Morgunblaðið - 11.04.2006, Blaðsíða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
NET-lengjan, veð-mál 1x2, spilavítiog póker. Allt
þetta á spilavefnum Bets-
son.com sem nú er kominn
á íslensku. Umtalsverðar
fjárhæðir og sú staðreynd
að fólk skuli hætta þeim í
von um vinning er ekki
ágreiningsefni í þessu
sambandi, heldur að vefur-
inn skuli auglýstur í ís-
lenskum fjölmiðlum. Er
verið að auglýsa happ-
drætti eða vefsíðu, þar er
ágreiningurinn. Auglýs-
ingarnar hafa verið kærðar til
dómsmálaráðuneytisins sem vísaði
málinu til Lögreglustjórans í
Reykjavík þar sem það er nú til
rannsóknar.
Betsson hefur leyfi til veðmála-
starfsemi, að því er segir á heima-
síðu fyrirtækisins, en þar segir líka
að leyfið hafi verið gefið út af Mag-
istrates-réttinum í London sem
heyrir undir bresku ríkisstjórnina.
Allt að árs fangelsi fyrir
brot á happdrættislögunum
Skv. íslenskum lögum um happ-
drætti varðar það sektum eða
fangelsi allt að sex mánuðum að
auglýsa happdrætti sem ekki hef-
ur verið veitt leyfi fyrir. Og þar
brýtur á Betsson að mati lögregl-
unnar sem segir það koma til
greina að kæra forsvarsmenn fyr-
irtækisins. Ef brotastarfsemin er
umfangsmikil eða ítrekuð getur
hún varðað fangelsi allt að einu ári.
Auglýsingarnar frá Betsson
hafa verið birtar í talsverðum mæli
á íþróttasjónvarpsrásinni Sýn.
Gunnar Ingi Hannesson sölustjóri
fyrirtækisins segir málið vissulega
viðkvæmt en samt sem áður hafi
þeim ekki verið bannað af lögreglu
að birta auglýsingarnar og þess
vegna verði ekki breytt um stefnu
gagnvart auglýsandanum. En aug-
lýsingum verði strax kippt í burtu,
berist skipun um það frá lögreglu
og þar við situr. Hann segir Sýn
ekki munu fara í ritskoðun og
ákveða skyndilega að hætta að
sinna skyldum sínum við auglýs-
andann að öllu óbreyttu.
Fjölmiðlaumræða um þetta til-
tekna mál hefur haft einhver áhrif
á framvindu þess innan Sýnar en
samt engin úrslitaáhrif eins og
ljóst má vera. En hvað þá um það
hvort Sýn bíði hreinlega eftir nið-
urstöðu úr rannsókn lögreglunnar
á lögmæti þess að birta svona aug-
lýsingar? Því svarar Gunnar Ingi
bæði játandi og neitandi. Ennþá sé
verið að ræða það innandyra og
varpa öllum hliðum þess upp.
Komi fyrirskipun frá lögreglu um
að hætta birtingum verði það gert
samstundis. „Okkur hefur ekkert
bréf borist um slíkt,“ bendir hann
á.
Farið hafa fram umræður milli
Sýnar og auglýsandans um að mál-
ið sé orðið býsna viðkvæmt og
spurt hefur verið hvort Sýn hygg-
ist halda áfram að birta auglýsing-
arnar. Svarið er já – í bili að
minnsta kosti.
Og hvað gerði lögreglan í mál-
inu? Talað var við fjölmiðla sem
birtu auglýsingar Betssons og að
svo komnu máli hafa visir.is og
Fréttablaðið afturkallað birtingar.
En Sýn heldur áfram og virðist
bíða eftir orði lögreglunnar.
Sigurður G. Guðjónsson for-
svarsmaður Betssons á Íslandi
fullyrðir að engin íslensk lög banni
auglýsingar á vefsíðum. Betsson
sé vörumerki og hvergi í auglýs-
ingunum sé vikið að happdrætti. Í
þessu sambandi þurfi menn einnig
að velta því fyrir sér hvort íslensku
happdrættislögin standist reglur
ESB og þar með EES um þjóð-
frelsi. „Ég get ekki séð að íslensk
stjórnvöld geti bannað einum eða
neinum að auglýsa vefsíðu sína
sem stundar löglega starfsemi í
Evrópu. Það er ekki verið að aug-
lýsa happdrætti,“ segir hann.
Finna mætti fleiri vefi með fjár-
hættuspilum á netinu. Nægir að
nefna Bet365 sem til er á mörgum
tungumálum.
