Morgunblaðið - 13.01.2006, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. JANÚAR 2006 45
DAGBÓK
Nýtt gallerí, Gallerí Úlfur, verður opn-að klukkan 16 á morgun, laugardag.Eigandi þess er Úlfar Eysteinssonveitingamaður í Þremur Frökkum,
hjá Úlfari.
„Ég er búinn að leigja í 14 ár litla íbúð sem
ég hef nýtt sem skrifstofu og aðstöðu fyrir
starfsfólk, svo fór þessi íbúð á sölu og það
reyndust stirðleikar í samningum sem endaði
þó vel. Í millitíðinni var ég búinn að festa kaup
á versluninni sem er við hliðina á umræddri
íbúð. Við þau kaup leystust húsnæðismál skrif-
stofunnar og starfsfólksins en í afgang komu
tvö stór rými sem ég gat hugsað mér að nýta
sem gallerí til þess að þau stæðu ekki auð
heldur fengi fólk að njóta myndlistar í þeim,“
sagði Úlfar þegar hann var spurður um að-
draganda að stofnun hins nýja gallerís.
En hver skyldi vera sá fyrsti sem sýnir verk
sín í Gallerí Úlfi? „Það er Sigurdís Harpa Arn-
arsdóttir frá Vestmannaeyjum. Hún sýnir í
galleríinu blandaða list og sýning á verkum
hennar stendur út janúar. Í öðru rýminu verð-
ur hún með almanaksmyndir og í hinu sýnir
hún teikningar, krítarverk, olíuverk, klippi-
myndir og vatnslitamyndir.
Síðan hef ég samið við Sigurdísi um að hún
stjórni galleríinu og velji listamenn sem vilja
sýna listaverk sín í Galleríi Úlfur.
Myndlistarmaður í febrúar verður Ásgeir
Lárusson.“
Hvað er um að ræða stórt rými þarna?
„Rýmið er samanlagt að losa um 40 fer-
metra. Það er búið að taka húsnæðið gjör-
samlega í gegn enda hafði það ekki verið end-
urnýjað frá árinu 1950.
Sýningargestir geta sem best fyrst notið list-
sýningarinnar og gengið svo yfir á Þrjá
Frakka og notið þar matseldarlistar okkar þar.
Galleríið verður opið alla daga frá klukkan 14
til 18.“
Myndlist | Nýtt gallerí, Úlfur, opnað á morgun – laugardag
List og lyst hjá Úlfari
Úlfar Eysteinsson
hefur um langt árabil
rekið matsöluhúsið Þrír
Frakkar, hjá Úlfari. Hann
lauk prófi sem mat-
reiðslumaður frá Þjóna-
og veitingaskólanum ár-
ið 1967 og hefur síðan
unnið að iðninni, síðustu
23 árin verið sjálfstætt
starfandi, Þrjá Frakka
hefur hann rekið frá
1989 og einbeitt sér að fiskréttum og hvalkjöti.
Hann á tvö uppkomin börn, Stefán og Guðnýju
sem starfa bæði hjá föður sínum.
Mikið getið þið lagst lágt
ÞIÐ gerið það ekki endasleppt, rit-
stjórar og eigendur DV.
Nú hefur það gerst það sem við
öll vissum sem ég tel að höfum snef-
il að sómatilfinningu að saklaus
maður (ekki búið að dæma hann) sá
sér ekki fært að takast á við þennan
viðbjóðslega fréttaflutning ykkar af
saklausu fólki.
Ég hefði ekki trúað því á þig
Mikael Torfason að þú af öllum
mönnum skulir taka þátt í svona
svínaríi. Þú ert kominn af mjög
góðu fólki ég þekki það allt saman.
Ég reyndi að hlusta á ykkur for-
ingjana reyna að réttlæta þennan
gjörning ykkar í Kastljósinu 11 jan.
sl., en ég gat það ekki. Mér ofbauð í
ykkur kjaftæðið.
Að lokum langar mig að benda
fólki á að kaupa ekki þetta sorprit
sem virðist hafa það að markmiði að
eyðileggja líf okkar með svívirðileg-
um hætti.
