Morgunblaðið - 11.04.2006, Síða 10

Morgunblaðið - 11.04.2006, Síða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR SÉRHÆFT starfsfólk og fé- lagsliðar á nokkrum hjúkrunar- og dvalarheimilum héldu fjölmennan baráttufund í Kiwanissalnum við Engjateig í Reykjavík í gær. Um hundrað manns, nær eingöngu konur, mættu á fundinn og ræddu frekari aðgerðir til þess að leggja áherslu á kröfur um bætt kjör. Fulltrúar starfsmannanna fund- uðu í gær með stjórnendum stofn- ananna og fulltrúum Eflingar og er annar fundur boðaður með launa- nefndinni síðasta vetrardag, mið- vikudaginn 19. apríl. Niðurstaða baráttufundarins í gær var að boða viku langt setuverkfall frá aðfara- nótt 21. apríl, þar sem aðeins frum- þörfum íbúa öldrunarheimilanna verður sinnt eins og í síðasta setu- verkfalli. Þokist ekki í samningaátt hyggja starfsmenn síðan á upp- sagnir fyrir mánaðamótin. Fundarkonur í gær lýstu ánægju sinni með að vilji væri kominn til að ræða saman en kváðu það ekki nóg og því yrðu þær að halda aðgerðum sínum áfram. Mál- ið var einnig rætt á Alþingi í gær en starfsmönnunum fannst sem sú umræða hefði aðeins skilið eftir sig spurningar sem enn væri ósvarað. Samskot til stuðnings baráttunni Mikill hiti var í fundarkonum og stóðu nokkrar upp til að þakka þeim sem forystu hefðu haft í bar- áttunni og hvetja hópinn til sam- stöðu og frekari aðgerða. Umræð- ur sköpuðust um hvort strax skyldi hefja uppsagnir eða fara fyrst í annað setuverkfall. Sumir starfs- menn heimilanna hafa aðeins viku langan uppsagnarfrest og sam- þykkti fundurinn nýtt setuverkfall með miklum meirihluta. Alfa Ágústa Pálsdóttir leiddi fundinn og sagðist hún sjálf þegar hafa sagt upp starfi sínu. Fundar- konur sem lengri uppsagnarfrest hefðu voru jafnvel hvattar til að hefja uppsagnir nú þegar. Fram kom þó á fundinum að á einhverj- um öldrunarheimilanna yrði öllum starfsmönnum sagt upp og starf- semi jafnvel hætt, kæmi til hóp- uppsagna. Bryndís Jónsdóttir, félagsliði, benti á að baráttan hefði kostað forvígiskonur hennar umtalsverð- ar fjárhæðir, meðal annars vegna símreikninga, og stofnaði hún til samskota meðal viðstaddra til stuðnings baráttunni. „Látum ekki lengur fara illa með okkur“ „Ráðherra talar ekki einu sinni við okkur,“ sagði ein fundar- kvenna. Illa hefði verið farið með stéttina árum saman en að svo yrði ekki lengur. „Við erum búnar að vera allt of þægar,“ sagði önnur og benti á að starfsmenn hefðu aldrei fengið krónu fyrir að vinna ótal undirmannaðar vaktir. „Þetta er ekkert flókið, það lifir enginn af þessum launum. Við vinnum ábyrgðarstörf og ég skammast mín næstum fyrir að beygja mig fyrir þessum krónum.“ Á fundinum var loks lýst eftir starfsmönnum í aðgerðahóp og var enginn skortur á sjálfboðaliðum. Sérhæfðir starfsmenn og félagsliðar á öldrunarheimilum boða viku langt setuverkfall og uppsagnir þokist ekki í viðræðum fyrir mánaðamót „Búnar að vera allt of þægar“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Fundarkonur voru þakklátar forvígiskonum kjarabaráttunnar og tóku vel í hugmynd Bryndísar Jónsdóttur um samskot þeim til handa. Eftir Hrund Þórsdóttur hrund@mbl.is HÉR fer á eftir í heild sinni ályktun baráttu- fundar sérhæfðs starfsfólks og félagsliða á öldrunarheimilum sem haldinn var í