Morgunblaðið - 12.02.2006, Side 12
12 B SUNNUDAGUR 12. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
- Einn vinnustaður
Þjónustu- og rekstrarsvið
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum hjá borginni.
Atvinnuauglýsingar má einnig skoða á heimasíðu Reykjavíkurborgar: www.reykjavik.is/storf
Hjá símaveri Reykjavíkurborgar, 4 11 11 11, færð þú allar upplýsingar um þjónustu og starfsemi
borgarinnar og samband við þá starfsmenn sem þú þarft að ná í.
MatráðurSjálfstæð búseta
Þjónustu- og rekstrarsvið fer með þjónustu,
innkaupamál, upplýsingatækni og rekstur. Ný-
stofnaðar þjónustumiðstöðvar í hverfum heyra
undir sviðið, innkaupa- og rekstrarskrifstofa,
skrifstofa þjónustu- og upplýsingatækni, upp-
lýsingatæknimiðstöð og símaver.
Þjónustumiðstöð Vesturbæjar óskar eftir starfsmanni
í íbúðarkjarna í Skerjafirði.
Um er að ræða aðstoð og stuðning við fólk með fötlun
sem býr í sjálfstæðri búsetu.
Í boði er 80% starf um kvöld og helgar.
Óskað er eftir sjálfstæðum, ábyrgum og jákvæðum ein-
staklingi sem hefur gaman af að vinna með fólki.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkur-
borgar og viðkomandi stéttarfélags.
Nánari upplýsingar veita: Droplaug Guðnadóttir í síma
411 2700, netfang: droplaug.gudnadottir@reykjavik.is og
Rannveig Þorvaldsdóttir í síma 561 3041, netfang:
rannveig.thorvaldsdottir@reykjavik.is
Umsóknum skal skilað á netfangið:
droplaug.gudnadottir@reykjavik.is fyrir 28. febrúar nk.
Þjónustumiðstöð Breiðholts óskar að ráða matráð í
mötuneyti starfsfólks í Þjónustumiðstöð Breiðholts í
60% starf, vinnutími frá kl. 9.00-14.00.
Helstu verkefni:
• Að sjá um kaffi og mat fyrir starfsfólk.
• Að sinna innkaupum fyrir mötuneyti starfsfólks.
Hæfniskröfur:
• Menntun eða reynsla í að elda léttan og hollan mat.
• Sveigjanleiki og frumkvæði.
• Lipurð í mannlegum samskiptum.
• Nákvæmni og sjálfstæði í starfi.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkur-
borgar og viðkomandi stéttarfélags.
Nánari upplýsingar veitir Þóra Kemp í síma 411 1300,
netfang: thora.kemp@reykjavik.is.
Umsóknum skal skilað í Þjónustumiðstöð Breiðholts,
Álfabakka 12, fyrir 28. febrúar nk.
Eldhús
Þjónustumiðstöð Laugardals og Háaleitis óskar eftir
starfsmanni í móttökueldhús í Félagsmiðstöðina í
Hæðargarði 31.
Starfið felur meðal annars í sér móttöku og sölu á
aðsendum mat ásamt aðstoð í eldhúsi.
Óskað er eftir áreiðanlegum starfsmanni með færni í
mannlegum samskiptum.
Um er að ræða 62,5% starf, vinnutími frá kl. 10.00-
15.00.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. mars nk.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkur-
borgar og Eflingar - stéttarfélags.
Nánari upplýsingar veitir Ásdís Skúladóttir í síma 568
3132, netfang: asdis.skuladottir@reykjavik.is.
Umsóknum skal skilað á Félagsmiðstöðina í Hæðargarði
31 fyrir 28. febrúar nk.
Ellingsen-Evró óskar að ráða þjónustustjóra til að stýra þjónustu-
verkstæði í nýrri verslun sem mun taka til starfa nú í vor.
Þjónustustjórinn mun annast daglegan rekstur þjónustuverkstæðis
þar sem fram fara samsetningar, breytingar og viðhald ferðavagna
og húsbíla.
Menntun: Bifvélavirkjun.
Starfsreynsla: Æskilegt að viðkomandi sé vanur verkstjórn og
hafi haft mannaforráð. Tölvukunnátta er nauðsynleg.
