Morgunblaðið - 15.02.2006, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 15.02.2006, Blaðsíða 16
Tálknafjörður | Margir eru farnir að taka til í kringum sig enda minnir veðráttan frekar á vorið en veturinn. Þessar ungu stúlkur á Tálknafirði vildu ekki vera eftirbátur þeirra eldri og gengu í það verk að tína rusl af götunum. Þessar fyrirmynd- arstúlkur eru, f.v., Sigurlaug Bragadóttir, Liv Bragadóttir, Rut Tryggvadóttir og Rakel Rán Jónsdóttir. Morgunblaðið/Guðlaugur Albertsson Unnið að vorhreinsun Dugnaður Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Landið Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri sími 461-1601, Margrét Þóra Þórs- dóttir, maggath@mbl.is, 669-1117 og Skapti Hallgrímsson, skapti@mbl.is, 669-1114. Vesturland Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Austurland Steinunn Ásmunds- dóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi- @mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Úr bæjarlífinu HÉÐAN OG ÞAÐAN Bílaverkstæðum lokað | Borgnesingar eru í vandræðum með að fá gert við bílana á staðnum vegna þess að verkstæðum bæj- arins hefur fækkað mjög. Er nú aðeins eitt bílaverkstæði eftir, Sprautu- og bifreiða- verkstæðið við Sólbakka. Fram kemur á vef Skessuhorns að verk- stæðinu í Brákarey og Bifreiðaverkstæði Ragnars var lokað á sl. ári. Fleiri aðilar sem einnig hafa komið að almennum bíla- viðgerðum til lengri og skemmri tíma hafa einnig hætt starfsemi. Ástand þetta er almennt talið bagalegt, að því er vefurinn segir, og þurfa Borgnes- ingar og Borgfirðingar að leita langt eftir almennum bílaviðgerðum. M.a. hefur orðið mikil aukning í verkefnum hjá bifreiðaverk- stæðum á Akranesi af þessum sökum og enn aðrir sækja á höfuðborgarsvæðið eftir slíkri þjónustu.    Leikskólar | Á fundi skólanefndar Ak- ureyrar á dögunum var lagt fram yfirlit yfir leikskólagjöld í bænum í samanburði við leikskólagjöld nokkurra sambærilegra sveit- arfélaga. Þar kemur fram að almennt leik- skólagjald með fæði er lægst á Akureyri, nema þegar um 5 ára börn í Reykjavík er að ræða. Gjald fyrir einstæða foreldra og báða í námi er næst lægst á Akureyri og gjald fyrir foreldra þar sem annað er í námi er með því lægra sem gerist.    frá þeim stað, og þar af- henti Óskar S. Óskarsson slökkviliðsstjóri Sonju Finnsdóttur viðurkenn- ingu fyrir þátttöku í get- raun eldvarnaeftirlitsins í desember síðastliðnum. Þessu næst var ekið til Í tilefni kynning-ardags Neyðarlín-unnar, – einn einn tveir – tóku höndum saman björgunarsveit- irnar í Skagafirði, lög- reglan á Sauðárkróki og Brunavarnir Skaga- fjarðar, og sýndu tækja- kost sinn og þann búnað sem þessir aðilar hafa yfir að ráða. Fór lögreglubifreið fremst, en á eftir komu sjúkraflutningabílar, tæki frá björgunarsveit- unum og slökkviliði. Var ekið frá Sauðárkróki til Hofsóss, en þar kom til móts við röðina slökkvi- bíll ásamt brunavörðum Varmahlíðar og þar tóku á móti liðinu bíll og starfsmenn brunavarna í Varmahlíð en síðan aftur til Sauðárkróks. Þar voru tækin til sýnis og starfsemi björgunaraðila kynnt. Morgunblaðið/Björn Björnsson Viðurkenning fyrir þátt- töku í eldvarnareftirliti Á þorrablóti Iðunnartók Helgi Zimsenupp á því að leggja fyrriparta fyrir um 30 vísnasmiði. Guðný A. Valberg botnaði: Vetur, sumar, vor og haust vil ég segja þetta: Megi ég verða heilsuhraust og hafa skapið létta. Bjargey Arnórsdóttir botnaði um formann Ið- unnar: Formaður með fagurt skegg fitlar oft við pípu langa, sýpur bjór og soldið hregg á sjónum oftast vel til fanga. Og formaðurinn sjálfur, Steindór Andersen, botn- aði: Formaðurinn fitlar við frekar langa pípu. Tíðkar Helgi sama sið og setur hann í klípu. Arnþór Helgason botnaði: Þarfast er á þorrablótum þetta sem hér nefni: Oftast nær á áramótum upp á við ég stefni. Botnar á blóti pebl@mbl.is FÉLAGSMÁLARÁÐUNEYTIÐ hefur opnað sérstakan kosningavef á vefslóðinni www.kosningar.is. Vefurinn