Morgunblaðið - 11.04.2006, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2006 23
MINNSTAÐUR
AKUREYRI
FJÖLDI sjálfstæðismanna var á
Akureyri um helgina vegna flokks-
ráðs-, formanna- og frambjóðenda-
fundar flokksins. Sveitarstjórn-
armenn af öllu landinu, þingmenn og
ráðherrar komu saman til fundarins,
sem og frambjóðendur í sveit-
arstjórnakosningunum í vor. Margir
notuðu tækifærið og sóttu heim fyr-
irtæki og stofnanir á föstudaginn,
meðal annars sótti hópur fyrrver-
andi nemenda í Menntaskólanum á
Akureyri heim sína gömlu mennta-
stofnun. Þetta var daginn eftir sigur
MA í spurningakeppni framhalds-
skólanna, Gettu betur, og því flestir í
spariskapinu. Gestirnir ræddu við
nemendur og kennara við MA og lík-
lega var ekki að undra að nemendur
höfðu mestan áhuga á að ræða um
fyrirhugaða styttingu náms til stúd-
entsprófs. Þeir ræddu einnig virkj-
anaframkvæmdir og stóriðju og
fengu stutta en greinargóða lýsingu
á því frá varaformanni fjár-
laganefndar, Einari Oddi Kristjáns-
syni, hvernig best væri að haga sér í
efnahagsmálum á líðandi stundu.
Svaraði Einar Oddur því að beiðni
félagsfræðikennarans, Þorláks Ax-
els Jónssonar, sem er í framboði fyr-
ir Samfylkinguna á Akureyri við
bæjarstjórnarkosningarnar í vor og
vildi því ólmur fá að ræða pólitík við
gestina.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Þorlákur Axel Jónsson, kennari og einn frambjóðenda Samfylkingarinnar á Akureyri í vor, hlýðir á svar Einars
Odds við spurningu kennarans um efnahagsmál. Einar Oddur varð ekki stúdent frá MA en sat í skólanum um tíma.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Í kennslustund Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri, Alma Oddgeirsdóttir,
námsráðgjafi í MA, Halldór Blöndal, Sigríður Anna Þórðardóttir, Arnbjörg
Sveinsdóttir, Adolf Berndsen, Þóra Ákadóttir og Elín Hallgrímsdóttir.
Heimsóttu gamla skólann sinn
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT Norður-
lands og fleiri flytja 2. hluta óratórí-
unnar Messías eftir G.F. Händel og
Skálholtsmessu eftir Hróðmar Inga
Sigurbjörnsson, í Glerárkirkju á skír-
dag.
Flytjendur ásamt hljómsveitinni
eru Kammerkór Norðurlands og ein-
söngvararnir Marta G. Halldórs-
dóttir, sópran, Sigríður Aðalsteins-
dóttir, alt, Þorbjörn Rúnarsson,
tenór, og Benedikt Ingólfsson, bassi.
„Þarna er verið að tefla saman
gamalli og nýrri tónlist. En það er svo
skemmtilegt að þótt verk Hróðmars
sé nýtt er tónlistin eiginlega alveg
tímalaus; hún hljómar eins og ný í
merkingunni fersk en hljómar líka á
vissan hátt sem mjög gömul,“ segir
Guðmundur Óli Gunnarsson, stjórn-
andi hljómsveitarinnar og Kamm-
erórsins. Hann tekur skýrt fram að
verk Hróðmars sé ekki „óaðgengileg
nútímatónlist í versta skilningi þess
orðs. Það þarf enginn að kvíða því
fyrir að fara á tónleikana vegna þess
að þetta sé eitthvað óskiljanlegt!
Enda Hróðmar þekktur fyrir að
skrifa afskaplega áheyrilega tónlist.“
Skálholtsmessa var samin að til-
stuðlan Sumartónleika í Skálholti og
frumflutt þar í júlí árið 2000. Messan
er í átta köflum, í fjórum þeirra er
notaður hinn hefðbundni latneski
messutexti, þ.e.a.s. í Kyrie, Gloria,
Sanctus og Agnus dei, en í hinum
fjórum eru textarnir fengnir úr göml-
um íslenskum handritum. Má þar
helst nefna Credo sem er tekið úr
Hymni scholares eða hinu svokallaða
„skólakveri“ sem talið er að hafi verið
ritað um 1687. Hér er um að ræða lat-
neska þýðingu á trúarjátningarsálmi
Lúters „Vér allir trúum á einn Guð“
en menn leiða getum að því að sálm-
urinn hafi verið þýddur í Skálholti.
Óratórían Messías eftir Georg
Friedrich Händel (1685–1759) er það
tónverk sem hann er hvað þekktastur
fyrir. Allt frá því hún var frumflutt
árið 1742 hefur hún skipað veglegan
sess tónbókmenntanna.
Óratórían er í þremur köflum og á
tónleikum Sinfóníuhljómsveitar
Norðurlands verður fluttur annar
kaflinn sem fjallar um erindi Messí-
asar til að taka á sig syndir heimsins
með þjáningu sinni og dauða. Þessi
hluti Messíasar endar á Hallelúja-
kórnum, sem er tákn um sigur Guðs.
Kammerkór Norðurlands var
stofnaður í nóvember 1998. Í honum
eru 20 félagar, söngfólk af Norður-
landi, allt frá Sauðárkróki til Kópa-
skers, með mikla reynslu af kórstarfi.
Markmið kórsins er að flytja ver-
aldleg og kirkjuleg verk sem veita
kórfélögum tækifæri til að takast á
við erfiðari verk en þeir syngja venju-
lega. Meðal efnis sem kórinn hefur
fengist við er kirkjulegt efni, íslensk
þjóðlög, enskir madrígalar og íslensk
og erlend samtímaverk. Einnig hefur
kórinn unnið og komið fram með öðr-
um kórum, t.d. þegar Krýning-
armessa Mozarts var flutt í Mývatns-
sveit og Sálumessa Verdis var flutt á
stórtónleikum á Akureyri. Kamm-
erkórinn tók einnig þátt ásamt Kór
Akureyrarkirkju og Voces Thules í
flutningi á Messu op. 36 eftir Widor.
Guðmundur Óli Gunnarsson hefur
verið stjórnandi kórsins frá árinu
2000 og hann stjórnar einnig hljóm-
sveitinni að vanda.
Tónleikarnir hefjast kl. 16 á
fimmtudaginn. Sinfóníuhljómsveit
Norðurlands er að stærstum hluta
skipuð hljóðfæraleikurum af Norður-
landi en einnig koma hljóðfæraleik-
arar af Reykjavíkursvæðinu til liðs
við hljómsveitina að þessu sinni.
Hróðmar og Händel í Glerárkirkju á skírdag
„Tónlist Hróðmars ný en
eiginlega alveg tímalaus“
Morgunblaðið/Skapti
Guðmundur Óli Gunnarsson stjórn-
ar bæði Sinfóníuhljómsveit Norður-
lands og Kammerkór Norðurlands.
Í TILEFNI af flutningi Skál-
holtsmessunnar verður tón-
skáldið Hróðmar Ingi með
kynningu á verkinu í dag,
þriðjudaginn 11. apríl, kl.
19.30 í Tónlistarskólanum á
Akureyri. Kynningin er öllum
opin og aðgangur ókeypis.
Hróðmar
kynnir verkið