Morgunblaðið - 15.02.2006, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 15.02.2006, Blaðsíða 17
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson HANDAGANGUR er í öskjunni þessa dagana á svæðinu neðan við Norðlenska, á Oddeyrinni. Stórvirkar vinnuvélar mylja þar niður mannvirki sem í áratugi var í eigu KEA og hýsti margskonar starfsemi. Fyrirhugað er að Samskip fái þarna aðstöðu en auk þess er unnið að lengingu bryggjukants á svæðinu. Niðurrif hússins er sameiginlegt verkefni Norðlenska og Samskipa en Hafnasamlag Norðurlands stendur að framkvæmdum við bryggjuna. Að sögn Péturs Ólasonar, skrifstofu- stjóri Hafnasamlags Norðurlands, er kostnaður við hafnarframkvæmdirnar um 120 milljónir króna. „Bryggjan er 80 metra löng en verður lengd um 100 metra í norður, bæði til þess að anna þörfum vegna frystigeymslna, bæði Samherja og Samskipa, og einnig til þess að geta tekið á móti skemmtiferða- skipum,“ segir Pétur við Morgunblaðið. Stærstu skemmtiferðaskipin sem koma til Akureyrar eru 77 þúsund tonn og hafa til þessa aðeins getað lagst að Oddeyrarbryggju neðst við Strandgötu, sunnar á Tanganum. „Eftir þessa breyt- ingu geta tvö svo stór skip lagst að bryggju í einu,“ segir Pétur. Bryggjan verður tekin í notkun í sum- ar. Þá verður bryggjukanturinn tilbúinn en þekjan reyndar steypt í haust. Tangabryggjan, sem hér um ræðir, hefur verið í notkun síðan 1992. Nokkru sunnar var Sverrisbryggja sem svo var nefnd, en hún var rifin í fyrra. Húsið sem nú er verið að rífa er það síðasta af elstu húsunum á svæðinu. Fyrir nokkrum árum var Wathne-húsið flutt að Iðnaðarsafninu og verkstæðis- hús og hluti gamla frystihússins rifin. Gamla frystihús KEA rifið og bryggjukantur lengdur um 100 metra Stór skemmtiferðaskip geta lagst að nýrri bryggju á Tanganum MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 2006 17 MINNSTAÐUR HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ AKUREYRI Vesturbær | Frístundamiðstöðin Frostaskjól fagnar þessa dagana tuttugu ára starfsafmæli sínu, en í gær héldu starfsmenn og æska Frostaskjóls veglega veislu þar sem í boði voru kökur, snittur, kaffi og fleira ásamt frá- bærum skemmtiatriðum í boði æskunnar. Afmælinu er þó langt í frá lokið því dag- skráin heldur áfram út vikuna. Í dag verður þorrablót í boði bændafélags Frostaskjóls, en á morgun, fimmtudag, fer fram baráttan um Vatnsmýrina þar sem, fulltrúar félagsmið- stöðvanna Frosta og 101 keppa í ýmsum greinum. Á föstudag verður síðan afmæl- isball í Frosta. Frostaskjól fagnar tvítugsafmæli Morgunblaðið/Árni Sæberg ÁKVEÐIÐ hefur verið að Jón Hjaltason skrifi enn eitt bindið af Sögu Akureyrar. Fjögur eru að baki og gert er ráð fyrir því að það fimmta verði hið síðasta, í bili að minnsta kosti. Kristján Þór Júl- íusson bæjarstjóri og Jón Hjaltason skrifuðu undir samning um ritun fimmta bindis Sögu Akureyrar í gær. Miðað er við að þetta bindi nái yfir tímabilið frá 1940 til 1962 en verkið er unnið í samráði við ritnefnd um sögu Akureyrar. Stefnt er að útgáfu bók- arinnar á árinu 2010. Jón Hjaltason