Fréttablaðið - 27.03.2009, Síða 39
27. mars föstudagur 5
nustu
Íslendingar til að tæma H&M. En
sem betur fer eru Íslendingar hrein-
skilnir og eru ekkert að skammast
sín fyrir að halda betur um aurana
sína,“ segir hún og bætir við að hún
sé ekki frá því að ástandið geti verið
örlítið hollt fyrir okkur. Hún segist
ekki finna fyrir andúð í garð Íslend-
inga í kjölfar bankahrunsins. „Danir
eru mjög kaldhæðnir og gera örlítið
grín að íslensku milljónamæring-
unum sem ætluðu að kaupa Dan-
mörku. Þannig var andinn í lok síð-
asta árs en núna finnst fólki þetta
voðalega leiðinlegt fyrir íslensku
þjóðina.”
Marín Manda segir móðurhlut-
verkið hafa breytt henni meira en
hún hafi getað ímyndað sér. „Ég
vissi ekki að hægt væri að upplifa
svona mikinn kærleik í garð barn-
anna sinna. Það gerir mig hrædda.
Sterkari, en hrædda. Eitt lítið bros
bræðir á einu augnabliki og það
kemur mér alltaf jafnmikið á óvart
að þessi kríli eru algjörlega sinn
eigin persónuleiki frá upphafi. Mitt
hlutverk er síðan bara að móta þau
eins vel og ég get.“ Hún viðurkenn-
ir að það sé krefjandi að vera með
tvö lítil börn og sitt eigið fyrirtæki
enda hafði hún í nógu að snúast
þegar hún hóf fæðingarorlofið með
Bastian Blæ. „Nú á dögum er alls
ekki nóg að vera bara mamma og
ég vildi ekki bregðast kúnnunum
mínum svo ég var mætt á pósthús-
ið með pakka fimm dögum eftir að
hann fæddist. Að sjálfsögðu hjálp-
aði kærastinn minn mér mikið
en mér fannst ég þurfa að halda
utan um hvert einasta smáatriði,“
segir hún en bætir við að hún sé
orðin dugleg að ýta frá hlutum sem
skipta hana minna máli. „Ég sjálf er
ekki lengur í aðalhlutverki í eigin
lífi. Það er ótrúlega hollt en að sama
skapi ætla ég að gefa mér tíma fyrir
sjálfa mig um leið og tækifæri gefst
því endurnærð og glöð mamma er
betri mamma.“ Aðspurð hvort hún
sé hætt barneignum segir hún svo
ekki vera. „Þegar ég er búin að fá
góðan svefn í nokkur ár þá er ég
alveg til í eitt í viðbót. Sjálf óléttan
er ekkert sérstaklega spenn-
andi en að fæða barnið sitt er það
magnaðasta sem til er.“
LÍFIÐ ER SKÓLI
Marín Manda er ekki á leiðinni heim
en hún kemur reglulega í heimsókn
til Íslands. „Ég er ekki á fara setjast
að á Íslandi til frambúðar. En einn
daginn vil ég gjarnan prófa að búa
aftur á Íslandi. Ég fæ oft heimþrá
og þá er um að gera að skella sér
heim og hitta allt fólkið sem maður
elskar, hlaða batteríin og fljúga svo
til baka til Danmerkur. Eftir að ég
varð mamma finnst mér mikilvægt
að koma heim regulega svo börnin
geti umgengist fjölskylduna og lært
af þeim íslenska siði og hætti,“ segir
hún. Alba Mist svarar mömmu sinni
á dönsku þótt Marín Manda tali
við hana á íslensku og Marín segir
notalegt að þær mæðgur eigi sitt
eigið tungumál. „Dóttir mín skil-
ur íslensku en hún talar dönskuna
og því finnst mér nauðsynlegt fyrir
hana að vera í kringum íslensk börn
og vonandi talar hún íslenskuna
reiprennandi einn daginn.“ Marín
Manda horfir björtum augum fram
á veginn þrátt fyrir heimskrísu. „Ég
er búin að ákveða að lifa lífinu til
fullnustu í dag því maður veit aldrei
hvað gerist á morgun. Sem ungl-
ingur var ég ansi áköf í að upplifa
allt hér og nú og var óþolinmóð að
ná öllu sem mig langaði að gera.
