Morgunblaðið - 15.02.2006, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 15.02.2006, Blaðsíða 20
Daglegtlíf Frystikistan okkar hefurfram að þessu ævinlegaverið full af lambakjöti,þar sem tengdaforeldrar mínir voru með fjárbúskap í Úthlíð í Biskupstungum, en maðurinn minn, Ólafur Björnsson, tók við því að sjá um féð fyrir nokkrum árum. En við þurftum að skera allt féð niður í haust vegna riðu, svo kjötforðinn í kistunni er á þrotum,“ segir Inga Margrét Skúladóttir sem býr á Sel- fossi með sinni stóru fjölskyldu, manni og fjórum börnum, sem öll eru hrifin af lambakjöti, sérstaklega af heimaslátruðu, því það er allra best. Í tilefni þess að nú er hinsta lambið heimt af fjalli er ekki úr vegi að mat- reiða vænt læri með bravúr. „Við grillum mikið af lambakjöti, bæði hér heima og í sumarbústaðnum okkar í Úthlíð, þar sem við höldum mikið til yfir sumarið. Heilgrillað lambalæri er vinsælast hjá okkur og krakkarnir eru ekkert sérstaklega hrifnir af því að ég sé að skera kjötið niður í ein- hverja aðra eða framandi rétti og þau vilja ekki sjá örðu af fitu.“ Fjórréttað í matarklúbbnum En ýmislegt annað en lambakjöt sést á borðum á heimili Ingu og hún segist reyna að hafa fisk einu sinni í viku og hefur fyrir reglu að bjóða upp á heita máltíð á hverju kvöldi. „Krakkarnir okkar eru öll í íþróttum og þess vegna eru þau stundum fjar- verandi á æfingum þegar matartím- inn hefst, en þau ganga að matnum vísum þegar þau skila sér heim.“ Inga sér alfarið um matseld á sínu heimili, segir bóndann ekki vera lið- tækan á því sviði en þó gangi hann frá eftir matinn ef þau eru með mat- argesti. „Við erum dugleg við að bjóða fólki í mat á sumrin uppi í bú- stað en við erum líka í matarklúbb ásamt þrennum öðrum hjónum sem búa á höfuðborgarsvæðinu og það er rosalega gaman. Þá höfum við þrí- eða fjórréttað og prófum eitthvað nýtt og spennandi fyrir bragðlauk- ana.“ Grillað lambalæri Frábær réttur þegar von er á gest- um og tíminn til undirbúnings er ekkert allt of mikill. Getur ekki klikkað. Inga er mikið fyrir græn- meti með mat og því ber hún bæði fram grillað og nýtt grænmeti með lambinu. Lambalærið látið standa í ísskáp í 3–4 daga áður en matreitt. Hækillinn úrbeinaður. 3–4 hvítlauksgeirar skornir í tvennt og stungið undir húðina á lærinu. Gróft salt úr kvörn og pipar úr kvörn. Íslenskt lambakrydd frá Pottagöldrum, blandað saman og dreift yfir kjötið. Lærið er svo grillað á miðlungshita svo allar hliðar verði brúnar. Þá er lærið sett á grillbakka og álpappír breiddur yfir, stillt á lægsta hita, því síðan snúið reglulega og haft á grill- inu í um 45–60 mín. Gott að fylgjast með steikingu með kjötmæli. Með þessu eru síðan kartöflur sem eru skornar í báta, ólífuolíu hellt yfir og kryddaðar með grófu salti. Bakast í ofni í um 45 mín. á ca 190 gráðu hita. Skerið niður grænmeti, gulrætur, rauðlauk, brokkólí, sveppi og hvað annað sem til er í ísskápnum, setjið í álpappír, hellið smá olíu yfir og kryddið með hvítlaukssalti. Þetta er sett á grillið þegar kjötið er langt komið, best að hafa grænmetið að- eins stökkt. Með þessu hefur Inga oftast sveppa- sósu: Brytjið niður sveppi og smá rauðlauk, steikið upp úr olíu og smá smjöri í smá stund og hellið síðan vatni og sveppatening út í og þykkið með sósujafnara. Að lokum er gott að setja soðið af kjötinu og smá rjóma eða kaffirjóma út í. Einnig er borið fram með þessu hrá- salat að hætti hússins, hverjum og einum í sjálfsvald sett hvernig það er. Jarðarber og gráfíkjur Góður og fljótlegur eftirréttur sem Inga fékk fyrst fyrir nokkrum árum hjá vinkonu sinni sem er menntaður kokkur. 2 bakkar jarðarber, skorin í tvennt. 1 bakki gráfíkjur skornar í 4 bita hver. ca 4 msk. balsamikedik, og 4 msk. hlynsíróp. Þarf að standa í þessum legi helst í 1–3 tíma. Þetta er svo hitað í ofni í nokkrar mínútur áður en það er bor- ið fram með vanilluís eða rjóma.  