Lesbók Morgunblaðsins - 25.11.2006, Blaðsíða 16

Lesbók Morgunblaðsins - 25.11.2006, Blaðsíða 16
16 LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ lesbók| bækur Bókaskápur Óskars Árna Óskarssonar Óskar Árni „Mig minnir að það hafi verið Borges sem var eitt sinn spurður að því hvort hann héldi að það væri bókasafn í himnaríki. Því er auðsvarað, sagði hann, himnaríki er bókasafn.“ Morgunblaðið/Einar Falur Indjáninn er bernskusaga Jóns Gnarrs og hér segir af dreng sem er utangarðs allt frá fæðingu sinni, sem var „reiðarslag“ fyrir fjölskylduna vegna ald- urs foreldranna. Þegar hann vex upp þekkir hann ekki miklu eldri systkini sín sem eru flutt að heiman og varla foreldra sína heldur; þau eru of þreytt eða meira og minna fjarverandi og engan veginn í stakk búin til að mæta þörf- um þessa undarlega og baldna örverpis síns. Jón Gnarr hefur sagt frá því í viðtölum að líklegast hafi hann ver- ið ofvirkur með athygl- isbrest sem barn en á 7. áratugnum voru slík börn ýmist greind sem óþekk eða hreinlega veik á geði. Í bókinni er lýst heimsókn til geðlækn- is sem greinir drenginn: „Maladap- tio“ og grunar hann sterklega um að vera heilaskaðaðan. Ráðaleysi, sinnu- leysi og skilningsleysi hinna full- orðnu, ásamt stríðni og grimmd jafn- aldranna gerir líf drengsins illbærilegt og eru margar áhrifaríkar lýsingar á því í bókinni. En frásögnin er þó langt frá því að vera eintóna sorgarsaga því víða er brugðið upp kómísku ljósi, eins og Jóni Gnarr er lagið. Skopinu beinir hann jafnt að sjálfum sér og öðrum og nefna má kostulegar lýsingar á frænkum sem koma í lagningu til móður hans, sem og tragíkómískar lýsingar á veikri ömmu. Í eftirmála bókarinnar ræðir Jón Gnarr hvort hún sé skáldsaga eða ævisaga og segir hana vera bæði: „Hún er ekki alveg sönn. Þó er engin bein lygi í henni. Ég trúi ekki á lygi […] En ég færi í stílinn“ (221). Hann gefur bókinni undirtitilinn „skálduð ævisaga“. Skáldævisagan hefur verið í mikilli sókn undanfarin ár og má þar nefna verk eftir Guðberg Bergs- son, Jón Kalman Stef- ánsson, Kristínu Steins- dóttur, Bjarna Bjarnason, Guðrúnu Evu Mínervudóttur og Þráin Bertelsson, svo nokkrir séu nefndir. Líklega er óhætt að kalla Þórberg Þórð- arson upphafsmann skáldævisöguformsins á Íslandi og bækur hans hafa haft gríðarleg áhrif á sjálfsævisagnaritun á Íslandi alla tíð síðan hann birti sín verk; áhrif sem, merkilegt nokk, eru að verða æ sýnilegri með hverju árinu. Það þarf því ekki að koma á óvart að Jón Gnarr tengi sig við Þór- berg í Indjánanum. Bókin hefst á til- vitnun í Ofvitann og í síðari hluta bókarinnar lýsir Jón Gnarr því hvernig sálarlíf hans umbreyttist þegar hann sá sýningu L.R. á Ofvit- anum: Ljósin slokkna og leikritið hefst. Og um leið hefst upphafning sálar minnar og hún svífur upp af moldargólfi hvers- dagsins og baðar sig í töfraljóma hinnar andlegu sólar og drekkur í sig hvert orð og hverja hreyfingu. Þvílík fegurð! Leikritið heitir Ofvitinn eftir samnefndri bók eftir Þórberg Þórðarson. Þórbergur var öðruvísi. Hann var eins og ég. Hann var meira að segja rauðhærður. Kannski er ég þá ekki hálfviti eftir allt saman heldur ofviti? Ég skil hann. Ég þekki þetta eirðarleysi sálarinnar og ráp hugans fram og aftur um víðáttur tilverunnar, þessa brennandi þrá andans eftir einhverju sem hann veit ekki einu sinni hvað er en telur samt öllu æðra. Ég þekki líka þessa nístandi ófullnægju og menningarlegu óaðlögunarhæfni, að vera alltaf upp á kant við allt sem þykir sjálfsagt og eðlilegt (180–181). Þessi tenging minnir einnig á bók Þráins Bertelssonar, Einhvers konar ég, þar sem sögumaður tengir sig bæði við Ofvitann og Ljósvíkinginn og segir frá því hvernig bókin um Ólaf Kárason „veitti honum hlýju og óskiljanlega huggun“. Báðar þessar bækur segja frá þjáningarfullri æsku og umkomuleysi, sambandsleysi við annað fólk og einelti. Þráinn