Morgunblaðið - 12.02.2006, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. FEBRÚAR 2006 B 3
Fjölbreytt
verslunarstarf
Áreiðanlegur og duglegur starfskraftur óskast
í fjölbreytt starf í fataverslun í Reykjavík. Um
er að ræða 100% starf. Umsóknum skal skilað
til augld. Mbl. merktum: „F — 18174“ eða á
box@mbl.is fyrir föstudaginn 17. febrúar.
Byggingavinna
Vana menn vantar til uppsláttar
Vinna samkvæmt tilboði. Mikil vinna framund-
an. Uppl. í síma 892 4680.
Tölvu-
og iðnmenntaður einstaklingur
Margmiðlunarfræðingur og hljóðfærasmiður
með reynslu af vefumsjón og námskeið í net-
stjórnun óskar eftir atvinnu.
Upplýsingar í síma 699 7131 eða
runars@btnet.is.
Spennandi störf á öðruvísi
ferðaskrifstofu
Vegna aukinna umsvifa erlendis og mikillar
aukningar á móttöku erlendra ferðamanna til
Íslands leitar Heimsklúbburinn Prima Embla
eftir framtíðarstarfskröftum í eftirtalin störf:
Stjórnunarstarf í
innanlandsdeild
Leitað er að einstaklingi með reynslu af stjórn-
un og menntun að baki í markaðs- og ferða-
fræðum. Æskilegt er að viðkomandi hafi
reynslu af störfum við ferðaskipulagningu og
mótttöku erlendra ferðamanna til landsins.
Góð málakunnátta í ensku og a.m.k. einu öðru
tungumáli er nauðsynleg. Viðkomandi þarf
að hafa samskipti við erlenda viðskiptavini,
hafa yfirumsjón með tilboðsgerð og halda utan
um bókanir í tengslum við hópa og einstak-
linga. Frumkvæði, jákvætt viðhorf, sjálfstæð
vinnubrögð og skipulagshæfileikar eru skil-
yrði.
Sölumaður í
utanlandsdeild
Leitað er að einstaklingi sem hefur til að bera
brennandi áhuga á framandi menningu, sögu
og umhverfismálum. Viðkomandi þarf að hafa
útgeislun, jákvæðni og þjónustulund til að
bera, búa yfir frumkvæðni og skipulagshæfi-
leikum. Skilyrði að viðkomandi hafi þekkingu
og reynslu af notkun Amadeus bókunarkerfis,
sé fljótur að læra og tileinka sér þá þekkingu
er sala sérferða krefst. Æskilegt að viðkomandi
geti hafið störf sem fyrst.
Umsóknir óskast sendar á netfang:
birgir@embla.is merktar: „Starfsmaður“ eða
í pósti til ferðaskrifstofunnar fyrir 19. febrúar
2005, Ferðaskrifstofan Príma Embla ehf.,
Stangarhyl 1, 110 Reykjavík.