gær: „Þegar í upphafi þessa fundar er orðið ljóst að stuðningur við aðgerðir sérhæfðs starfsfólks og félagsliða á öldrunarheimilum hefur náð eyrum sumra málsmetandi manna innan ríkisstjórnarflokkanna. Þannig hefur fengist viðurkenning á þeim málflutningi starfsmanna að með öllu óraunhæft sé að ætla þeim að sitja eftir hvað launakjör sam- bærilegra hópa varðar. Eitt er það atriði sem leiðrétta þarf í mál- flutningi þingmanna stjórnarflokkanna. Þeir hafa, m.a. Einar Oddur Kristjánsson, Sjálf- stæðisflokki og Páll Magnússon, Framsókn- arflokki, haldið því fram að kjarasamningar þessa starfsfólks séu frá því sl. haust. Hið rétta er að þeir eru undirritaðir í maí 2004 og eru því að ná tveggja ára aldri. Það er niðurstaða fundarins að í sjálfu sér breyti þessi rangfærsla engu og geri það eitt að sýna einu sinni enn að þingmönnum sem eru í vörn fyrir afstöðu sína skiptir litlu hvort rétt er með staðreyndir farið. Þá lýsir fundurinn því yfir í framhaldi slíkrar umfjöllunar að tími langra kjara- samninga er liðinn. Starfsfólk umræddra heimila mun ekki sætta sig við að verða aftur bundið kjarasamningum sem eru án endur- skoðunarákvæða hvað varðar breytingar hjá öðrum sambærilegum hópum. Starfsmönnum ófært að láta af aðgerðum Í umræðunni um aðgerðir þær sem staðið hafa yfir hefur starfsmönnum orðið betur og betur ljóst hvernig fjárhagslega umgjörð öldrunarheimilin búa við. Það er álit fund- arins að það kerfi sem nú er við lýði, þ.e. að ríkið reki og reki ekki þessi heimili en hafi af því fjárhagslegan ávinning að heimilin greiði starfsmönnum sínum skammarlega lág laun, geti ekki gengið. Sé það hins vegar ófrávíkj- anlegt af hálfu ríkisvaldsins að vist- unarmatið sé tengt breytingum á launa- kjörum á vinnumarkaði gerir fundurinn þá kröfu að framvegis verði þessi hluti vist- unarmatsins tengdur launabreytingum al- mennt en ekki einstökum heimilum. Þrátt fyrir að nokkur skilningur hafi náðst fram á baráttu starfsmanna fyrir réttlátum málstað er sigur í þeirri baráttu ekki í höfn. Því er starfsmönnum með öllu ófært að láta af aðgerðum til að knýja á um niðurstöðu sem ásættanleg er. Fundurinn felur því aðgerðarhópi starfs- manna að skipuleggja frekari aðgerðir og láta ekki af þeim aðgerðum fyrr en fullur sigur er í höfn. Fundurinn lýsir því yfir að niðurstaða eins og loforð um að málin verði skoðuð er ekki fullnaðarsigur. Tími loforða er löngu liðinn og ekkert nema breytingar á launakjörum til samræmis við aðra geta stöðvað aðgerðir starfsmanna.“ „Tími loforða löngu liðinn“ Í BJARTRI og notalegri risíbúð á Langholtsveginum gengur Álfheið- ur Bjarnadóttir rösklega um gólf og skipuleggur baráttu ófaglærðra starfsmanna Hrafnistu fyrir bætt- um kjörum. Síminn hringir oft og mikið starf þarf að samrýma. Á borðum eru litlir bréfmiðar, afrif- ur af línustrikuðum minnisblöðum, með símanúmerum, netföngum og nöfnum baráttu-, stjórnmála- og fjölmiðlafólks. Væri hún í við- skiptum væri þetta kannski kallað rassvasafyrirtæki, en fyrir nokkr- um vikum hafði Álfheiður ekki hugmynd um að hún ætti eftir að leiða baráttuna. Hennar sérsvið er umönnun, að hlúa að gömlu fólki. Álfheiður kemur frá Hornafirði, fædd og uppalin á bænum Holta- seli, þar sem hún vann við sveita- störf á unglingsárunum, en flutti