Morgunblaðið - 11.04.2006, Page 11

Morgunblaðið - 11.04.2006, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2006 11 FRÉTTIR ÞINGMENN stjórnarandstöðunn- ar kölluðu eftir því á Alþingi í gær að ríkisstjórnin og þá sérstaklega heilbrigðisráð- herra og fjár- málaráðherra hlutuðust til um lausn kjaradeilu ófaglærðra starfsmanna á hjúkrunar- og dvalarheimilum landsins. Siv Friðleifsdóttir heilbrigðisráð- herra sagði að hún hefði miklar áhyggjur af deilunni; hana yrði að leysa en það væri mjög snúið. Siv kvaðst myndu fylgjast náið með framvindu mála. Árni M. Mathiesen fjármálaráð- herra sagði m.a. að það hefði reynst býsna erfitt í gegnum tíðina að leiðrétta kjör þeirra lægst laun- uðu. „Því það hefur viljað brenna við að aðrir aðilar klifri síðan upp eftir bakinu á þeim. Ef við eigum að leysa þetta mál þurfum við að finna nýjar aðferðir, aðrar en þær sem við höfum haft hingað til.“ Ásta R. Jóhannesdóttir, þing- maður Samfylkingarinnar, sagði hins vegar að það væri til lítils að lýsa yfir áhyggjum af deilunni og aðhafast ekkert. Öll umönnunar- þjónusta myndi lamast yrði ekkert að gert; að óbreyttu stefndi í upp- sagnir ófaglærðra starfsmanna á umræddum stofnunum. Krafðist skýrra svara Þuríður Backman, þingmaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, hóf umræðuna í upphafi þingfundar í gær. Hún sagði að neyðarástand ríkti á hjúkrunar- og dvalarheimilum hér á landi, sér- staklega þeim sem rekin væru sem sjálfseignarstofnanir. Hún beindi síðan orðum sínum til forsætisráð- herra, Halldórs Ásgrímssonar, því heilbrigðisráðherra og fjármála- ráðherra, sagði hún, köstuðu bolt- anum á milli sín, fram og til baka. Hún sagði að fjármagn vantaði sárlega inn í rekstur dvalar- og hjúkrunarheimila til að standa undir viðeigandi þjónustu. „Og því krefst ég þess að forsætisráðherra gefi hér skýr svör varðandi þenn- an málaflokk.“ Halldór varð þó ekki fyrir svör- um heldur Siv Friðleifsdóttir og síðar Árni M. Mathiesen. Siv kvaðst viðurkenna að hún hefði miklar áhyggjur af umræddri kjaradeilu, því hún gæti bitnað á þjónustunni við íbúa hjúkrunar- og dvalarheimilanna. Siv benti á að samninganefndir samtaka fyrir- tækja í heilbrigðisþjónustu, sem reka hjúkrunarheimilin, og stétt- arfélagsins Eflingar myndu funda síðar í gær og að hún myndi fylgj- ast náið með niðurstöðu þess fund- ar. Eðlilegt væri að þessar nefndir funduðu um málið, því þær semdu um launataxtana. „Ég mun að sjálfsögðu fylgjast mjög náið með því sem kemur út úr þeim fundi og þróun mála í framhaldinu, af því að ég hef áhyggjur af þeirri þjón- ustu sem íbúar þessara stofnana fá. Ég tel að það verði að leysa þessa deilu en það er mjög snúið mál. “ Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, sagði brýnt að kjaradeilan yrði leyst af hálfu ríkisstjórnarinnar, og af hálfu heilbrigðisráðherra og fjármálaráðherra. Hún sagði að Dagur B. Eggertsson, borgar- fulltrúi Samfylkingarinnar, hefði sagt um helgina að ríkisstjórnin hefði verið í samfelldu tíu ára setuverkfalli í málefnum aldraðra. Ingibjörg Sólrún tók undir þau orð. Ríkisstjórnin hefði vanrækt þennan málaflokk. Gjá sem þarf að brúa Guðmundur Hallvarðsson, þing- maður Sjálfstæðisflokks, sem jafn- framt er stjórnarformaður Hrafn- istu, sagði að athyglisvert hefði verið að hlusta á Ingibjörgu Sól- rúnu vegna þess að R-listinn hefði ekki byggt nein ný hjúkrunar- heimili fyrir aldraða í Reykjavík. Guðmundur sagði síðar að um- rædd kjaradeila varðaði fyrst og fremst starfsfólk sjálfseignarstofn- ana. Það hefði miklu lægri laun en þeir sem störfuðu á hjúkrunar- heimilum sveitarfélaganna. „Þarna á milli er orðin gjá sem auðvitað verður að brúa.“ Ásta R. Jóhannesdóttir, Sam- fylkingu, sagði að á meðan hjúkr- unar- og öldrunarmál væru í al- gjöru uppnámi rifust stjórnarliðar um það hver ætti að taka á málinu. Það væri vanvirða við umræddar umönnunarstéttir og þá aldraða sem þyrftu á þjónustu þeirra að halda. „Sjálfstæðisframbjóðendur í borginni lofa öldruðum öllu fögru en þeir sem ráða hér, flokksbræð- ur þeirra, gera ekki neitt. Þeir halda að sér höndum.