Morgunblaðið - 13.01.2006, Side 2
2 FÖSTUDAGUR 13. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
345 PÍLAGRÍMAR FÓRUST
Að minnsta kosti 345 pílagrímar
tróðust undir í mannþröng á hajj-
trúarhátíð múslíma í Sádi-Arabíu í
gær en hátíðinni lýkur í dag. Um 2,5
milljónir manna eru í Sádi-Arabíu í
því skyni að fagna hajj og tróðst
fólkið í gær undir eftir að nokkrir
pílagrímar höfðu hrasað um far-
angur á leið sinni til athafnar í Mina.
Atburðir sem þessir hafa verið al-
gengir á hajj-hátíðinni undanfarin
ár.
Þolinmæðin á þrotum
Forystumenn Bretlands, Þýska-
lands, Frakklands og Bandaríkjanna
vilja að málefnum Írana verði vísað
fyrir Öryggisráð Sameinuðu þjóð-
anna en þeir telja Íran brotlegt við
samninga um bann við þróun kjarn-
orkuvopna. Þeir segja viðræður við
Írana í „blindgötu“, kominn sé tími
til að á málum þeirra verði tekið af
festu.
Skólar sameinist?
Menntamálaráðherra hefur
ákveðið að skipa starfshóp til að
kanna fýsileika þess að sameina Há-
skóla Íslands og Kennaraháskóla Ís-
lands. Ákvörðunin er tekin að höfðu
samráði við rektora beggja skól-
anna. Guðmundi Árnasyni ráðuneyt-
isstjóra er ætlað að leiða hópinn.
Hann segir að fyrst og fremst verði
horft til þess hvort sameining þess-
ara tveggja skóla muni bæta kenn-
aramenntunina í landinu.
Vísitala hækkar
Vísitala neysluverðs hækkaði um
0,32% milli desember og janúar, en
það jafngildir 3,9% verðbólguhraða
á heilu ári. Þetta er nokkru meiri
hækkun en spáð hafði verið en
markaðsaðilar höfðu spáð lækkun
vísitölunnar eða lítils háttar hækk-
un. Nú er leitt líkum að því að Seðla-
bankinn hækki stýrivexti sína síðar í
mánuðinum.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Menning 24, 48/53
Fréttaskýring 8 Umræðan 26/34
Úr verinu 11 Bréf 26
Viðskipti 12 Minningar 35/40
Erlent 14/15 Dagbók 44/47
Minn staður 18 Víkverji 44
Höfuðborgin 19 Velvakandi 45
Akureyri 20 Staður og stund 46
Austurland 20 Bíó 50/53
Suðurnes 21 Ljósvakamiðlar 54
Landið 21 Veður 55
Daglegt líf 22/23 Staksteinar 55
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is
Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Inga
Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson
Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
BORGARRÁÐ telur að verðmat á
Landsvirkjun upp á rúma 56 millj-
arða sé of lágt. Steinunn Valdís Ósk-
arsdóttir borgarstjóri segir að salan á
hlut Reykjavíkurborgar í Landsvirkj-
un til ríkisins hafi því ekki tekist. Við-
ræðum sé þó ekki formlega slitið.
Hún á ekki von á því að þráðurinn
verði tekinn upp að nýju fyrir kom-
andi sveitarstjórnarkosningar.
Viðræður um kaup ríkisins á hlut
Reykjavíkurborgar og Akureyrar-
bæjar í Landsvirkjun hafa staðið yfir í
bráðum ár. Um nokkra hríð hefur leg-
ið fyrir að ágreiningur sé um verðmat
á fyrirtækinu. Hlutur Akureyrarbæj-
ar í Landsvirkjun er um 5% og
Reykjavíkurborgar um 45%.
Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri
Akureyrarbæjar, sagði er blaðamað-
ur innti hann álits á þessari stöðu
mála í gær, að ljóst væri að R-listinn
gæti ekki klárað málið. „Þetta er óvið-
unandi staða og við þurfum að hugsa
okkar gang upp á nýtt.“ Aðspurður
vildi hann hvorki tjá sig um verðmat á
fyrirtækinu né öðru því sem lyti að
viðræðunum fyrr en þeim hefði verið
lokið með formlegum hætti.
Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar-
ráðherra vildi ekki tjá sig um þetta
mál, þegar eftir því var leitað í gær, í
ljósi þess að engin formleg tilkynning
hefði borist til ráðuneytisins um
viðræðuslit af hálfu borgarinnar.
Ekki hægt að hækka verðið
Staðan í viðræðunum um Lands-
virkjun var rædd á fundi borgarráðs í
gær. Fulltrúar borgarinnar í við-
ræðunefnd um söluna greindu þar
m.a. frá því að þeir teldu að ekki væri
hægt að ná verðinu ofar, að sögn
Steinunnar Valdísar. Meirihluti borg-
arráðs, þ.e. borgarfulltrúar R-listans,
létu bóka að verðmat fyrirtækisins
væri alls ekki viðunandi. Borgarráðs-
fulltrúar Sjálfstæðisflokksins tóku
undir það í sinni bókun. „Borgarráðs-
fulltrúar Sjálfstæðisflokksins eru
sammála því að það verðmat upp á
rúma 56 milljarða, sem nú liggur fyrir
hjá viðræðunefndinni, er ekki viðun-
andi. Þess vegna er eðlilegt að slíta
þessum viðræðum […],“ segir í bók-
uninni.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti
sjálfstæðismanna í borgarstjórn, seg-
ir að fulltrúar R-listans hafi hvort sem
er ekki haft hug á því að selja hlutinn í
Landsvirkjun því ágreiningur sé inn-
an listans um söluna. „Þessar viðræð-
ur hafa í raun verið allt að því inni-
stæðulausar upp á síðkastið vegna
þess að allir vita að mikill pólitískur
ágreiningur er innan R-listans um
sölu á hlut ríkisins í Landsvirkjun.“
Ólafur F. Magnússon, borgar-
fulltrúi F-listans og áheyrnarfulltrúi í
borgarráði, segir einnig í bókun sinni
að verðmat á Landsvirkjun sé of lágt.
„Í núverandi stöðu tel ég ekki tilefni
til frekari viðræðna um þessi mál og
að þær ætti að leggja til hliðar.“
Þegar Steinunn Valdís er spurð
hvort ágreiningur sé innan R-listans
um söluna á hlut borgarinnar í Lands-
virkjun segir hún þetta eitt: „Það er
yfirlýst stefna borgaryfirvalda að fara
úr fyrirtækinu. Sú stefna endurspegl-
ast í tillögum orkustefnunefndar.“
Sérstakt matsfyrirtæki var fengið til
að verðleggja Landsvirkjun, að sögn
Steinunnar.
Hún segir að ágreiningur um verð-
matið snúist um forsendur fyrirtæk-
isins fyrir matinu. „Hann snýst m.a.
um ávöxtunarkröfuna og álverð.“
Hún vill ekki gefa upp álverðið sem
miðað er við. Innt eftir því hvaða verð
á Landsvirkjun hún telji viðunandi
segir hún: „Við höfum talið að ávöxt-
unarkröfurnar ættu að vera lægri og
að miða ætti við annað álverð. Þetta
tvennt gæti hleypt verðinu upp um
ríflega tíu milljarða.“
Tjáði ráðherrum óánægju sína
Steinunn segist hafa fundað með
forsætisráðherra og iðnaðarráðherra
fyrir skömmu um þetta mál. „Ég tjáði
þeim óánægju mína með þetta verð-
mat.“ Síðan þá hafi málið verið í bið-
stöðu þar til það var tekið til umræðu
á fundi borgarráðs í gær. Innt eftir
því hvað þurfi til, til þess að hún vilji
taka upp þráðinn í viðræðunum að
nýju, segir hún: „Menn verða að sam-
einast um þær forsendur sem liggja
til grundvallar matsverðinu áður en
lengra er haldið. Við metum þá bæði
verð og tímasetningu upp á nýtt.“
Með því segist hún eiga við að ýmsir
hafi haldið því fram að ekki væri rétti
tíminn nú að selja Landsvirkjun, því
verðmætið gæti aukist í framtíðinni.
