Morgunblaðið - 13.01.2006, Page 48

Morgunblaðið - 13.01.2006, Page 48
48 FÖSTUDAGUR 13. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ Stóra svið SALKA VALKA Su 22/1 kl. 20 Fi 26/1 kl. 20 SÍÐUSTU SÝNINGAR! WOYZECK Su 15/1 kl. 20 Lau 21/1 kl. 20 Su 29/1 kl. 20 SÍÐUSTU SÝNINGAR! KALLI Á ÞAKINU Su 15/1 kl. 14 UPPSELT Lau 21/1 kl. 14 Su 22/1 kl. 14 SÍÐUSTU SÝNINGAR! CARMEN Í kvöld kl. 20 FORSÝNING UPPSELT Lau 14/1 kl. 20 FRUMSÝNING UPPSELT Fi 19/1 kl. 20 Gul kort Fö 20/1 kl. 20 Rauð kort Fö 27/1 kl. 20 Græn Kort Lau 28/1 kl. 20 Blá kort Nýja svið/Litla svið MANNTAFL Lau 14/1 kl. 20 Su 22/1 kl. 20 SÍÐUSTU SÝNINGAR! ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR Fi 16/2 kl. 20 Fö 17/2 kl. 20 BELGÍSKA KONGÓ Su 15/1 kl. 20 UPPS. Fö 20/1 kl. 20 UPPS. Lau 21/1 kl. 20 Lau 28/1 kl. 20 Lau 4/2 kl. 20 Su 5/2 kl. 20 GLÆPUR GEGN DISKÓINU Í kvöld kl. 20 Fö 13/1 kl. 20 Fi 19/1 kl. 20 Fi 26/1 kl. 20 Fö 27/1 kl. 20 Fi 2/2 kl. 20 Naglinn Fö 20/1 kl. 20 FRUMS. UPPS. Lau 21 /1 kl. 20 Su 22/1 kl. 20 UPPSELT Fö 27/1 kl. 20 Lau 28/1 kl. 20 Miðasala í síma 4 600 200 / www.leikfelag.is Fullkomið brúðkaup - heldur áfram! Fös. 13. jan. kl. 20 UPPSELT Lau. 14. jan. kl. 19 UPPSELT Lau. 14. jan. kl. 22 AUKASÝNING - Örfá sæti laus Fös. 20. jan. kl. 20 Örfá sæti laus Lau. 21. jan. kl. 19 Örfá sæti laus Fös. 27. jan. kl. 20 Nokkur sæti laus Lau. 28. jan. kl. 19 Örfá sæti laus Miðasala opin allan sólarhringinn á netinu. Allir norður! Miðasalan opin virka daga kl. 13-17 og frá kl. 15 á laugardögum. Miðasalan er opin alla daga nema mánudaga kl. 14-18 og fram að sýningu sýningardaga. Símasala kl. 10-18 þriðjudaga - föstudaga. Miðasala á Netinu allan sólarhringinn. ÖSKUBUSKA - La Cenerentola eftir ROSSINI Frumsýning sun.5. feb. kl. 20 2. sýn. fös. 10. feb. kl. 20 – 3. sýn. sun. 12. feb. kl. 20 – 4. sýn. sun. 19. feb. kl. 20 www.opera.is opera@opera.is Sími: 511 4200 Námskeið umÖskubusku og Rossini hjá Endurmenntun Háskóla Íslands Skráning í síma: 525 4444 - endurmenntun@hi.is Landsbankinn er stoltur bakhjarl sýningarinnar. SÝNT Í IÐNÓ KL. 20 MIÐASALA: WWW.MIDI.IS OG Í IÐNÓ S. 562 9700 UPPSELT UPPSELT UPPSELT UPPSELT örfá sæti laus laus sæti föstudagur laugardagur föstudagur laugardagur sunnudagur laugardagur 13.01 14.01 20.01 21.01 22.01 28.01 FÖS. 20. JAN. kl. 20 LAU. 21. JAN. kl. 20 LAU. 28. JAN kl. 20 MIND KAMP eftir Jón Atla Jónasson FORSÝNING FÖS. 13. JAN UPPSELT HÁTÍÐAROPNUN SUN. 15. JAN UPPSELT. FIM. 19. JAN. SUN. 22. JAN. FÖS. 27. JAN. SUN. 29. JAN. TAKMARKAÐUR SÝNINGARFJÖLDI EF eftir Valgeir Skagfjörð/ Einar Má Guðmundsson MÁN. 16. JAN. KL. 9 OG 11 UPPSELT ÞRI. 17. JAN. KL. 9 OG 11 UPPSELT ÞRI. 24. JAN. KL. 9 OG 11 UPPSELT MIÐ. 25. JAN. KL. 9 OG 11 UPPSELT ÚTSALA - ÚTSALA Nýtt kortatímabil Hafnarstræti 97, 600 Akureyri. Sími 462 3505. Opið virka daga 10-18, laugardaga kl. 10-16. www.kringlukrain.is sími 568 0878 Hljómsveitin Karma í kvöld Leikhúsgestir! Munið glæsilega matseðilinn SÝNINGIN Desire to see verður opnuð í Norræna húsinu á morg- un kl. 14. Það eru finnskar lista- konur sem standa að sýningunni en þær eru Christine Candolin, Tiina Karimaa, Marjukka Kor- honen og Anneli Sipiläinen. Þær stöllur eiga sameiginlega þörfina til að skyggnast undir yfirborðið og rannsaka hið óræða samband hlutanna, með listrænum jafnt sem vísindalegum aðferðum. Christine Candolin leitast við að skyggnast bakvið veruleikann eins og við skynjum hann. Í eft- irgrennslan sinni vinnur hún gjarnan með efnivið sem jaðrar við að vera óhlutbundinn, svo sem endurspeglun, ljós og vatn. Und- anfarið hefur Christine í auknum mæli beint sjónum sínum að skammtafræði, en hún lagði stund á nám í eðlisfræði og stefnir að því að sameina vísindi og list í verk- um sínum. Tiina Karimaa hefur að und- anförnu unnið skúlptúra í tré. Í stað þess að finna þeim stað í borg- arumhverfi setur hún verkin í nátt- úrlegt samhengi, í skógum og á engjum, og skapar þannig ákveðna samræðu milli verkanna