Morgunblaðið - 06.02.2006, Síða 42

Morgunblaðið - 06.02.2006, Síða 42
42 F MÁNUDAGUR 6. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ Hamraborg 20a • 200 Kópavogi • www.husalind.is • Sími 554 4000 • Fax 554 4018 Tölvup.: husalind@husalind.is Sveinbjörg 867 2928 • Guðbjörg 899 5949 Rósa 698 7067 Sveinbjörg B. Sveinbjörnsd., löggiltur fasteignasali og hdl., Guðbjörg G. Sveinbjörnsd., sölufulltrúi. Rósa Pétursdóttir, viðskiptafr. og sölumaður Björt og opin 105 fm, 3ja herbergja íbúð á 2. hæð (efstu) í litlu fjölbýli á eftirsóttum stað í Grafarvogi. Vandaðar innréttingar og gólfefni eru í íbúðinni. Í eldhúsi er innrétting frá Axis og tæki frá Rönning (Fagor). Sér- inngangur í íbúðina af svölum. Þvottahús innan íbúðar. Stutt í skóla og þjónustu. Verð 24,9 millj. Ljósavík – 3ja herbergja Gvendargeisli – 4ra herbergja Glæsileg og vönduð 117,9 fm 4ra her- bergja íbúð á efstu hæð í góðu fjölbýli. Fallegt útsýni er úr íbúðinni. Bílastæði í bílageymslu. Innréttingar, yfirfelldar hurðir úr hlyn og parket úr eik frá Agli Árnasyni. Gott aðgengi er að húsinu. Bílageymsla er undir húsinu. Stutt í skóla og þjónustu. Verð 27,5 millj. Breiðvangur - 4ra herbergja Rúmgóð og björt, nýuppgerð 114,5 fm íbúð á barnvænum stað í Hafnarfirði. Nýjar innréttingar og tæki eru í eldhúsi og á bað- herbergi. Sérþvottahús er inn af eldhúsi. Nýtt eikarparket á gólfum, náttúruflísar á baðherbergi. Verð 20,5 millj. Álfkonuhvarf - 4ra herbergja Björt og rúmgóð 130,8 fm endaíbúð á jarðhæð ásamt stæði í bílageymslu í nýju lyftuhúsi. Skemmtilega hönnuð íbúð með JKE innréttingum. Sérinngangur. Sérgarð- ur í suður. Sérþvottahús. Afhendist án gólfefna, nema á baðherbergi, þvottahúsi og forstofu. Afhending í janúar. Verð 30,5 millj. Stýrimannastígur - risíbúð Algerlega endurnýjuð 70,6 fm, 2ja-3ja her- bergja íbúð í fallegu 5 íbúða steinhúsi á góðum stað í hjarta Reykjavíkur. Stórar svalir í suður. Fallegt útsýni. Nýtt parket úr hlyn er á gólfi og náttursteinn á baðher- bergi. Verð 18,5 millj. Mávahlíð - risíbúð Falleg og björt 3ja herbergja risíbúð. Kvist- gluggar og velux þakgluggar. Gólfefni er parket og flísar. Baðherbergi með baðkari, sturtuaðstöðu og glugga. Þak og þakrenn- ur endurnýjaðar. Stutt í skóla og alla þjón- ustu. Verð 11,5 millj. Sörlaskjól - sérinngangur 70,1 fm mikið endurnýjuð íbúð á jarðhæð í vesturbænum. Forstofa með flot/lökkuðu gólfi. Mjög rúmgott svefnherbergi og stór- stofa. Parket á gólfum. Eldhús með góðu skápaplássi. Verð 16,9 millj. Reynihvammur - einbýlishús Vel staðsett og fallegt einbýlishús á 2 hæðum, aukaíbúð á neðri hæð, ásamt tveimur bílskúrum, samtals 220 fm. Pallur og stórar suðursvalir. Fallega ræktaður garður. Möguleiki á stækkun hússins yfir bílskúr. Íbúð á jarðhæð með sérinngangi. Ásett verð 44,0 millj. Kársnesbraut - útsýni Falleg 3ja herbergja 73,9 fm íbúð á 2. hæð í litlu fjölbýli. Mjög