Morgunblaðið - 15.02.2006, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 15.02.2006, Qupperneq 24
24 MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. R efsing fyrir að hafa kynferðismök við börn verður sú sama og fyrir nauðgun, og upphafi fyrningar seinkar, verði frumvarp sem Björn Bjarnason dómsmálaráðherra kynnti á fundi ríkisstjórnarinnar í gær að lögum. Einnig verður hug- takið nauðgun endurskilgreint og víkkað. Síðan kynferðisbrotakafli hegn- ingarlaganna var endurskoðaður árið 1992 hefur vitneskjan um kyn- ferðisbrot, einkenni þeirra og af- leiðingar aukist gífurlega, segir Ragnheiður Bragadóttir, prófessor við lagadeild Háskóla Íslands, sem samdi frumvarpið að beiðni dóms- málaráðherra. „Umræðan í þjóðfélaginu er orð- in mun opinskárri, við vitum miklu meira um hversu algeng þessi brot eru, og hversu skaðleg þau eru,“ segir Ragnheiður. „Markmiðið hjá mér er að gera þessi ákvæði nú- tímalegri, og tryggja það að þol- endur brotanna, sem oftast nær eru konur og börn, fái meiri rétt- arvernd.“ Samkvæmt frumvarpinu verður refsing fyrir samræði og önnur kynferðismök við barn yngra en 14 ára þyngd, og verður sú sama og refsingin fyrir nauðgun, eða fang- elsi frá einu ári og allt að sextán ár. Með því er lögð áhersla á alvar- leika slíkra brota, en verði frum- varpið að lögum teljast nauðgun og kynmök við börn yngri en 14 ára alvarlegustu kynferðisbrotin, í stað nauðgunar einnar áður. Nauðgun og kynferðisbrot gegn barni alvarlegust Ragnheiður bendir á að í dag sé refsing í slíkum málum allt að 12 ára fangelsi, samanborið við að lágmarki eins árs fangelsi og allt að sextán ára fangelsi fyrir nauðg- un. „Það þýðir, eins og ákvæðin eru í dag, að nauðgun er alvarleg- asta kynferðisbrotið, en ég tel að kynferðisbrot gegn barni sé ekki síður alvarlegt. Þessi breyting ger- ir það að verkum að þessi brot, nauðgun og kynferðisbrot gegn börnum, teljast bæði alvarlegustu kynferðisbrotin.“ Fyrningarfrestur kynferðis- brota mun samkvæmt frumvarp- inu miðast við 18 ára aldur þess sem fyrir brotinu verður, en í dag er mið- að við 14 ára aldur. Einnig verður há- marksrefsing fyrir kynferðis- lega áreitni gegn börnum hækkuð, sem gerir það að verkum að brotin munu fyrnast á lengri tíma en samkvæmt núgildandi lög- um. „Það hefur verið mikil umræða í þjóðfélaginu undanfarin misseri um að kynferðisbrot gegn börnum eigi að vera ófyrnanleg. Þetta er eitthvað sem ég er ekki fylgjandi, og koma fram ýmis rök fyrir því í greinargerð með frumvarpinu. Kynferðisbrotakaflinn er hluti af hegningarlögunum, og það eru ákveðnar fyrningarreglur sem gilda um brot gegn hegningarlög- unum, og það er regla að þau brot ein fyrnast ekki sem liggur við ævilangt fangelsi. Einnig hefur það verið stefnan undanfarin ár að fækka þeim brotum sem ekki fyrn- ast, með því að afnema ævilangt fangelsi sem hámarksrefsingu,“ segir Ragnheiður. Brot fyrnist við 28 ára aldur fórnarlambs Sem dæmi um áhrif fyrningar má taka mál sem snýst um kyn- ferðislega áreitni gegn barni yngra en 16 ára, t.d. þukli eða k byrjar slíkt brot að fyrna ára aldur, og fyrnist að f fimm ár, við 19 ára ald arlambsins. Verði frumv lögum mun fyrning fyr brot hefjast við 18 ára a fyrnast að 10 árum liðnu viðkomandi er 28 ára gam Frumvarp dómsmálaráðherra um breytingu á lög Ragnheiður Bragadóttir Nauðgun og kynfe börnum verði ja Eftir Brján Jónasson og Elvu Björk Sverrisdóttur BIÐLISTAR, VAL OG VALD ÍMorgunblaðinu í gær er sagt frástöðu mála á Landspítala – há-skólasjúkrahúsi og vitnað í „stjórnunarupplýsingar“ sjúkra- hússins fyrir síðasta ár. Þar kemur m.a. fram að stjórnendum gengur betur að ná tökum á rekstrinum; hallarekstur er minni en oft áður og þokast í átt að ýmsum markmiðum um bættan rekstur. Í samtali við blaðið segir Anna Lilja Gunnars- dóttir, framkvæmdastjóri hjá spít- alanum, að