Morgunblaðið - 12.02.2006, Síða 7

Morgunblaðið - 12.02.2006, Síða 7
Spennandi tímar eru framundan hjá einu framsæknasta og traustasta fyrirtæki landsins. Ert þú snillingurinn sem við leitum að? 800 7000 - siminn.is Sérfræðingur í vöruhúsi gagna Sérfræðingur í vöruhúsi gagna veitir starfsmönnum Símans tæknilega og tölfræði- lega ráðgjöf og vinnur að uppbyggingu vöruhússins. Helstu verkefni · Uppbygging, úrvinnsla og þróun á vöruhúsi gagna hjá Símanum · Ráðgjöf til innri viðskiptavina þar sem vöruhús gagna nýtist við ákvarðanatöku og vinnslu · Vinna að einsleitri ásýnd innan fyrirtækisins á gögnum úr tölvukerfum Símans · Þróun gagnasafna vegna tölfræðilegra greininga innan fyrirtækisins Hæfniskröfur Óskað er eftir metnaðarfullum einstaklingi með háskólapróf í tölvunarfræði, verkfræði eða sambærilega menntun. Krafist er minnst þriggja ára starfsreynslu af sambærilegum verkefnum. Viðkomandi umsækjendur þurfa að eiga gott með að vinna sjálfstætt og í hópi, geta unnið náið með aðilum innan sem utan Símans, vera sveigjanlegir í samskiptum, hafa áhuga á tækni og þeim möguleikum sem hún hefur upp á að bjóða og vilja til að leysa krefjandi verkefni. Sérfræðingur í einkasímkerfislausnum á fyrirtækjamarkaði Sérfræðingur í einkasímkerfislausnum ber ábyrgð á þróun lausna, verðlagningu, einföldun á þjónustuferlum og er einnig sérfræðingur fyrir vissa atvinnuflokka. Helstu verkefni · Þróun einkasímkerfislausna á fyrirtækjamarkaði · Verðlagning þjónustu · Stuðningur við tilboðsgerð · Samvinna við gerð sölugagna ofl. Hæfniskröfur Óskað er eftir kraftmiklum einstaklingi með háskólamenntun í viðskiptum eða tæknimenntun. Reynsla af þróun einkasímkerfislausna og þekking á fyrirtækja- markaði eru nauðsyn. Sérfræðingur á Tæknisviði Símans Síminn óskar eftir að ráða metnaðarfullan einstakling til starfa við hugbúnaðarþróun á vegum félagsins. Um nýtt starf er að ræða þar sem áhersla verður lögð á þróun og uppbyggingu nýrrar þjónustu félagsins. Helstu verkefni · Vinna við þróun og rekstur á aukaþjónustum fyrir farsíma og talsíma · Samstarf við birgja · Þátttaka í þróun nýrrar þjónustu til framtíðar Hæfniskröfur Háskólamenntun í tölvu- og/eða verkfræði. Reynsla af Java forritun og þróun. Reynsla af rekstri tölvu- og IP netkerfa er kostur. Sérfræðingur á Aðgangsneti Símans Sérfræðingur á Aðgangsneti sér um þróun og rekstur á upplýsingakerfunum NMS og LUK. Helstu verkefni · Þróun og rekstur NMS og LUK · Aðstoð við notendur · Úrvinnsla gagna · Sérverkefni og ráðgjöf Hæfniskröfur Leitað er að metnaðarfullum tæknimanni með háskólamenntun í kerfis- eða tölvunarfræði eða sambærilegu. Þekking og reynsla af Oracle, PL/SQL, Delphi, XML, SOAP, .Net (Java) VISUAL BASIC .NET er nauðsynleg Umsóknarfrestur er til 24. febrúar. Upplýsingar í síma 550 6470 frá kl. 14.00-16.00 alla virka daga. Í umsókn skal koma fram lýsing á náms- og starfsferli sem og nöfn og símanúmer meðmælenda. Gætt verður fyllsta trúnaðar varðandi allar umsóknir, fyrirspurnir og persónulegar upplýsingar. Umsóknir skulu berast á rafrænu formi í gegnum heimasíðu