Lesbók Morgunblaðsins - 25.11.2006, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 2006 19
Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur
annaei@mbl.is
Það er líklega fátt meira viðeig-andi á þessum tíma ljóss og
friðar sem nú
nálgast en að
kynna sér kirkju-
lega eða kristi-
lega lesningu,
þótt efalítið freisti
spennusögur og
afþreyingarbók-
menntir margs
lesandans meira í
hinu árlega jóla-
bókaflóði. Biblían
á 100 mínútum í
þýðingu Jakobs F. Ásgeirssonar
sem kom út fyrir skömmu hjá Bóka-
félaginu Uglu virðist engu að síður
gera það gott á sölulistum um þessar
mundir og er líklega gott dæmi um
þann mikla hraða sem einkennir
samfélagið. Að öllum hraða sleppt-
um á fyrsta rit Hólarannsókn-
arinnar eftir Rúnu K. Tetzschner,
Nytjar í nöfnum – örnefni í ná-
grenni Hóla í Hjaltadal, sem Þjóð-
minjasafnið gefur út , svo örugglega
eftir að reynast áhugaverð lesning
fyrir sagnfræðiáhugafólk, rétt eins
og Ríki og kirkja – uppruni og þró-
un þjóðkirkjuhugtaksins eftir Sig-
urjón Árna Eyjólfsson sem Hið ís-
lenska bókmenntafélag gefur út.
Íslenskir listamenn og rithöfundarættu þá einnig að geta fallið í
kramið hjá mörgum, en bókin Í húsi
listamanns, sem
kemur út hjá
Bókafélaginu
Uglu og er eftir
Jakob F. Ás-
geirsson, geymir
svipmyndir af
sumum mætustu
20. aldar lista-
mönnum og rit-
höfundum lands-
ins. Af þeim má
nefna listmálarana Finn Jónsson og
Svavar Guðnason, myndhöggvarann
Sigurjón Ólafsson og rithöfundinn
Guðberg Bergsson.
Tengsl, tilfinningar og lýsingar ámannlegu eðli – jafnvel í sinni
firrtustu mynd – koma víða fyrir í
skáldsagnaforminu. Í nýjustu og
jafnframt annarri
skáldsögu Eiríks
Arnar Norðdahl,
Eitur fyrir byrj-
endur, sem Nýhil
gefur út, er
fjallað um samlífi
þeirra Herdísar
og Halldórs sem
tapar hæfileik-
anum til að fara
út úr húsi.
Óvenjulegir ein-
staklingar koma líka fyrir í smá-
sagnasafni Óskars Magnússonar,
Borðaði ég kvöldmat í gær? Þetta
er fyrsta bók Óskars, sem áður hef-
ur starfað bæði sem hæstarétt-
arlögmaður og fréttastjóri. Í Borð-
aði ég kvöldmat í gær? dregur
Óskar fram svipmyndir af fólki sem
allir kannast við í aðstæðum þar sem
hið skemmtilega og óvenjulega í fari
fólks nýtur sín í sögum sem ýmist
eru alvarlegar eða bráðfyndnar.
Þær eru þá ófáar ljóðabækurnarsem koma út fyrir þessi jól, þótt
þær fái sjaldnast sömu athygli og
skáld- og ævisögurnar. Úr hópi
ljóðabókanna má þó nefna Innviði –
Ljóð 1975–2006 sem er komin út hjá
Deus og geymir heildarljóðasafn
Bjarna Bernharðs, og hjá Eddu út-
gáfu kemur út ljóðabókin Ég stytti
mér leið framhjá dauðanum eftir
Einar Má Guðmundsson, sem er
hans fyrsta ljóðabók í rúman áratug.
Að lokum skal þess getið að beiðniHáskólaútgáfunnar að það er
dr. Aðalheiður Guðmundsdóttir sem
á veg og vanda af útgáfu bókarinnar
Strengleikar, sem sagt var frá í síð-
asta dálki.
BÆKUR
Rúna K.
Tetzschner
Óskar Magnússon
Jakob F.
