Morgunblaðið - 12.02.2006, Side 10
10 B SUNNUDAGUR 12. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Lager/útkeyrsla
Heildsala óskar eftir starfsmanni. Viðkom-
andi þarf að vera jákvæður, lipur í mannlegum
samskiptum, stundvís og reglusamur.
Skriflegar umsóknir með upplýsingum skilist
til heilsa@heilsa.is eða til augld. Morgun-
blaðsins merktar: „Reyklaus vinnustaður —
18184“ fyrir föstudaginn 17. febrúar.
Flight Operations
Officer
JetX Airlines is looking for a Flight Operations
Officer to work at our headquarters in Kopa-
vogur.
Your job will be to give operational support
to our Flight Crews. This includes preparing
flight plans while at the same time handling
a wide variety of challenges bound to arise
in an airline operation. When our aircraft are
flying, you will take care of various administra-
tive tasks associated with the Flight Operations
Department. These include evaluating new
routes and destinations as well as making sure
that crew duty times are in compliance with
the official regulations.
The job as a Flight Operations Officer can be
quite challenging at times. Therefore you
should be independent, decisive and able to
work under pressure. Working hours are full-
time, and in accordance with a shift plan in-
corporating day and night shifts. Should you
be the right person for the job, we will offer
you an inspiring working environment, good
colleagues and a competitive salary.
Candidates are required to:
Have a good general education or college
degree.
Be fluent in English, both spoken and writt-
en.
Be skilled in Excel, Word, Outlook and have
a good general knowledge of computers.
Previous experience or training is considered
an advantage but not a requirement.
Please apply online at our company website
www.jetx.is. All applications will be answered
and considered confidential. Should you have
additional questions, feel free to contact our
Operations Manager on +354 517 6006.
Leitað er að öflugum og jákvæðum einstaklingi til að leiða söluhóp til frekari sóknar á markaði.
Starfssvið:
• Ábyrgð á daglegum rekstri söludeildar
• Sala og samningagerð
• Viðhald og öflun viðskiptatengsla
• Skipulagning sölu- og markaðsstarfs
• Úrvinnsla tölulegra upplýsinga
• Þátttaka í vöruþróun
• Önnur verkefni
Hæfniskröfur:
• Viðskiptamenntun eða reynsla af sölustjórnun er skilyrði
• Skipulögð og öguð vinnubrögð
• Færni í mannlegum samskiptum
• Sveigjanleiki og jákvætt viðmót
Ráðið verður í báðar stöðurnar fljótt. Umsóknarfrestur er til og með 17. febrúar n.k.
Upplýsingar um starfið veita: Ólöf María Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Gutenberg ehf. í síma 545 4408
& Erna Arnardóttir starfsmannastjóri Kvosar, móðurfélags Gutenberg ehf. í síma 545 2800
Umsóknum skal skila til olof@gutenberg.is eða erna@kvos.is
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál og öllum umsækjendum svarað.
Leitað er að öflugum og jákvæðum einstaklingi til að taka þátt í frekari sókn á markaði.
Starfssvið:
• Sala og samningagerð
• Viðhald og öflun viðskiptatengsla
• Kynning á vörum og þjónustu fyrirtækisins
• Þátttaka í vöruþróunarverkefnum
• Önnur verkefni
Hæfniskröfur:
• Menntun eða reynsla í sölu- og markaðsmálum til fyrirtækja og stofnana
• Skipulögð og öguð vinnubrögð
• Sjálfstæði í vinnu
• Tölvufærni og áhugi á tækninýjungum
• Reynsla af sölu- og þjónustustörfum
• Færni í mannlegum samskiptum
• Sveigjanleiki og jákvætt viðmót
SÖLUSTJÓRI
SÖLUMAÐUR
Gutenberg ehf. einbeitir sér að sölu og þjónustu á miðlunarlausnum í hönnun, umbroti, prentun og
vinnslu rafrænna gagna. Þjónustan byggir á sérhæfðum lausnum til viðskiptavina þar sem öryggi,
sveigjanleiki og árangur eru sameiginlegir hagsmunir Gutenberg, starfsmanna og viðskiptavina.
Gutenberg er að efla sína starfsemi enn frekar og leitar nú að reyndum sölustjóra og sölumanni í
krefjandi og spennandi verkefni sem eru framundan.
Gutenberg leitar að
sölustjóra og sölumanni
Gutenberg ehf.