segist hafa fengið töluverð viðbrögð við fyrri bókunum og að öll hafi þau verið á jákvæðu nótunum. „Nú líður að því að elstu og mið- aldra menn muni þokkalega það tímabil sem er til umfjöllunar og það gerir þetta enn skemmtilegra. Fimmta bindið verður að stórum hluta um núlifandi Akureyringa, menn fæddir um eða fyrir 1940 og eru á besta aldri í dag,“ sagði Jón Hjaltason eftir að þeir Kristján Þór höfðu skrifað undir samninginn. Jón bætti því við að heimildirnar sem hann nýtti sér væru að breyta um svip. Áður hefðu persónulegar heimildir komið að drjúgum notum, svo sem einkabréf og dagbækur, en að nú hyrfu þær að mestu og viðtöl við fólk kæmu í staðinn. „Ég bæði hlakka til og er spenntur að takast á við þetta tímabil,“ sagði söguritarinn Jón Hjaltason í viðtali við vef Ak- ureyrarbæjar, www.akureyri.is. Sem fyrr hefur Jón aðstöðu á Hér- aðsskjalasafninu til að rita verkið. Jón tekur til við ritun sögu Akureyrar á ný Jón Hjaltason voru yfir 2.000 frystihólf leigð út, fyrir utan það sem geymt var í kössum og sekkjum í svokölluðum almenningi,“ sagði Þórarinn í gær, „en í almenn- ingnum geymdi það fólk mat, sem ekki fékk í hólf; þegar þau voru öll frátekin. Þar gekk fólk í sinn kassa og poka þá daga sem opið var, en aðeins var hleypt inn í almenninginn vissa daga.“ Þórarinn segir mjög hafa dregið úr notkun þessarar aðstöðu eftir því sem frystikistum fjölg- aði á heimilum, „en sumir hættu reyndar með kistuna og fengu sér hólf aftur!“ sagði hann. Telur ástæðu þess líklega hafa verið mikla rafmagns- notkun, en hólfin hafi verið leigð tiltölulega ódýrt. Í HÚSINU á Tanganum sem nú er verið að rífa voru meðal annars frystiklefar sem KEA leigði fólki á sínum tíma og í voru geymd matvæli af ýmsum toga. Þetta var áður en frystikistan kom til Akureyrar. Fólk komið að miðjum aldri man kalda fingur og jafnvel tær, þegar það fór með pabba og mömmu eða afa og ömmu, að ná í sláturkepp, hrygg eða læri í frystihólf fjölskyldunnar niðri á Tanga. Þórarinn S. Halldórsson, fyrrverandi frystihúss- og sláturhússtjóri hjá KEA, segir frystihólfin hafa verið mjög vinsæl á árum áður. „Þegar mest var Áður en frystikistan kom til Akureyrar … Kópavogur | Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti í gær skipulagstillögu sem gerir ráð fyrir fimmtán hæða verslun- ar- og skrifstofuhúsnæði á lóðinni Hagasmára 1, þar sem Smáralind stendur. Húsnæð- ið, sem samtals yrði um 16.000 fermetrar að flatarmáli, yrði áfast Smáralind á norðvestur- hluta lóðarinnar. Bæjar- fulltrúar Samfylkingar greiddu atkvæði gegn tillög- unni sem samþykkt var með átta atkvæðum meirihlutans gegn þremur, og hafa þeir m.a. hafa lýst yfir áhyggjum af umferðaraukningu vegna byggingarinnar, en nú þegar er umferðin í kringum Smára- lindina nokkuð þétt, eða í kringum 20.000 bílar á sólar- hring þar sem mest er. Samkvæmt tillögunni breytist fyrirkomulag og fjöldi bílastæða. Þannig breytist tveggja hæða bíla- stæðapallur norðvestan Smáralindar, auk þess sem í tillögunni er gert ráð fyrir nýrri tengingu milli Smára- lindar og Smárahvammsveg- ar