Morgunblaðið - 11.04.2006, Page 6

Morgunblaðið - 11.04.2006, Page 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR LANDSVIRKJUN hefur beint því til verktaka á virkjunarsvæðinu við Kárahnjúka og framkvæmdaeftir- lits að fara grannt yfir öryggismál, með það að markmiði að koma í veg fyrir fleiri alvarleg slys og fækka óhöppum svo sem verða má. Í bréfi Landsvirkjunar til þessara aðila er vísað til tveggja banaslysa með skömmu millibili við Kára- hnjúka og sagt að það sé með öllu óviðunandi að fólk láti lífið við virkjunarframkvæmdirnar. Því verði allir sem hlut eiga að máli að taka öryggismálin alvarlega og kappkosta að gera ráðstafanir til að koma í veg fyrir fleiri slys og óhöpp. Jafnframt er tekið fram að ekki sé verið að saka verktaka um lausatök í öryggismálum, heldur sé markmiðið að koma því á framfæri að alltaf megi gera betur varðandi öryggi og vinnuvernd, í samstarfi verktakafyrirtækja, framkvæmda- eftirlits og opinberra stofnana á þessu sviði. Ráðherra sat öryggisfund Sérstakur fundur um öryggismál á virkjunarsvæðinu var haldinn þar í gær. Jón Kristjánsson félags- málaráðherra og Eyjólfur Sæ- mundsson forstjóri Vinnueftirlits ríkisins voru á fundinum ásamt framkvæmda- og öryggiseftirliti við virkjunarframkvæmdina, fulltrúum verktaka og yfirtrúnað- armanni verkalýðsfélaganna. Alþýðusamband Íslands, Rafiðn- aðarsamband Íslands, Samiðn og Starfsgreinasamband Íslands hafa krafist samantektar á orsökum meintrar fjölgunar slysa og veik- inda starfsmanna við byggingu virkjunarinnar undanfarna mánuði auk tillagna um úrbætur, komi í ljós að núverandi framkvæmd eft- irlits með öryggismálum sé ekki fullnægjandi. „Það er ljóst að kerfislega eru öryggismál hér í lagi,“ sagði Jón í samtali við Morgunblaðið í gær. „Menn fara yfir hvernig má bæta þau enn frekar, en hér eru mjög erfiðar aðstæður og í mörg horn að líta.“ Um þá staðhæfingu verka- lýðssamtakanna að slys og veikindi séu nú tíðari en áður, hugsanlega vegna vaxandi vinnuhraða, sagði Jón að tölur sýndu að ekki væri heildaraukning á slysum og veik- indum. „Slysum hefur í heildina fækkað en beinbrotsslysum fjölgað. Mér skilst að þetta sé annars svip- að og verið hefur og ekki frábrugð- ið því sem er annars staðar við svipaðar aðstæður.“ Eyjólfur Sæmundsson segir und- irbúningstímann að virkjuninni hafa verið knappan og betri tími hefði gefið meira svigrúm til ná- kvæmari skipulagningar á verkinu. Fjölga í öryggiseftirliti Í bréfi Landsvirkjunar til verk- taka og framkvæmdaeftirlits segir að engar vísbendingar séu um að banaslysin tvö á dögunum megi rekja til ófullnægjandi öryggis- krafna eða öryggiseftirlits. Þvert á móti hafi verktakafyrirtækin sem þar komu við sögu, Arnarfell og Suðurverk, staðið sig afar vel í ör- yggismálum og slysatíðni hjá þeim verið lág. Landsvirkjun þykir engu að síð- ur full ástæða til að ræða hvort fjölga þurfi öryggiseftirlitsmönnum á vegum framkvæmdaeftirlitsins á virkjunarsvæðinu, hvort skylda eigi verktaka til að hafa sérstaka starfsmenn sem sinna öryggismál- um eingöngu eða sérstaklega og hvort skýra þurfi betur hlutverk, verkaskiptingu, valdsvið og ábyrgð þeirra sem fara með öryggismál. Verktakar skoði öryggisþætti við Kárahnjúkavirkjun í hörgul Geri ráðstafanir til að koma í veg fyrir fleiri slys Eftir Steinunni Ásmundsdóttur steinunn@mbl.is Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Kaldranalegur vinnustaður að vetri. Í Kárahnjúkastíflu er nú búið að fylla 7 milljónir af þeim 8 milljónum rúm- metra sem í hana fara og steypa 30 þúsund af 93 þúsund fermetrum vatnskápunnar. FYRIR forgöngu Landlæknisemb- ættisins var í gær kallaður saman hópur fagaðila til þess að ræða ann- ars vegar hvað gera þyrfti til lengri tíma litið til þess að fjölga hjúkr- unarfræðingum og hins vegar hvernig bregðast mætti strax við til þess að mæta skorti á hjúkr- unarfræðingum á Landspítala – há- skólasjúkrahúsi. „Við vorum að reyna að átta okk- ur á því hvernig væri hægt að bregðast við þeim bráðavanda sem ríkir núna,“ segir Elsa B. Friðfinns- dóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (FÍH). Segir hún ljóst að hugsa þurfi málin upp á nýtt og skoða alla verk- ferla. „Við teljum að skoða þurfi verkaskiptingu og verkferla, með það í huga hvaða breytingar og um- bætur hægt sé að gera,“ segir Elsa og bendir á að fram hafi komið að breytingar á einu sviði eða einni deild hafi áhrif á annað. „Eitt af því sem hjúkrunarfræð- ingar hafa kvartað mikið undan er að þegar gerðar eru breytingar eða dregið saman í mannafla á einu sviði þá hafi það þau áhrif að verk- efni sem þar voru unnin færist yfir á hjúkrunarfræðingana á deild- unum,“ segir Elsa og bendir á að hópurinn telji að meta þurfi hvar sé hægt að vinna hlutina af öðrum án þess að það komi niður á gæðum. Segir Elsa liggja fyrir að afla þurfi meiri upplýsinga áður en til- lögurnar verði lagðar fyrir yf- irstjórn LSH og þá aðila sem komi að ákvörðunartöku í málinu. Skoða þarf verkaskiptingu og verkferla ÆRIN Botna sem aðsetur hefur í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í Laugardal varð fyrst áa þar á bæ til að bera þetta árið. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem barst frá garðinum í gær. Vorið hefur því svo sannarlega hafið innreið sína þrátt fyrir atferli veðurguð- anna að undanförnu. Botna bar síðdegis í gær tveim- ur lömbum, hrúti og gimbur. Um konunglegan burð var því að ræða því fyrstu lömbin eru jafnan kölluð lambadrottning og lambakóngur. Burðurinn gekk ágætlega, að því er fram kemur í tilkynning- unni, en ærin þurfti örlitla aðstoð enda um stór og stæðileg lömb að ræða. Fram kemur að hrúturinn er svartbotnóttur að lit og gimbrin svartflekkótt en móðirin Botna er svartbotnótt. Faðirinn er hrút- urinn Höttur sem er svarthöttóttur á lit. Auk lambadrottningarinnar og lambakóngsins eru einnig þrír kiðlingar í fjárhúsinu sem komu í heiminn síðastliðinn laugardag undan huðnunum Sólbjörtu og Hrund. Ærin Botna karar lömbin sín stuttu eftir burð. Sauðburður hafinn í Laugardalnum ÖLDUR Atlantshafsins voru víg- völlur þar sem tugir þúsunda féllu og þúsundir skipa hurfu undir öld- urnar í síðari heimsstyrjöldinni. Nú, rúmri hálfri öld eftir lok stríðsátaka, lagði ljósmyndari frá London í ferð yfir hafið til að mynda þennan sí- breytilega vígvöll. Paddy Sutton vinnur nú að meist- araverkefni sínu í ljósmyndun við St. Martins-listaháskólann í Lond- on, og við val á verkefninu sameinar hann áhuga sinn á hafinu og mann- kynssögunni. Til að mynda óbeislað Atlantshafið fékk hann far með Goðafossi, gámaflutningaskipi Eim- skipa, og sigldi með skipinu frá Ár- ósum í Danmörku til Reykjavíkur. Baráttan um Atlantshafið stóð frá 1939 til 1945, og reyndu Þjóðverjar að nota öflugan kafbátaflota sinn til að einangra Bretland frá Bandaríkj- unum með því að ráðast gegn skipa- lestum sem sigldu milli landanna. „Eftir flestar orrustur er hægt að heimsækja vígvöllinn, og jafnvel sjá einhver ummerki um þau átök sem fóru þar fram. Það er alltaf eitthvað manngert eftir. En eftir baráttuna um Atlantshafið eru engin ummerki. Mér fannst afar áhugavert að taka ljósmyndir þar sem þessi orrusta var háð, þar sem tugir þúsunda sjó- manna fórust, og 3.000 skipum var sökkt,“ segir Sutton. „Allur þessi fjöldi týndi lífinu á þessum stað, en það eru engin um- merki um það, það er ekkert eftir. Þess vegna fannst mér spennandi að mynda hafið þar sem orrusturnar áttu sér stað, til að vekja fólk til um- hugsunar um hvar þessar orrustur voru háðar.“ Sutton segir sérlega áhugavert fyrir sig að sigla með Eimskip, enda sigldi félagið á þessum tíma til Bret- lands, og var tveimur flutn- ingaskipum þess sökkt með tund- urskeytum, þar með talið öðru skipi félagsins sem bar nafnið Goðafoss. Eftir siglinguna með Goðafossi segist Sutton reikna með að setja upp sýningu í St. Martins með 15– 25 myndum, en hann er einnig að ræða við Konunglega stríðs- minjasafnið í London (Imperial War Museum) og Sjóminjasafnið í Greenwich (National Maritime Mus- eum) um að hýsa sýninguna eftir það. Morgunblaðið/Brjánn Jónasson Engin ummerki sjást um baráttuna um Atlantshafið, segir Paddy Sutton. Myndar síbreytilegan vígvöll Atlantshafsins LÖGREGLAN í Borgarnesi hefur upplýst hassplöntumálið á Mýrum sem kom upp um helgina. Einn var handtekinn og gekkst hann við ræktuninni, en hald var lagt á 228 kannabisplöntur við leit á laug- ardagskvöld. Hinn handtekni viðurkenndi þó ekki dreifingu fíkniefna. Fleiri hafa ekki verið handteknir vegna máls- ins að sögn lögreglu. Hassplöntumálið upplýst

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.