Morgunblaðið - 13.01.2006, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 13. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
6. -20. apríl
13. - 27. apríl
7. - 21. september
aukaferð
örfá sæti laus
örfá sæti laus
SIGURÐUR Kári Kristjánsson,
þingmaður Sjálfstæðisflokks, hefur
samið drög að frumvarpi til breyt-
inga 25. kafla almennra hegning-
arlaga og skaðabótalögum sem felur
í sér aukna vernd á friðhelgi einka-
lífs einstaklinga og fjölskyldna
þeirra gagnvart ærumeiðandi um-
mælum eða aðdróttunum, hvort
sem þær koma frá fjölmiðlamönn-
um eða öðrum sem þátt taka í op-
inberri umræðu.
Aðalbreytingin felst í auknum
skaðabótarétti þeirra sem verða
fyrir meingerðum og felur í sér að
hægt verður að dæma mönnum
mun hærri bætur en tíðkast hafa til
þessa og að bótafjárhæðin hafi
verulega fjárhagslega þýðingu fyrir
þann sem dæmdur er til greiðslu
hennar.
Sigurður segir að umfjöllun DV,
um meintan
brotamann á
Ísafirði sem
svipti sig lífi í
kjölfar umfjöll-
unarinnar, hafi
kannski verið
dropinn sem
fyllti mælinn en
alls ekki eina
ástæða þess að
hann kynnir nú
frumvarpsdrögin. Þau séu frekar
afleiðing þeirrar þróunar sem orðið
hafi í fréttaflutningi og opinberri
umræðu á Íslandi á seinustu árum.
„Ég vil taka það sérstaklega fram
að í þessum frumvarpsdrögum er
ekki verið að skerða tjáningarfrels-
ið með neinum hætti eða hlutast til
um það hvað sé sagt og hvað ekki í
fjölmiðlum. Það er verið að leggja
þyngri áherslu á það að menn beri
ríka ábyrgð á því sem þeir segi um
annað fólk,“ segir Sigurður Kári.
Honum hafi lengi blöskrað
hversu lágar bætur séu dæmdar
mönnum í meiðyrðamálum og sér
hafi fundist mannorð verðlagt
býsna lágt.
„Nú held ég að þróun mála á síð-
ustu misserum hafi gert það að
verkum að fólk þoli þetta ekki leng-
ur og að tími sé kominn til þess að
standa dyggari vörð um stjórnar-
skrárvarin réttindi einstaklinga og
fjölskyldna þeirra til friðhelgi á
einkalífi en gert hefur verið og að
tryggja þeim ríkari og afdráttar-
lausari skaðabótarétt gagnvart
þeim sem á þeim brjóta,“ segir Sig-
urður Kári. Hann segist eiga von á
því að frumvarpið njóti fylgis innan
þingflokks Sjálfstæðisflokksins.
Frumvarpsdrög Sigurðar Kára Kristjánssonar
til breytinga á almennum hegningarlögum
Sigurður Kári
Kristjánsson
Aukin vernd á frið-
helgi einkalífsins
STJÓRN Samtaka auglýsenda telur
það beinlínis skaðlegt fyrir ímynd
auglýsenda að auglýsa í DV og hvet-
ur alla auglýsendur til að sniðganga
blaðið þar til stjórnendur þess hafa
fært siðareglur blaðsins til samræm-
is við siðareglur Blaðamannafélags
Íslands. Þetta kemur fram í áskorun
sem stjórn samtakanna sendi fjöl-
miðlum í gær.
Samtök auglýsenda (SAU) eru
hagsmuna- og fræðslusamtök fyrir
alla auglýsendur og hafa verið virk
frá árinu 2000 þótt þau hafi verið
stofnuð allmörgum árum áður. Að-
ilar að samtökunum eru um 50–60
fyrirtæki og stofnanir sem eiga það
sameiginlegt að nota auglýsingar til
að koma á framfæri upplýsingum um
starfsemi, vörur eða þjónustu við-
komandi.
Tilgangur samtaka auglýsenda er
að gæta sameiginlegra hagsmuna
auglýsenda gagnvart fjölmiðlum,
stjórnvöldum og auglýsingastofum.
SAU reynir að stuðla að góðu sam-
starfi við alla þá sem starfa að aug-
lýsingamiðlum til að tryggja réttindi
þeirra sem auglýsa. Einnig er það
meðal markmiða SAU að vinna að
hvers konar faglegri fræðslu um
markaðslega boðmiðlun.
Auglýsendur hvattir
til að sniðganga DV
VEGGSPJÖLD með auglýsingum
DV voru í gær fjarlægð úr öllum
verslunum Bónuss. Blaðið verður þó
áfram á boðstólum. Guðmundur
Marteinsson, framkvæmdastjóri
Bónuss, segir þetta ekki í fyrsta
skipti sem gripið sé til slíkra að-
gerða eftir umfjöllun DV. Á síðasta
ári var ákveðið að fjarlægja auglýs-
ingar blaðsins í tengslum við um-
fjöllun þess um Ástþór Magnússon.
