Morgunblaðið - 15.02.2006, Síða 11

Morgunblaðið - 15.02.2006, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 2006 11 FRÉTTIR HJÁLPARSTARF kirkjunnar tók í gær við rúmum 8 milljónum króna frá fulltrúum tónlistarfólks og aðstand- endum söfnunarinnar „Hjálpum þeim“. Framlagið verð- ur sent til Pakistan þar sem Alþjóðaneyðarhjálp kirkna, ACT, heldur áfram neyðar- og uppbyggingarstarfi þrátt fyrir erfiðar aðstæður. Alls voru 10 þúsund diskar gefnir út fyrir jólin og seld- ust þeir upp á nokkrum dögum. Upplagið skilaði um 10 milljónum króna en af því er greiddur 24,5% virð- isaukaskattur til hins opinbera. Hjálparstarf kirkjunnar hér á landi fær ekki fasta styrki frá ríkinu. Til sam- anburðar nemur styrkur norska ríkisins til Hjálparstarfs kirkjunnar þar í landi um 56% af heildarveltu samtak- anna eða sem nemur 354 milljónum norskra króna. Þegar hefur verið gefið út 4 þúsunda diska viðbót- arupplag af „Hjálpum þeim“ og mun söluandvirði þess einnig renna til hjálparstarfsins. Þá hafa höfundar lags- ins, Axel Einarsson og Jóhann G. Jóhannsson, ákveðið að gefa höfundarlaun sín til Hjálparstarfs kirkjunnar. Shabana Zaman, pakistönsk kona búsett hér á landi, veitti framlaginu móttöku fyrir hönd pakistönsku þjóð- arinnar. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Hjálparstarfi kirkjunnar. „Hjálpum þeim“ skilar 10 millj- ónum til hjálparstarfs í Pakistan Morgunblaðið/Sverrir 2 milljónir af söfnunarfénu fara í virðisaukaskatt til ríkissjóðs Gunnar Ingi Sigurðsson, Maríanna Friðjónsdóttir, Páll B. Baldvinsson, Shabana Zaman, Axel Einarsson og Einar Karl Haraldsson við afhendingu söfnunarfjárins sem nýtast mun í neyðar- og uppbyggingarstarf í Pakistan. SVEINN Guðmarsson fréttamaður sagði á fundi Heimdallar og Sam- bands ungra sjálfstæðismanna um árekstur menningarheima í kjölfar birtinga skopmynda á Múhameð, að birting Jótlands-póstsins á skop- myndunum af Múhameð spámanni hefði verið óábyrg þar sem vitað væri að þetta myndi falla í grýttan jarðveg hjá múslímum. Miklir fordómar væru í Danmörku gagnvart múslím- um og margir Danir teldu múslíma vera lægra setta þjóðfélagsþegna og því hefði þetta ekki verið skynsam- legt. Sveinn taldi það aftur á móti sterk- an leik hjá Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, að af- saka ekki myndbirtingarnar á þeim grundvelli að það væri ekki á hans ábyrgð, en spurði svo í leiðinni hvort það sama hefði verið upp á teningn- um ef skopmyndirnar hefðu verið af gyðingum, en sagðist raunar efast um það. Sveinn taldi að það væri ekkert vafamál að myndbirtingarnar hefðu sært múslíma og benti á í því sam- hengi að í múslímalöndum er íslam mjög tengt samfélaginu, mun meira en kristni gerir í Vesturlöndunum. Þess vegna vilja margir meina að þessi deila sé ekki á milli trúarhópa heldur menningarhópa, Vesturlönd gegn íslam. Öfgahópar í Mið-Aust- urlöndum hafi risið upp og staðið fyr- ir mótmælum og skemmdarverkum á sendiráðum og sagði það athygl- isvert að í löndum á borð við Sýrland og Jórdaníu séu þessar aðgerðir leyfðar, þar sem mótmæli væru yf- irleitt bönnuð. Jón Baldvin sagði Bush hættulegan öfgamann Jón Baldvin gagnrýndi George W. Bush Bandaríkjaforseta harðlega fyrir innanríkisstefnu sína og taldi hann vera stórhættulegan öfga- mann. „Núverandi stjórnvöld í Bandaríkjunum eru fulltrúar últra hægriafla, öfgakenndra hægri skoð- ana, sem endurspeglar minnihluta þjóðarinnar en hafa verið meira og minna allsráðandi á undanförnum árum. Innanríkispólitík Bush er þannig að hún myndi flokkast langt hægra megin við Le Pen í Frakk- landi. Í Evrópu myndi Bush teljast hægri öfgamaður og stórhættuleg- ur.