ung til Reykjavíkur, þar sem hún kynntist Jóhanni Sigurjónssyni. Hann er málarameistari frá Pat- reksfirði og nokkru eftir að þau felldu hugi saman lá leið þeirra vestur á Patreksfjörð, þar sem Álfheiður vann í fyrsta skipti við umönnunarstörf á sjúkrahúsinu þar í bæ. Jóhann hefur mikinn áhuga á tónlist og í einu horninu í stofunni blasa við gítar, hljómborð og forláta harmonikka, sem hann tekur oft í. Eltu börnin suður í námið „Ég hef nú unnið við umönn- unarstörf í um 15 ár í heildina, en á milli vann ég í fiski, sjoppum og verslunum,“ segir Álfheiður, rótgróin verkakona í báða fætur. „Við fluttum til Reykjavíkur árið 1999, þegar börnin fóru suður í framhaldsskóla og síðar í háskóla. Við eltum þau bara, höfðum ekk- ert að gera ein fyrir vestan án þeirra.“ Öll þrjú börn þeirra Álf- heiðar og Jóhanns hafa ákveðið að ganga menntaveginn. Eldri dótt- irin stundar nám í lífeindafræði við Tækniháskólann, sú yngri er að fara á síðasta ár í hjúkrun við Háskólann á Akureyri, en son- urinn, sem er yngstur, á eitt ár eftir í vélfræði við Borgarholts- skóla. En hvernig kom til þess að Álf- heiður tók við þessu vandmeðfarna hlutverki? „Það var nú eiginlega óviljandi sem ég lenti í því,“ segir Álfheiður, sem hefur aldrei áður staðið í svona starfi, aldrei rætt við ráðherra eða fjölmiðla eða skipulagt fjöldamótmæli og verk- föll. „Við byrjuðum á því að athuga hversu margir vildu skrifa undir undirskriftalistana en síðan vant- aði einhvern til að afhenda papp- írana. Þá var bent á að best væri að þeir gerðu það sem væru upp- hafsmenn að þessu, þannig að ég lenti eiginlega í þessu fyrir til- viljun. Það hefur ekki komið neitt alvarlegt upp á í baráttunni, en ég er ofboðslega feimin innst inni.“ Gríðarleg viðbrigði Álfheiður segir það hafa verið gríðarleg viðbrigði að lenda allt í einu í miðri hringiðunni. „Það er búið að vera rosalega mikið að gera síðan þetta upphófst, hring- ingar og annað, maður á engan frí- tíma,“ segir Álfheiður. „Fjölmiðl- arnir byrja að hringja á morgnana um sjöleytið til að athuga hvort einhverjar hreyfingar séu. Síðan þarf maður að hringja í alla og halda utan um alla upplýsingagjöf til samstarfsfólksins, hvað eru næstu skref og hvað er að gerast og biðja það um hugmyndir, því þetta eru hugmyndir allra sem þarna liggja að baki.“ Hjónin vinna bæði nokkra erf- iðisvinnu og eiga því ekki mörg áhugamál sem þau stunda saman, en þeim finnst gaman að ferðast heim í sveitina í fríum. „Svo förum við oft í sund um helgar í Árbæj- arlauginni, hún er ekki of stór og mjög notaleg,“ segir Álfheiður. „Ég er mikið fyrir það að ganga úti, en Jóhann situr þá oft heima og leikur á hljóðfærin.“ Launabilið hefur breikkað gríð- arlega undanfarin ár, að mati Álf- heiðar, m.a. milli þeirra hjóna, þótt henni þyki iðnaðarmenn ekki hafa hækkað mjög í launum. „Ég Álfheiður Bjarnadóttir lenti óvænt í eldlínunni á Hrafnistu „Ég er ofboðslega feimin innst inni“ Morgunblaðið/Árni Sæberg „Þjóðarsáttinni margfrægu var ein- ungis ætlað að halda verkamann- inum niðri, þeim lægst launuðu, á meðan allir aðrir hækkuðu. Verka- maðurinn var einn látinn bera ábyrgð á þjóðarsáttinni,“ segir Álf- heiður Bjarnadóttir. Eftir Svavar Knút Kristinsson svavar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.