Ásgeirsson
Eftir Þormóð Dagsson
thorri@mbl.is
Bækurnar um systurnar óstýrilátu Snuðru og
Tuðru eftir Iðunni Steinsdóttur eru börnum og
foreldrum þjóðarinnar vel kunnar en þær komu
fyrst út árið 1991 með teikningum Gunnars
Karlssonar. Nýverið voru bækurnar endur-
útgefnar hjá Sölku með nýjum myndskreyt-
ingum eftir Lóu Hlín Hjálmtýsdóttur.
Snuðra og Tuðra eru „hræðilega óþægar, skít-
ugar og tættar, alltaf að rífast og brúka munn“.
Vissulega eru stúlkurnar erfiðar viðureignar og
foreldrum þeirra ber ekki alveg saman um
hvernig eigi að ala þær upp. Pabbinn hefur
áhyggjur af uppeldinu en mamman vill meina að
reynslan sé besti kennarinn. Og í lok hverrar
bókar hafa þær lært eitthvað nýtt.
Þetta eru afar skemmtilegar og fyndnar bæk-
ur sem halda áfram að skemmta kynslóð eftir
kynslóð. En á tímum pólitískrar rétthugsunar er
eitthvað í þessum bókum sem skýtur skökku
við. Þá er sérstaklega forvitnilegt að skoða
kynjahlutverkin í bókin, þ.e.a.s. hlutverk móð-
urinnar annars vegar og föðurins hins vegar.
Heimilislífinu er þannig háttað að faðirinn vinn-
ur á hafrannsóknarskipi er yfirleitt úti á sjó og
tekur því takmarkað þátt í uppeldi dætranna.
Þá sjaldan að hann er í landi tautar hann fyrir
munni sér að stelpunum veiti ekki af ofurlítilli
tilsögn en gerir ekkert meira í því. Móðirin er
aftur á móti heimavinnandi og elur því dæturnar
að mestu leyti upp sjálf eftir eigin sannfæringu.
Faðirinn hefur lítið sem ekkert með uppeldi
dætra sinna að gera og það verður að teljast
frekar einkennilegt að birta þannig föðurímynd í
barnabók á þessum síðustu og verstu. En þessi
heimilismynd er í sjálfu sér ekki það einkenni-
legasta við bækurnar heldur eru aðstæðurnar
sums staðar ýktar svo mjög að útkoman verður
einfaldlega hlægileg. Þá meina ég hlægileg eins
og svartur húmor er hlægilegur og ég efast um
að lítil börn skilji hann svona almennt séð.
Gott dæmi um þetta er að finna í bókinni
Snuðra og Tuðra halda jól en í henni birtast
gamlar og tímaskakkar staðalmyndir foreldra-
hlutverkanna í sinni ýktustu mynd. Snuðra og
Tuðra vakna spenntar á aðfangadag og ætla að
hjálpa móður sinni við jólaundirbúninginn. Á
annarri hverri síðu hrópa þær á móður sína um
hitt og þetta og er langt í frá að þær auðveldi
henni undirbúninginn. Á einum stað draga þær
upp jólasveinsjakka sem þær vonast til að pabbi
þeirra muni klæðast um kvöldið. Þegar þær sjá
að jakkinn er rifinn hafa þær engar áhyggjur;
mamma gerir við hann. Og hrópin halda áfram
þegar þær biðja mömmu um að krulla á sér hár-
ið, gefa sér góða lykt, binda á sig slaufu, hjálpa
sér í kjólinn, laga blúnduna og finna skó og
sokka. Aldrei kalla þær á pabba sinn. Og loksins
þegar þær eru orðnar fínar birtist pabbinn,
sparibúinn og glaður. Mamman er aftur á móti
enn í „eldhúskjólnum“ með „ljóta skuplu“ um
hárið. „Mamma þó!,“ segir Snuðra þá og Tuðra
bætir við: „Alltaf ert þú síðust af öllum.“ Þegar
þau setjast svo við jólamatinn á mamman fullt í
fangi með að sinna stelpunum þar til hún sofnar
að lokum ofan í diskinn sinn. Þá tekur pabbinn
mömmuna í fangið og ber hana í sófann. Stúlk-
urnar sjá loksins að sér og bjóðast til að vaska
upp eftir matinn. Lærðu þær þarna þá lexíu að
mömmunni eru takmörk sett, sérstaklega þegar
hún þarf að sjá um þær ein og á sama tíma búa
til jólin. Einhvern veginn er það aldrei í mynd-
inni að pabbinn aðstoði hana við undirbúninginn.
