót félagsmiðstöð
og stofnuðum sjálfshjálparhópa
fyrir sjúklinga og aðstandendur.
Einnig stóðum við fyrir mánað-
arlegum fyrirlestrum um geðheil-
brigðismál og fengum fastan dálk
í Morgunblaðinu um reynslu fólks
af geðheilbrigðismálum og þjón-
ustunni og beittum okkur fyrir
breytingum varðandi geðheilbrigð-
ismál hjá borginni og á landsvísu,“
segir Hope.
Eftir að starfi hennar fyrir Geð-
hjálp lauk hefur hún unnið að fjöl-
menningarmálum en hún stofnaði
meðal annars Félag nýrra Íslend-
inga. Hope er nú formaður Sið-
menntar, félags siðrænna húman-
ista, en hvernig blasir staða geð-
heilbrigðismála við henni í dag?
„Mér finnst þjónustan fyrir geð-
fatlaða vera betri en fyrir þrjátíu
árum því hún er fjölbreyttari. Þó
er langt í land að hún sé viðunandi.
Það þarf fleiri úrræði varðandi bú-
setu, atvinnu- og félagsmál. Enn
er lögð alltof mikil áhersla á geð-
lyf sem hjálpa ekki öllum og eru
alls ekki nóg til að ná bata. Fólk
þarf að finna aftur þýðingarmikið
hlutverk í lífinu.“ - rat
Svanur Kristjánsson hefur orð-
ið var við jákvæða viðhorfs-
breytingu í garð geðsjúkra á
undanförnum árum enda eiga
þeir góða von um bata og
betra líf.
Svanur Kristjánsson, prófessor
og fráfarandi formaður Geðhjálp-
ar, segir ýmislegt hafa breyst til
batnaðar í málefnum geðsjúkra
á undanförnum árum. „Þar ber
helst að nefna nýlegan þjón-
ustusamning á milli ríkisins og
Reykjavíkurborgar sem felur í sér
að borgin mun sjá um framkvæmd
allrar þjónustu við geðfatlaða, en
sams konar samningar hafa verið
gerðir við fleiri sveitarfélög. Þeir
tryggja heildstæða þjónustu við
geðsjúka og draga úr líkum á því
að þeir velkist á milli kerfa,“ segir
hann.
„Þá hef ég orðið var við jákvæða
viðhorfsbreytingu í þjóðfélaginu í
garð geðsjúkra. Ég held að margir
líti orðið svo á að þó einhver veik-
ist af geðsjúkdómi þá er mikil von
um bata. Aðalatriðið er að horfa á
hvern einstakling fyrir sig og hvað
hann getur í stað þess að líta á tak-
markanir hans.“ Svanur segir þó
að víða megi gera betur og finnst
til að mynda ófært að sálfræði-
þjónusta skuli ekki vera niður-
greidd líkt og önnur sérfræði-
þjónusta. „Við höfum barist kröft-
uglega fyrir því að fá þessu breytt
en ekkert orðið ágengt.“
Svanur hefur setið í stjórn Geð-
hjálpar í fimm ár og gegnt starfi
formanns síðustu tvö ár. En hvað
kom til að hann ákvað að beita
kröftum sínum í þágu geðsjúkra?
„Sonur minn veiktist af alvarleg-
um geðsjúkdómi. Ég hafði föður
minn, Kristján Jónsson, sem
fyrirmynd en hann var einn af for-
vígismönnum Þroskahjálpar. Bróð-
ir minn heitinn var þroskaheft-
ur og fylgdist ég með því hvern-
ig faðir minn beitti þekkingu
sinni og krafti í félagi við aðra til
að ná fram úrbótum. Ég vildi því
leggja mitt af mörkum en auk þess
að græða eigin sár enda veikjast
aðstandendur geðsjúkra líka.“
Syni Svans hefur vegnað vel.
„Mestu skiptir að fólk hafi von
um betra líf. Það þarf að byggja
hvern einstakling upp út frá eigin
forsendum og er mikilvægt að að-
standendur standi þétt og að þeir
sem veikjast hafi aðgang að góðu
fagfólki.“ - ve
Von um betra líf
skiptir mestu máli
Svanur ákvað að beita kröftum sínum í þágu geðsjúkra þegar sonur hans veiktist. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Geðhjálp hefur undanfarnar vikur
staðið fyrir fyrirlestrum um and-
lega sjálfsvörn. Í þeim fer Sig-
ursteinn Másson, vararfor-
maður stjórnar Geðhjálpar,
yfir grunnþætti andlegrar
heilsu og leiðir til að verj-
ast neikvæðu andlegu
áreiti eða hugsun-
um. Fyrirlestrarn-
ir taka um 30 mín-
útur og henta til
dæmis í hádegis-
hléum fyrirtækja
og stofnana, en Sigursteinn
hefur bæði haldið þá í Reykjavík
og á Akureyri.
„Ég legg áherslu á tengsl lík-
amlegrar og andlegrar heilsu
og sjálfsvarnar. Þetta er eins
konar andsvar við tvíhyggj-
unni sem hefur gætt hér á
landi síðastliðna ára-
tugi og vil ég síður
hólfa hlutina niður
í líkama og sál,
andlegt og ver-
aldlegt. Ég legg
áherslu á samheng-
ið þarna á milli en oft á
fólk auðveldara með
að skilja hið áþreif-
anlega og þar af
leiðandi hið
líkamlega. Ég reyni að ná utan
um það hvernig við getum yfir-
fært það yfir á hið andlega.“
Sigursteinn kemur í fyrirlestr-
inum inn á ýmis tæknileg atriði.
„Fólk vill ýmist ná föstum tökum
á ákveðnum atriðum eða ýta þeim
frá sér og losna undan einhverju
taki sem einhver eða eitthvað
hefur á því og eru ýmsar leiðir til
þess.“
Fyrirlestrarnir henta jafnt
þeim sem glíma við andlega erfið-
leika sem öðrum og eiga sérstakt
erindi nú þegar margir upplifa
ótta og kvíða. Hægt er að panta
fyrirlestur hjá Geðhjálp í síma
570 1700 eða með því að senda
póst á gedhjalp@gedhjalp.is - ve
Leiðir til að verjast áreiti
Áhersla er á tengsl
líkamlegrar og
andlegrar heilsu
og sjálfsvarnar.
Í fyrirlestrunum fer Sigursteinn yfir grunnþætti andlegrar heilsu og leiðir til að
verjast neikvæðu andlegu áreiti eða hugsunum. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
Hope Knútsson var formaður Geðhjálp-
ar á upphafsárum félagsins. Hún segir
þjónustu við geðfatlaða hafa breyst
mikið til batnaðar síðustu þrjátíu árin en
enn sé þó langt í land. MYND/ÚR EINKASAFNI
Þjónustan breyst til
batnaðar á 30 árum
Útgefandi: Geðhjálp | Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Sveinn Magnússon | Netfang: gedhjalp@gedhjalp.is | Texti: Hrefna Sigurjónsdóttir, Kjartan Guðmundsson, Sólveig Gísladóttir, Ragnheiður Tryggvadóttir og Vera Einarsdóttir.
| Forsíða: Gunnar V. Andrésson og Heiða.is | Auglýsingar: Fréttablaðið/Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir, sími: 512 5462.
Hope segir mikilvægt
að fólk finni þýðingar-
mikið hlutverk í lífinu.
N
O
RD
IC
PH
O
TO
S/
G
ET
TY