“ Jón Baldvin taldi enn fremur að höfuðáherslur Bush í samskiptum sínum við umheiminn væru á hern- aðarlausnir, og hann féllist ekki á að hernaðarvald Bandaríkjanna megi þvinga, hindra eða hefta með al- þjóðasamningum eða skuldbinding- um alþjóðasamfélags. Bush-kenn- ingin áskildi sér rétt til að beita ofbeldi til að verja hagsmuni Banda- ríkjanna. Þetta væri tungumál trú- aðra öfgahópa í Suðurríkjum Banda- ríkjanna, sem skiptir heiminum í svart og hvítt, gott og vont og boðar að uppræta hið illa með valdi, líkt og krossferð. Jón Baldvin sagði að ungir múslímar upplifðu þessa krossferð í gegnum Ísrael, Palestínu og innrás- ina í Írak. Þessi ungmenni upplifðu það að Ísrael væri skjólstæðingur Bandaríkjanna. Í stjórnartíma Bush hefðu Bandaríkin í raun og veru yf- irgefið þá stefnu Bandaríkjanna um að leita friðar í deilu Ísraels og Pal- estínu. Bush hefði dregið taum Ísr- aels, þar sem hann ætti sálufélaga, leiðtogar öfgahægri aflanna, Líkúd bandalagið. Það væru því ekki bara öfgahópar í múslímasamfélaginu. Ritstjóra JP vandi á höndum Aðspurður hvort Jótlands-póstur- inn ætti að birta skopmyndir af hel- förinni gegn gyðingum, sem birta á í írönsku blaði, sagði Sveinn að rit- stjóra JP væri mikill vandi á hönd- um. Hann sagði að þetta væri mikill prófsteinn fyrir vestræna fjölmiðla þar sem íranska blaðið væri að at- huga hversu annt um málfrelsið þeim er í raun og veru. Hins vegar bentu margir Vesturlandabúar á að ekki væri hægt að bera saman skopmynd- ir af mannlegum harmleik sem snerti milljónir manna persónulega og trú. Deila á milli menningar- hópa – ekki trúarhópa Morgunblaðið/Ómar Sveinn Guðmarsson og Jón Baldvin Hannibalsson. Eftir Sigurð Pálma Sigurbjörnsson siggip@mbl.is SETTUR verður á fót vinnuhóp- ur skipaður fulltrúum 22 stofn- ana og samtaka til að undirbúa viðbúnað vegna hugsanlegs heimsfaraldurs inflúensu. Í hon- um eiga sæti: Ríkislögreglustjóri, sóttvarnalæknir, Almannavarna- ráð, Brunamálastofnun, Bænda- samtökin, Fangelsismálastofnun, Flugmálastjórn, Landhelgisgæsl- an, landlæknir, Neyðarlínan, Póst- og fjarskiptastofnun, Rauði kross Íslands, Samband ís- lenskra sveitarfélaga, Samtök at- vinnulífsins, Samtök fyrirtækja í öryggisgæslu/ -vörslu, Siglinga- málastofnun, Slökkvilið höfuð- borgarsvæðisins, Slysavarna- félagið Landsbjörg, Tollgæslan, Vegagerðin, yfirdýralæknir og þjóðkirkjan. Hlutverk hópsins verður að styrkja enn frekar viðbragð- sáætlanir hér á landi. Ríkislög- reglustjóri og sóttvarnalæknir eiga að mynda stýrihóp til að skilgreina verkefni og hlutverk samstarfsaðila og setji starfinu tímamörk. Komið verður upp nýju upplýsingakerfi í Samhæf- ingarstöðinni í Skógarhlíð sem á að ráða við það mikla magn upp- lýsinga sem þarf að taka á móti og vinna úr. Stór vinnuhópur undirbýr viðbrögð RÍKISSTJÓRNIN samþykkti á fundi sínum í gær að verja 56 milljónum króna til að efla við- búnað sóttvarnalæknis og al- mannavarna vegna mögulegrar hættu á heimsfaraldri inflúensu. Heilbrigðisráðherra og dómsmála- ráðherra kynntu á fundinum til- lögur um viðbrögð, aðgerðir og fjárframlög komi til heimsfarald- urs inflúensu. ,,Við höfum verið að undirbúa okkar viðbrögð undanfarna mán- uði og höfum rætt þetta í rík- isstjórninni,“ segir Jón Kristjáns- son heilbrigðisráðherra. Hann segir að fara þurfi yfir tækjabúnað og lyfjabirgðir sem til eru í land- inu sem hugsanlega kalli á frekari útgjöld, en m.a. er talið að árs- birgðir af svonefndum dreypilyfj- um þurfi að vera til staðar í land- inu. Jón sagði meginatriði að styrkja embætti sóttvarnalæknis og almannavarna svo þau geti eflt viðbúnað sinn. ,,Ég tel ábyrgðar- leysi að undirbúa ekki málið en auðvitað vona ég það besta. Það hafa þó komið upp fleiri tilfelli í fleiri löndum að undanförnum og það er því ekkert vit í öðru fyrir okkur en að búast um hérna.