Morgunblaðið - 06.02.2006, Blaðsíða 62
62 F MÁNUDAGUR 6. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Foss fasteignasala, Hátúni 6a, sími 512 12 12, fax 512 12 13, netfang foss@foss.is
Bragi Björnsson
lögmaður og
löggiltur
fasteignasali
Úlfar Þ. Davíðsson
sölustjóri
Börkur Hrafnsson
lögmaður og
löggiltur
fasteignasali
HÁTÚN 6A
SÍMI
5 12 12 12
FAX
5 12 12 13
Netfang:
foss@foss.is
FASTEIGNASALA
SAFAMÝRI-3JA HERBERGJA
Falleg 3ja herbergja íbúð í kjall-
ara með sérinngangi alls 76,7 fm.
Forstofa með flísum.
Parketlagt hol. Opið eldhús með
nýlegum innréttingum. Baðher-
bergi nýlegt, flísalagt hólf í gólf.
Stofa er rúmgóð og björt. Tvö
rúmgóð svefnherbergi. Íbúðin er
að stórum hluta nýlega standsett
á afar smekklegan hátt. Verð 18,9
millj.
TJARNARMÝRI - 4RA HERBERGJA
Mjög góð 111,7 fm íbúð, ásamt
stæði í bílskýli á vinsælum stað.
Íbúðin er á jarðhæð í fjölbýli
byggðu 1992. Þvottahús í íbúð og
einnig stór geymsla. Útgengt í
garð frá hjónaherbergi. Eldhús
með hvítri snyrtilegri innréttingu.
Stofa og borðstofa í alrými.
Útgengt í hellulagðan afgirtan
garð frá stofu. Verð 32 millj.
LJÓSHEIMAR - ÚTSÝNI
Glæsileg 2ja herbergja 79,4 fm
íbúð á 9. hæð í lyftuhúsi við Ljós-
heima í Reykjavík.
Íbúðin er einstaklega opin og
björt með afar glæsilegu útsýni.
Íbúðin var standsett árið 2000.
Stórar ca 18 fm svalir með frá-
bæru útsýni. Verð 16,9 millj.
ÁLFKONUHVARF - 4RA HERBERGJA
Stórglæsileg 120 fm, 4ja her-
bergja íbúð í fallegu fjölbýli, með
sérinngangi af svölum og stæði í
bílskýli. Vönduð gólfefni og inn-
réttingar. Rúmgóðar svalir. Gott
útsýni. Þrjú stór og björt parket-
lögð svefnherbergi með skápum.
Þvottahús í íbúð. Verð 30,5 millj.
VESTURVALLAGATA - FALLEG
Falleg og rúmgóð 65,4 fm, 2ja
herbergja íbúð á 4. hæð við Vest-
urvallagötu í Reykjavík. Íbúðin er
afar snyrtileg með nýlegum gólf-
efnum á eftirsóttum stað í Vestur-
bænum. Frábært útsýni. Stórt
eldhús. Rúmgóðar svalir sem
snúa til suðurs. Svefnherbergi
með fataskápum. Verð 16,2 millj.
LAUGARNESVEGUR - SÉRHÆÐ
Erum með 6 herbergja neðri sér-
hæð og kjallara ásamt 54 fm bíl-
skúr sem búið er innrétta sem
stúdíóíbúð, upplagt til útleigu.
Eignin er alls 180,8 fm (þar af bíl-
skúr). Fjögur svefnherbergi og
tvennar stofur. Fallegur viðar-
sólpallur í garði.
Verð 29,9 millj.
SKRIFSTOFUHERBERGI TIL LEIGU
Tvö rúmgóð skrifstofuherb. til leigu. Herb. eru með aðgang að símavörslu,
fundarherbergi og eldhúsi. Næg bílastæði. Allar nánari uppl. hjá Foss.
FROSTAFOLD - 3JA HERBERGJA
Góð 3ja herbergja 95,6 fm íbúð á
annarri hæð, ásamt stæði í bíl-
skýli við Frostafold í Grafarvogi.