og jafnframt breytingu á tengingum Smáralindar við Fífuhvammsveg. Aukning á bílaumferð Í skýrslu Línuhönnunar, þar sem veitt er umferðarráð- gjöf vegna nýbyggingarinnar, kemur m.a. fram að nýting eystri bílastæða hefur verið mun meiri en þeirra sem vest- ar eru og myndi nýbygging með skrifstofum, verslunum og þjónustu að mati Línu- hönnunar e.t.v. auka þar á jafnvægið og dreifa umferð- arálagi á inn- og útkeyrslur bílastæða á svæðinu. Þá kem- ur fram í niðurstöðum skýrsl- unnar að líklegt sé að götur umhverfis Smáralind beri aukinn umferðarþunga sem fylgir nýbyggingunni. Talið er að fjölgun bíla nemi um 0,16 bílum á hvern fermetra ný- byggingarinnar, eða rúmlega 2.500 bílar á sólarhring á virk- um degi þegar öll byggingin er komin í notkun. Þetta þýði í raun að lágmarki fjölgun um rúmlega 5.000 bílferðir, þar sem hver bíll þarf bæði að koma og fara. Þannig er gert ráð fyrir um 10% fjölgun bíl- ferða víðs vegar um svæðið. Í tillögum Línuhönnunar er útkeyrslum og innkeyrslum á bílastæði Smáralindar fjölgað auk þess sem fjallað er um úr- bætur sem hugsanlega hefðu jákvæð áhrif á núverandi um- ferðarástand við Smáralind. Úrbótatillögur ekki afgerandi Ekki ríkir sátt hjá bæjar- fulltrúum Samfylkingar með meðferð málsins og bentu þeir m.a. á að þær tillögur sem fram eru komnar um úr- bætur í umferðaraukningu á svæðinu séu ekki nægilega af- dráttarlausar. Þar að auki séu breytingatillögur sem hafa í för með sér að semja þarf við nágrannasveitarélög, s.s. varðandi tengingu á Lindar- vegi til Reykjavíkur, og sé það ekki frágengið. Minnihlutinn fór jafnframt fram á að mál- inu yrði frestað þar sem ekki hafi allar athugasemdir íbúa verið teknar til umræðu, þrátt fyrir að hafa borist bænum á réttum tíma, en kröfu þeirra var hafnað. Fimmtán hæða turn rísi við Smáralind Viðbót Svona mun turninn koma til með að líta út samkvæmt samþykktri skipulagstillögu. Gert er ráð fyrir umtalsverðri aukningu á umferð á svæðinu með tilkomu hans. Hafnarfjörður | Nýir og end- urskoðaðir samningar Hafnar- fjarðarbæjar við Íþrótta- bandalag Hafnarfjarðar (ÍBH) og fimm íþróttafélög voru und- irritaðir í Álfafelli, Íþróttahús- inu v/Strandgötu, á föstudag- inn sem leið. Að sögn íþróttafulltrúa Hafnarfjarðarbæjar, er einn mikilvægasti samningurinn endurskoðun samkomulags við íþróttahreyfinguna um nið- urgreiðslu á æfingagjöldum til íþróttaiðkenda 12 ára og yngri. Markmið samkomulagsins er að auðvelda forráðamönnum barna að gera börnum sínum kleift að taka þátt í íþrótta- starfi og efla innra starf íþróttafélaganna, þannig að fagmennska sé viðhöfð við for- varnir, kennslu og þjálfun barna og unglinga. Samkomu- lagið felur því í sér að þjónusta íþróttafélaganna við bæjarbúa verði aukin og bætt. Þar er um að ræða hækkun um 25 millj- ónir króna. Meðal annarra samninga sem undirritaðir voru má nefna endurskoðaða samninga um rekstur skrifstofu á vegum ÍBH og rekstrarstyrki til Sundfélags Hafnarfjarðar og Íþróttafélagsins Fjarðar. Auka stuðning við íþróttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.