Morgunblaðið - 01.04.2006, Síða 51
Saab
KLASSI,
ÖRYGGI,
STÍLL!
Saab 9-3 er margverðlaunuð nýjung þar sem öryggi og mýkt í akstri er í fyrirrúmi.
Stórkostleg hönnun, öflug vél, frábærir hemlar og ríkulegur staðalbúnaður gera
Saab 9-3 að byltingu í klassíska geiranum.
Saab 9-3
Örugg athygli!
Sævarhöfða 2 Sími 525 8000 www.ih.is Opið: Mánudaga – föstudaga kl. 9.00 - 18.00 og laugardaga kl. 12.00 - 16.00
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
0
7
9
5
Selfossi
482 3100
Umboðsmenn
um land allt
Njarðvík
421 8808
Akranesi
431 1376
Höfn í Hornafirði
478 1990
Reyðarfirði
474 1453
Akureyri
461 2960
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2006 51
UMRÆÐAN
A
ll
ta
f
ó
d
ýr
ir
Extra sterkt
GÓÐ HEILSA
GULLI BETRI
Lið-a-mót
FRÁ
www.nowfoods.is
APÓTEK OG HEILSUBÚÐIR
BRÝNUSTU verkefnin í sam-
göngumálum í Reykjavík hafa lengi
verið lagning Sundabrautar og mis-
læg gatnamót Kringlumýrarbrautar
og Miklubrautar. Því miður hefur
jafnlengi verið ljóst að borgaryfirvöld
virðast hvorki hafa vilja né getu til að
takast á við þessi mikilvægu verkefni.
Þannig hefur það tekið R-listann
mörg ár að nálgast einhverja nið-
urstöðu um legu Sundabrautar, sem
auðvitað hefur komið í veg fyrir frek-
ari undirbúning og framkvæmdir.
Það sama er að segja um mislæg
gatnamót við Kringlumýrarbraut og
Miklubraut, sem enn eru í biðstöðu
vegna aðgerðaleysis borgaryfirvalda.
Ef marka má nýlegar yfirlýsingar
formanns skipulagsráðs Reykjavíkur
er sannarlega ekki að vænta breyt-
inga á þeirri stefnu R-listans að taka
illa, seint og hugsanlega aldrei nauð-
synlegar ákvarðanir í samgöngu-
málum í borginni. Öðru nær, oddviti
Samfylkingarinnar virðist gera flest
sem í hans valdi stendur til að skapa
enn meira óöryggi í kringum bráð-
nauðsynlegar samgöngubætur í
borginni.
Tveggja akreina Sundabraut
Fyrir nokkrum dögum kynnti Dag-
ur B. Eggertsson þá hugmynd að
leggja Sundabraut með tveimur ak-
reinum í stað fjögurra. Eins og við
var að búast hefur þessi yfirlýsing
valdið undrun og áhyggjum, bæði
vegna þess að hún er ekki í neinu
samræmi við þá umferð sem áætluð
er um þetta umferðarmannvirki eða í
nokkru samræmi við þær kröfur sem
gerðar eru um öryggi slíkra mann-
virkja.
Miðað við það hlutverk sem Sunda-
brautinni er ætlað í samgöngukerfi
borgarinnar er þessi hugmynd for-
manns skipulagsráðs að sjálfsögðu al-
gjörlega fráleit. Sundabrautin getur
einfaldlega aldrei orðið tveggja ak-
reina „hefðbundin borgargata“ líkt
og Dagur talar um, eigi hún að nýtast
borgarbúum og landsmönnum öllum
og þess vegna er hugmyndin varla til
þess fallin að færa okkur fram á veg í
þessu mikilvæga máli. Miklu frekar
skapar hún óöryggi um grundvall-
arþætti sem flestir töldu að væru
löngu frágengnir og gæti þannig jafn-
vel tafið málið enn frekar, líkt og
endalaus umræða en engar ákvarð-
anir um legu brautarinnar hafa gert.
Mislæg gatnamót
Önnur mikilvæg ákvörðun, sem
formaður skipulagsráðs hefur á und-
anförnum dögum sett í hálfgert upp-
nám, lýtur að gatnamótum Kringlu-
mýrarbrautar og Miklubrautar. Allir
sem reglulega fara þarna
um þekkja nauðsyn þess
að gripið verði til var-
anlegra úrbóta og undir
það taka flestir sérfræð-
ingar. Í áfangaskýrslu
vinnuhóps Vegagerð-
arinnar og Reykjavík-
urborgar kom t.d. fram
að mislæg gatnamót
þarna myndu stytta tafa-
tíma um allt að 70% og
fækka umferðar-
óhöppum um u.þ.b. 80%.
En þvert á þessar upp-
lýsingar, og þrátt fyrir
fjárveitingar og vilja ríkisins, hefur
R-listinn ekki kosið að ganga til þess-
ara brýnu fram-
kvæmda. Það var
reyndar eitt af fyrstu
verkum núverandi
meirihluta að taka
þessi gatnamót út af
aðalskipulagi árið
1996, en þegar þau
voru sett aftur inn á
núgildandi skipulag
fyrir nokkru vöknuðu
vonir um að hugsan-
lega væri einhverra
breytinga að vænta. Á
fundi borgarstjórnar í
síðustu viku kom hins
vegar skýrt fram að það er ekki for-
gangsatriði R-listans að ráðast í
þessa framkvæmd, enda sagði for-
maður skipulagsráðs slík gatnamót
ákveðna „ógn“ og jafnvel „mjög mikil
mistök“.
Það verður að gera betur
Athuganir á viðhorfum Reykvík-
inga sýna að þeir telja úrbætur í sam-
göngumálum eitt brýnasta verkefni
borgaryfirvalda. Í alltof langan tíma
hafa mikilvæg verkefni í samgöngu-
málum hins vegar verið látin sitja á
hakanum af þessum sömu borgaryf-
irvöldum, ekki síst vegna skorts á
ákvörðunum og aðgerðum. Þessu
verður að breyta og það verður ekki
gert með því að líta framhjá stað-
reyndum eða leiða umræðuna stöð-
ugt í nýjar ógöngur. Það verður
miklu frekar gert með því að horfast í
augu við veruleikann og viðurkenna
t.d. að Sundabraut verður að leggja
sem fjögurra akreina öfluga umferð-
aræð og mislæg gatnamót Kringlu-
mýrarbrautar og Miklubrautar eru
forgangsverkefni til að tryggja
öruggari og greiðari umferð. Þannig
vinnum við raunverulega að hags-
munum þeirra sem í borginni búa.
Hanna Birna Kristjánsdóttir
skrifar um borgarstjórnarmál
’Sundabraut verður aðleggja sem fjögurra ak-
reina öfluga umferðaræð
og mislæg gatnamót
Kringlumýrarbrautar og
Miklubrautar eru for-
gangsverkefni.‘
Hanna Birna
Kristjánsdóttir
Höfundur er borgarfulltrúi.
Af samgöngumálum í Reykjavík