Morgunblaðið - 13.01.2006, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 13.01.2006, Blaðsíða 44
Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn VARIÐ YKKUR Á HUND- INUM VOR- KENNIÐ HUND- INUM AF HVERJU ER MÉR ALDREI BOÐIÐ Í GRILLVEISLU ... MÁ ÉG ÞAÐ, MAMMA? GERÐU ÞAÐ??? ÉG HELD AÐ STÓR BLÁ AUGU SANNFÆRI EKKI MÖMMU ÞÍNA UM AÐ GEFA ÞÉR ELDVÖRPU KANNSKI ÆTTI ÉG AÐ KJÖKRA SMÁ? ER ÞAÐ ORÐIÐ OF SEINT AÐ PANTA „MORGUNHANA SÉRRÉTTINN“? NEI, ÞAÐ ER EKKI OF SEINT, FRÚ MÍN HVERNIG VILJIÐ ÞIÐ LÁTA STEIKJA HANANN? AF HVERJU ER HANN AÐ LYFTA ÞESSUM LÓÐUM? ÞETTA KALLAST KRAFTLYFTINGAR, GRÍMUR MINN EN AF HVERJU LYFTIR HANN LÓÐUNUM YFIR HÖFUÐIÐ Á SÉR? ÞETTA KALLAST HREIN LYFTA, GRÍMUR ER LYFTAN JAFN HREIN OG HANN? ERT ÞÚ ÁNÆGÐUR MEÐ SUMARIÐ? ÞAÐ VAR ALLT Í LAGI BARA ALLT Í LAGI? HVAÐ FANNST ÞÉR STANDA UPP ÚR? HMMM... ÞAÐ AÐ GETA KEYRT Í VINNUNA MEÐ RÚÐURNAR SKRÚFAÐAR NIÐUR VIÐ VERÐUM AÐ SKIPULEGGJA ALVÖRU- FRÍ NÆSTA SUMAR ÉG NÆ HONUM Í VEFINN MINN OG SVO GETUM VIÐ TALAÐ SAMAN HANN ER NÆSTUM ÞVÍ JAFN SNÖGGUR OG ÉG!?! ENGINN RÆÐST Á TARANTÚLUNA! Dagbók Í dag er föstudagur 13. janúar, 13. dagur ársins 2006 Halógenlýsing er ítízku. Litlu per- urnar, sem ekki má snerta með berum höndunum, þykja gefa náttúrulegra ljós en gömlu perurnar, þær þykja fara heldur bet- ur með rafmagn og það er auðveldara að fókusa ljósið í köst- urum. Í öllum nýleg- um húsum, sem Vík- verji kemur inn í, er meiriparturinn af öll- um ljósum halógen- ljós. x x x Þrátt fyrir mikla útbreiðslu haló-genlýsingarinnar og að hún virðist í nýrri hverfum vera orðin út- breiddari en lýsing með gömlu glóð- arþráðarperunum eða flúrperum, er ótrúlega dýrt og erfitt að nálgast halógenperur. Í venjulegum stór- verzlunum er lélegt úrval af þeim, eða þær fást þá alls ekki. Og í raf- tækjaverzlunum eru þær fáránlega dýrar, margfalt dýrari en eldri gerð- ir af perum. Algengt verð fyrir haló- genperu með spegli er 800–900 krónur. Í Bandaríkjunum kosta sams konar perur í mesta lagi 5–6 dollara, 300–400 krónur. x x x Er þetta fyrst ogfremst af því að halógenperurnar eru í tízku og kaupmenn reyna að láta líta út fyrir að þær séu ein- hvers konar lúxus- vara? Eða skyldi ríkið líta á þær sem lúx- usvöru og leggja á þær vörugjöld í samræmi við það? Svo mikið er víst að halógenper- urnar eru svo dýrar, að verðmunurinn étur upp þann orkusparn- að, sem hugsanlega hlýzt af notkun þeirra. x x x Rússneski þjóðernissinninn Vladí-mír Zhírínovskí vill láta herinn skjóta farfugla, sem koma til Rúss- lands frá Tyrklandi, til að hindra út- breiðslu fuglaflensunnar. Þessi hug- mynd minnti Víkverja óneitanlega á hið snilldarlega áramótaskaup frá 1985, þar sem Örn Árnason stóð í Rambó-búningi í Öskjuhlíðinni og plaffaði niður farfugla – reyndar til að koma í veg fyrir innflutning á fuglakjöti. Kannski hefur Zhírí- novskí horft á skaupið. Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is               Leikhús | Draumasmiðjan, í samstarfi við Hafnarfjarðarleikhúsið, hefur haf- ið æfingar á leikritinu Viðtalinu í Hafnarfjarðarleikhúsinu. Leiksýningin er svo kölluð „döff-sýning“ en það þýðir í stuttu máli að hún sé líka aðgengileg heyrnarlausum áhorfendum. Verkið fjallar um samskipti, eða samskiptaleysi mæðgna. Dóttirin (40 ára) er heyrnarlaus en móðirin (65 ára) heyrandi. Verk- ið er samskrif þeirra Lailu Margrétar Arnþórsdóttur og Margrétar Péturs- dóttur. Margrét er einnig leikstjóri sýningarinnar en Björn Gunnlaugsson mun verða henni til aðstoðar. Leikarar eru þær: Soffía Jakobsdóttir, Elsa Guðbjörg Björnsdóttir, Tinna Hrafnsdóttir og Berglind Stefánsdóttir auk túlksins Árnýjar Guðmundsdóttur sem leikur vegamikið hlutverk í leikritinu. Morgunblaðið/Árni Sæberg Æfingar hafnar á Viðtalinu MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. Orð dagsins: Móðir mín og bræður eru þeir, sem heyra Guðs orð og breyta eftir því. (Lúk. 8,21.)
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.