Símans, www.siminn.is Hjá Símanum starfar samstilltur hópur framúr- skarandi starfsmanna sem hafa gildin fimm að leiðarljósi: traust, heilindi, lipurð, einfaldleiki og eldmóður. Óskað er eftir snillingum með hæfileika sem falla að þessari lýsingu til að slást í hópinn! Sérfræðingur í áætlunum/tekjum á Einstaklingssviði Sérfræðingur í áætlunum/tekjum ber ábyrgð á afkomu- og framlegðarútreikningum fyrir vörur og lausnir Einstaklingssviðs og veitir ráðgjöf sem þeim tengjast. Hann fylgist jafnframt með þróun ákveðinna lykiltalna. Helstu verkefni · Kostnaðar- og framlegðarútreikningar · Áætlanagerð fyrir vörur og lausnir sviðsins · Úrvinnsla og greining ýmissa tölulegra upplýsinga · Þátttaka í stefnumörkun · Þátttaka í vöruþróunarverkefnum · Ýmis ráðgjöf á sviði áætlana/tekna Hæfniskröfur Óskað er eftir kraftmiklum einstaklingi með háskólamenntun í viðskipta-, verk- eða hagfræði eða sambærilegu. Reynsla af sambærilegum störfum og skilningur á fjármálum eru nauðsyn auk þess sem sjálfstæði í vinnubrögðum telst mikill kostur. Hópstjóri í deildinni Þjónusta á Tæknisviði Hópstjóri leiðir öflugan hóp sérfræðinga sem vinna að úttektum, ráðgjöf, upp- setningum, breytingum og daglegum rekstri víðneta. Helstu verkefni · Dagleg stjórnun og rekstur · Samskipti við lykilviðskiptavini · Verkefnastjórnun · Þátttaka í stórum verkefnum tengdum víðnetum Hæfniskröfur Leitað er að öflugum tæknimanni með reynslu af verkefnastjórnun og þekkingu á fyrirtækjamarkaði. Þá er víðtæk þekking á IP tækni, menntun á sviði Cisco (CCNA/CCNP) og þekking á uppsetningu netbeina, netskipta, eldveggja og netkerfa mikilvæg. Haldgóð þekking á helsta vélbúnaði og stýrikerfum er nauðsynleg auk hæfni í mannlegum samskiptum, góðra skipulagshæfileika og víðsýni. Nokkurra ára reynsla af uppsetningu Cisco búnaðar er mikilvæg en ekki nauðsynleg. Viðskiptastjóri Viðskiptastjóri ber ábyrgð á viðskiptum við lykilviðskiptavini Símans. Helstu verkefni · Sala · Kynningar · Tilboða- og samningagerð · Viðskiptatengsl og eftirfylgni Hæfniskröfur Leitað er að metnaðarfullum fagmanni með háskólamenntun sem er sjálfstæður í vinnubrögðum og með hæfileika til hópvinnu. Innsæi í fjarskiptalausnir er mikilvægt og tæknileg þekking eða áhugi á tækniumhverfi nauðsynleg. Skipulags- hæfileikar og þekking á íslensku viðskiptalífi eru nauðsynlegir eiginleikar í starfinu. Sérfræðingur í áætlunum á Fjármálasviði Sérfræðingur í áætlunum á Fjármálasviði veitir starfsmönnum Símans ráðgjöf í málum er snúa að rekstrar- og fjárfestingaráætlunum. Helstu verkefni · Þróun og gerð rekstrar- og fjárfestingaráætlana · Reglubundið eftirlit með rekstri einstakra eininga Símans · Fjárhagslegar greiningar og arðsemisútreikningar · Ýmis ráðgjafaverkefni á sviði fjármála fyrir aðrar deildir Hæfniskröfur Óskað er eftir metnaðarfullum einstaklingi með háskólapróf í viðskiptafræði með áherslu á endurskoðun eða fjármál. Þarf að hafa reynslu af sambærilegum verkefnum. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. FEBRÚAR 2006 B 7

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.