Nú hef ég upplifað upp- og niður-
túra og veit að lífið er skóli. Maður
heldur stanslaust áfram að þrosk-
ast og kynnast sjálfum sér,” segir
hún bætir við að hún sé með alls-
kyns plön og vangaveltur varðandi
framtíðina. „Ég hef hugsað mér að
prófa að búa í enn öðru landinu og
er heilluð af Ítalíu. Ég vona bara að í
framtíðinni verði ég með stóra heil-
brigða fjölskyldu, hamingjusöm og
sátt við þær ákvarðanir sem ég
hef tekið á lífsleiðinni. Ég sé sjálfa
mig sem skapandi bisnesskerlingu,
hvort sem það er innan barnafata-
iðnaðarins eða ekki. Í gamla daga
söng ég mikið og mig hefur lengi
langað að æfa mig á ný. Svo hef ég
einnig hugsað mér að pússa fínu
dansskóna mína og fara að sveifla
mjöðmunum. Það er frábær leið til
að komast í form.“
Breyttir tímar „Danir eru
mjög kaldhæðnir og gera
örlítið grín að íslensku millj-
ónamæringunum sem ætl-
uðu að kaupa Danmörku.
Þannig var andinn í lok síð-
asta árs en núna finnst
fólki þetta voðalega leiðin-
legt fyrir íslensku þjóðina,“
segir Marín Manda.
Lúxusnámskeið NordicaSpa er hannað til
að koma þér af stað á mjög árangurs ríkan
og einfaldan hátt. Tilgangur námskeiðsins
er að koma þér á æðra stig hvað varðar
líkamlega og andlega heilsu.
Fimm tímar í viku – Brennsla og styrkur
3 öflugir brennslutímar
2 styrktartímar í sal undir handleiðslu þjálfara
Vikulegar mælingar
Ítarleg næringarráðgjöf
Fyrirlestur – Borðaðu til að léttast og auka orkuna
Slökun og herðanudd eftir hverja æfingu
Hollustudrykkur eftir hverja æfingu
Takmarkaður fjöldi
6:30, 7:30, 10:00, 16:30 og 18:30 fimm sinnum í viku
Þjálfari er Gunnar Már Sigfússon
1. vika – Orkuhleðsla
Í fyrstu vikunni byggir þú upp orku og kemur líkamanum í jafnvægi.
2. vika – Öflug melting – Aukin brennsla
Í viku tvö er verið að efla og bæta meltinguna til að þú fáir sem mest
út úr holla matnum sem þú ert að borða.
3. vika – Hormóna jafnvægi – Hreinsun
Þriðja vikan mun koma jafnvægi á hormónaflæði líkamanns sem mun
hafa áhrif á skap þitt, lífsorku og kraft.
4. vika – Ónæmiskerfi eflt – Jafnvægi
Í viku fjögur byggjum við upp ónæmiskerfið og hjálpum því að verja
líkamann á náttúrulegan hátt.
Ný námskeið hefjast 30. mars
Skráning er hafin í síma 444 5090 eða
nordicaspa@nordicaspa.is www.nordicaspa.is
Hilton Reykjavík Nordica Hotel
Suðurlandsbraut 2
Sími 444 5090
nordicaspa@nordicaspa.is
www.nordicaspa.is
fyrir konur og karla
Sjöfn Sigþórsdóttir hjúkrunarfræðingur
og María Kristjánsdóttir lögmaður
Námskeiðið er frábær
leið til að auka
styrk, úthald
og hreyfigetu. Við erum betur í stakk búnar
að takast á við krefjandi verkefni
Ég breytti um LÍFSSTÍL
og þú getur það líka.
Búinn að missa yfir 20 kíló
á tveimur og hálfum mánuði
og er enn að léttast
Gissur Ísleifsson tölvunarfræðingur