Morgunblaðið - 12.02.2006, Page 8
8 B SUNNUDAGUR 12. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Friður og fegurð við
ströndina á Stokkseyri
Ég hef fengið vilyrði fyrir lóð undir fjölbýlishús
á sérstökum og fögrum byggingarreit við
ströndina. Nú leita ég eftir áhugasömum þátt-
takendum til byggingar húss fyrir eldra fólk.
Þeir sem raunverulegan áhuga hefðu fyrir þátt-
töku leiti uppl. í síma 551 5678.
Stelpurnar
Við erum að leita að aukaleikurum á öllum aldri
til að leika í sjónvarpsþáttunum Stelpurnar.
Áhugasamir sendið tölvupóst á
lindav@sagafilm.is, helst með mynd og upp-
lýsingum um umsækjendur.
Einnig leitum við að fólki sem er tilbúið til að
leigja út íbúð, með húsgögnum, í einn dag.
SAMKVÆMT lögum hef-
ur Seðlabanki Íslands eitt
megin-peningastjórnunar-
markmið sem hefur forgang
yfir önnur markmið og er
það skilgreint í yfirlýsingu
Seðlabankans og ríkisstjórn-
arinnar frá 27. mars 2001. Í
fyrstu grein yfirlýsingarinn-
ar segir:
„Meginmarkmið stjórnar
peningamála verður stöðug-
leiki í verðlagsmálum, eins
og hann er skilgreindur hér
að neðan. Seðlabankanum
ber þó einnig að stuðla að
fjármálalegum stöðugleika
og framgangi meginmark-
miða efnahagsstefnu ríkis-
stjórnarinnar að svo miklu
leyti sem hann telur það
ekki ganga gegn megin-
markmiði hans um verðstöð-
ugleika.“
Oft virðist sá misskilning-
ur ríkja að verðbólgumark-
miðið sé 1–4% á ársgrund-
velli og að Seðlabankinn eigi
ekkert að aðhafast fyrr en
verðbólgan rýfur 4% múr-
inn. Þetta er þó eins og áður
segir misskilningur. Verð-
bólgumarkmið Seðlabank-
ans er 2,5%, hvorki meira né
minna. Hins vegar eru vik-
mörk á því (svokölluð þol-
mörk) og eru þau 1,5% í
hvora áttina. Þannig eru
neðri þolmörk verðbólgu-
markmiðsins við 1% og efri
þolmörkin við 4% verðbólgu.
Á fagmáli er verðbólgu-
markmiðið skrifað upp á eft-
irfarandi hátt: 2½% ± 1½%.
Það er óæskilegt, jafnvel
óviðunandi, að verðbólgan
rjúfi þessi þolmörk eins og
fram kemur í 8. grein yf-
irlýsingar Seðlabankans og
ríkisstjórnarinnar.
„Víki verðbólga meira en
±1½% frá settu marki ber
bankanum að ná verðbólgu
svo fljótt sem auðið er inn
fyrir þau mörk að nýju.
Jafnframt ber bankanum að
senda greinargerð til ríkis-
stjórnar þar sem fram kem-
ur hver ástæða frávikanna
er, hvernig bankinn hyggst
bregðast við og hve langan
tíma hann telur það taka að
ná verðbólgumarkmiðinu að
nýju.“
Nú hugsa ef til vill ein-
hverjir að það skipti vart
máli hvort talað sé um
markmiðið sem 1–4% eða
2,5% en það skiptir í raun
verulegu máli.
Væri verðbólgumarkmiðið
skilgreint sem 1–4% myndi
það fela í sér að 4% verð-
bólga væri innan markanna
og því hefði Seðlabankinn
hvorki ástæðu né möguleika
til þess að grípa til aðgerða
fyrr en hún færi yfir 4%.
Flestir eru þó sammála um
að 4% sé há verðbólga;
sennilega myndu langflestir
segja 4% verðbólgu vera allt
of háa, og að sama skapi
telst 1% verðbólga að jafn-
aði vera of lág.
Meðal hagfræðinga telst
of há verðbólga gjarnan
vera mesti ógnvaldurinn við
stöðugleika í hagkerfinu og
því þurfa þeir sem fara með
stjórn peningamála í landinu
að eiga þess kost að bregð-
ast við þegar merki þess að
verðbólgan nálgist hættu-
mörk fara að sjást.
Hafa ber í huga að verð-
bólgumarkmiðið er lang-
tímamarkmið og til skamms
tíma litið er ekki hægt, og
stundum ekki æskilegt, að
koma í veg fyrir flökt í verð-
lagi. Þess vegna eru vik-
mörkin sett en þegar vik-
mörkin eru rofin er
verðbólgan orðin óviðunandi
há eða lág.
Morgunblaðið/Gísli Sigurðsson
Markmið með
vikmörkum
Seðlabankans
ÞORSTEINN Örn Guðmundsson hefur verið ráð-
inn framkvæmdastjóri yfir nýju sviði rekstrarstjórn-
unar hjá FL Group. Þorsteinn Örn hefur á síðustu
misserum gegnt stöðu forstjóra FL Travel Group
en hverfur nú aftur til starfa hjá FL Group. Hinu
nýja sviði er ætlað það hlutverk að sinna rekstr-
arstjórnun og eftir atvikum fylgja eftir umbreyt-
ingum í félögum sem FL Group fjárfestir í, þar
sem starfað verður náið með stjórnendum félag-
anna.
Jafnframt hefur verið ákveðið að Icelease, sem
áður var sérstakt svið innan FL Group, verði gert að rekstrarfélagi í
eigu FL Group. Halldór Vilhjálmsson verður áfram framkvæmdastjóri
þessarar rekstrareiningar.
Nýr framkvæmdastjóri
hjá FL Group