Ég starfaði sem fangavörður í
mörg ár og tel mig vita hvernig
fólki sem sett er í gæsluvarðhald
líði. Við lítum ekki á þetta fólk sem
glæpamenn það er saklaust þar til
búið er að sanna glæpinn og dæma
það.
Ég skora á þá sem verða fyrir
svona fréttaflutningi (ekki búið að
sanna glæpinn) að kæra til dómstóla
vesalingana sem stjórna þessu sorp-
riti.
Ég votta aðstandendum þessa
manns sem sá sig knúinn til að
grípa til þessara örþrifaráða að taka
sitt eigið líf mína dýpstu samúð.
Ómar F. Dabney,
fyrrv. fangavörður.
Jónas er fallinn!
MIKIÐ óskaplega geta menn lagst
lágt. Ég las viðtal við Jónas Krist-
jánsson í Blaðinu þar sem hann ger-
ir vanmáttuga tilraun til að réttlæta
stefnu blaðsins varðandi myndbirt-
ingar og umfjallanir ýmissa mála.
Jónas er fallinn – í þá gryfju að
halda að fólk sjái ekki í gegnum yf-
irklórið. Það gekk a.m.k. alveg fram
af mér við lestur viðtalsins og ég hef
grun um að svo hafi verið með fleiri.
Þótt Jónas keyrði bíl ölvaður
réttlætti það ekki myndbirtingu og
greinaskrif á þeim forsendum ein-
um að allt sem væri skrifað væri
satt og rétt!
Það er ekki hægt að réttlæta
skrif eingöngu með því að segja að
allt sem fram komi sé satt og rétt.
Það þarf líka að uppfylla lágmarks-
kröfur um siðferði. Ég vona að Jón-
as sjái ljósið fljótlega.
Marteinn M. Guðgeirsson.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 kl. 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Hlutavelta | Þeir Jónatan og Svavar
söfnuðu 7.002 kr. til styrktar Rauða
krossi Íslands fyrir Malavíu.
Ragnar Axelsson
Hlutavelta | Matthías Jónasson safn-
aði 1.572 kr. til styrktar Rauða krossi
Íslands, Malaví.
1. d4 d5 2. c4 c6 3. Rf3 Rf6 4. Rc3 a6
5. cxd5 cxd5 6. Bf4 Rc6 7. Hc1 Bf5
8. e3 Hc8 9. Be2 e6 10. 0-0 Bd6 11.
Bxd6 Dxd6 12. Ra4 0-0 13. Db3 Hc7
14. Rc5 Hb8 15. Hc3 Bg4 16. h3
Bxf3 17. Bxf3 e5 18. Db6 exd4 19.
exd4 g6 20. Hd1 h5 21. b4 Kg7 22.
Be2 Rd7 23. Rxd7 Hxd7 24. b5 axb5
25. Bxb5 Rd8 26. Da7 He7 27. Dc5
He6 28. Hb1 Ha8 29. a4 Rc6 30. Db6
De7 31. Bxc6 He1+ 32. Kh2 Dd6+
33. g3 Hxb1 34. Dxb1 bxc6 35. Da1
Df6 36. Hc2 h4 37. a5 Df5 38. Ha2
Staðan kom upp á rússneska
meistaramótinu sem er nýlokið í
Moskvu. Evgeny Bareev (2.675)
hafði svart gegn hinum heillum
horfna „heimsmeistara“ Vladimir
Kramnik (2.739). 38. … Hxa5! 39.
Hxa5 Dxf2+ 40. Kh1 hxg3 41. Dg1
eini leikurinn til að forðast mát en á
móti kemur að svartur vinnur hrók-
inn til baka með dágóðum vöxtum.
41. … g2+ 42. Kh2 Df4+ 43. Kxg2
Dd2+ 44. Kg3 Dxa5 45. De3 Dc7+
46. Kg2 Dd6 og hvítur gafst upp
enda tveim peðum undir.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Svartur á leik.
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
60 ÁRA afmæli. Í dag, 13. janúar,er sextugur Kristján Ólafsson,
deildarstjóri skiparekstrar Samskipa.