Eldhús er opið, hvít, snyrtileg inn-
rétting. Stofa er stór og björt með
parketi. Útgengt er á góðar svalir
frá stofu. Í stofu við svalir er flísa-
lagt rými sem nýtist sem lítil sól-
stofa. Baðherbergi er stórt, dúkur á gólfi, baðkar með sturtuaðstöðu, tengi
fyrir bæði þvottavél og þurrkara. Tvö svefnh. eru í íbúðinni. Hjónah. með dúk
á gólfi og góðu skápaplássi og barnaherbergi með ljósu parketi. Á svefn-
herbergisgangi er einnig skápur. Húsið var tekið í gegn í sumar, var m.a.
gafl klæddur og hús málað. Stæði í bílskýli fylgir eigninni. Verð 18,9 millj.
FUNALIND - 3JA HERBERGJA
Rúmgóð 3ja herbergja íbúð með
góðu útsýni á efstu hæð í fjögura
hæða fjölbýlishúsi á eftirsóttum
stað í Kópavogi. Tvö rúmgóð
parketlögð svefnherbergi. Bað-
herbergi er flísalagt á veggjum
og gólfi. Stofa og borðstofa í al-
rými, dökkt parket á gólfi, útgengt
á góðar svalir frá stofu. Eldhús er
rúmgott. Verð 21,5 millj.
HÖRPUGATA - EINBÝLISHÚS
Hlýlegt og bjart 332,9 fm einbýlis-
hús, þar af 27,7 fm bílskúr á
þremur hæðum á frábærum stað
við Hörpugötu í Reykjavík. Húsið
er einstaklega bjart og vel skipu-
lagt. Í kjallara er opin og
skemmtileg 2ja herb. íbúð með
sérinngangi. Upplögð til útleigu.
Verð 65 millj.
HRAUNBÆR - 5 HERBERGJA
Rúmgóð 120,1 fm, fimm herbergja
íbúð á efstu hæð í þriggja hæða
fjölbýlishúsi, byggðu 1968. Rúm-
gott eldhús. Þvottahús og
geymsla í íbúð. Stofa og borð-
stofa í stóru alrýmí. Tvennar sval-
ir í íbúð. Fjögur svefnherbergi.
Verð 21,2 millj.
GVENDARGEISLI - RAÐHÚS
Erum með í sölu glæsileg raðhús
á einni hæð. Húsin skiptast í um
140 fm íbúð og um 28 fm bílskúr.
Garðar snúa í suður. Húsin afh.
fullbúin að utan. Lóð er afhent
með hellulögðum stéttum og er
aðalinngangur með hitalöng. Íbúðirnar skilast fullbúnar að innan, án gólf-
efna. Anddyri, bað og þvottahús skilast þó með flísalögn á gólfi. Vönduð
tæki og innréttingar. Verð 38,7-39,8 millj.
STRANDASEL - 3JA HERBERGJA
Vel skipulögð 80,1 fm, 3ja her-
bergja íbúð á jarðhæð. Ca 30 fm
sérgarður fylgir eigninni. Gangur
með gegnheilu stafaparketi á
gólfi. Tvö rúmgóð parketlögð
svefnherbergi.
Baðherbergi er flísalagt hólf í
gólf, tengi fyrir þvottavél. Eldhús
með parketi á gólfi,
snyrtileg eldhúsinnrétting. Verð 17,2 millj.
VANTAR
VEGNA MIKILLAR SÖLU UPP Á SÍÐKASTIÐ VANTAR
OKKUR ALLAR GERÐIR EIGNA Á SKRÁ. ENDILEGA HAFIÐ
SAMBAND VIÐ SÖLUMENN OKKAR Í S. 512 1212.
Fallegt, vel staðsett tré erumhverfi sínu til mestasóma. Heilbrigt tré á ekkiað þurfa að klippa, nema
tilgangurinn sé að
stýra vexti eða fjar-
lægja stærri greinar
eða stofna sem hafa
laskast og hætta er á
að geti fallið og valdið
umhverfi sínu hættu.
Á hverju ári mynd-
ast mikill fjöldi nýrra
sprota á trjám. Fjöld-
inn allur nær ekki að
þroskast og visnar
strax fyrsta sumarið.
Einnig er algengt að
eldri smágreinar deyi
t.d. vegna samkeppni
um ljós eða skemmda
en af þessu þurfum við
ekki að hafa áhyggjur.
Á hverju hausti þegar
fyrstu haustlægðinar koma yfir má
sjá garða fulla af visnuðum smá-
greinum sem hafa fallið frá trjánum
af eðlilegum ástæðum.