Viðræður varla teknar
upp fyrir kosningar
Borgarráð er ekki sátt við 56 milljarða verðmat á Landsvirkjun
Eftir Örnu Schram
arna@mbl.is
laginu til framdráttar. „Jafnframt
þakkar aðalstjórn fráfarandi fram-
kvæmdastjóra óeigingjörn störf í
þágu ÖBÍ og mælist eindregið til
þess að framkvæmdastjórn láti
hann njóta góðra starfa með því að
gera við hann starfslokasamning
sem báðir aðilar hafi sóma af,“ seg-
ir í ályktuninni.
AÐALSTJÓRN Öryrkjabandalags
Íslands (ÖBÍ) segir í ályktun sem
samþykkt var samhljóða á fundi
hennar í gær að hún lýsi fullum
stuðningi við formann og fram-
kvæmdastjórn ÖBÍ í starfi þeirra
fyrir bandalagið.
Hún segist enn fremur vænta
þess að nýjar áherslur verði banda-
Stuðningur við formann og
framkvæmdastjórn ÖBÍ
ÞÁTTTAKENDUR í mentorverk-
efninu Vinátta, sem Velferðar-
sjóður barna rekur, skunduðu í
Keiluhöllina í Öskjuhlíð í gær og
var samankominn litríkur og fjöl-
breyttur hópur fólks á öllum aldri,
en alls taka 23 skólar á öllu landinu
þátt í verkefninu. Kjarni þess er að
háskólastúdentar og mennta-
skólanemar veita grunnskólabörn-
um stuðning og hvatningu. Þau fá
tækifæri til að verða fyrirmynd í lífi
grunnskólabarna og þau mynda
tengsl við þroskaðan, fullorðinn
einstakling utan fjölskyldu sinnar.
Ásta Sigrún Magnúsdóttir er
nemandi í fjórða bekk í Kvenna-
skólanum og er mentor tvíbura,
Júlíu Sifjar og Halldórs Sörla Ólafs-
barna. Ásta segir verkefnið ganga
út á að mentorinn hittir barnið, eða
börnin, einu sinni í viku, í u.þ.b.
þrjá klukkutíma í senn þar sem eitt-
hvað skemmtilegt er gert saman.
„Þetta er rosalega skemmtilegt
verkefni þar sem við fáum að hitt-
ast, spjalla saman og gera eitthvað
skemmtilegt. Eins og núna förum
við í keilu og í síðustu viku vorum
við heima hjá mér að baka,“ segir
Ásta Sigrún sem tekur þátt í verk-
efninu í gegnum félagsfræði í
Kvennaskólanum og fær einingar
fyrir. Hún segir verkefnið ótrúlega
gefandi og segist vilja halda áfram
að því loknu en hvert barn fær eitt
skólaár í verkefninu.
Júlía Sif og Halldór Sörli voru
bæði á sama máli. Alltaf væri jafn
gaman hitta Ástu og eiginlega bara
æði. Ekki stóð á svörum þegar þau
voru spurð um hvað væri skemmti-
legast að gera, Fjölskyldu- og hús-
dýragarðurinn var í fyrsta sæti og
það að baka bollur og kanilsnúða
þar skammt á eftir.
Gefandi og skemmti-
legt verkefni
Morgunblaðið/Ómar
Ásta Sigrún Magnúsdóttir mentor, með Halldóri Sörla og Júlíu Sif Ólafs-
börnum, í Keiluhöllinni í gær. Þau hittast einu sinni í viku.
STARFSMAÐUR Orkuveitunnar
slasaðist alvarlega við Rauðarárstíg í
gær þegar ekið var á hann þar sem
hann var við vinnu sína. Var hann
fluttur á slysadeild með höfuðáverka
og opið beinbrot. Gekkst hann undir
aðgerð og átti að leggjast inn á gjör-
gæsludeild að henni lokinni. Starfs-
maðurinn var að vinna við að opna
vatnsloka vegna stíflaðs vatnsinn-
taks í götunni við gatnamót Rauð-
arárstígs og Flókagötu þegar ekið
var á hann. 30 km hámarkshraði er á
þessum slóðum.
Maður alvarlega slas-
aður eftir ákeyrslu