Lesbók Morgunblaðsins - 25.11.2006, Qupperneq 1
Laugardagur 25. 11. 2006
81. árg.
lesbók
TOM WAITS ER EINSTAKUR
„MIKIÐ AF ÞESSU VAR TÝNT OG GRAFIÐ, OG EINA SPÓLU ÞURFTI ÉG
AÐ LEYSA ÚT MEÐ MÚTUM TIL PÍPULAGNINGAMANNS Í RÚSSLANDI“ >> 3
Víst eru þeir ólíkir Bono og Eminem, en báðir heimsfrægir milljónungar » 19
En það mikilvægasta er að sjálf-
sögðu að í ritun þessarar bókar fel-
ast bókmenntasöguleg tíðindi því
ekki hafa áður komið út fræðilegar
ævisögur þessara tveggja jöfra ís-
lenskra bókmennta,“ segir Soffía
Auður Birgisdóttir í ýtarlegum rit-
dómi í Lesbók í dag um bók Hall-
dórs Guðmundssonar, Skáldalíf, en
í henni eru raktar saman ævisögur
skáldanna Gunnars Gunnarssonar
og Þórbergs Þórðarsonar.
Soffía Auður segir að hug-
myndin um að stefna þessum
tveimur rithöfundum saman í eina
bók gangi furðanlega vel upp hjá
Halldóri. Hún segir að bókin sé
mjög vel skrifuð og því einkar
læsileg og fræðimennskan sé vönd-
uð.
„Óhætt er að fullyrða að með
bókum sínum um þá Halldór Lax-
ness [sem kom út 2003], Gunnar
Gunnarsson og Þórberg Þórðarson
hefur Halldór Guðmundsson skip-
að sér í fremstu röð íslenskra ævi-
sagnaritara og verður vonandi
framhald á vinnu hans á þessu
sviði því ennþá eru fjölmargar ævi-
sögur íslenskra bókmenntamanna
og kvenna óskrifaðar,“ segir Soffía
Auður enn fremur.
Glæpasaga eða ekki?
„Er virkilega hægt að lesa Hið
stórfenglega leyndarmál Heimsins
sem þá glæpasögu sem hún gefur
sig út fyrir að vera á káputexta?
Tjahh, menn skulu allavega gera
ráð fyrir að glæpasagan sé vel
dulbúin.“ Þannig kemst Þórdís
Gísladóttir að orði í lok dóms síns
um skáldsögu Steinars Braga, Hið
stórfenglega leyndarmál Heimsins.
Þórdís gefur bók Steinars Braga
mjög góða dóma, segir að þar sé
skapaður magnaður heimur þar
sem mýgrútur furðulegra persóna
hafi hreiðrað um sig. » 12
Bókmennta-
söguleg tíðindi
Halldór Guðmundsson „Í fremstu
röð íslenskra ævisagnaritara.“
Skáldalíf eftir Halldór Guðmundsson lofuð
Það að efast aldrei um eigin rétt er
bæði grunnhyggið og varhugavert,“
segir Auður Jónsdóttir í viðtali í
Lesbók í dag um nýja skáldsögu
sína, Tryggðapant, en hún fjallar um
innflytjendur með táknrænum
hætti. Hún segir að umræðan um
innflytjendur á Íslandi og víðar sé
vanþroskuð og að svo virðist sem
mannúðina skorti í viðhorfum fólks.
„Þegar mannúðin hverfur verðum
við að dýrum,“ segir hún og bætir
við: „Við eigum forfeður sem námu
hér land og við fæddumst hér. En
það réttlætir engan veginn ásakanir
gagnvart fólki sem hefur komið til
Íslands að vinna, meðal annars því
íslenskir vinnuveitendur þurfa vinn-
andi hendur frá fleiri löndum.“
Ætternið leynir sér ekki
Skáldsaga Auðar, Fólkið í kjall-
aranum, kom nýlega út í danskri
þýðingu og hefur hlotið góða dóma
þar í landi. Sagði einn gagnrýnandi
að það leyndi sér ekki hverra manna
Auður væri en hún er afabarn Hall-
dórs Laxness.
Auður segist afar ánægð með við-
tökurnar en hún er nú flutt til
Barcelona eftir þriggja ára búsetu í
Kaupmannahöfn. » 10
Að efast
aldrei um
eigin rétt
Ný skáldsaga Auðar
Jónsdóttur fjallar um
innflytjendur
Morgunblaðið/ÞÖK
Auður Jónsdóttir „Hvort sem um er að ræða húsnæði, trúarbrögð eða
atvinnu er mikið talað um innflytjendur á mjög neikvæðan hátt.“