m.a. hafi tekizt að stytta ýmsa biðlista. Það er auðvitað já- kvæður árangur. Engu að síður þurfa margir enn að bíða mánuðum saman eftir að fá bót meina sinna, með tilheyrandi þjáningum, vinnu- tapi og kostnaði. Þegar rýnt er í tölurnar frá LSH kemur eftirfarandi í ljós: Samtals bíða 2.167 manns eftir skurðaðgerð á spítalanum. Það er reyndar um 16% færra en í fyrra, en engu að síð- ur ákaflega há tala. Þannig bíða 816 eftir skurðaðgerð á augasteini. Eftir aðgerð vegna vél- indabakflæðis og þindarslits bíða 39 manns. Eftir gerviliðaaðgerð á hné bíða 123 og eftir samsvarandi að- gerð á mjöðm 116. Sá biðlisti hefur lengzt. Eftir hjartaþræðingu bíða 163 og átta eftir kransæðavíkkun. Þegar horft er á biðlistana hlýtur fólk að spyrja: Í hvaða atvinnugrein annarri en heilbrigðisþjónustu myndu viðskiptavinirnir sætta sig við aðra eins biðlista og annan eins biðtíma? Ef símafyrirtæki byði fólki upp á það að bíða í þrjá mánuði eftir síma og hálft ár eftir sóni, færu við- skiptavinirnir fljótt til keppinautar- ins. Ferskfiskútflytjandinn, sem fengi þau svör hjá skipafélagi að hann væri númer 163 á biðlistanum eftir kæligámi og mætti búast við einum slíkum eftir níu mánuði, myndi líka snarlega snúa sér annað. Viðskiptavinir LSH eiga hins veg- ar ekki marga kosti. Í fæstum til- vikum geta þeir snúið sér nokkurt annað eftir þjónustu til að stytta biðtímann. Og er þó hér um líf og limi fólks að tefla, í bókstaflegri merkingu. Það er löngu orðið tímabært að heilbrigðiskerfið sjálft fari í ræki- legan uppskurð. Við þá aðgerð getur verið hollt að horfa t.d. til Bretlands, þar sem ríkisstjórn Tonys Blair hef- ur leitazt við að efla samkeppni og valfrelsi í heilbrigðiskerfinu til að stytta biðlista. Fyrir kosningarnar síðastliðið vor lofaði flokkurinn því að sjúklingar þyrftu ekki að bíða lengur en 18 vikur frá því að heim- ilislæknir skrifaði upp á að þeir þyrftu á henni að halda. Markmiðið er að sjúklingar eigi val um það frá og með árinu 2008 á hvaða heilbrigð- isstofnun aðgerðin er framkvæmd. Sjúklingar munu þannig eiga val, bæði innan ríkisreknu heilbrigðis- þjónustunnar og um einkarekið sjúkrahús eða læknastofu. Brezka stjórnin leggur þannig áherzlu á „val, ekki bið“. Í Reykja- víkurbréfi Morgunblaðsins 15. maí síðastliðinn var vitnað til orða Juli- ans le Grand, eins af ráðgjöfum Ton- ys Blair, sem hann lét falla í viðtali við The Guardian: „Ef fólk þarf að bíða, er valdið hjá þeim, sem það bíður eftir. Ef maður þarf ekki að bíða, liggur valdið hjá manni sjálf- um. Heila málið með biðlistana er að þeir snúast um vald, valdaójafn- vægi.“ Það er kominn tími til að þessi hugsun komist að í íslenzkum heil- brigðismálum. Að hluta til snýst bið- listavandinn auðvitað um peninga. En hann snýst líka um fráleitt fyr- irkomulag einokunar á heilbrigðis- þjónustu. Það er hægt að nýta pen- inga skattgreiðenda miklu betur og gefa hátæknisjúkrahúsi á borð við LSH hvata til að standa sig enn bet- ur með því að koma á samkeppni og valfrelsi í heilbrigðisþjónustunni. VÖRUGJÖLD OG MATVÆLAVERÐ Vörugjöld voru meðal þess, semvar rætt í umræðum utan dag- skrár á Alþingi á mánudag. Þar sagði Halldór Ásgrímsson forsætis- ráðherra að enginn vafi léki á því að há vörugjöld skekktu samkeppnis- stöðu atvinnugreina hér á landi og bætti við: „Þess vegna tel ég að það sé mjög mikilvægt að gera breyting- ar á vörugjöldum.