Morgunblaðið - 12.02.2006, Side 14

Morgunblaðið - 12.02.2006, Side 14
14 B SUNNUDAGUR 12. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ w w w . p e r l a i n v e s t . c o m P E R L A i n v e s t m e n t s ÞÍN UPPLIFUN ÞÍN FASTEIGNASALA Á SPÁNI ÞINN LÍFSSTÍLL Perla Investments s.l. er ört vaxandi spænsk fasteignasala í eigu Íslendinga og spænsks fjárfestingafélags. Vegna aukinna umsvifa óskum við eftir að ráða fólk í eftirtalin störf: • Söludeild Perla Investments: Sölumaður í fasteignadeild. Menntun á sviði viðskipta og/eða reynsla af fasteignasölu nauðsynleg. • Leigu- og ferðaþjónusta Perla Holidays: Skrifstofustjóri. Viðkomandi þarf að hafa menntun og/eða góða reynslu af ferða- eða markaðsmálum. • Þjónustudeild: Áhersla er lögð á góða þjónustulund og tungumálakunnáttu. Hæfniskröfur í öll störf: Tungumál: Haldbær kunnátta bæði í rituðu og töluðu máli í íslensku og ensku, spænskukunnátta er mikill plús. Einnig er kunnátta í einhverju norðurlandamálanna góður kostur. Almenn tölvukunnátta, frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð, samviskusemi og skipulagni nauðsynleg. Umsækjendur þurfa að hafa lifandi og skemmtilega framkomu, vera heiðarlegir, jákvæðir og með ríka þjónustulund. Nauðsynlegt er að viðkomandi séu reiðubúnir að ganga í öll nauðsynleg störf og geti byrjað sem fyrst. Í boði: Skemmtileg, lifandi og fjölbreytt störf hjá rótgróinni, ört vaxandi spænskri fasteignasölu með höfuðstöðvar á Costa Blanca ströndinni. Umsóknir ásamt ferilskrá og fyrirspurnir óskast sendar til Elínar á admin@perlainvest.com merktar því starfi sem um ræðir. Öllum bréfum verður svarað. „VIÐ verjum næstum jafn- miklum tíma með yfirmann- inum og með makanum. Þess vegna er jafn mikilvægt að finna sér réttan yfirmann og að finna sér réttan maka, eða svona nokkurn veginn.“ Á þennan hátt hefst umfjöllun á vef VR en þar er vitnað í vef viðskiptatímaritsins Forbes þar sem farið er yfir það yfir það hvernig á að taka viðtal við fyrirhugaðan yfirmann. Nánar segir á vef VR: „Maður verður að beita rök- hyggjunni en ekki tilfinninga- seminni þegar maður velur sér yfirmann, segja þeir hjá Forbes. Ef þú vilt landa rétta starfinu þarftu að spyrja réttu spurninganna í ráðning- arviðtalinu. Á heimasíðu For- bes eru nefnd til sögunnar sjö atriði eða spurningar sem vert er að hafa í huga viðtal- inu. Þessi atriði eru: 1. Hver er stjórnunarstíll yfirmannsins? 2. Hvernig er vinnufyrir- komulagi háttað í fyrirtækinu og hvernig er vinnuálag? 3. Hver eru markmið stjór- ans og gildi? 4. Hver er starfsmanna- velta í fyrirtækinu? 5. Fáðu að ræða við starfs- fólk í fyrirtækinu. 6. Komdu með opnar spurningar, s.s. hvernig er góður starfsmaður að þínu mati? Fylgdu spurningum þínum vel eftir, ef þú færð ekki skýrt svar. Og svo er það hvað á ekki að gera í ráðningarviðtali, að mati Forbes. Það eru líka sjö atriði, ekki síður mikilvæg. 1. Ekki koma of seint. 2. Klæddu þig í samræmi við tilefnið. 3. Náðu augnsambandi við þá sem taka viðtalið. 4. Vertu stuttorð(ur) en gagnorð(ur). 5. Ekki gorta. 6. Vertu viss um að hafa nokkur aukaeintök af starfs- ferilsskránni meðferðis. 7. Vertu hreinskilin(n).“ Finndu rétta yfirmanninn ÁVÖXTUNARKRAFA verðtryggðra skuldabréfa lækkaði töluvert á föstudag, eða um 9-15 punkta, eftir að hafa lækkað um 4-18 punkta á fimmtudag. Í Hálffimmfréttum KB banka er bent á að mikil viðskipti hafi legið að baki lækkun kröfunnar á föstudag eða sem nem- ur 11,6 milljörðum. „Verðtryggða krafan liggur nú á bilinu 4,30% til 4,52% og telst það til tíðinda að krafa HFF24 er komin upp fyrir kröfu stysta íbúðabréfaflokksins HFF14. Síðastliðna mánuði hefur krafa lengri líftíma íbúðabréfa verið hærri en styttri líftíma flokka, þ.e. upphallandi vaxtaferill,“ segir greiningardeild KB banka. Þrátt fyrir að verðtryggða krafan hafði lækkað mikið í lok dags voru fyrstu viðbrögð við birtingu verðbólgutalna að morgni föstudags þau að krafan hækkaði. Hins vegar gekk hækkun kröfunnar fljótlega til baka og fór að leita niður á við. „Það má velta fyrir sér hvort aðilar á markaði hafi túlkað verðbólgutölurnar sem birtust í dag (föstudag) sem vísbend- ingu um að Seðlabankinn muni hækka stýrivexti minna en þeir töldu áður.“ Verðtryggða krafan heldur áfram að lækka ATAFL er nýtt nafn á Keflavíkurverktökum, fyrir- tæki sem iðnaðarmenn á Suð- urnesjum stofnuðu fyrir 49 ár- um til að sinna verkefnum á Keflavíkurflugvelli. Nýja nafninu er ætlað að vísa til atvinnu, athafnasemi og krafts sem er einkennandi fyr- ir starfsemi félagsins, segir í tilkynningu. Gamla nafnið hafi vísað til staðbundinnar starf- semi sem eigi ekki lengur við þar sem félagið starfi nú um allt land. Nýja heitið varð of- aná eftir samkeppni sem hald- in var á meðal starfsmanna. Meðal verkefna Atafls er svæðið við Einholt-Þverholt í Reykjavík þar sem reisa á nýja íbúðabyggð í stað bygginga sem fyrir eru. Starfsfólk Atafls er um 250 en auk þeirra starfa margir undirverktakar á vegum fé- lagsins. Stærsti eigandi með 70% eignarhluta er Bjarni Pálsson, sem jafnframt er stjórnarformaður, auk hans eru þrír starfsmenn félagsins hluthafar, þeir Kári Arngríms- son, forstjóri, Albert Bjarni Hjálmarsson, forstöðumaður framkvæmdasviðs, og Einar Waldorff, forstöðumaður markaðs- og tæknisviðs. Þeir eiga hver um sig 10% eignar- hluta. Keflavíkurverk- takar verða Atafl

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.