er tileinkaður sveitarstjórnarkosningum sem verða haldnar laugardaginn 27. maí 2006. Frestur til að skila inn framboðslistum rennur út 6. maí 2006. Framboðslistar verða birtir eins fljótt og unnt er eftir að framboðsfresti lýkur. Einnig er stefnt að því að úrslit kosninga í hverju sveitarfélagi og nöfn kjörinna fulltrúa muni birtast á kosningavefnum að kosningunum loknum. Markmið www.kosningar.is er að tryggja að allir sem á þurfa að halda geti nálgast á einum stað leiðbeiningar og aðr- ar upplýsingar sem snerta kosningarnar. Á vefnum er meðal annars að finna helstu dagsetningar í aðdraganda sveitarstjórn- arkosninganna og leiðbeiningar til kjós- enda um helstu atriði tengd kosningunum, til dæmis um kosningarétt og kjörgengi, utankjörfundaratkvæðagreiðslu og svör við ýmsum algengum spurningum. Þar er að finna leiðbeiningar til frambjóðenda, meðal annars um frágang framboðslista, kjörgengi o.s.frv. Leiðbeiningar til kjörstjórna og sveit- arstjórna, meðal annars um túlkun laga, Hæstaréttardóma og ráðuneytisúrskurði sem gengið hafa um túlkun kosningalaga. Tengingar eru við heimasíður sveitarfé- laga og samtaka þeirra og við ýmsa aðra upplýsingavefi. Á vefnum má enn fremur finna sérstakt fyrirspurnarform og al- gengustu spurningar og svör sem borist hafa. Vefur tileink- aður komandi kosningum Siglufjörður | Ferðafélag Siglufjarðar verður stofnað á fundi á morgun, fimmtu- dag kl. 20, í fundarsal Bátahúss Síldar- minjasafnsins. Gestir fundarins verða Valgarður Eg- ilsson varaforseti Ferðafélags Íslands og Páll Guðmundsson framkvæmdastjóri. Á fundinum mun Arnar Heimir Jónsson mæla fyrir um stofnun félagsins og leggja fram tillögu þar um. Valgarður heldur er- indi um Tröllaskagann og Páll fjallar um þau tækifæri sem eru til staðar fyrir nýtt Ferðafélag á Siglufirði og hvernig hægt er að nýta þau til að efla ferðaþjónustu á Tröllaskaganum. Skráðir stofnfélagar fá árbók FÍ árið 2000 eftir Valgarð Egilsson að gjöf þar sem meðal annars er fjallað er um nátt- úrufar, gönguleiðir og sögu Siglufjarðar- umdæmis. Siglfirðingar stofna ferðafélag ♦♦♦ Íþróttamaður Ölfuss | Grétar Ingi Er- lendsson var valinn íþróttamaður ársins 2005 í Sveitarfélaginu Ölfusi. Grétar Ingi var tilnefndur sem körfuknattleiksmaður. Auk þess fengu viðurkenningar: Fanney Guðrún Valsdóttir fyrir hestaíþróttir, Arn- ar Bjarki Sigurðsson fyrir hestaíþróttir, Karen Ýr Sæmundsdóttir fyrir badminton, Kristín Dís Guðlaugsdóttir fyrir fimleika, Hólmar Víðir Gunnarsson fyrir golf og Bjarni Már Valdimarsson fyrir knatt- spyrnu.    Styðja sjóminjasafn | Hreppsnefnd Reykhólahrepps hefur lýst yfir hrifningu sinni á áformum um uppbyggingu sjóminja- safns Breiðafjarðar á Reykhólum og styður eindregið framgang þess máls. Gert er ráð fyrir því að í viðbyggingu við mjólkurbúshúsið á Reykhólum yrðu sýndir gamlir bátar og fleiri sjóminjar í tengslum við hlunnindasýninguna sem opnuð var fyr- ir fjórum árum. Á fundi sínum á fimmtudag samþykkti nefndin fyrir sitt leyti að stefnt yrði að því að sjóminjasafninu yrði komið fyrir í viðbyggingu við núverandi safnahús hreppsins, eins og frumtillögur unnar af byggingarfulltrúa gera ráð fyrir. Kemur þetta fram á fréttavefnum bb.is. HENRIK Danielsen, skólastjóri Hróksins og nýjasti stórmeistari Ís- lands, tefldi fjöltefli við börn og full- orðna fyrir framan Bónus í Kringl- unni 10. febrúar sl. og tók margt manna þátt. Henrik tefldi í tvo klukkutíma við gesti Kringlunnar. Liðsmenn Hróks- ins kynntu einnig dagskrá Skák- félagsins fyrir árið 2006. Bónus hefur verið einn helsti bakhjarl Hróksins síðustu misserin og með fjölteflinu vildi Hrókurinn vekja athygli á mik- ilvægum stuðningi Bónuss við skák- starf meðal barna og ungmenna. Næsta Bónusfjöltefli verður haldið í mars og er sagt nánar frá því á heimasíðu Hróksins. Tefldi fjöltefli í tvo tíma

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.