Lesbók Morgunblaðsins - 25.11.2006, Blaðsíða 12

Lesbók Morgunblaðsins - 25.11.2006, Blaðsíða 12
12 LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ lesbók| bækur FLESTUM ber saman um það að líklega eigi íslensk bókmenntasaga varla til ólíkari höfunda en þá Gunn- ar Gunnarsson og Þórberg Þórðarson. Gunnar skrifaði heimspekilegar skáldsögur þrungnar siðferðilegum spurningum; Þórbergur skrifaði bullandi háðsádeil- ur á svo til allt sem fyrir honum varð, ekki síst sjálf- an sig. Gunnar skrifaði á forsendum raunsæis með sveitarómantísku ívafi; Þórbergur er bylt- ingarmaður formsins og almennt talinn með fyndnustu höfundum íslenskum. Gunnar var al- þjóðlegur höfundur en þó einn sá þjóðern- issinnaðasti sem ritað hefur á íslensku. Þór- bergur var að mörgu leyti afar þjóðlegur höfundur en þó alþjóðasinni fram í fingurgóma. Reyndar var fátt sem fór meira í taugarnar á Þórbergi Þórðarsyni en „þjóðernisspangól“ og hann lagði sitt af mörkum í andófinu gegn Hit- lers-Þýskalandi og er eini Íslendingurinn sem var dæmdur fyrir að móðga hinn þýska einræð- isherra. Gunnar mun hins vegar vera eini Ís- lendingurinn sem hitti Hitler í eigin persónu og studdi hans stefnu lengur en góðu hófi gegndi. Á meðan Þórbergur boðaði alheimstungumálið esperantó og alþjóðlega einingu fór Gunnar um Skandinavíu og boðaði sameiningu Norð- urlanda sem hann taldi að yrðu að standa sam- an gegn stórveldum. Þórbergur vildi að menn horfðu á manninn en Gunnar ítrekaði muninn á norrænum mönnum og öðrum. En Þórbergur og Gunnar eiga einnig margt sameiginlegt, eins og Halldór Guðmundsson sýnir fram á í Skáldalífi. Þeir voru svo til jafn- aldrar (Þórbergur var fæddur 1888 og Gunnar 1889), dóu með árs millibili (Þórbergur 1974 og Gunnar 1975), voru báðir bóndasynir að austan, elstu synir sem hleyptu heimdraganum ungir vegna djúpstæðrar þrár til annars konar til- veru en afskekkt íslensk sveit gat veitt þeim í upphafi tuttugustu aldar. Þeir glímdu báðir við mikla fátækt, sult og einstæðingsskap á fyrsta stigi höfundarferilsins en unnu mikla sigra þeg- ar fram liðu stundir – og sama dag var þeim veitt heiðursdoktorsnafnbót við Háskóla Ís- lands. Báðir áttu þeir í „óleyfilegum“ ástarsam- böndum og eignuðust börn utan hjónabands. „Og um skeið komust þeir undir óhugnanlegt áhrifavald hvor síns einræðisherrans, Hitlers og Stalíns,“ eins og Halldór Guðmundsson kemst að orði (10). Að stefna þessum tveimur rithöfundum sam- an í eina bók er hugmynd sem gengur, satt að segja, furðanlega vel upp. Halldór Guðmunds- son lýsir sjálfur aðferð sinni á þennan hátt: […] verður hér reynt að varpa ljósi á Gunnar og Þórberg – og þeir látir spegla hvor annan um leið og kannaðir eru drættir úr ævi þeirra, verkum og skapgerð. Báðir eru börn frásagn- arlistarinnar, hinnar óræðu skrifsýki eða sköp- unarþrár, hvort sem við viljum kalla það, haldn- ir óslökkvandi þörf fyrir að segja sögur. Lífsleið beggja er vörðuð sögum (11). Og Halldór hefur valið leið sem virðist mjög rökrétt: Hann rekur ævi þeirra að mestu leyti línulega (krónólógískt), fjallar um þá til skiptis innan hvers meginkafla bókarinnar en fléttar einnig umfjöllun um þá saman þegar það á við. Vissulega eru þeir Þórbergur og Gunnar meiri andstæður en hliðstæður en