„En þetta var kornið sem fyllti
mælinn og þetta fer aldrei upp aftur
nema það verði breyting á blaðinu,“
segir Guðmundur og á þar við um-
fjöllun blaðsins um mann á Ísafirði
sem stytti sér aldur í kjölfar frétta
blaðsins. Guðmundur segir sorglegt
og óskiljanlegt að Bónus skuli vera
tengt DV í umfjöllun um málið. „En
ef neytendur vilja láta óánægju sína
í ljós eiga þeir að sniðganga DV.
Þannig finna þeir mest fyrir því. Það
er langsterkasta vopnið.“
Hann segist ekki vilja ganga svo
langt að hætta að selja DV í Bón-
usverslunum. Hann telji eðlilegra að
kúnninn geti valið og hafnað. „Mér
finnst miklu betra að leggja þetta í
dóm neytenda sem geta þá snið-
gengið blaðið. Ef salan hrynur þá sé
ég engan tilgang í að selja það.“
Bónus auglýsir ekki DV
Stjórn Dagsbrún-
ar fundar í dag
SÚ UMFJÖLLUN sem átt hefur
sér stað undanfarna daga um DV
verður rædd á stjórnarfundi Dags-
brúnar hf. í dag. Dagsbrún hf. er
eignarhalds- og fjárfestingafélag á
sviði fjarskipta, fjölmiðlunar og af-
þreyingar sem skráð er í Kauphöll
Íslands. Það er móðurfélag 365 ljós-
vaka- og prentmiðla, sem rekur m.a.
DV, fjarskiptafélagsins Og Voda-
fone og fjarskiptafélagsins P/F Kall
í Færeyjum.
Gengi hlutabréfa í Dagsbrún hf.
lækkaði um 0,9% í Kauphöll Íslands
í gær. Frá áramótum hefur gengi
bréfanna lækkað um 4,16%.
Þórdís J. Sigurðardóttir er stjórn-
arformaður Dagsbrúnar hf. en auk
hennar sitja í stjórn Árni Hauksson,
Davíð Scheving Thorsteinsson og
Magnús Ármann.
RÚNA Jónsdóttir hjá Stíga-
mótum sagði í Íslandi í dag á
Stöð 2 á miðvikudagskvöldið að
umfjöllun DV um kynferðis-
brotamenn og meinta kynferð-
isbrotamenn þjóni ekki þeim til-
gangi að styðja fórnarlömb
þeirra.
„Ef ég set mig í spor DV-
manna þá gæti ég í besta falli
hugsað sem svo að þeir séu að
styðja einhver hugsanleg fórn-
arlömb. Hafi það verið þá hefur
það snúist í höndunum á þeim,“
sagði Rúna í þættinum.
Sagðist hún þekkja nokkur
dæmi þess að menn sem fjallað
hafi verið um í tengslum við
kynferðisbrotamál hafi svipt sig
lífi. „Það hefur verið skelfilegt
fyrir fórnarlömb þeirra manna.
Fórnarlömbin leituðu réttar
síns og kynferðisbrotamenn-
irnir sviptu sig lífi og þannig
tókst þessum fórnarlömbum
ekki að losa sig undan ábyrgð-
inni af leyndarmálinu.“
Umfjöllunin
ekki til bóta
fyrir meint
fórnarlömb
ANNAR piltanna, sem lagt hefur
fram kærur á hendur manninum
sem svipti sig lífi eftir umfjöllun DV
um meint kynferðisbrot hans, vísar
ummælum Jónasar Kristjánssonar,
ritstjóra DV, í Kastljósinu á mið-
vikudagskvöld á bug en þar sagði
Jónas m.a. að DV væri að standa
vörð um hagsmuni fórnarlamba
kynferðisbrotamanna. Þetta kom
fram í Kastljósi í gærkvöldi. „Ég
harma fréttaflutning DV enda eyði-
lagði blaðið framgang málsins.
Sannleikurinn kemur nú aldrei fram
fyrir dómstólum eins og við von-
uðumst til,“ var haft beint eftir pilt-
inum í Kastljósi, en hann kaus að
koma ekki fram undir nafni.
Fram kom að pilturinn segði þá
sem kærðu manninn sammála um að
DV hafi í raun unnið gegn hags-
munum þolenda í þessu máli.
„Við reyndum ítrekað í gegnum
þriðja aðila að koma þeim skila-
boðum til blaðsins að umfjöllun um
málið myndi spilla fyrir framgangi
þess en þeir virtu ekki okkar vilja í
því,“ var haft eftir piltinum.