“ Fyrir áramót birti Samkeppnis- stofnun skýrslu um matvöruverð á Íslandi þar sem kom fram að það væri 42% hærra hér en í verslunum í löndum Evrópusambandsins. Talið er að vörugjald nemi að jafnaði tveimur af hundraði af vöruverði. Það er lagt á hvers kyns matvöru, allt frá kaffi til rjómaíss, en einnig bíla og raftæki, svo eitthvað sé nefnt. Vörugjald getur verið mjög mishátt, eða allt frá átta til 400 krónum á kíló eða lítra þannig að í sumum tilfellum hefur það mun af- drifaríkari áhrif á vöruverð en öðr- um. Eins og Ásta Möller, þingmaður Sjálfstæðisflokks, sagði í umræðun- um á þingi er ekki eingöngu hægt að skella skuldinni af háu matvæla- verði á Íslandi á innflutningsgjöld eða fákeppni eingöngu vegna þess að í raun er enginn undanþeginn, hvorki landbúnaðarkerfið, kaup- menn, birgjar né stjórnvöld þegar leitað er skýringa og lausna. Það er hins vegar alveg ljóst að allar að- gerðir, sem gripið er til til þess að lækka vöruverð, eru fagnaðarefni. Þar getur ríkisvaldið lagt sitt af mörkum með mjög afgerandi hætti. Nú hefur enn ein nefndin verið skipuð til þess að fara yfir þessi mál. Halldór Ásgrímsson sagði að henni væri ætlað að skila tillögum í sumar og væri ætlunin að leggja fram frumvarp um lagabreytingar í haust. Lægra matarverð myndi bæta lífskjör á Íslandi verulega. Í þeim efnum dugar ekki aðeins að skoða vörugjöld, heldur þarf einnig að taka á tollum og virðisaukaskatti. Vörugjöldin eru hins vegar eitt af sjúkdómseinkennunum, úrelt fyrir- bæri, ef þau voru þá nokkru sinni tímabær. Það er ýmsu að fagna í frumvarpinu, enannað sem gengur ekki jafnlangt ogvið hefðum viljað, líkt og vænta mátti,“ segir Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta, um helstu atriði frumvarps dóms- málaráðherra vegna kynferðisbrota. „Í ákvæðunum um nauðgun fögnum við því að búið er að taka út ákvæði um misneytingu. Skilgreining á nauðgun er víkkuð og það er komin inn lágmarksrefsing og þynging refs- inga í þeim flokki, en allt þetta er mjög til bóta,“ segir Guðrún. Hún segir Stígamót einnig ánægð með að fyrningarfrestur hafi lengst með hækkuðu refsihámarki í kynferð- isbrotamálum gegn börnum. „Við höfum hins vegar áður mælt með því að gróf kynferð- isbrot gagnvart börnum fyrnist ekki, svo þarna hefðum við viljað ganga lengra,“ segir hún. Þá séu Stígamót ánægð með það sem fram kemur í frumvarpinu um kynferðislega áreitni. „Þegar kemur að tillögum um með- ferð vændismála hefur orðið sú réttarbót [miðað við frumvarpið] að búið er að kasta út því úrelta ákvæði að konur í vændi séu sekar að lögum. Því má fagna, en við hefðum viljað að ábyrgðin yrði sett þar sem okkur finnst hún eiga heima og það er hjá þeim sem kaupa vændi,“ segir Guðrún. „Það hefur rík- isstjórnin ekki treyst sér til að gera og við urðum fyrir miklum vonbrigðum með það,“ bætir hún við. Kvennahreyfingin, alþing- iskonur, utan þeirra sem starfa fyrir Sjálf- stæðisflokk, og ýmsir karlar hafa beitt sér í þessu máli. Almennt segir Guðrún Stígamót fagna því að mikil vinna fari nú fram á vegum rík- isstjórnarinnar í kynferðis- og ofbeldisbrota- málum. Meðal annars sé að vænta fram- kvæmdaáætlunar gegn kynbundnu ofbeldi. „Annað sem skiptir miklu máli og við sökn- um og lýsum eftir er afstaða stjórnmálaflokk- anna í bæjar- og sveitarstjórnarkosning- unum til kynferðisbrotamála,“ segir Guðrún. Stígamót vilji að þessi mál séu á dagskrá sveitarfélaganna líkt og önnur mikilvæg sam- félagsmál. Guðrún Jónsdóttir Ýmsu að fagna en annað gengur ekki nógu langt Á ráð fyr herra v arfrest börnum „Ég gegn b vera óf hann h varp þ sér aðs upplýs þangað tugu. Gagnr skuli Þá g farin e samkv vændi „Það sent út Ágú Vo fre NÝTT frumvarp vegna ferðisbrota er kynnt á dómsmálaráðuneytisins áhugasamir hvattir til segja álit sitt á efni þes en það verður lagt fram þingi. Jafnframt mun R heiður Bragadóttir pró sem samdi frumvarpið, efni þess á málstofu í la Háskóla Íslands 3. mar Ragnheiður segir þa eðlilegt að fara þá leið öllum sem vilja kost á þ koma að athugasemdum en frumvarpið verður l fram á Alþingi. „Margt þessu eru atriði sem he ið mikil umræða um í þ félaginu, og margir ha anir á. Það er mikilvæg svona löggjöf sé í samr réttarvitund fólks.“ Almennin til að seg

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.