kannski eru það einmitt hinar skörpu andstæður í persónu- leikum þeirra og skoðunum sem ljá frásögninni líf og spennu. Eins og Halldór Guðmundsson getur um í inngangskafla bókarinnar er þessi aðferð í æviskrifum þekkt og hún er rakin allt aftur til gríska sagnfræðingsins Plútarkosar (sem var uppi á árunum 46–127) sem skrifaði fjölmargar bækur af þessu tagi. Plútarkos stefndi alltaf saman einum Grikkja og einum Rómverja í sínum hliðstæðu ævisögum og sem dæmi má nefna bók hans um Alexander mikla og Júlíus Sesar. Í lok inngangskafla Skáldalífs minnist höfundur á Halldór Laxness: „Hann var alltaf þriðji maðurinn, og stundum bæði drifkraftur og mælikvarði hinna“ (11). Eins og alkunna er hlaut Halldór Guðmundsson Ís- lensku bókmenntaverðlaunin fyrir ævisögu Halldórs Laxness fyrir tveimur árum og því þarf það ekki að koma á óvart að Laxness birt- ist oft á sviðinu sem „þriðji maðurinn“ – kannski ekki endilega sem mælikvarði á þá Gunnar og Þórberg heldur sem samferðamað- ur í rithöfundastétt, enda fóru þessir þrír höf- undar óumdeilanlega fremstir í þeim flokki langt fram á síðari hluta tuttugustu aldar. Skáldalíf er samsett af sex meginköflum: Í fyrsta kafla, „Þau ár eru liðin“, er fjallað um æsku beggja höfunda og uppruna. Kafli tvö heitir „Í reiðuleysi heima og heiman“ og þar segir af sveltiárum þeirra Gunnars og Þór- bergs þegar þeir voru að reyna að standa á eig- in fótum, auralausir með stóra drauma, sá fyrr- nefndi í Danmörku og sá síðarnefndi í Reykjavík. Í þriðja kafla, „Skáldin og ástin“, er fjallað nokkuð ítarlega um ástarsamband Gunnars við Ruth Lange, sem hann eignaðist son með árið 1929 utan hjónabands, og sam- band Þórbergs við Sólrúnu Jónsdóttur, sem fæddi honum dóttur þótt hún væri gift öðrum manni árið 1924. Einnig er hér í fyrsta sinn fjallað um ástarsamband Þórbergs við Finn- laugu Einarsdóttur sem eignaðist dóttur árið 1918 sem kann að hafa verið dóttir Þórbergs. Að sjálfsögðu er einnig fjallað um eiginkonur skáldanna, en það verður að segjast eins og er að höfundi virðist ekki eins mikið púður í að beina kastljósinu að samböndum skáldanna við þær. Í fjórða kafla, „Líf í skáldskap“, er áhersl- an á blómatíma beggja höfunda á bókmennta- sviðinu. Kafli fimm kallast „Freistingar ein- ræðisins“ og hér er farið nokkuð ítarlega í fylgispekt þeirra Gunnars og Þórbergs við sinn hvorn einræðisherrann og kann að vera að ýmsum lesendum finnist þessi kafli einna for- vitnilegastur í bókinni. Ég deili þó ekki þeirri skoðun því ég tel ekki rétt að meta bókmenntir út frá skoðunum (eða persónuleika) höfunda þeirra. Það er hins vegar ljóst að hér er um at- hyglisverðan kafla að ræða og dregnar eru fram í dagsljósið staðreyndir sem íslenskir bókmenntamenn hafa kannski ekki viljað horf- ast í augu við fyrr. Á það ekki síst við samband Gunnars Gunnarssonar við Þýskaland Hitlers. Um þau mál hafa fjölmiðlar fjallað nokkuð ít- arlega síðan Skáldalíf kom út og er engin ástæða til að dvelja við það „skúbb“ í þessum ritdómi. Sjötti og síðasti kaflinn ber titilinn „Hin hvítu segl“ og er þar fjallað um byggingu Skriðuklausturs, hins mikla óðalsseturs Gunn- ars Gunnarssonar í Fljótsdalnum, og draum hans um stórbýli sem kannski var að mörgu leyti andvana fæddur. Í þessum kafla