Þá gagnrýndi hann aðgangshörku
blaðsins gagnvart sér og aðstand-
endum sínum eftir að maðurinn
svipti sig lífi en blaðið hefði stöðugt
reynt að fá viðbrögð þeirra og fjöl-
skyldumeðlima.
„Fyrst eyðilögðu þeir málið og
síðan reyna þeir að eyðileggja okkur
og fjölskyldu okkar með því að láta
okkur ekki í friði þótt við viljum
ekkert við þá tala. Þótt okkar vilji
hafi verið sá að ná fram réttlæti og
koma lögum yfir manninn þá gerði
DV rangt. Fréttaflutningur þeirra
gekk allt of langt. Einn dag segjum
við sögu okkar en það verður ekki á
síðum DV,“ var haft eftir piltinum í
þættinum.
Enn fremur að hann segði þá sem
lögðu fram kæru ekki kenna sér um
lát mannsins, þeir viti að þeir hafi
ekki gert neitt rangt. „Vegna hinnar
miklu samúðarbylgju sem risið hef-
ur í samfélaginu með manninum
sem lést finnst okkur mikilvægt að
það komi fram að það eru fleiri fórn-
arlömb í þessu máli.“
Kastljósið ræddi einnig við annað
meint fórnarlamb sem íhugaði að
kæra manninn áður en hann svipti
sig lífi. „Ég var búinn að taka þá
ákvörðun að segja mína sögu þess-
um drengjum til stuðnings hjá við-
eigandi yfirvöldum. Þrátt fyrir það
verð ég að lýsa andúð minni á rit-
stjórn DV. Þeir gerðu engum greiða
með þessari frétt,“ var haft eftir
þeim manni í Kastljósinu í gær.
Sagt frá skoðunum kærenda í Kastljósi í gærkvöldi
Gegn hagsmunum þolenda
STJÓRN Stúdentaráðs skorar á
Bóksölu stúdenta að taka DV úr
sölu. Í gær afhentu fulltrúar Stúd-
entaráðs Sigurði Pálssyni, rekstr-
arstjóra Bóksölu stúdenta, áskorun
um að hætta sölu DV í Bóksölunni.
Áskorunin er svohljóðandi: „Í
ljósi nýliðinna atburða skorar
stjórn Stúdentaráðs Háskóla Ís-
lands á Bóksölu stúdenta til að
taka DV úr sölu. Ennfremur hvet-
ur stjórnin stúdenta og landsmenn
til að hætta lestri og kaupum á
DV.“
Bóksala
stúdenta hætti
að selja DV
Morgunblaðið/Sverrir
Rúmlega 30
þúsund höfðu
skrifað undir
UNDIR miðnætti í gærkvöldi
höfðu rúmlega þrjátíu þúsund
manns tekið þátt í undirskrift-
arsöfnun ýmissa samtaka ungs
fólks þar sem skorað er á blaða-
menn og ritstjóra DV að endur-
skoða ritstjórnarstefnu sína og
sýna ábyrgð og virðingu í umfjöll-
un um menn og viðkvæm málefni.
Í áskoruninni eru eigendur og út-
gefendur blaðsins jafnframt
minntir á þá samfélagslegu
ábyrgð sem fylgir því að gefa út
fjölmiðil.
Söfnun undirskrifta hófst kl. 11
11. janúar en lokað verður fyrir
skráningu undirskrifta í dag,
föstudaginn 13. janúar, kl. 11 og
hefur söfnunin þá staðið yfir í tvo
sólarhringa. Verður undirskrift-
arlistinn í kjölfarið afhentur þeim
aðilum sem áskorunin beinist að.
Slóðin að undirskriftasöfn-
uninni er: www.deiglan.com/
askorun/
Aðilar að verkefninu eru: Deigl-
an.com, Samband ungra sjálfstæð-
ismanna, Ungir jafnaðarmenn,
Stúdentaráð Háskóla Íslands,
Múrinn.is, Samband ungra fram-
sóknarmanna, Tíkin.is, Ung frjáls-
lynd, Heimdallur, Ung vinstri-
græn, Vaka, Röskva og H-listinn.
TÓNLISTARMAÐURINN Gunnar
Lárus Hjálmarsson, betur þekktur
sem Dr. Gunni, hefur ákveðið að
hætta skrifum sínum fyrir DV í ljósi
atburða síðustu daga. Frá þessu
greinir hann á vefsvæði sínu, this.is/
drgunni.
Þar segir að DV hafi farið svo
langt yfir strikið að ómögulegt sé að
afsaka það og að sjálfur hafi hann
varla lyst á að hjálpa til við að fylla
síður blaðsins áfram. Þegar Morg-
unblaðið hafði samband við Gunnar
Lárus í gærkvöldi sagðist hann hafa
komið þessum skilaboðum áleiðis til
réttra aðila á DV.
Dr. Gunni
hættur að
skrifa í DV
♦♦♦