Eiginleikar: Viðkomandi þarf að vera heiðarlegur, skipulagður og
stundvís og eiga gott með samskipti við fólk.
Áhugamál: Gott ef viðkomandi á fellihýsi, hjólhýsi eða tjaldvagn
og hefur áhuga á útivist eða ferðamennsku.
Allar umsóknir óskast sendar á rbg@olis.is fyrir 19. febrúar nk.
eða til starfsmannastjóra Olís, Sundagörðum 2, 104 Reykjavík.
Nánari upplýsingar veitir Ragnheiður Björk Guðmundsdóttir
starfsmannastjóri Olís í síma 515 1210 eða rbg@olis.is
Þjónustustjóri
Á vormánuðum mun Ellingsen-Evró opna
2000 fm verslun við Fiskislóð 1 í Reykjavík.
Verslunin mun hýsa sameinað fyrirtæki
Evró og Ellingsen og sérhæfa sig í sölu á
húsbílum, fellihýsum, hjólhýsum og
tjaldvögnum ásamt ýmsum sport-,
útivistar- og veiðivörum.
Olíuverzlun Íslands hf er eigandi verslunar-
innar en fyrirtækið hlaut á síðasta ári
Íslensku ánægjuvogina í flokki smásölu-
verslana auk viðurkenningarinnar
„Fyrirmyndarfyrirtæki VR 2005“.
H
im
in
n
o
g
h
af
/SÍA
DANSKA Alþýðusambandið mun vera tilbúið til þess að
krefjast þess að endurmenntun starfsmanna verði innifalin í
samningum þegar gengið verður til samninga árið 2007.
Þetta kemur fram á vef ASÍ.
Þar segir jafnframt að endurmenntun muni þá hafa miklu
meira vægi heldur en í dag, að því er formaður danska Al-
þýðusambandsins, Hans Jensen, segir.
„Bæði atvinnurekendur og fulltrúar launafólks eru þess
meðvitandi að í framtíðinni mun endurmenntun skipta
miklu máli og eru nú viðræður milli þessara aðila um hvaða
leiðir hægt er að fara til að tryggja að einstaklingurinn hafi
bæði rétt og ráð til að stunda endurmenntun meðan hann
er á vinnumarkaðinum. Það er sérstaklega litið til þess að
styðja þá sem minnstu menntunina hafa og njóta í dag
minnstu endurmenntunarinnar,“ segir Hans Jensen. Hann
segir jafnframt að menntun eigi að vera réttindamál og eigi
ekki að koma af sjálfu sér og vill meina að eins og staðan
sé í dag sé allt of algengt að sú menntun sem er í boði í fyr-
irtækjum sé fyrir þá sem eru í bestu stöðunum en nái ekki
niður til hinna sem einmitt þurfa á mest á því að halda, seg-
ir á vef ASÍ.
Morgunblaðið/Ómar
Endurmenntun
hluti af kjarasamn-
ingum danskra
HÁSKÓLINN í Reykja-
vík hefur komið á fót at-
vinnuþjónustu við nemendur
sína, fyrrverandi og núver-
andi, og í fréttatilkynningu
segir að markmið hennar sé
að „aðstoða íslensk fyrir-
tæki við að finna viðskipta-
menntaða starfskrafta til
starfa“ og styðja nemendur
skólans í leit að rétta starfs-
vettvanginum.
„Íslenskt atvinnulíf hefur
í síauknum mæli leitað til
Háskólans í Reykjavík í leit
að sérhæfðu starfsfólki. Á
meðal fyrirtækja sem ný-
lega hafa leitað eftir starfs-
kröftum hjá viðskiptadeild
HR eru Baugur Group,
PriceWaterhouseCoopers,
breska sendiráðið og
Straumur-Burðarás Fjár-
festingarbanki. Fjöldi
beiðna um ábendingar er
orðinn það mikill að full
ástæða er til þess að færa
þessa þjónustu inn í form-
legt ferli þannig að við-
skiptadeild HR geti enn bet-
ur komið til móts við þarfir
fyrirtækja. Atvinnuþjónust-
an byggist á erlendri fyr-
irmynd (e. career services),
en slík þjónustu tíðkast við
fjölmarga erlenda háskóla,“
segir í tilkynningunni.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Atvinnuþjónusta
við Háskólann í
Reykjavík
TENGLAR
.....................................
www.ru.is/radning