Fréttablaðið - 27.03.2009, Qupperneq 36
27. MARS 2009 FÖSTUDAGUR10 ● geðhjálp
ıwww.itr.is sími 411 5000
Góð
hreyfing
er lykillinn að góðri heilsu
Birna Dís segir Hauk Frey hafa verið mikinn íþróttaunnanda. Fótboltinn og trúin hafi aldrei vikið úr lífi hans. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Haukur Freyr Ágústsson lést
úr bráðamorfíneitrun snemm-
sumars 2006, 24 ára gamall.
Hann glímdi við geðsjúkdóm í
kjölfar vímuefnaneyslu. Birna
Dís Vilbergsdóttir, móðir
Hauks, segir kerfið hafa brugð-
ist syni sínum frá A til Ö.
„Það má segja að kerfið hafi
brugðist syni mínum frá A til Ö.
Líf hans var ömurlegt síðustu
fimm árin. Það sorglegasta er að
lát hans, og svo margra annarra
sem svipað var ástatt um, var svo
mikill óþarfi. Hann hefði ekki
þurft að deyja,“ segir Birna Dís
Vilbertsdóttir, móðir Hauks Freys
Ágústssonar sem lést af völd-
um bráðamorfíneitrunar hinn 9.
júní 2006, 24 ára að aldri. Haukur
glímdi við mikið þunglyndi, maníu
og ranghugmyndir í kjölfar fíkni-
efnaneyslu sem hófst á unglings-
árum.
Haukur var 19 ára gamall þegar
hann var fyrst lagður inn á geð-
deild í kjölfar tilraunar til sjálfs-
vígs. Næstu árin á eftir lagðist
hann reglulega inn á geðdeild-
ir, þar á meðal eitt sinn í lang-
tímameðferð á Kleppi. Að sögn
Birnu var hann vanur að stinga af
frá geðdeildinni þegar hann fór
í maníu, því hann taldi sig geta
náð sér upp úr henni með því að
leita í neyslu. „Þegar hann kom
til baka á deildina úr neyslunni
vildu þeir oft ekki taka við honum,
því hann hafði brotið lög deildar-
innar. Eitt skiptið sat hann í átta
klukkustundir fyrir utan deildina
og vildi komast inn, en fékk ekki,“
segir Birna.
Skömmu fyrir andlátið þurfti
Haukur að sitja af sér fimmtíu
daga dóm í Hegningarhúsinu á
Skólavörðustíg, en að sögn Birnu
hafði Haukur samið um að dóm-
urinn yrði tekinn út í samfélags-
þjónustu við hæfi. Handtakan kom
fjölskyldunni því mjög á óvart.
„Þar fékk hann ómælt magn af
læknadópi og komst þannig upp á
lagið með það. Allan tímann sem
þessi ósköp gengu yfir vorum við
grátbiðja um að Haukur yrði með-
höndlaður betur. Að honum yrði
kennt á einkenni sín og þar fram
eftir götunum í stað þess að gefa
honum alltaf lyf og láta þar við
sitja. Það var ekki gert og er auð-
vitað afar ámælisvert. Haukur var
orðinn morfínfíkill undir lokin,“
segir Birna.
Hinn 26. júní lagðist Haukur
inn á Vog til meðferðar, sem hann
stakk svo af úr nokkrum dögum
síðar. Hann fannst látinn eftir
að hafa verið týndur í níu daga.
„Áður en hann fór inn á Vog fann
hann á sér að þetta væri að verða
búið, að hans hlutverki væri lokið.
Daginn áður en hann fór inn bað
hann mig um að vera hjá sér, og
hann valdi meðal annars lög sem
hann vildi að yrðu spiluð í jarðar-
förinni sinni, lét í ljós óskir um
hvernig legsteinninn ætti að vera
og fleira slíkt. Mín skoðun er sú
að sá sem er fíkill og glímir við
geðsjúkdóm eigi litla möguleika
á að verða hjálpað. Ég vona inni-
lega að bót verði á, og vonandi
kemur kreppan ekki í veg fyrir
að heilbrigðiskerfið taki betur á
þessum málum,“ segir Birna Dís
Vilbergsdóttir. - kg
Hefði ekki þurft að deyja
T il Geðhjálpar leitar oft fólk sem líður illa eða á aðstand-
anda sem gæti átt við geðræn
vandamál að stríða. Flestir þeirra
sem leita til Geðhjálpar eiga
það sameiginlegt að þeir vita
ekki hvaða hjálp er í boði og
hvert eigi að leita. Margir þekkja
ekki til geðheilbrigðisþjónustu
og eiga jafnvel erfitt með að fá
tíma. Einnig er algengt að sá
sem er hjálparþurfi hafi lítinn
áhuga á, eða getu til að leita sér
hjálpar. Stundum er þó nauð-
synlegt að tala við
einhvern sem
skilur.
Hér er bent á
nokkrar leiðir
sem ættu að
tryggja við-
tal við fag-
fólk sem
getur verið fólki
innan handar í
leitinni að lausn á
vandanum:
Ýmis úrræði standa til boða
● HJÁ GEÐHJÁLP er starfandi sálfræðimenntaður ráðgjafi. Geðhjálp
er einnig í samstarfi við fjélagsráðgjafa frá Velferðarsviði Reykjavíkurborg-
ar. Hægt að panta tíma hjá þessum aðilum á skrifstofu Geðhjálpar eða
með því að senda tölvupóst á geðhjalp@geðhjalp.is. Hjá Geðhjálp eru líka
starfandi sjálfshjálparhópar.
Nánar á www.gedhjalp.is/content/view/35/48/
● HEILSUGÆSLUSTÖÐVAR OG HEIMILISLÆKNAR
geta hjálpað þér að meta ástandið og leiðbeint um framhaldið.
Heimasíða Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins er www.heilsugaeslan.is
● BRÁÐAÞJÓNUSTA OG MÓTTAKA GEÐSVIÐS
SPÍTALANNA veitir símaráðgjöf og tekur á móti bráðatilfellum.
Nánar á www.gedhjalp.is/content/view/83/
● ÝMIS ÚRRÆÐI ERU TIL sem veita fólki með geðraskanir
endurhæfingu, eftirfylgd og félagslega afþreyingu.
Upplýsingar um endurhæfingu eru á www.gedhjalp.is/
content/view/84/
● GEÐTEYMI HEIMAHJÚKRUNAR veitir þjónustu
til þeirra einstaklinga 18 ára og eldri sem eiga við geðsjúk-
dóma að stríða. Teymið veitir heimageðhjúkrun, en einnig
sérhæfða þjónustu til kvenna sem eiga við geðraskanir að
stríða á meðgöngu og eftir fæðingu barns.
Nánar á www.gedhjalp.is/content/view/160/