“ Jóhanna Sigurðardóttir, þing- maður Samfylkingarinnar, sagði að það væri þjóðarnauðsyn að ráð- herrarnir hristu af sér doðann og leystu málið og Guðjón A. Krist- jánsson, formaður Frjálslynda flokksins, sagði að þessi staða í málefnum hjúkrunarheimilanna ætti ekki að koma á óvart. Minni- hluti fjárlaganefndar hefði bent á vanda hjúkrunarheimilanna við fjárlagagerðina fyrir áramót, en stjórnarliðar hefðu ekki haft mik- inn áhuga á að taka á málinu. Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstri grænna, sagði eins og Guð- jón að löngu hefði verið fyrirsjáan- legt hvert stefndi í þessum málum, og Helgi Hjörvar, Samfylkingu, sagði að hér væri augljóslega á ferðinni knýjandi úrlausnarefni. Árni M. Mathiesen fjármálaráð- herra sagði m.a. undir lok umræð- unnar að honum hefði fundist skorta á að þingmenn fögnuðu fundi samninganefnda samtaka fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu og Eflingar. „Það hlýtur að vera, al- veg sama hvernig á það er litið, fyrsta skrefið, til þess að leysa þetta mál; að samningsaðilarnir: vinnuveitandinn og sá sem er laun- þegi, hittist og fari yfir málin til þess að leita að lausn,“ sagði ráð- herra. Kallað eftir því að ráðherrar beiti sér í deilu ófaglærðra Ráðherra segist hafa áhyggjur en snúið sé að leysa deiluna Eftir Örnu Schram arna@mbl.is Þuríður Backman get ekki skilið af hverju allir aðrir mega hækka, en ekki megi hækka laun verkafólks án þess að við eig- um að vera ábyrg fyrir að verð- bólgan fari af stað, ég get ekki skilið þá hagfræði. Þetta ástand er að mínu mati afleiðing siðblindu og mjög brenglaðs gildismats,“ segir Álfheiður. „Allir sem snerta bréf og pen- inga eru metnir mikils, en þeir sem hugsa um börn og gamalt fólk eru einskis virði. Það er alltaf ver- ið að flytja inn erlent vinnuafl til að halda laununum niðri í þessum störfum. Af hverju geta þeir ekki flutt inn kínverska eða pólska bankastjóra og verðbréfasala? Þeir tækju ekki há laun og þá loksins færum við að spara og vextirnir okkar myndu jafnvel lækka.“ Stéttarfélögin semji um kjör Lagt hefur verið til að launafólk geri sína eigin samninga við fyr- irtæki og standi utan stétt- arfélaga. Álfheiður segir þetta ein- ungis til þess að veikja samstöðumátt stéttarfélaganna. „Mín kunnátta felst í því að annast fólk, ekki að semja um laun. Sér- fræðingar eiga að semja um laun og kjör, ekki venjulegt vinnandi fólk,“ segir Álfheiður. „Það segir sig sjálft að ég myndi aldrei geta samið eins vel um laun og kjör og fólk sem hefur sérhæft sig í því. Þess vegna treystum við stétt- arfélögunum til þess, en þau verða að fara að standa sig betur.“ Um þá hugmynd að ekki þurfi að greiða hærra fyrir umönn- unarstörf vegna þess að þar séu aðallega konur að störfum og þær geti reitt sig á tekjur eiginmanna sinna, segir Álfheiður það hina mestu vanvirðingu að ætla fólki að reiða sig á tekjur annarra. „Það er algjört virðingarleysi að hugsa svona,“ segir Álfheiður. „Fólk á að geta lifað af sínum launum og það eru konur að vinna á Hrafnistu sem búa einar og þurfa að lifa á þessu og það er ein- faldlega ekki hægt. Stjórn- málamenn hafa greinilega fjar- lægst fólkið í þessu landi mikið, þeir búa í einhverjum öðrum heimi og í raun verkalýðsforystan líka. Hugmyndin um Ísland sem landið þar sem jöfnuður ríkir og launabilið er hóflegt er greinilega dauð. Þjóðarsáttinni margfrægu var einungis ætlað að halda verka- manninum niðri, þeim lægst laun- uðu, á meðan allir aðrir hækkuðu. Verkamaðurinn var einn látinn bera ábyrgð á þjóðarsáttinni.