Morgunblaðið - 11.04.2006, Síða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
FRAMÚRSKARANDI
STÆRÐFRÆÐI-
KENNARAR
OFANLEITI 2, 103 REYKJAVÍK • HÖFÐABAKKA 9, 110 REYKJAVÍK
SÍMI: 599 6200 www.ru.is
Umsóknarfrestur til 29. maí.
Getum svarað umsóknum
sem berast fyrr.
www.ru.is
www.math.ru.is
Sérstakt BS-nám í stærðfræði og kennslufræði, sem
veitir rétt til að kenna í grunn- og framhaldsskólum.
Áhugavert nám fyrir verðandi stærðfræðikennara
sem vilja beita nútímalegum og spennandi
kennsluaðferðum.
STÆRÐFRÆÐI ER SKEMMTILEG
F
A
B
R
IK
A
N
2
0
0
6
LANDSFRAMLEIÐSLA kemur
til með að aukast um allt að 1,2%
þegar starfsemi álvers Alcoa-
Fjarðaáls verður
komin í gagnið,
að því er kemur
fram í skýrslu
Hagfræðistofn-
unar Háskóla Ís-
lands um þjóð-
hagsleg áhrif
álverksmiðju á
Reyðarfirði.
Tómas Már
Sigurðsson, for-
stjóri Alcoa-Fjarðaáls, sagði á svo-
kölluðum samlokufundi Verkfræð-
ingafélags Íslands og
Tæknifræðingafélags Íslands í
gær, að um 400 manns muni starfa
við álverið þegar framleiðslan
verður komin í gang.
Með beitingu aðfanga- og af-
urðagreiningar leiðir Hagfræði-
stofnun líkur að því að til verði
1,43 afleidd störf fyrir hvert starf í
álverinu. Samkvæmt þeim útreikn-
ingum mun heildarfjöldi starfa
sem skapast verða um 930.
Minni áhrif
á vinnumarkaðinn
Í máli Tómasar kom einnig fram
að framkvæmdirnar í Reyðarfirði
hafi haft minni áhrif á íslenskan
vinnumarkað en reiknað var með í
upphafi. Sagði hann að í upphafi
hafi verið gert ráð fyrir að 70%
vinnuaflsins við framkvæmdirnar
myndu vera Íslendingar og 30%
erlendir starfsmenn.
„Vinnumarkaðurinn hefur hins
vegar ekki boðið upp á þetta. Mikið
hefur verið um framkvæmdir á
höfuðborgarsvæðinu og af þeim
sökum hefur einfaldlega ekki verið
nægilega mikið af fólki. Þannig að
hlutföllin hafa í raun snúist við;
70% af starfsmönnunum koma er-
lendis frá og langstærsti hlutinn
frá Póllandi. Hins vegar eru Ís-
lendingar aðeins 30% af vinnuafl-
inu og meirihluti þeirra starfar á
vegum undirverktaka við bygg-
inguna. Framkvæmdin hefur því
sett mun minni þrýsting á vinnu-
markaðinn en upphaflega var gert
ráð fyrir,“ sagði Tómas Már.
Hugsanlegt álver
á Húsavík
Tómas fjallaði stuttlega um
hugsanlegt álver á Húsavík. Sagði
hann að samkvæmt hagkvæmnisat-
hugun yrði líklega ráðist í að reisa
250 þúsund tonna álver á Bakka
við Húsavík.
„Miðað við þá stærð myndi ál-
verið skapa um 1.000 störf á land-
inu öllu; um 600 á Húsavíkursvæð-
inu, 250 á Akureyri og um 150
annars staðar. Þetta hefði í för
með sér að íbúum á svæðinu myndi
fjölga um allt að 2.000 manns,“
sagði hann.
Tómas sagði jafnframt að gert
sé ráð fyrir að framkvæmdir hefj-
ist 2010 og starfsemi álversins
hefjist árið 2012. „Þó er ekkert
sem segir að það geti ekki gerst
fyrr,“ sagði hann enn fremur.
Forstjóri Alcoa-Fjarðaáls á fundi með verk- og tæknifræðingum
Landsframleiðsla eykst
um 1,2% með álveri Alcoa
Tómas Már
Sigurðsson
Eftir Kristján Torfa Einarsson
kte@mbl.is
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Pólverjar eru fjölmennir í hópi
starfsmanna sem vinna við upp-
byggingu álversins í Reyðarfirði.
ÞUNGAMIÐJA búsetu á höfuð-
borgarsvæðinu breytti á síðasta ári
algerlega um stefnu og færðist 97
metra í norðaustur. Miðjan, sem
undanfarin ár hefur verið að færast
í suðausturátt, er nú í bakgarði
húss við Goðaland í Fossvogi í
Reykjavík, nánar tiltekið í suðaust-
urhorni lóðarinnar bak við rað-
húsið Goðaland 11–15. Þetta kemur
fram á heimasíðu Reykjavík-
urborgar, en Heiðar Þ. Hall-
grímsson verkfræðingur hefur frá
árinu 2002 brugðið á þann leik að
reikna út þungamiðju búsetu á höf-
uðborgarsvæðinu.