“ Tillögurnar sem samþykktar voru í gær taka á fjórum þáttum. Þar er í fyrsta lagi um að ræða viðbúnað og samvinnu margra að- ila m.a. með skipun vinnuhóps. Fjölga á starfsmönnum hjá sótt- varnalækni og almannavarnardeild ríkislögreglustjóra. Þá var samþykkt að auka fjár- veitingu vegna rannsókna á fugl- um. Slíkar rannsóknir eru unnar í samstarfi yfirdýralæknis og sótt- varnalæknis. Þetta er gert til að tryggja að berist fuglaflensan hingað með farfuglum uppgötvist það svo fljótt sem auðið er þannig að tryggja megi eftir mætti að smit berist ekki í alifugla og/eða menn. Veirurannsóknastofa Landspít- ala – háskólasjúkrahúss hefur að- stöðu og öryggisbúnað til að greina hættulegar veirur. Til að tryggja þann þátt enn frekar sem snýr að dýrum hefur verið unnið að undirbúningi að nýrri krufn- ingar- og rannsóknaraðstöðu fyrir fugla á Tilrauna- og rannsókna- stöðinni á Keldum. Útboð á dreypilyfjum Viðbrögð og aðgerðir snúa í öðru lagi að lyfjamálum. Alþingi hefur þegar samþykkt lög um neyðarframleiðslu á lyfjum hér á landi. Gerðar hafa verið áætlanir um byggingu dreypilyfjaverk- smiðju og nú er unnið að útboði á dreypilyfjum og uppsetningu á birgðageymslu þar sem geymdar yrðu að minnsta kosti ársbirgðir af lyfjunum. Þetta er gert til að fá raunhæfan kostnaðarsaman- burð. Þegar eru til í landinu um 90.000 meðferð- arskammtar af inflúensulyfjum. Ákveðið hefur verið að fjölga um 30.000 skammta og kaupa aðra tegund af lyfi. Þetta er gert ef hugsanlega kæmi upp sú aðstaða að inflúensuveiran byggði sér upp ónæmi fyrir öðru hvoru lyfinu. Bjóða út tryggingu Fram kemur í fréttatilkynningu heilbrigðisráðuneytis að hugmynd- ir um sameiginlega norræna bólu- efnaverksmiðju virðist komnar því sem næst á byrjunarreit vegna ákvörðunar Svía um að athuga fyrst sérlausn, þ.e. byggingu bólu- efnaverksmiðju í Svíþjóð. „Með hliðsjón af þessu m.a. hefur verið ákveðið að bjóða út tryggingu fyr- ir Íslendinga. Tryggingin byggist á árlegu iðgjaldi og forgangi að 300.000 skömmtum af bóluefni strax og tekist hefur að framleiða það, ef heimsfaraldur inflúensu fer af stað. Einnig hefur verið ákveðið að bólusetja alla áhættuhópa ár- lega gegn árstíðabundinni inflú- ensu til að auka mótstöðu þjóð- arinnar almennt gegn inflúensu- veirum,“ segir í samantekt um aðgerðirnar. Ríkisstjórnin samþykkti í þriðja lagi tillögur um fræðslu, æfingar og upplýsingar vegna hugsanlegs inflúensufaraldurs. Þegar hafa verið haldnar tvær æfingar. Önnur tengdist útbreiðslu bólusóttar. Hin æfingin tengdist útbreiðslu inflú- ensu og var Samhæfingarstöðin í Skógarhlíð virkjuð í tengslum við æfinguna. Sóttvarnalækni og rík- islögreglustjóra er gert að fylgjast náið með framvindunni hvað varð- ar útbreiðslu fuglaflensunnar og hugsanlega stökkbreytingu, sem gæti leitt af sér heimsfaraldur. Þeir skulu meta á hvaða tíma- punkti sé eðlilegt og æskilegt að hefja útgáfu fræðsluefnis til al- mennings og æfingar eftir því sem við á. Kaupa einnota hlífðarfatnað Loks hefur verið ákveðið að kaupa mikið magn af einnota hlífð- arfatnaði til að tryggja öryggi starfsfólks á heilbrigðisstofnunum og í sjúkraflutningum. Einnig er reiknað með að fjölga enn frekar öndunarvélum, en nú eru til 64 slíkar vélar í landinu. Ríkisstjórnin samþykkir tillögur um að- gerðir vegna heimsfaraldurs inflúensu 56 milljónum var- ið í viðbúnaðinn Jón Kristjánsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.