“ „ÉG ER ánægður með að hafnar séu viðræður milli stjórnenda þessara fyrirtækja og starfsmanna. Ég von- ast bara til þess að þau finni lausn á þessum málum,“ segir Árni M. Mat- hiesen, fjármálaráðherra, og vísar þar til þess að samninganefndir Samtaka fyrirtækja í heilbrigðis- þjónustu og Eflingar hafi komið saman til óformlegs fundar síðdegis í gær til að ræða stöðu ófaglærðra á hjúkrunarheimilum. Aðspurður vísar fjármálaráðherra því á bug að ráðamenn og stjórnend- ur hafi vísað hver á annan í málinu öllu. „Það er auðvitað rangt sem hef- ur verið haldið fram að menn hafi verið að vísa hver á annan í þessu tilfelli. Það hefur bara hver sitt hlutverk í þessu eins og öðru og það er hlutverk fyrir- tækjanna að semja við sitt starfsfólk. Síðan hafa þeir sín samskipti við ríkisvaldið,“ segir Árni og tekur fram að ekki sé hægt að segja neitt um það hver að- koma ríkisins verði að málinu fyrr en niðurstaða sé fengin í viðræðum for- svarsmanna viðkomandi stofnana og starfsmannanna. „Hins vegar hafa verið viðræður milli þessara fyrirtækja og heil- brigðisráðuneytisins um daggjöldin og skilgreiningar á þeim. Mér skilst að það sé ekkert svo langt í land hvað það varðar og kannski væri hægt að flýta því til þess að losa um spennu í þeim málum sem upp kunni að koma,“ segir Árni. Spurður hvort hann sjái þar með fyrir sér að dag- gjöld verði hækkuð segist Árni ekki vilja fara út í slíkar vangaveltur á þessu stigi málsins. Flýta mætti viðræðum um daggjöld til að liðka fyrir málinu Árni M. Mathiesen SVEINN H. Skúlason, forstjóri Hrafnistuheimilanna, segir að á samráðsfundi forsvarsmanna heim- ilanna, Eflingar og starfsmanna hafi ekki verið rætt um krónur heldur hafi fólk hist og brotið ísinn. „Við höfum ekki viljað taka upp samninga af því að daggjöldin okkar eru byggð á forsendum núverandi samninga. Þess vegna varð ann- aðhvort ríkið að taka upp samn- ingana eða við að hafa forsendur til þess að ætla að við fengjum ein- hverja peninga. Heimilin eru flest eða öll í taprekstri og hækkun launa ofan á daggjöldin myndi bara auka hallann,“ segir Sveinn. „Við heyrð- um hvernig andinn blés um helgina og það virðist vera að skapast póli- tískur vilji til að leysa málið. Við ákváðum því að taka upp viðræður í trausti þess að ríkisvaldið kæmi á eftir með fjármagn.“ Sveini finnst mikill hraði í málinu af hendi starfsmannanna. „Markmiðið í upphafi var að ná þessum hópi stjórnenda að samn- ingaborðinu og það hefur nú tekist. Það tekur tíma að átta sig á hvernig á að höndla þetta og ég efast um að við verðum komnir langt á fundinum á miðvikudaginn,“ segir Sveinn. Hann segir ekki margar upp- sagnir hafa borist í tengslum við að- gerðirnar. „Við höfum þó misst fólk síðustu vikur sem hefur unnið hjá okkur lengi og er kjarninn í starf- seminni. Að sjálfsögðu er það tengt þessum lágu launum,“ segir hann. Sveinn segist vita að málið taki enda og vonandi endi það vel. „Ég trúi ekki öðru. Ég veit að takmark þessa fólks er ekki að hætta eða segja upp. Það er ekki viljinn en það er sagt núna í hita augnabliksins.“ „Verður að mæta þessu með einhverjum hætti“ Guðmundur Hallvarðsson, þing- maður og stjórnarformaður Hrafn- istuheimilanna, tók málið upp á þingflokksfundi Sjálfstæðisflokksins í gær. „Ég veit að staðan er erfið en vona að þetta mál leysist áður en til óefnis kemur og ég trúi ekki öðru,“ segir hann en á þingflokksfundinum var farið yfir stöðuna og væntanlegur fundur eftir páska ræddur. „Menn vonast til að þá verði eitthvað komið fram sem geti hoggið á þennan hnút og sjá auðvitað að það verður að mæta þessu með einhverjum hætti.“ Guðmundur segir liggja ljóst fyrir að sá daggjaldagrunnur sem gengið sé út frá sé orðinn illa skakkur og nauðsyn sé á endurskoðun hans. „Síðan verður líka að taka upp nú- tíma vinnubrögð varðandi dag- gjaldaákvörðunina þannig að hún sé ekki bara einhliða ákveðin af heil- brigðis- og fjármálaráðuneytinu heldur sé það hinn raunverulegi kostnaður sem sé skoðaður þegar horft er til daggjaldsins,“ segir hann. „Þegar ríkið samdi við Sóltún á sínum tíma held ég að öllum gömlum girðingum og hliðum hafi verið hent og menn horft á þetta raunsætt.“ Guðmundi líst illa á stöðuna komi til hópuppsagna og segir að fari starfs- menn út af vinnustöðunum bitni það á þeim sem síst skyldi; þeim öldruðu. Kjarnafólk hefur þegar sagt upp vegna slakra kjara Morgunblaðið/Árni Sæberg Sérhæfðir starfsmenn og félagsliðar á öldrunarheimilum samþykktu setuverkfall með miklum meirihluta í gær.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.