björt og vel meðfarin íbúð. Yfirbyggðar svalir með gólfhita. Þvottahús og geymsla inn af eldhúsi. Gólf- efni er parket og flísar. Tilboð óskast í eignina. Sumarhús – Borgarfjörður Einstaklega vandaður og nýr 58,1 fm sum- arbústaður á fallegum stað í um 4 mínútna akstri frá Borgarnesi. Bústaðurinn skiptist í stofu, eldhús, tvö svefnherbergi, svefnloft og baðherbergi. Eldhús er með fallegri inn- réttingu, tækjum og innbyggðri uppþvotta- vél. Pallur í kringum bústaðinn, nuddpott- ur. Allar nánari upplýsingar á Húsalind fasteignasölu. Hjarðarhagi - 3ja herbergja Falleg og björt 88,7 fm, 3ja herbergja, lítið niðurgrafin kjallaraíbúð á góðum stað í vesturbænum. Tvö rúmgóð svefnherbergi. Baðherbergi með glugga, stór sturta. Parket á gólfi í herbergjum. Gluggar eru nýmálaðir, bæði að innan og utan. Garður í suðurátt. Stutt í alla þjónustu, verslanir og Háskóla Íslands. Verð 20,6 millj. Ásholt - 2ja herbergja Björt og hlýleg 57,4 fm íbúð á fyrstu hæð í lyftuhúsi með húsverði og góðu bílastæði í bílageymslu undir húsinu. Rúmgott hjóna- herbergi með góðu skápaplássi. Baðher- bergi með baðkari, sturtuaðstöðu og tengi fyrir þvottavél. Útgengt er út í garð frá stofu. Garðurinn er lokaður fyrir umgang almennings. Ásett verð 17,3 millj. Sólvallagata - séreign Séreign á þremur hæðum sem skiptist í fjórar íbúðir, samtals 174,6 fm á vinsælum stað í gamla vesturbænum. Íbúðin, sem er í risinu, er 54,2 fm og er hún öll nýupp- gerð. Á miðhæðinni eru tvær stúdíóíbúðir, samtals 65,3 fm og í kjallaranum er 55,1 fm íbúð. Góðir möguleikar á leigutekjum. Verð 36 millj. NÝ TT NÝ TT stofu. Inn af fremri stofu með út- gang á stigapall er þriðja stofan. Í risi eru þrjú rúmgóð herbergi undir súð. Efri hæðin hefur öll ver- ið tekin í gegn. Gólfefni eru lútaðar upprunalegar gólffjalir og lútaður panell á veggjum og lofti. Skápum hefur verið haganlega komið fyrir út við súð, en góð nýting á gólf- plássi er í herbergjum. Uppruni hússins hefur verið lát- inn halda sér við endurbætur. Gólf- efni eru upprunalegar gólffjalir, ró- settur kringum ljósastæði og fjalir í lofti látnar sjást. Dregið hefur verið nýtt rafmagn í húsið en eftir er að skipta um töflu. Hitalagnir eru nýjar sem og skolp og dren kringum húsið. Hafnarfjörður - Fasteignamið- stöðin er nú með í sölu efri hæð og ris í gömlu timburhúsi auk bílskúrs við Öldugötu 18 í Hafnarfirði. Íbúð- in er 118,6 ferm. byggð 1932, en hefur verið töluvert endurnýjuð. Bílskúrinn er 16,5 ferm. byggður 1931. Samtals er eignin því 135 ferm. Komið er inn í sameiginlega for- stofu með neðri hæð. Þegar upp á stigapallinn er komið er eldhúsið á vinstri hönd með nýlegri innrétt- ingu með gömlu yfirbragði. Inn af eldhúsi er baðherbergi með bað- kari. Úr eldhúsi er hurð í borðstof- una sem er í raun annar helmingur af samliggjandi stofu, en innbyggð rennihurð skilur að stofu og borð- Ofnar