kemur fram hversu dýrkeyptur stuðningurinn við Þýskaland var Gunnari og ýmsir erfiðleikar hans við að fóta sig á hinum íslenska bók- menntavettvangi. Halldór fjallar hér líka um Nóbelsverðlaunin en það umfjöllunarefni þekkja lesendur einnig vel úr nýlegri fjölmiðla- umræðu. Hér er líka fjallað um ævikvöld Þór- bergs, hvernig Suðursveitin kallaði æ meira á hann eftir því sem hann eltist og hvernig hann lýsti því yfir að hann hefði verið „á skökkum stað“ stærstan hluta lífs síns. Í bókarlok dregur Halldór Guðmundsson síðan saman meg- indrættina í lífi þessara tveggja stórskálda og hann vísar til orða Plútarkosar, að „í sam- anburðinum [séu ekki] stór sannindi fólgin“, en aðalerindi hans sé, líkt og hjá Plútarkosi, að gefa lesendum færi á að lesa hlið við hlið um ævi og verk þessara tilteknu manna – og hann hnykkir aftur á helstu hliðstæðum og and- stæðum í lífi þeirra beggja. Skáldalíf er afar eiguleg bók, mjög er vandað til umbrots og bókbands, kápan og kjölurinn eru einkar falleg og bókina prýðir fjöldi ljós- mynda sem auðga mjög verkið (ég sakna þó hinnar frábæru og þekktu myndaseríu Egils Gunnlaugssonar af Þórbergi þar sem hann sýn- ir hinar ýmsu andlitsgrettur). Þess má geta að á bls. 401 er birt mynd sem tekin var í boði sem haldið var til heiðurs breska skáldinu W.H. Auden og er þar fullyrt að um sé að ræða einu myndina þar sem þeir Gunnar og Þórbergur sjást saman. En ekki er að sjá að Gunnar sé nokkurs staðar á myndinni! Sat hann kannski í auða stólum sem sjá má fremst á myndinni? Einnig má það teljast galli á verkinu að hvergi er að finna upplýsingar um uppruna myndanna eða hverjir tóku þær (ef það er vitað). Skáldalíf er mjög vel skrifað verk og því einkar læsilegt og fræðimennska þess vönduð. Málfar og stíll er alls staðar til fyrirmyndar og villur fáar, þó er neyðarleg stafsetningarvilla í efnisyfirliti (í undirkaflayfirskrift) og nokkrar innslátt- arvillur er að finna í heimildaskrá. Þetta er þó mjög lítið miðað við umfang bókarinnar. Mjög víða bregður Halldór Guðmundsson upp snilld- arlegum samanburði á þessum tveimur höf- undum af miklu innsæi og á hnitmiðaðan hátt: „En á þeim Þórbergi og Gunnari er þessi grundvallarmunur: Þar sem Gunnar leitar sannleikans í skáldskap leitar Þórbergur skáld- skaparins í sannleikanum“ (226). En það mik- ilvægasta er að sjálfsögðu að í ritun þessarar bókar felast bókmenntasöguleg tíðindi því ekki hafa áður komið út fræðilegar ævisögur þess- ara tveggja jöfra íslenskra bókmennta. Að slík- um verkum hafa þó verið gerð mörg mikilvæg tilhlaup og má í því sambandi nefna rit Sig- urjóns Björnssonar og Stellans Arvidsons um Gunnar Gunnarsson; bók Stefáns Einarssonar sem skrifuð var í tilefni fimmtugsafmælis Þór- bergs Þórðarsonar; viðtalsbók Matthíasar Jo- hannessen við Þórberg; langa grein Sigfúsar Daðasonar um Þórberg; svo og nokkrar grein- ar Péturs Gunnarssonar um Þórberg. Halldór Guðmundsson nýtur allra þessara skrifa og notfærir sér, að sjálfsögðu, í Skáldalífi. Auk þess hefur hann aðgang að heimildasafni Sveins Skorra Höskuldssonar um Gunnar Gunnarsson, en Sveinn Skorri hugðist rita ævi- sögu Gunnars en náði ekki að ljúka verkinu. Einnig nýtur Halldór óbirts sjálfsævisögu- handrits Þórbergs Þórðarsonar og ýmiss