Og hvar var hann eiginlega þangað til hann birt-
ist skyndilega sparibúinn í tæka tíð fyrir mat-
inn?
Þessi ýkta hlutverkaskipan í þessari bók er
svo á skjön við alla umræðu um foreldra og upp-
eldi barna að sagan kemur óneitanlega hlægi-
lega fyrir sjónir. Og svipað má segja um aðrar
bækur í seríunni þar sem Snuðra og Tuðra ham-
ast í móður sinni og pabbinn er hvergi sjáan-
legur. Bækurnar hljóta að vekja upp spurningar
hjá börnunum sem lesa þær. Er þetta dæmigert
fjölskyldulíf og er þetta hinn dæmigerði faðir?
Pabbi Snuðru og Tuðru
» Þetta eru afar skemmtilegar
og fyndnar bækur sem halda
áfram að skemmta kynslóð
eftir kynslóð. En á tímum póli-
tískrar rétthugsunar er
eitthvað í þessum bókum
sem skýtur skökku við.
ERINDI
Eftir Árna Matthíasson
arnim@mbl.is
V
arla er hægt að hugsa sér ólíkari
menn en þá Paul David Hewson
og Marshall Bruce Mathers III,
sá fyrrnefndi heimsþekktur fyrir
tónlist sína og eins mikils metinn
fyrir starf sitt í þágu fátækra víða
um heima, aðallega í Afríku, og sá síðarnefndi
heimsþekktur fyrir tónlist sína og alræmdur fyr-
ir glannalegar yfirlýsingar og harkaleg átök við
barnsmóður sína. Hewson, sem tók sér lista-
mannsnafnið Bono er heittrúaður og trúin er
mjög sýnileg í textum hans með hljómsveitinni
U2, en Eminem trúir eiginlega ekki á neitt nema
sjálfan sig.
Fyrir stuttu komu út á íslensku bækur um
þessa listamenn báða, annars vegar viðtalsbók
franska blaðamannsins Michka Assayas við
Bono, sem heitir Bono um Bono, og hinsvegar
bók Anthony Bozza um Eminem, sem heitir ein-
faldlega Eminem. Bókina um Bono þýddi Orri
Harðarson en Eiríkur Örn Norðdahl bókina um
Eminem.
Víst eru þeir ólíkir Bono og Eminem, en báðir
heimsfrægir milljónungar.
Segja má að mæður þeirra Bono og Eminem
hafi verið helstu áhrifavaldar þeirra þegar list-
sköpun var annars vegar. Þannig rekur Bono það
hvaða áhrif það hafði á hann þegar móðir hans
varð bráðkvödd er hann var fjórtán ára: „Í alvöru
talað þá held ég að sköpunarkraftur minn hafi
fyrst byrjað fyrir alvöru þegar ég var fjórtán ára
og veröldin hrundi,“ hefur Assayas eftir Bono í
bókinni og áfallsins sér víða stað í textum hans.
Úr textum Eminems má aftur á móti lesa það
að hans helsta vandamál hafi verið að móðir hans
skuli ekki hafa dáið, enda var drifkraftur hans
framan af bræði út í hana vegna uppeldisins,
lyfjaneyslu hennar og drykkju og rótleysisins
sem piltur þurfti að glíma við, aukinheldur sem
mótsagnirnar í bandarísku samfélagi hafa verið
honum áleitið yrkisefni – þversagnirnar í amer-
íska draumnum, en Eminem er einmitt holdtekja
hans.
Saga menningarkima
Bókin um Eminem er ekki eiginleg ævisaga,
frekar saga menningarkimans sem mótaði hann
og hvaða áhrif hann hafði síðan á hiphopheiminn.
Fyrir vikið skautar Bozza nokkuð yfir æviatriði
pilts en eyðir því meira púðri í að greina um-
hverfi hans og þjóðfélagsstrauma.
Sú mynd sem dregin er upp af Bono í bók
Assayas er helgimynd og þó spurningarnar séu
oft nærgöngular og Bono svari skilmerkilega,
trúir maður ekki alveg á dýrlinginn Bono, hann
er eiginlega of góður til að geta verið til, of heið-
arlegur til að maður trúi honum. Hér spilar vit-
anlega inní að allaf skín í gegn hve Assyas er
hrifinn af viðmælandanum og hve honum finnst
gott að baða sig í ljómanum sem stafar af Bono.