MATARKISTAN | Inga Margrét Skúladóttir býður upp á læri af heimaslátruðu Hinsta lambið grillað Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Inga hin kátasta í eldhúsinu heima á Selfossi að undirbúa matinn. Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur khk@mbl.is Pokabuxur virðast ætla aðná vinsældum hjá ungumkonum nú með hækkandisól. Þær eru með streng að ofan, stroffi neðan á skálmunum og klofið er mjög neðarlega. Helena Jónsdóttir verslunarstjóri Spútnik í Kringlunni segir að hjá þeim kallist bux- urnar arababuxur en séu líka ennþá kallaðar „kúkabuxur“ eins og þær voru stundum kallaðar á 9. áratugnum. Buxurnar komu fyrst í Spútnik í ágúst í fyrra og þær seljast vel. „Við erum búin að panta meira og verðum því með þær áfram fram á sumarið. Þetta eru þægilegar bux- ur en samt sem áður töff. Það er flott að vera í háum stígvélum yfir buxunum og hafa þær lausar að ofan eða þá að taka stroffið aðeins upp svo það sjáist í kálfana og vera í hælaskóm við,“ segir Hel- ena og bætir við að það sé flottast að vera í þröngum fötum að ofan við þær. Buxurnar fara þó ekki öllum vel og mörgum finnst sniðið ekki flott en Helena segir þær fara sumum mjög vel. „Það er mikið að koma inn í tísku frá 9. ára- tugnum og ég gæti trú- að því að það ætti eftir að koma inn meira af svona svipuðum buxum þar sem stroffið á skálmunum er stærra, jafnvel frá kálfum og upp á hné, og rassinn er ekki eins síður.“ Seldust upp á innan við viku Í Intersport kom sending af slíkum buxum í Nike-merkinu og seldust þær upp á innan við viku nú í janúar. Þar er einnig hægt að fá eins buxur frá öðrum merkjum og eru þær líka vinsælar. Ung- ar konur á aldrinum 14- 30 ára eru aðallega að kaupa sér slíkar buxur og klæðast þeim mik- ið við strigaskó og litríka stutt- ermaboli. Augljóst er að þessar pokabuxur virðast ætla að verða ein að- altískan nú í vor og sumar hjá ung- um konum. Ekki eru allir hrifnir af því og hefur jafnvel heyrst í konum sem voru unglingar á 9. áratugnum „oj! ekki eru þær komnar í tísku aftur?“ en „kúkabuxurnar“ þykja „töff“, enda ein- staklega þægilegur klæðnaður sem á eftir að koma sér vel í heitri sumargolunni.  TÍSKA | Vinsælar buxur hjá ungum konum Pokabuxurnar eru komnar tískuhringinn Í dag er algengt að sjá kvenfólk spóka sig í bænum í sérkennilega pokalegum buxum. Þeir sem eru í yngri kantinum muna líklega ekki eftir því en svipaðar buxur voru í tísku á 9. áratugnum. Eftir Ingveldi Geirsdóttur ingveldur@mbl.is Augljóst er að pokabuxur verða áber- andi í vor og sumar hjá ung- um konum. Hægt er að vera í bux- unum á þægilegan hátt í sólinni í sumar. Bolirnir eru úr Vero Moda, bux- urnar til hægri úr Spútnik en hinar frá Nike. Morgunblaðið/ÞÖK  RANNSÓKN Ostar og vín passa ekki saman OSTABAKKI og rauðvín hefur lengi þótt góð blanda en ný rann- sókn gefur til kynna að ostur og vín passi alls ekki sa man. Á vefnum forskning.no kemur fram að ellefu smakkarar hafi smakkað átta osta og nokkur vín og komist að skýrri niðurstöðu: Osturinn truflar bragð- skynið við að finna margbreytileik- ann í vínbragðinu. Það var sama hvort um var að ræða mildan moz- arella ost eða sterkan stilton, hvort tveggja truflaði bragðskynið og smakkararnir áttu í vandræðum með að greina sýrustig vínsins eða berjabragð og eikarkeim af veig- unum. Vísindamenn við Háskólann í Kaliforníu gerðu rannsóknina en þeir eru ekki vissir um af hverju osturinn hefur þessi deyfandi áhrif. Hugsanlegt er að fitan í ostinum bindist bragðefnum í víninu eða að próteinin í ostinum leggist eins og himna inn í munninn og hindri snertingu víns og bragðlauka. Morgunblaðið/Eggert febrúar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.