ann- ars efnis sem varðveitt er í handritadeild Landsbókasafns Íslands – háskólabókasafns, þar á meðal er fjöldi dagbóka og bréfasöfn beggja höfunda. Þá má ekki gleyma skáldverk- um höfundanna sjálfra, Fjallkirkju Gunnars og skáldævisögum Þórbergs, þau verk eru þó skrifuð út frá allt öðrum forsendum en fræði- legar ævisögur en eru að sjálfsögðu mikilvægur brunnur (og grunnur) fyrir ævisagnaritarann. Halldór Guðmundsson sækir einnig heimildir á erlend bóka- og skjalasöfn og síðast en ekki síst sækir hann upplýsingar til núlifandi fólks sem þekkti til höfundanna og nánasta umhverfis þeirra. Þannig starfa fræðimenn sem vanda til vinnu sinnar og kannski gera lesendur ævi- sagna sér ekki alltaf grein fyrir þeirri þrotlausu vinnu sem liggur á bak við bækurnar. Óhætt er að fullyrða að með bókum sínum um þá Halldór Laxness, Gunnar Gunnarsson og Þórberg Þórðarson hefur Halldór Guðmundsson skipað sér í fremstu röð íslenskra ævisagnaritara og verður vonandi framhald á vinnu hans á þessu sviði því ennþá eru fjölmargar ævisögur ís- lenskra bókmenntamanna og -kvenna óskrif- aðar. En ég vil einnig taka fram að með þessu ágæta verki Halldórs Guðmundssonar er fjarri því að „sagan öll“ sé sögð. Ennþá eigum við eft- ir að fá ítarlegri ævisögur beggja höfunda og mér skilst reyndar að slíkar bækur séu í vinnslu nú þegar. Því þegar allt kemur til alls felst aðferð Halldórs Guðmundssonar að miklu leyti (þó alls ekki eingöngu) í því að staðnæm- ast við þekktar stærðir úr ævi höfundanna, máta saman við verk þeirra og umhverfi. Þetta gerir Halldór reyndar með afbrigðum faglega, eins og áður er á minnst, en kannski er verkið fyrst og fremst ætlað þeim lesendum sem þeg- ar þekkja vel til verka skáldanna, í því eru nefnilega margar eyður sem lesendum er ætlað að fylla upp í, til að mynda með lestri á Íslensk- um aðli og Ofvitanum, í tilviki Þórbergs, svo dæmi sé tekið. Að lestri loknum rennur nefni- lega upp fyrir lesanda að ótal mörgum spurn- ingum er enn ósvarað – og kannski er full- komlega óraunsætt að hugsa sér að þeim verði nokkurn tíma svarað – og það situr einnig eftir að höfundur fer ekki mjög djúpt í persónulegt líf þeirra Gunnars og Þórbergs (hér má sem dæmi nefna að umfjöllun um hjónabönd þeirra er afar takmörkuð, það er til dæmis ekkert sagt frá aðdragandi hjónabands Þórbergs og Mar- grétar; hvernig kynntust þau? Hver var Mar- grét?). Þórbergur kallaði slíkar eyður í frásögn „skalla“ – en hann var jú hinn mesti nákvæm- ismaður frásagnarinnar … Líklegast er ég hér að biðja um annað verk en Halldór Guðmunds- son ætlaði sér að skrifa og ekki verður um það deilt að hann hefur skilað verki sem honum er fullur sómi af og telst til tíðinda í íslenskri bók- menntasögu, eins og áður er ítrekað. Sannleikurinn í skáldskap – skáldskapurinn í sannleikanum Halldór Guðmundsson Gunnar og Þórbergur „En það mikilvægasta er að sjálfsögðu að í ritun þessarar bókar felast bókmenntasöguleg tíðindi því ekki hafa áður kom- ið út fræðilegar ævisögur þessara tveggja jöfra íslenskra bókmennta.“ BÆKUR Ævisögur Eftir Halldór Guðmundsson. JPV útgáfa 2006, 440 bls. Skáldalíf. Ofvitinn úr Suðursveit og skáldið á Skriðuklaustri Soffía Auður Birgisdóttir Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.