Morgunblaðið - 15.02.2006, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 2006 39
MENNING
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Frábær leikfimi alla
miðviku- og mánudaga, kl. 9 postu-
línsmálning, kl. 9 og 13 vinnustofan
opin alla daga frá 9 til 16.30.
Árskógar 4 | Bað kl. 8–16. Handa-
vinna kl. 9–16.30. Smíði/útskurður kl.
9–16.30. Heilsugæsla kl. 9.30–11.30.
Spil kl. 13.30.
Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa-
vinna, hárgreiðsla, böðun, glerlist,
spiladagur, fótaaðgerð.
Bólstaðarhlíð 43 | Leikhúsferð í Iðnó
sunnudaginn 19. febr. Farið verður að
sjá leikritið Glæpir og góðverk í flutn-
ingi Leikfélagsins Snúðs og Snældu.
Skráning í síma 535 2760.
FEBÁ, Álftanesi | Haukshús, opið
hús kl. 13–16. Grétudagur, spilað, teflt,
spjallað. Gróukaffi. Akstur í boði
sveitarfélagsins í umsjón Auðar og
Linda, sími 565 0952.
Félag eldri borgara í Kópavogi |
Skrifstofan er opin í dag kl. 10–11.30.
Viðtalstími er í Gjábakka kl 15–16. Fé-
lagsvist er spiluð í Gjábakka kl. 13.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Bók-
menntaklúbbur kl. 13, umsjón Sólveig
Sörensen. Síðdegisdans kl. 14.30,
umsjón hafa Matthildur, Jón Freyr og
Árni Norðfjörð. Pétur Jónsson sér
um tónlistarval. Söngfélag FEB, æf-
ing kl. 17. Leikfélagið Snúður og
Snælda sýnir leikritið Glæpir og góð-
verk í Iðnó kl. 14. Sími í Iðnó
562 9700.
Félagsheimilið Gjábakki | Kl. 9.30
boccia, kl. 10 handavinna, kl. 13 fé-
lagsvist, kl. 17 bobb.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ | Op-
ið í Garðabergi kl. 12.30–16.30.
Kvennaleikfimi kl. 9, 9.50 og 10.45,
málun kl. 10 og 13.30 og bútasaums-
hópur kl. 13 í Kirkjuhvoli. Vatnsleikfimi
auka kl. 9.45 í Mýri. Spænska kl. 10 í
Garðabergi og spilað brids í Garða-
bergi kl. 13.
Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 |
Njála í Gullsmára. Samlestur Leshóps
FEBK í Gullsmára á Brennu-
Njálssögu verður alla miðvikudaga kl.
15.45 í félagsmiðstöðinni Gullsmára.
Stjórnandi Arngrímur Ísberg. Allir
eldri borgarar velkomnir. Ferð á Njálu-
slóðir á komandi sumri.
Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 |
Postulínsmálun kl. 13. Njálulestur kl.
15.45.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ | Op-
ið hús í Holtsbúð kl. 13; spilað og tón-
listardagskrá.
Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 9–16.30
vinnustofur opnar. Kl. 10.30 dans. Frá
hádegi spilasalur opinn. Kl. 14.30 kór-
æfing. Menningar- og listahátíð eldri
borgara í Breiðholti, með þátttöku í
Vetrarhátíð í Reykjavík í næstu viku,
nánar kynnt. Allar uppl. á staðnum og
í síma 575 7720. www.gerduberg.is
Furugerði 1, félagsstarf | Í dag kl. 9
bókband og aðstoð við böðun. Kl. 13
létt leikfimi og kl. 14 sagan. Kl. 15
kaffiveitingar.
Hraunbær 105 | Kl. 9 útskurður,
postulínsmálun, kaffi, spjall, dag-
blöðin, fótaaðgerð. Kl. 11 banki. Kl. 12
hádegismatur. Kl. 13 brids. Kl. 15 kaffi.
Hraunsel | Moggi, rabb og kaffi kl. 9.
Línudans kl. 11. Saumar kl. 13. Gler-
skurður kl. 13. Pílukast kl. 13.30. Gafl-
arakórinn kl. 16.15.
Hvassaleiti 56–58 | Opin vinnustofa
hjá Sigrúnu kl. 9–16. Silki- og gler-
málun, kortagerð. Jóga kl. 9–12. Sam-
verustund kl. 10.30. Böðun fyrir há-
degi. Fótaaðgerðir, s. 588 2320.
Hársnyrting, s. 517 3005.
Korpúlfar, Grafarvogi | Keila í Mjódd
á morgun, fimmtudag, kl. 10.
Kvenfélag Kópavogs | Kvöldverður
og félagsfundur miðvikudaginn 15.
febrúar í sal félagsins, Hamraborg 10,
2. hæð, kl. 20. Verð 1.000 kr. Þátttaka
tilkynnist í síma 554 3299 (Svana)
og 554 4382 (Helga).