eru gamlir pottofnar sem hafa verið málningarhreinsaðir og lakkaðir að nýju. Gler og gluggar virðast í lagi, nema gler í einum glugga í stofu er sprunginn. Eignahlutur í kjallara er 75%. Þar er sameiginlegt þvottahús og sér geymsla, auk þess stórt her- bergi með salerni og sturtuaðstöðu, mögulegt til útleigu. Í kjallara er sérinngangur. Bílskúrinn er lélegur, byggður 1931 og stendur við lóðarmörk. Stór gróinn garður er við húsið. Í raun er gólfflötur efri hæðar mun stærri en fermetratala segir til um frá fasteignamati, þar sem mikið pláss á efri hæð er undir súð og gólfflötur mælist eingöngu út frá lofthæð 1,80 m. „Þetta er eign sem vert er að skoða fyrir þá sem vilja gamalt virðulegt hús,“ sagði Magnús Leó- poldsson hjá Fasteignamiðstöðinni. Ásett verð er 26,5 millj. kr. Öldugata 18 Þetta er hæð og ris í gömu timburhúsi 118,6 ferm. að stærð og að auki bílskúr, sem er 16,5 ferm. Eignarhlutur í kjallara er 75% og stór gróinn garður er við hús- ið. Ásett verð er 26,5 millj. kr., en þessi eign er til sölu hjá Fasteignamiðstöðinni. AKRANES fékk kaupstaðarrétt- indi árið 1942 og þá hófst mikið blómaskeið í sögu bæjarins. Ríkið ákvað að reisa sementsverksmiðju á Akranesi árið 1958 og útgerð styrktist þar sem mikil endurnýj- un átti sér stað á fiskiskipaflot- anum. Með byggingu Sementsverk- smiðjunnar var þriðja stoðin, iðn- aðurinn, treystur í sessi í atvinnu- lífi bæjarbúa. Fljótlega eftir stofnun Sementsverksmiðjunnar var farið að steypa götur bæj- arins og var Akranes með fyrstu sveitarfélögum að leggja bundið slitlag á götur. Allar götur síðan hefur Sementsverksmiðjan verið einn af stærri hornsteinum í at- vinnulífi bæjarins. Strompur verk- smiðjunnar gegnir auk þess því veigamikla hlutverki að vera eins konar veðurviti þar sem vindátt og vindstyrkur er mældur í stöðu reyksins sem frá strompinum fer. Akranes er gamall bær á ís- lenskan mælikvarða og hægt er að sjá stóran hluta af bygg- ingasögu Íslands með því að ganga um götur bæjarins. Nær öll stílbrigði íslenskrar bygginga- listar er að finna á Akranesi. Meðfram Vesturgötunni eru til að mynda hús allt frá aldamótum til okkar daga. Fyrsta steinhúsið sem byggt var á Íslandi með því að slá upp steypumótum var byggt að Görð- um sem prestsetur en þeirri byggingu var lokið árið 1882. Nú er Garðahúsið endurbyggt og stendur við Byggðasafnið að Görðum ásamt nokkrum merkum, uppgerðum húsum frá síðustu tveimur öldum. Kirkja var reist á Akranesi árið 1896 eftir að ákveð- ið var að flytja hana frá Görðum til Akraness. Það sem í dag einkennir bæinn og byggðina á milli fjallsins, Akrafjalls og fjörunnar, er kröft- ugt og fjölbreytt atvinnulíf, mikil iðkun íþrótta og gott mannlíf í fjölskylduvænu samfélagi einungis steinsnar frá höfuðborginni. Morgunblaðið/Kristinn Benediktsson Turnarnir áAkranesi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.