Það eru kortagrunnur Land-
upplýsingakerfis Reykjavíkur
(LUKR) og heimilisfangasafn Sam-
sýnar ehf., sem gera þessa útreikn-
inga Heiðars mögulega, en heim-
ilisfangasafnið hefur að geyma
staðsetningar heimilisfanga allra
íbúa á höfuðborgarsvæðinu í hnit-
um og er hún stöðugt uppfærð með
nýjustu upplýsingum úr Þjóðskrá
og LUKR. Höfuðborgarsvæðið telst
ná yfir öll sveitarfélög frá og með
Kjós til og með Hafnarfjarðar.
Þungamiðjan finnst með því að
taka meðaltal, annars vegar af öll-
um austur-vestur staðsetning-
arhnitum íbúanna og hins vegar öll-
um norður-suður staðsetningar-
hnitum þeirra. Þessi tvö meðaltöl
jafngilda staðsetningarhnitum
þungamiðjunnar eftir búsetu.
Þungamiðja búsetunnar hefur
frá árinu 2002 alla tíð verið í Foss-
vogshverfi og færst í suðaustur og
suður í átt til Kópavogs, en nú
bregður svo við að hún hefur alveg
breytt um stefnu. Á heimasíðu
Reykjavíkur segir að ekki hafi ver-
ið rannsakað hvað veldur þessari
snöggu breytingu en geta megi sér
til um, að þarna séu að verki nokkr-
ir samverkandi kraftar, svo sem
uppbygging Grafarholts, Norð-
lingaholts og Mosfellsbæjar, en
einnig áhrif nýrra þéttingarsvæða í
norðanverðri Reykjavík.
Heiðar segir útreikningana í
sjálfu sér ekki svo flókna þegar allt
liggur í gagnagrunninum. „Þú hef-
ur hnit á hverju einasta heimili á
höfuðborgarsvæðinu og fjölda íbúa
í þeim heimilum og þar með er hver
íbúi með sína staðsetningu í austur-
vestur annars vegar og norður-
suður hins vegar,“ segir Heiðar og
bætir við að síðan sé það nánast
spurning um músarklikk, að taka
meðaltölin af hnitunum.
Þungamiðja búsetunnar
hefur breytt um stefnu
Morgunblaðið/Eyþór
Kolbeinn Theódórsson, Auður Katarína Theódórsdóttir og Ásdís Rúna
Guðmundsdóttir að leik í garðinum við Goðaland í Fossvoginum þar sem
nýjustu útreikningar sýna að sé hin nýja miðja höfuðborgarsvæðisins.
TÆPLEGA 20 þúsund stakir not-
endur heimsóttu bloggvef mbl.is í
síðustu viku samkvæmt mælingum
Samræmdrar vefmælingar. Til að
opna og virkja bloggsíðu þarf við-
komandi að skrá sig og smella á ten-
gil í tölvupósti sem sent er á upp-
gefið netfang.
Í framhaldi býðst notendum einn-
ig ýmis önnur þjónusta s.s. 50MB
rými þar sem hægt er að geyma
myndir, þeir geta breytt útliti á sín-
um bloggsíðum og sett eigin myndir í
haus síðunnar. Þá geta notendur
bloggsíðna ákveðið hverjir hafi að-
gang að síðunni með því að velja þá
úr hópi skráðra notenda.
Einnig geta eigendur bloggsíðna
ákveðið með hvaða hætti athuga-
semdir eru settar inn við þeirra
bloggfærslur. Eins og við er að búast
vakna ýmsar spurningar hjá notend-
um um hvernig framkvæma eigi mis-
munandi aðgerðir. Hægt er að skoða
spurningar sem mest er spurt með
því að smella á tengilinn Spurt &
svarað efst til vinstri á forsíðu blog-
.is. Þá er hægt að fá ýtarlega hjálp-
artexta þegar fólk tengist Stjórn-
borðinu sem er efst á bloggsíðunni
en þaðan eru allar aðgerðir valdar.
Efst á hverri síðu í Stjórnborðinu
er síðan að finna spurningarmerki.
Þegar smellt er á það birtist hjálp-
artexti í spurningaformi yfir allar
þær aðgerðir sem boðið er upp á á
viðkomandi síðu. Til að skrá sig fer
viðkomandi inn á forsíðu vefjarins
www.blog.is og smellir á tengilinn
Skráning efst til vinstri á síðunni eða
slær inn slóðina:
Góð viðbrögð við
bloggvef mbl.is
TENGLAR
..............................................
http://www.mbl.is/mm/blog/
skraning.html
FORSETI skoska þingsins, George
Reid, er nú í í opinberri heimsókn á
Íslandi í boði Sólveigar Pétursdótt-
ur, forseta Alþingis. Í för með
skoska þingforsetanum er sjö
manna sendinefnd.
Í heimsókninni mun George Reid
og sendinefnd hans eiga fundi með
forseta Alþingis og fulltrúum þing-
flokka, utanríkismálanefndar og
fjárlaganefndar. Þá munu þau
heimsækja forseta Íslands á Bessa-
staði. Sendinefndin fundar með
sjávarútvegsráðherra, ferðamála-
stjóra og embættismönnum á sviði
heilbrigðismála. Á morgun fer þing-
forsetinn í þjóðgarðinn á Þingvöll-
um og heldur svo í kynnisferð um
Snæfellsnes. Heimsókninni lýkur á
fimmtudag.
Heimsókn forseta skoska
þingsins til Íslands