Norðurbrún 1 | Kl. 9 smíði, kl. 9–16.30
opin vinnustofa, kl. 9 opin fótaað-
gerðastofa, sími 568 3838, kl. 14 fé-
lagsvist, kaffi, verðlaun.
Norðurbrún 1 | Fræðslu- og skemmti-
ferð: Vátryggingafélag Íslands, Olíu-
félagið ehf., Hópbílar hf. og Lögreglan
í Reykjavík bjóða eldri borgum í
fræðslu- og skemmtiferð. Þjóðleik-
húsið verður heimsótt. Farið verður
fimmtudaginn 16. febrúar kl. 14.30.
Skráning í síma 568 6960.
Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla
og fótaaðgerðir. Kl. 9.15–16 mynd-
mennt. Kl. 10–12 sund (Hrafn-
istulaug). Kl. 11.45–12.45 hádeg-
isverður. Kl. 12.15–14 verslunarferð í
Bónus, Holtagörðum. Kl. 13–14 spurt
og spjallað. Kl. 13–16 tréskurður. Kl.
14.30–15.45 kaffiveitingar. Bingó í
dag kl. 12.45. Marengsrjómaterta
með kaffinu. Allir velkomnir.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl.
9, handmennt almenn kl. 9.30–16.30,
morgunstund kl. 10, bókband kl. 10,
verslunarferð í Bónus kl. 12.30.
Kirkjustarf
Akureyrarkirkja | Mömmumorgunn
kl. 9.30–11.30. Allir foreldrar vel-
komnir með börn sín. Kirkjuprakkarar
kl. 15.30. TTT-starf kl. 17. ÆFAK
(yngri deild) kl. 20.
Árbæjarkirkja | Kyrrðarstund í há-
deginu frá kl. 12–12.30. Súpa og
brauðmeti á eftir í safnaðarheimilinu
gegn vægu gjaldi.
Áskirkja | Hreyfing og bæn í neðri
safnaðarsal kl. 11–12. Allir velkomnir.
Opið hús fyrir foreldra með börn sín á
fimmtudagsmorgnum frá kl. 10–12.
Kaffi og meðlæti.
Bessastaðasókn | Dagur kirkjunnar í
Haukshúsum. Foreldramorgnar eru
frá kl. 10–12, Valdís B. Guðjónsdóttir,
talmeinafræðingur, ræðir um mál-
þroska ungra barna. Opið hús eldri
borgara er frá kl. 13–16, Spilað, teflt
og spjallað. KFUM&K-fundur fyrir 9–
12 ára börn frá kl. 17–18.
Breiðholtskirkja | Kyrrðarstund kl.
12. Tónlist, hugvekja, fyrirbænir. Létt-
ur málsverður í safnaðarheimili eftir
stundina. Kirkjuprakkarar 7–9 ára kl.
16. TTT 10–12 ára kl. 17. Æskulýðs-
félag KFUM&K og kirkjunnar kl. 20.
Bústaðakirkja | Starf aldraðra frá kl.
13. Við spilum, föndrum og erum með
handavinnu. Í dag koma til okkar börn
úr Fossvogsskóla og spila með okkur
Spilabingó. Öllum er velkomið að taka
þátt í þessu starfi. Nánari uppl.
www.kirkja.is
Digraneskirkja | Alfa-námskeið kl. 19.
www.digraneskirkja.is
Dómkirkjan | Hádegisbænastundir
alla miðvikudaga frá kl. 12–12.30.
Léttur hádegisverður á kirkjuloftinu á
eftir. Bænarefnum veitt móttaka í
síma 530 9700.
Garðasókn | Foreldramorgnar kl. 10
til 12.30. Fyrirlestur mánaðarlega,
auglýstir sérstaklega. Gott tækifæri
fyrir mömmur og börn að hittast og
kynnast. Allir velkomnir, pabbar og
mömmur, afar og ömmur. Alltaf heitt
á könnuni.
Grafarvogskirkja | Kyrrðarstund í há-
degi kl. 12. Altarisganga og fyrirbænir.
Boðið er upp á léttan hádegisverð á
vægu verði að lokinni stundinni.
Prestar safnaðarins þjóna fyrir altari,
orgelleikari Hörður Bragason. Allir
velkomnir. TTT fyrir börn 10–12 ára á
miðvikudögum í Rimaskóla kl. 17.30–
18.30.
Grensáskirkja | Samvera aldraðra kl.
14–15.30. Kaffi og meðlæti. Skráning
fyrir matinn 22. feb. í dag, einnig
næstu daga í síma 580 0800.