og um- hverfis þeirra. Innsetningar Marjukka Kor- honen eru endursköpun þeirrar til- finningar að sitja í lest á leið til fjar- lægs ákvörðunarstaðar. Þú sest varlega niður á trébekk og setur upp heyrnartól sem nema öll hljóð- ræn atriði ferðarinnar og draga þannig gestinn inn í hrynjandi lest- arinnar. Að vera á ferðalagi felur í sér óvissu, sem samanstendur af spennu, kvíða og eftirvæntingu. Ferðalangurinn er í tómarúmi, í tímahylki á leið að glitrandi tak- marki í óráðinni framtíð. Anneli Sipiläinen vinnur um þessar mundir mikið með tré. Hún kýs að vinna með fundna trjáboli, helst úr verðlitlum viði, sem hún upphefur með ýmsum hætti og sýn- ir í nýju ljósi, t.d. með því að tengja saman trjáboli af ólíkum stærðum og beina þannig sjónum áhorfanda að mismunandi aldri og áferð við- arins. Þrjár finnskar lista- konur í Norræna húsinu ÞVÍ hefur stundum verið haldið fram að engin konungsfjölskylda í Evrópu njóti jafnmikilla vinsælda í eigin heimalandi og sú danska. Þetta má vel vera rétt og hér á landi hefur danskt kóngafólk löngum notið velvildar og áhuga, sem virðist síst fara minnkandi þótt rúmir sex áratugir séu liðnir frá því Íslendingar slitu konungs- sambandi við Dani og þeim fari nú óðum fækkandi hérlendis sem eitt sinn voru þegnar Danakonungs. Enn fylgjast býsna margir Íslend- ingar vel með því sem gerist hjá þeim í Amalíenborg og líkast til á Margrét Þórhildur Danadrottning fleiri aðdáendur hér á landi en aðr- ir erlendir þjóðhöfðingjar. Þar kann nafn hennar að skipta nokkru, en hitt þó líkast til meiru að hún hefur nokkrum sinnum komið hingað, jafnan verið aufúsu- gestur og býður af sér einstaklega góðan þokka. Bókin sem hér er til umsagnar er ekki eiginleg ævisaga Margrétar, öllu heldur minningabrot, þar sem hún rekur og rifjar upp ákveðna þætti ævi sinnar í samtölum við bókarhöfund, sem er danskur blaðamaður og rithöfundur. Frá- sagnirnar eru hins vegar nokkurn veginn í tímaröð, sem ljær bókinni nokkurt yfirbragð ævisögunnar. Í fyrstu köflum bókarinnar segir Margrét frá bernsku- og æsku- minningum sínum og rifjar m.a. á eftirminnilegan hátt upp minn- ingar frá hernámi Danmerkur á ár- um síðari heimsstyrjaldar. Hlýtur lesandinn að undrast barnsminni hennar, en hún var ekki nema fimm ára er hernáminu lauk. Þá segir frá skólagöngu og hjónabandi og því er Margrét var gerð að ríkisarfa og tók við ríkjum að föður sínum látn- um. Enn eru kaflar um samskipti drottningar við þegna sína, um listakonuna Margréti, um hrun Berlínarmúrsins og sjálfstæði ríkja Austur-Evrópu og viðhorf drottn- ingar til mála þar og um kynni hennar af ýmsum þjóðarleiðtogum. Þetta er skemmtileg bók aflestr- ar og vel heppnuð að flestu leyti. Höfundi tekst að draga upp skýra og einkar viðkunnanlega mynd af drottningunni og frásögnin er laus við þá væmni sem oft fylgir um- fjöllun um kóngafólk. Allur frá- gangur bókarinnar er smekklegur og myndir góðar. Drottningarbók BÆKUR Ævisaga Eftir Annelise Bistrup. Þýðing: Þórdís Bachmann. Tara forlag, 2005. Án útgáfu- staðar. 280+2 bls., myndir. Margrét Jón Þ. Þór JORIS Rademaker opnar sýn- inguna Fundnir hlutir í Populis tremula á laugardaginn kl. 14.00. „Á þessari sýningu blanda ég saman þrívíðum verkum og svört- um litaflötum á vegg og á gólfi. Þetta eru einhvers konar „ready makes or found objects“ sem ég set saman og skapa þannig nýja þýðingu,“ segir listamaðurinn. „Joris Rademaker er einn okk- ar fremstu myndlistarmanna, sýningar hans eru ávallt frum- legar og spennandi og einkennast einnig af fágun og sjaldséðri vandvirkni. Það er okkur í Popul- is tremula mikill heiður að geta boðið gestum okkar til fundar við Joris Rademaker,“ segir í kynn- ingu. Á sýningunni má nálgast bækl- ing um nám og helstu sýningar listamannsins, sem prentaður var fyrir ári. Sýningin verður opin á laugardag og sunnudag kl. 14 til 17. Fundnir hlutir í Populis tremula Fréttir á SMS

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.