Íþróttamenn að
spila frá sér vitið?
En hvað með íþróttamenn?
Skyldu það vera þeir sem eru að
spila frá sér allt vit? Um helgina
bárust fréttir af 90 milljóna króna
spilaskuld eins leikmanns Man.
Utd. í ensku úrvalsdeildinni.
Knattspyrnufélagið sjálft hefur
mótmælt þessum fréttum en það
breytir því ekki að fólk leiðir hug-
ann að því hvernig málum er hátt-
að.
Geir Þorsteinsson fram-
kvæmdastjóri KSÍ kannast reynd-
ar við að íslenskir atvinnu knatt-
spyrnumenn hjá erlendum liðum
hafi verið í fjárhættuspilum og
spilavítum. „Það er ekkert nýtt í
knattspyrnuheiminum að leik-
mönnum finnst gaman að taka þátt
í veðmálum og fjárhættuspilum,“
segir hann og á þar við leikmenn
erlendis. „Þeir hafa sótt spilavíti
en hérna heima hef ég ekki orðið
var við það.“
Þetta er ekki mál sem KSÍ hefur
rætt formlega innan sinna vé-
banda og Geir segir þennan fjár-
hættuspilaheim sér ókunnugan.
„En þessar tekjur sem atvinnu-
leikmenn eru með eru gríðarlegar
og ekki í neinu samræmi við það
sem gerist hér á íslenskum mark-
aði. Þessir piltar hafa nóg fé milli
handanna.“
Fréttaskýring | Um hvað snýst efinn
varðandi auglýsingar betsson.com?
Happdrætti
eða vefsíða?
Nauðsynlegt að velta fyrir sér hvort ís-
lensk happdrættislög standist reglur ESB
Póker eða önnur spil. Allt til á netinu.
Kipptu burtu auglýsingum
eftir tiltal lögreglunnar
NET-lengjan, veðmál 1x2,
spilavíti og póker. Allt þetta á
spilavefnum Betsson.com sem nú
er til á íslensku. Er verið að aug-
lýsa happdrætti eða vefsíðu, þar
er ágreiningurinn. Sumir fjöl-
miðlar hafa kippt burtu auglýs-
ingum sínum eftir tiltal lögregl-
unnar í Reykjavík. Þær eru samt
ennþá sýndar m.a. á íþróttasjón-
varpsstöðinni Sýn. Og verða
áfram. Um sinn að minnsta kosti
segja Sýnar-menn.
Eftir Örlyg Stein
Sigurjónsson
orsi@mbl.is
Þetta á ekki síður við bankapúddur, það er komið upp mjög hættulegt afbrigði sem nefnist
Den Danskebanka-flensa.
HAFÍS á Grænlandssundi er yfir
meðallagi í útbreiðslu um þessar
mundir samkvæmt upplýsingum frá
Þór Jakobssyni veðurfræðingi. Má
rekja óvenju mikinn ís til óhag-
stæðra vinda að undanförnu en hins
vegar er búist við norðanátt næstu
daga sem halda mun ísnum frá landi
enn um sinn.
Þór segir ísinn vera afar þéttan við
jaðarinn en næst landi er hann 22
sjómílur NV af Straumnesi og 39 sjó-
mílur VNV af Barða. Allar siglinga-
leiðir eru opnar enn sem komið er en
Veðurstofa Íslands mun fylgjast
grannt með breytingum og taka við
upplýsingum frá skipum og Land-
helgisgæslunni.
Hafís yfir
meðallagi
Fáðu úrslitin
send í símann þinn
DAGUR Arngrímsson tryggði sér
fyrsta áfanga að alþjóðlegum meist-
aratitli í skák þegar hann gerði jafn-
tefli við ungverska alþjóðlega meist-
arann Miklos Kaposztas í 9. umferð
AM-flokks First Saturdays-mótsins í
Búdapest á Ungverjalandi. Dagur
hefur 7 vinninga á mótinu.
Stefán Kristjánsson tekur einnig
þátt í mótinu. Alls tefla tólf kepp-
endur í SM-flokki og eru meðalstig
2.438 skákstig. Fjórtán keppendur
taka þátt í AM-flokki og eru með-
alstig 2.279 skákstig.
First Saturday-mótin eru skákmót
sem fara fram mánaðarlega í Búda-
pest í Ungverjalandi.
Náði áfanga
að alþjóðlegum
meistaratitli