Síðumúla 16
108 Reykjavík
Sími 545 4400
Fax 545 4401
www.gutenberg.is
GREININGARDEILD KB banka
telur í nýrri skýrslu að allar þær þrjár
stóriðjuframkvæmdir, sem til skoð-
unar eru, séu framkvæmanlegar en
tímamörkin verði seinni en fyrstu
áætlanir gerðu ráð fyrir. Miðað við
hagsveifluna telur greiningardeildin
að fyrsti hluti framkvæmdanna;
stækkun álversins í Straumsvík, muni
ekki valda miklum ruðningsáhrifum.
Skýrslan, sem er unnin af Ásgeiri
Jónssyni og Steingrími A. Finnssyni,
tekur á efnahagslegum áhrifum
mögulegra stóriðjuframkvæmda. Þar
er gert ráð fyrir að hafist verði handa
við stækkun álvers Alcan í Straums-
vík árið 2007, framkvæmdir við nýtt
álver á Norðurlandi hefjist árið 2009
og bygging álvers Norðuráls í Helgu-
vík árið 2010.
Þessar framkvæmdir eru sagðar
auka framleiðslugetu í álvinnslu um
770 þúsund tonn með rúmlega 400
milljarða króna kostnaði, sem eru
40% af núverandi landsframleiðslu. Í
skýrslunni segir að þetta séu um 50%
viðameiri framkvæmd í áltonnum en
núverandi stóriðjuframkvæmdir, sem
lýkur 2007, og auki framleiðslugetuna
um 490 þúsund tonn. Heildarkostn-
aður sé þó líklega heldur minni þar
sem minni fjárfestingu þurfi fyrir
jarðvarmavirkjanir samanborið við
vatnsaflsvirkjanir.
Sem fyrr segir telur greiningar-
deild bankans að stækkunin í
Straumsvík muni ekki valda ruðn-
ingsáhrifum í efnahagslífinu. Hins
vegar muni hinar tvær framkvæmd-
irnar, ásamt lokaáfanga Alcan, koma
fram á árunum 2009 til 2011 en þá sé
fjárfesting í þessum geira áætluð um
80 til 100 milljarðar á ári.
„Á þessum tíma þegar aðalþungi
álversframkvæmdanna kemur fram
er líklegt að efnahagslífið verði aftur
komið í uppsveiflu. Sú hætta er því
fyrir hendi að aftur skapist samskon-
ar ástand og verið hefur á síðustu
tveimur árum og stóriðjufram-
kvæmdirnar komi fram á þenslutím-
um og við þeim verði að bregðast með
vaxtahækkunum,“ segja skýrsluhöf-
undar, en þeir telja að ef allar boðaðar
framkvæmdir verða að veruleika þá
sé erfitt að sjá fyrir hvenær verð-
bólgumarkmiði Seðlabankans verði
náð. Það geti jafnvel tafist fram yfir
árið 2012.
Hvatning til fjárfestinga
Í skýrslu bankans er einnig bent á
þróun orku- og álverðs og þannig hafi
stórhækkað álverð hvatt til fjárfest-
inga í áliðnaði. Raunverð raforku frá
Landsvirkjun hafi frá árinu 1988
lækkað um 50-60% en á sama tíma
hafi orkuverð í Bandaríkjunum og
Kanada hækkað um 20%. Miðar
bankinn reyndar við verð til neytenda
en segir það nálgun á verði til stórnot-
enda. Það verð eigi að öllu jöfnu að
vera nokkru hærra þar sem verð til
stórnotenda sé yfirleitt fastbundið til
lengri tíma með samningum milli
orkufyrirtækja og álvera.
„Ljóst má vera að aukin fjárfesting
í álverum er nátengd þróun ál- og
orkuverðs. Lágt orkuverð í saman-
burði við t.a.m. Bandaríkin og Kan-
ada gerir það að verkum að Ísland
þykir góður kostur í samanburði við
önnur lönd í þessum efnum, en inn-
lendi orkugeirinn er m.a. í harðri
samkeppni við þann kanadíska sem
býr yfir allt að tvöfalt stærri vatns-
aflsvirkjunum en sem nemur fram-
leiðslugetu Kárahnjúkavirkjunar,“
segir í skýrslu greiningardeildar KB
banka.
Allir stóriðjukostir fram-
kvæmanlegir en þeim seinkar
Lækkun raforku frá Landsvirkjun um 50–60% frá 1988 en hækkun á
sama tíma um 20% í Bandaríkjunum og Kanada
Morgunblaðið/RAX
Framkvæmdir Stækkun álversins á Grundartanga er meðal þeirra stór-
iðjuframkvæmda sem eru í gangi. Að mati greiningardeildar KB banka
geta frekari framkvæmdir haft ýmis áhrif á efnahagslífið næstu árin.