Að ætla að grisja krónu trjáa til að
hleypa meiri birtu inn og stuðla
þannig að auknu heilbrigði trjáa er
ágætis hreyfing fyrir fólk en ekki
brýn nauðsyn. En stundum þarf að
fjarlægja tré vegna aldurs, sjúk-
dóma eða rangrar staðsetningar.
Eitt af stærri vandamálum okkar í
garðrækt er of mikill fjöldi stórra
trjáa á litlum lóðum. Við þekkjum
þessi vandamál víða, svo sem í Vest-
urbænum í Reykjavík, þar sem
reyniviður (Sorbus aucuparia) tröll-
ríður litlum sem stórum görðum og
víða eru stórvaxnar aspir farnar að
pirra fólk.
Að grisja tímanlega eða stýra
vexti trjáa frá upphafi
með tilliti til umhverf-
isins er sá þáttur sem
við þyrftum að leggja
meiri rækt við. Betra er
að haga vinnu þannig
að klippt sé reglulega
og oft, en ekki mikið og
sjaldan. Oft gerist það
að einhverra hluta
vegna þarf að fjarlægja
stórar og þungar grein-
ar og ætla ég hér að
fjalla um hvernig best
verður að því staðið.
Stórar greinar
Þegar við sögum
stóra og þunga grein af
tré ættum við að fjar-
lægja hana í áföngum. Það er hætta
á að ef við byrjum á að saga greinina
þétt við stofn falli hún úr höndum
okkar áður en sögin er komin í gegn,
og í fallinu rífi hún með sér börk af
stofninum, trénu til skaða og lýta.
Við byrjum á því að saga greinina í
um það bil 50 cm fjarlægð frá stofni
og sögum hana að hálfu, neðan frá og
upp. Þá færum við okkur um 20 cm
utar og sögum greinina af ofan frá.
Fyrri skurðurinn kemur í veg fyrir
að börkurinn rifni niður eftir trénu
þegar greinin fellur. Við fjarlægjum
greinarstubbinn, sem eftir stendur
við stofn, þó þannig að smástubbur
verði eftir, svo ekki verði hvilft við
sárið áður en tréð nær að loka því
með berki. Hvilftin myndast vegna
þess að tréð gildnar með árunum, en
sárflötur ekki. Stundum myndast
holur, sem vatn og jarðvegur safnast
í, þá er hætta á að fúi komist í tréð.
Ef sárflötur er t.d. 10 cm í þvermál
er okkur óhætt að skilja eftir um 1
sentímetra stubb á stofni.
Þegar við fjarlægjum grein mynd-
ar plantan varnarefni við sárið, sem
eiga að hindra að sveppir og bakt-
eríur komist inn í viðinn. Virkni
varnarefnanna er mest í grein við
stofn og nokkra millimetra upp eftir
greininni og því minni líkur á að þau
komi að gagni ef skilinn er eftir lang-
ur stubbur, sem fúnar ofan frá með
tímanum. Einnig er möguleiki á að
brum örvist á stubb sumra tegunda
og greinarvöxtur verður þá oft til
lýta. Ef hins vegar er sagað fast við
stofn er þessi virki varnarvefur fjar-
lægður.
Það eru skiptar skoðanir um hve-
nær eða hvort bera þurfi efni í sár
trjáa.
Yfirleitt þarf ekki að bera í sár
trjáa, en ef menn sjá einhverja
ástæðu til að gera það má benda á að
til eru sérstök sárasmyrsl. Áborna
efnið á að hindra að bakteríur eða
sveppir berist inn í sárið. Varast skal
að skerða tré á haustin því þá eru
sjúkdómar eins og áta í uppgangi.
Algengast er að klippt sé á vorin áð-
ur eða um það leyti sem tré fara að
bæra á sér. Sumar tegundir trjáa
setja gjarnan rótarskot þegar skerð-
ing er mikil, þau komin til ára sinna,
eða skortur á næringu (reyniviður,
ösp). Rótarskotin fjarlægjum við og
er best að gera það um leið og þau
skjóta upp kollinum.
Kristinn H. Þorsteinsson
formaður Garðyrkjufélags Íslands
VIKUNNAR
BLÓM
Um s j ó n S i g r í ð u r
H j a r t a r
559. þáttur
Trjáklippingar
Glæsitré eru víða og þau eru garðaprýði hvar sem er.