(Vonskublettina í hjarta Bonos má sjá annars
staðar, til dæmis þegar hann svarar gagnrýni frá
Ali Farka Toure á einkar óviðfelldinn og hroka-
fullan hátt í viðtali við Assyas sem birtist í Times
í byrjun þessa árs.)
Miklu púðri er eytt í störf Bonos að líkn-
armálum. Honum hefur orðið vel ágengt í þeim
efnum, enda kann Bono að beisla almennings-
álitið og nota til að berja á stjórnmálamönnum.
Eminem hefur annað í hyggju, hans góðgerð-
arstarf felst í því að bjarga sjálfum sér, að safna
eins miklu fé – ef marka má texta rappara er
ekkert eftirsóknarverðara en að komast yfir pen-
inga, nema þá það að eyða peningum.
Fjölmargir litir félagar Eminems og sam-
herjar í rappinu fengu að kenna á því, urðu undir
í stríðinu, hvort sem þeir voru skotnir fyrir að
vera á vitlausum stað á vitlausum tíma, en þeir
féllu í orrustu um gangstéttarhellur. Eminem var
þó öðruvísi, hann var hvítur.
Hvítt rusl
Eins og Bozza rekur söguna er Eminem dæmi
um það hve hegðun og framkoma eru mikilvægur
þáttur í kynþáttavitund vestan hafs, hann sé eig-
inlega svartur vegna þess að hann klæðist eins
og blökkumaður, hagar sér eins og slíkur og
rappar eins, Wigger kalla menn slíka fýra. Þetta
er hálf kjánalegt viðhorf, enda má færa að því
gild rök að ferill Eminems hafi þróast eins og
hann gerði að stórum hluta vegna þess að hann
er hvítur. Ekki er ástæða til að frýja honum
hæfileika, Eminema er með bestu textasmiðum
og röppurum sem fram hafa komið vestan hafs,
en þó hann sé vissulega „hvítt rusl“, White
Trash, eru textar hans allt öðruvísi en litra félaga
hans, heimssýnin önnur.
Bozza er nett uppskrúfaður og sjálfumglaður,
sólginn í að koma þekkingu sinni að, og fyrir vik-
ið er textinn full stirðbusalegur á köflum, en um
leið verður bókin meira en bara heimild um Em-
inem, hún er gott yfirlit yfir sögu tónlistarinnar
og lífsstílsins sem mótaði hinn unga Marshall
Mathers.
Assayas kemur úr annarri átt, evrópskur
blaðamannastíll er annars konar en amerískur,
fágaðri og sífellt í leit að djúpri merkingu, oft
reyndar þar sem ekkert slíkt er að finna. Honum
er mjög tamt að blanda sjálfum sér í samtalið
svona rétt til að minna á að hann sé nú merki-
legur karl, þekki Bono og allt.
Það er líka gaman að því hvernig málfar á bók-
unum speglar umfjöllunarefnið. Þýðing Eiríks
Arnar Norðdahl frískleg og óhefluð, vaðandi í
slangri og kæruleysislegum setningum – hæfir
umfjöllunarefninu einkar vel. Orri Harðarson fer
aðrar leiðir, textinn settlegri og þýðingin vand-
aðri, svona rétt eins og maðurinn sem rætt er
við.
Fulltrúar tveggja heima
Segja má að mæður þeirra Bono og Eminem hafi
verið helstu áhrifavaldar þeirra þegar list-
sköpun og innblástur er annars vegar, móðir Bo-
nos fyrir að hafa dáið þegar hann var fjórtán
ára, en móðir Emninems fyrir að hafa ekki dáið.
Saga þeirra Eminems og Bonos er sögð í tveimur
bókum, annars vegar samtalsbók við Bono þar
sem hann segir allt af létta og hins vegar bók um
Eminmem þar sem fókusinn er á umhverfinu
sem hann er sprottinn úr og menningarkimanum
sem hann tilheyrir.
Reuters
Bono Paul David Hewson, eða Bono.
Reuters
Eminem Marshall Mathers III, eða Eminem.