Kristján og eiginkona hans, Björg
Árnadóttir, taka á móti vinum og
vandamönnum laugardaginn 14. jan-
úar milli kl. 16 og 19 í Fóstbræðra-
heimilinu, Langholtsvegi 109–111.
SÝNING á málverkum
eftir Hallgrím Helgason,
sem þessi árin er betur
þekktur sem rithöfundur,
opnar í dag í Gallery
Turpentine, Ingólfsstræti
5. Verkin eru frá Parísar-
árum listamannsins, máluð
á tímabilinu 1992-1996, og
hafa fæst verið sýnd hér-
lendis áður. Eftir að hafa
starfað og sýnt í Reykja-
vík, Boston og New York
á níunda áratugnum flutti
Hallgrímur til Parísar í
byrjun þess tíunda og
segja má að þá hafi hafist
nýtt tímabil í list hans,
tími sjálfsprottinna spuna-
verka þar sem málarinn
kemst í nýtt og ferskt
samband við miðil sinn.
„Ég ákvað að kasta öllum
„eighties“-stílunum út um
gluggann og byrja upp á nýtt. Ég
keypti mér hvítan striga og byrj-
aði hægt og rólega að maka olíu-
litnum á hann, eins og barn sem
var að mála í fyrsta sinn, í full-
kominni óvissu um hvað úr myndi
verða. Hvert verk var algjör
óvissuferð, mjög spennandi en
jafnframt geysilega taugatrekkj-
andi, því engin hreyfing pensilsins
varð aftur tekin. Þetta var eins og
að mála í beinni útsendingu. Þetta
var alveg nýtt upphaf fyrir mér og
mikil uppgötvun eftir allt nuddið
og puðið sem ég hafði stundað
fram að þessu. Verkið varð til á
mjög stuttum tíma, jafnvel aðeins
nokkrum klukkustundum, en sál-
rænu átökin voru því meiri,“ segir
Hallgrímur um þessi verk sín sem
eru að mestu leyti portrett af
ímynduðu fólki.
Sýningin stendur til 31. janúar.
Gallery Turpentine er opið frá
þriðjudegi til föstudags kl. 12–18
og laugardaga kl. 11–16.
Hallgrímur sýnir
í Turpentine
SÓKNARNEFND Oddasóknar efn-
ir til tónleika í nýja safnaðarheim-
ilinu að Dynskálum 8 á Hellu á
laugardaginn kl. 15. Flytjendur á
tónleikunum eru systurnar Signý
Sæmundsdóttir sópransöngkona og
Þóra Fríða Sæmundsdóttir píanó-
leikari. Á efnisskrá tónleikanna eru
verk eftir innlend og erlend tón-
skáld, þ.á m. Mozart, Rachmaninov,
Donizetti, Eyþór Stefánsson, Sigfús
Einarsson og Karl O. Runólfsson.
Aðgangseyrir að tónleikunum er
2.000 kr. og rennur ágóði af þeim í
hljóðfærasjóð safnaðarheimilisins,
sem nýttur er til kaupa á flygli af
gerðinni K. Kawai, sem tekinn var í
notkun á liðnu sumri.
Signý og Þóra Fríða á Hellu
Morgunblaðið/Ásdís
eignamidlun@eignamidlun.is www.eignamidlun.is
Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali
Traustur kaupandi óskar eftir 250-300 fm einbýlishúsi
á einhverju framantaldra svæða. Staðgreiðsla í boði.
Nánari uppl. veitir Sverrir Kristinsson.
EINBÝLISHÚS Í VESTURBORGINNI,
SKERJAFIRÐI EÐA FOSSVOGI ÓSKAST
ÁRÆ‹I OG UMHYGGJA
ÁRMANN KR.
Kosningaskrifstofa Bæjarlind 4.
www.armannkr.is
Veri› velkomin!
Prófkjör X-D í Kópavogi 21. janúar
Símar: 586 9090 og 899 9490.
Opi› frá kl. 16.00 virka daga og
frá kl. 13.00 um helgina.