fann sér athvarf í bókum en Jón Gunnar á við mikla námsörðugleika að stríða og þekkir ekki þann möguleika (hér kom leiklistin að góðu gagni!). Báðar bækurnar eru áhrifaríkar en Indján- inn nær þó ekki sama listræna flugi og verk Þráins, nema á stöku stað, því stíll Jóns Gnarrs er of köflóttur. Hann velur þá þekktu leið að reyna að tjá reynslu barnsins með barns- legum stíl og tekst það oft vel: „Mér finnst gaman að leika mér í drullunni fyrir utan húsið. Ég bý til veg og læt bílinn minn keyra hann. Á meðan ég leik mér breytist umhverfi mitt úr óbyggð í byggð. Stórar vinnuvélar koma og fara. Kallarnir tala við mig. Þeir eru skemmtilegir. Drullan hverfur og ég sit á malbiki“ (26). Barnamálsstíllinn verður þó stund- um leiðigjarn og ég sakna þess að höfundur hafi ekki leyft sér meiri frá- vik frá honum því textinn fer oft á flug þar sem það er gert (sbr. löngu tilvitnunina hér að ofan). En Indján- inn er fín viðbót við íslensku skál- dævisöguflóruna auk þess að vera gott innlegg í umræðu um einelti og þroskaraskanir. „Kannski er ég þá ekki hálfviti eftir allt saman …?“ Soffía Auður Birgisdóttir BÆKUR Skáldævisaga Eftir Jón Gnarr, Mál og menning, 2006, 221. s. Indjáninn Jón Gnarr Thomas Hardy nýtur allmikillar sér- stöðu meðal breskra nítjándu aldar rithöfunda, að hluta til vegna þess að hann tilheyrir þeirri tuttugustu á bein- skeyttari hátt en margir aðrir. Skáld- sögur sínar skrifaði Hardy allar á nítjándu öldinni en þegar liðið var á ferilinn sneri hann sér að ljóðlist og hann hélt sem ljóðskáld inn í tutt- ugustu öldina. Ljóðin sem hann ritaði á síðustu áratugum ævinnar (Hardy lést árið 1928) hafa síðan ekki notið síðri virðingar en skáldsögurnar, en nokkrar þeirra teljast til merkustu verka þarlendrar skáldsagnagerðar. Staða Hardys á bili nítjándu og tutt- ugustu aldarinnar er þó ekki það eina sem skilur hann frá forverum sínum og samferðamönnum. Skáldsögur Hardys tókust á við samtíma sinn af óvægnari festu en dæmi voru um og svo mjög gekk hann fram af forsvars- mönnum bókmenntastofnunarinnar með sinni síðustu bók, Jude the Obsc- ure (1895), að úr varð þekkt hneyksl- ismál. Sagan segir að viðtökurnar hafi reynst Hardy svo þungbærar að hann hafi í framhaldinu ákveðið að segja skilið við skáldsagnagerð. Nú er komin út í íslenskri þýðingu ein af þekktari skáldsögum Hardys, Borgarstjórinn í Casterbridge, en hún kom fyrst út í bókarformi árið 1886 (áður hafði hún birst í framhaldsformi í tímariti). Sögusvið bókarinnar eru landbúnaðarhéruð Englands á fyrri hluta nítjándu aldar og hún greinir frá ógæfumanninum Henchard sem í ölæði selur eiginkonu sína og dóttur ókunnugum sjómanni. Af Henchard rennur og hann sér eftir verknaðinum en reynist ómögulegt að hafa uppi á fjölskyldu sinni. Svo líður tíminn og sagan varpar sér áfram um tæplega tvo áratugi en þá finnum við Hench- ard gjörbreyttan mann. Hann hefur ekki snert áfengi síðan nóttina ör- lagaríku og hefur jafnframt risið í metorðastiga þjóðfélagsins. Ungur og breyskur heybindingamaðurinn hefur nú umbreyst í ríkan og virtan korn- sölumann og borgarstjóra í sínum heimabæ. Einn góðan veðurdag ber hins vegar að garði miðaldra konu og unga dóttur hennar og þær telja sig eiga erindi við Henchard. Fortíðin bankar upp á hjá borgarstjóranum og í hönd fara atburðir sem svo sann- arlega kollvarpa tilveru hins nú æru- verðuga góðborgara. Skáldsögur Hardys, a.m.k. þær sem þekktastar eru, hafa ekki orð á sér fyrir bjartsýna heimsmynd eða sérlega upphafnar hugmyndir um mannseðlið. Þetta er að mörgu leyti rétt en nægir þó tæplega til að gera grein fyrir þeirri rökvísi sem mér sýn- ist mikilvæg í verkum hans, en hana væri e.t.v. nær að kalla félagslegt raunsæi en bölsýni. Síðari bækur hans, og hér er Borgarstjórinn í Cas- terbridge tilvalið dæmi, fjalla af miklu innsæi um innri rökvísi samfélags- gerðarinnar, það