Hafnarfjarðarkirkja | Mömmu-
morgnar kl. 10–12. Mömmur með ung-
börn eru velkomin að eiga samfélag
saman, fyrirlesarar koma reglulega til
að fjalla um málefni tengt uppeldi
barna. Kaffi og meðlæti í boði.
Hallgrímskirkja | Morgunmessa kl. 8.
Íhugun, altarisganga. Einfaldur morg-
unverður í safnaðarsal eftir messuna.
Háteigskirkja | Kyrrðarstund í hádegi
kl. 12.10. Stundin felst í kristinni íhug-
un með hjálp bænabandsins. Stundin
tekur um 20 mín. Að henni lokinni er
boðið upp á léttan hádegisverð.
Háteigskirkja – starf eldri borgara |
Vinafundir sem verið hafa í Háteigs-
kirkju munu hefjast á ný á nýju ári 16.
febrúar nk., síðan 23. febrúar 2., 9.,
16. og 23. mars.
Hjallakirkja | Fjölskyldumorgnar kl.
10–12. Tíu til tólf ára starf er kl. 16.30–
17.30.
Hjálpræðisherinn á Akureyri | Kl. 12
bænastund. Hjálparflokkur kl. 20. All-
ar konur eru hjartanlega velkomnar.
KFUM og KFUK | Fundur í AD KFUM
Holtavegi 28, fimmtudaginn 16. feb.
kl. 20. „Korintubréfin.“ Sr. Gísli Jón-
asson sér um fundarefnið. Kaffi. Allir
karlmenn eru velkomnir.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Há-
degisbænastund frá kl. 12–13. Allir
velkomnir. Fjölskyldusamveran hefst
kl. 18 með léttri máltíð á vægu verði.
Kl. 19 er Biblíulestur fyrir alla fjöl-
skylduna. Jón Þór Eyjólfsson talar til
okkar miðvikud. 15. feb. Skátastarfið
Royal Rangers er fyrir 5–17 ára.
Keflavíkurkirkja | Kyrrðar- og fyr-
irbænastund í kirkjunni kl. 12.10. Sam-
verustund í Kirkjulundi kl. 12.25 –
súpa, salat og brauð á vægu verði –
allir aldurshópar. Opið hús kl. 10–12.
Umsjón er Dís Gylfadóttir og Guðrún
Jensdóttir. Allir foreldrar sem hafa
lausa stund á þessum tíma eru vel-
komnir.
Kristniboðssalurinn | Samkoma í
Kristniboðssalnum Háaleitisbraut
58–60, miðvikudaginn 15. feb. kl. 20.
„Hann kallaði – og sendi.“ Sr. Kjartan
Jónsson talar. Fréttir af kristniboði:
Bjarni Gíslason. Kaffi eftir samkom-
una.
Langholtskirkja | Bænagjörð með
orgelleik og sálmasöng kl. 12.10. Súpa
og brauð kl. 12.30 (300 kr.). Starf
eldri borgara með fjölbreyttri dag-
skrá kl. 13–16. Verið velkomin.
Laugarneskirkja | Kl. 10 mömmu-
morgunn í umsjá Hildar Eirar Bolla-
dóttur. Kl. 10.30 Gönguhópurinn Sól-
armegin. Allt fólk velkomið að slást í
för. Kl. 14.10 Kirkjuprakkarar (1.–4.
bekkur). Kl. 16 TTT (5.–6. bekkur). Kl.
19.30 fermingartími. Kl. 20.30 ung-
lingakvöld.
Neskirkja | Foreldramorgnar kl. 10.
Verndum bernskuna. Heilræði fyrir
foreldra og uppalendur. Fyr-
irbænamessa kl. 12.15. Prestur sr. Sig-
urður Árni Þórðarson. Opið hús kl. 15.
Líf stjórnmálamannsins. Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir, alþingismaður, tal-
ar um lífið og pólitíkina. Kaffiveitingar
á Torginu.
Selfosskirkja | Morguntíð sungin kl.
10. Beðið fyrir sjúkum og bág-
stöddum. Einnig tekið við bæn-
arefnum. Kaffisopi að lokinni athöfn-
inni. Munið foreldramorgunn kl. 11 í
Selfosskirkju. Guðfinna Tryggvadóttir,
íþróttakennari og einkaþjálfari í
Styrk, heimsækir okkur og kynnir
hvað er í boði fyrir konur eftir með-
göngu og fæðingu. Allar verðandi og
núverandi mæður sérstaklega vel-
komnar.
Skráning viðburðar í Staður og stund er á
heimasíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is/sos
Skráning viðburða
HAFI Myrkir músíkdagar einhvern
tímann verið myrkir þá var það í
fyrsta verkinu á tónleikum Caput-
hópsins í Ými á laugardagskvöldið.
Verkið nefndist Hviða og var eftir
Davíð B. Franzson. Hviða sam-
anstóð af allskonar braki og
skruðningum, og kannski hefði
Kveisa verið nákvæmari titill því
óyndisleg búkhljóð voru greinanleg
af og til. Að minnsta kosti gat ég
ekki betur heyrt.
Ég sá fyrir mér íbúð um nótt þar
sem húsráðendur eru sofandi eftir
stórkostlegan veislumat, og einn
þeirra þjáist af kæfisvefni. Á meðan
leikur köttur lausum hala og er að
gæða sér á leifunum. Vissulega ekki
áhugavert, en þannig hljómaði tón-
listin. Ef tónlist skyldi kalla.
Kannski hefði verkið orðið meira
spennandi ef Davíð hefði byggt það
upp á hnitmiðaðri hátt, skapað
markvissari framvindu með skýrt
afmörkuðum endi. Í þeirri mynd
sem það var flutt á tónleikunum var
það hvorki fugl né fiskur.
Play and Destroy eftir Atla Ing-
ólfsson var sömuleiðis ákaflega tor-
skilið, aðallega vegna þess hve tón-
listin hafði litla skírskotun til
þeirrar fagurfræði sem ég held að
flest tónskáld hafi meðvitað eða
ómeðvitað í huga þegar þau semja
tónlist. En einhvers staðar las ég að
fagurfræði nútímans gangi ekki
lengur út á spurninguna um hvað sé
fagurt, heldur hvað sé áhugavert og
skipti okkur máli. Svo gott og vel:
Hvað var áhugavert í verki Atla?
Jú, tónlistin var haganlega gerð
og það var alltaf eitthvað að gerast í
henni. Andstæðum flötum var raðað
saman á sannfærandi hátt og hvergi
var neinu ofaukið. Í sjálfu sér hefði
hún staðið ágætlega fyrir sínu, en
því miður var fyrsti hluti hennar
helgaður illa teknu og skelfilega
klipptu myndbandi af náunga sem
rífur í sundur pappakassaengil og
dró út úr honum allskonar rusl. Það
var svo klaufalega unnið að mig
langaði mest til að halda fyrir aug-
un.
Samt virtist boðskapurinn skýr:
Trúarbrögðin hafa aðallega fært
ógæfu yfir mannkynið og mál er að
linni. Í sjálfu sér er það virðing-
arverð skoðun, en framsetning
hennar hefði mátt vera vandaðri.
Og hver var tengingin við tónlist-
ina? Annaðhvort hefði myndbandið
þurft að vera lengra eða tónlistin
styttri; hún hélt áfram löngu eftir
að myndbandinu lauk, og það kom
kjánalega út. Það var eins og að
hlusta á kvikmyndatónlist í heilan
klukkutíma á eftir að sjálf bíómynd-
in er búin. Ég hvet Atla til að
sleppa myndbandinu næst þegar
verkið er flutt.
Auk þess mætti hann huga nánar
að rafhljóðunum í tónsmíð sinni, en
þau voru of sterk á tónleikunum og
runnu ekki nægilega vel saman við
hljóðfæraleikinn. Í stað þess bjög-
uðu þau bara heildarmyndina.
Annað á dagskránni var
skemmtilegra; Vögguvísa fyrir
hörpu og slagverk eftir Daníel
Bjarnason samanstóð af heillandi
blæbrigðum sem voru haganlega
útfærð á tónleikunum, og ágætlega
unnin tónsmíð eftir Arnar Bjarna-
son, La Citta Invisibili, var sungin
af glæsilegum tilþrifum af Ásgerði
Júníusdóttur. Vetrarkvíði eftir
Hauk Tómasson var jafnframt
meistaralega ort skáldverk í tónum
sem unaður var að hlusta á.
Ég verð samt að segja að skipu-
lagsleysið á tónleikunum var vand-
ræðalegt, en tónleikaskráin, sem
var sú sama fyrir alla hátíðina, var
full af ónákvæmni, ef ekki hreinum
villum. Verkin voru flutt í annarri
röð en stóð í skránni, eitt þeirra var
ekki leikið en annað spilað í staðinn
og aðeins var að finna upplýsingar
um sum þeirra. Hverjum það er að
kenna skiptir ekki máli hér. En fyr-
ir Caputhópinn, sem hefur hlotið
verðskuldaðan virðingarsess í
menningarlífi þjóðarinnar, er svona
klúður varla sæmandi. Ekki heldur
fyrir Myrka músíkdaga í heild
sinni.
Óreiðukenndir tónleikar
TÓNLIST
Ýmir
Caput-hópurinn flutti tónsmíðar eftir Dav-
íð B. Franzson, Atla Ingólfsson, Hauk
Tómasson, Arnar Bjarnason og Daníel
Bjarnason. Laugardagur 11. febrúar.
Myrkir músíkdagar:
Kammer- og söngtónleikar
Jónas Sen