mikla gangvirki stéttaskiptingar, valds, auðs og hefða sem einstaklingar komast ekki hjá að etja kappi við. Sumt af þessu liggur á yfirborðinu, en dæmi um það eru verslun, stjórnmál og félagsleg sam- skipti fólks, en annað er hulið sjónum að verulegu leyti, en þar má nefna fjöl- skyldulífið og samskipti kynjanna, en allt þetta gerir Hardy að umfjöllunar- efni og lýsir hvernig eitt fléttast inn í annað svo úr verður eins konar tafl- borð, að vísu með þeim mun að ekki verður úr röð svartra og hvítra reita heldur flækist leikurinn mjög á gráu borði þar sem reglurnar eru ekki al- veg ljósar, og allir verða að lokum mát. Þýðing Atla er með miklum ágæt- um, látlaus stíll Hardys sem nær flugi í umhverfislýsingum skila sér afar vel. Þýðandi lætur líka fylgja aftanmáls- greinar sem skýra ýmsar vísanir text- ans, auk þess sem hann ritar eftirmála þar sem grein er gerð fyrir lífshlaupi og höfundarferli Hardys. Slíkt er hverjum lesanda gagnleg viðbót og dýpkar enn lesturinn á verki sem gleymist ekki þeim sem það lesa. Hroki og hleypidómar Björn Þór Vilhjálmsson BÆKUR Þýdd skáldsaga Eftir Thomas Hardy. Þýðandi Atli Magn- ússon. Bókafélagið Ugla. Reykjavík. 2006. 389 bls. Borgarstjórinn í Casterbridge Hversdagslegur veruleiki landans verður Óskari Magnússyni, athafna- manni og forstjóra, að yrkisefni í nýrri bók hans. Heiti hennar undirstrikar einmitt þetta og jafnframt kímna tvíræðni bók- arinnar, Borðaði ég kvöldmat í gær? Þetta er launfyndið smásagna- safn og ljóst af því að Óskari eru ýmsir vegir færir á ritvellinum jafnt og í viðskiptalífinu. Það má heita merkilegt hvað sumum íslenskum at- hafnamönnum og jafnvel ráðherrum er lagið að semja góðar smásögur. Smásögur Óskars eru jafnan stuttar og hnit- miðaðar. Þær eru sam- anþjappaðar skyndimyndir af fólki við ýmsar aðstæður og söguefnin sjaldan stórbrotin. Maðurinn í ræktinni hefur misst vinnuna eftir 39 ára samfellt starf í stóriðju. Bankinn býður útgerð- armönnum í flugtúr og veislu. Stíflu- losun við sumarbústað. Nýr kokkur er ráðinn á bát. Sakborningi er ráðlagt af lögfræðingi sínum að þegja við yf- irheyrslu. Sumir eru óklárir í ensk- unni. Upplifun manns með alzheimer. Svona mætti lengi telja. Margar sagn- anna eru byggðar markvisst upp að snjöllu tilsvari eða gráglettnum endi. Höfundi tekst að koma töluvert miklu efni fyrir í stuttu máli. Sögurnar eru vel samdar, persónu- sköpunin skýr og höfundi er lagið að draga fram sérkenni persóna sinna. Frásagnarhátturinn er fremur hlut- lægur þó að Óskar velji gjarnan að segja frá í 1. persónu, stundum í formi eintals. Sögumenn eru þá gjarnan þátttakendur í söguframvindunni. En fjarlægð höfundar frá frásögninni er samt ávallt írónísk. Þetta gerir stílinn blæbrigðaríkan vegna þess að persónurnar eru af misjöfnum toga spunnar. Þó að sög- urnar séu í sjálfu sér einfaldar er stíllinn tölu- vert fjölbreyttur. Mál sagnanna er skemmtilega kjarnyrt og blátt áfram. Það er sterkt einkenni þeirra hversu karlmennsku- bundnar þær eru. Kon- ur koma lítt við sögu í þeim. Segja má að sög- urnar fjalli um karl- mennsku af ýmsum toga og þá hentar auð- vitað engin tæpitunga. Þótt sumar sögurnar séu ekki jafn- góðar öðrum eru þær aldrei slakar. Þó er ég dálítið á báðum áttum varðandi lokasöguna sem er eiginlega einhvers konar háðskenndur ritdómur um bók- ina í heild. Einhvern veginn fer gam- ansemin í henni fram hjá mér. Meginstyrkur þessara smásagna er þó kímni eða gráglettni höfundar. Óskar er leikinn í að skapa tvíræðar aðstæður og hefur gott auga fyrir hinu sérstaka í fari manna. Þetta er fyrsta bók höfundar og mér finnst þetta góð byrjun á rithöfundarferli. Gráglettnar sögur Skafti Þ. Halldórsson BÆKUR Smásögur Eftir Óskar Magnússon. Citizen Press. London 2006 – 125 bls. Borðaði ég kvöldmat í gær? Óskar Magnússon

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.