Morgunblaðið - 11.04.2006, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 11.04.2006, Blaðsíða 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNSTAÐUR Egilsstaðir | Landeigendur við Lag- arfljót ætla að höfða mál á hendur Landsvirkjun til að fá niðurstöðu um bótarétt varðandi vatnaflutninga frá Kárahnjúkavirkjun um farveg Lag- arfljóts og til sjávar. Sem kunnugt er mun vatn Jökuls- ár á Dal verða veitt í Hálslón og það- an um göng í Fljótsdalsheiði niður í hverfla virkjunarinnar í Valþjófsstað- arfjalli. Þaðan fer vatnið í farveg Jök- ulsár í Fljótsdal og loks í Lagarfljót. Þeir sem eiga land að Lagarfljóti telja sig jafnframt eiga farveg Fljóts- ins og þykir hart að Landsvirkjun skuli vefengja rétt þeirra til bóta fyr- ir vatnaflutninga um eignarlönd. Pétur Elísson, formaður Félags landeigenda við Lagarfljót, segir helmingsaukningu á vatnsmagni verða í Lagarfljóti með tilkomu Kárahnjúkavirkjunar. „Við sjáum fram á skerðingu á fiskgengd, líklega einnig á silungsveiði, rask á lífríki vegna kólnunar við Fljótið og vitum ekki hvort um rof verður að ræða á landi,“ sagði Pétur í samtali við Morgunblaðið í janúar sl. Skv. lögmanni landeigenda, Krist- ins Bjarnasonar, mun einn landeig- andi höfða mál á hendur Landsvirkj- un í upphafi og niðurstaðan úr því mun svo ráða framhaldinu. Reynir á bótarétt vegna vatnaflutninga um Lagarfljót Í mál við Landsvirkjun Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson Þokukennt Lagarfljót Eigendur vilja bætur vegna flutnings Jöklu til sjávar. SUÐURNES Reyðarfjörður | Nemendur og starfsfólk Grunnskóla Reyðar- fjarðar gerðu sér glaðan dag nýlega. Alls konar klæðnaður var tekinn fram og ýmsar þekktar persónur sáust á ferðinni, m.a. lék Solla stirða listir sínar. Í 12°C hita og sólskini fór skrúðgangan um bæinn með tilheyr- andi tónlist og söng. Áð var í versl- unarmiðstöðinni Molanum þar sem var sungið og dansað. Í ár var engin árshátíð hjá skólanum þar sem Fé- lagsheimilið hefur verið leigt til bíó- sýninga og búið að breyta salar- kynnum í kvikmyndasal. Morgunblaðið/Hallfríður Bjarnadóttir Stórir og smáir saman Skólastjóri grunnskólans á Reyðarfirði, Þóroddur Helgason, lét sig ekki muna um að breytast í indíána í skrúðgöngunni. Árshátíð úti á götu AUSTURLAND Jökuldalur | Vegagerðin hyggst í sumar byggja nýjan kafla á þjóðvegi 1 um Arnórsstaðarmúla upp úr Jök- uldal og inn á Háreksstaðaleið. Til stendur að flytja vegstæðið norður og út fyrir Gilsá og hafa heimamenn af því nokkrar áhyggjur að verið sé að flytja veginn á mun snjóþyngra svæði en hann liggur nú um. Segja þeir árvisst að hlíð sem veg- inum er ætlað liggja um sé mjög snjóþung og að fallið hafi snjóspýjur frá lækjum framan úr hæsta fjallinu í Skjöldólfsstaðahnjúknum og yfir væntanlegt vegstæði. Heimamenn telja að gera þurfi ráð fyrir hærri vegi og betri skeringum á bak við hann sem geti tekið við spýjum. Skv. upplýsingum úr Jökuldal urðu menn þar nokkuð undrandi þegar í ljós kom að Vegagerðin hugðist færa vegstæðið. Er þó talið jákvætt að hinn væntanlegi vegarkafli verði mun brattaminni en gera verði ráð fyrir að talsvert þurfi að moka hinn nýja veg meira en verið hefur, til að halda honum opnum að vetrarlagi. Framkvæmdin er fyrirhuguð í sumar og reiknað með að setja í hana flýtifé til að gera veginn akfæran í haust og fá reynslu á hann áður en malbik er sett á. Leiðin hefur yfirburðakosti „Það er verið að vinna að kynning- arskýrslu um þetta verkefni þar sem mismunandi kostir eru bornir saman og komið inn á snjó og öryggi og skýrast þá mál frekar“ segir Birgir Guðmundsson, svæðisstjóri Norð- austursvæðis Vegagerðarinnar. „Ugglaust hafa heimamenn rétt fyrir sér um að þarna geti verið snjóþungt þó að það hafi ekki verið undanfarin ár. Leiðin að norðan hefur samt yf- irburðakosti fram yfir leið sunnan ár, minni bratti, færri beygjur, styttri og talsvert ódýrari. Yfirleitt er snjór ekki til trafala á vegum nú orðið, hon- um er mokað burtu jafnóðum. Hins vegar eru veður vandamál. En þótt komi 10 sinnum á ári þannig veður að ófært sé norðan ár þá verður gamli vegurinn vara vegur og ekki má gleyma því að þá eru eftir 355 dagar af árinu. Má minnast vegar um Ból- staðarhlíðarbrekku í þessu sambandi þar sem heimamenn fóru offari út af snjóþyngslum sem þeir töldu á þeirri leið. Sá vegur sparar þjóðinni millj- ónir á hverju ári og hefur ekki þurft að nota varaveginn (gamla veginn) í mörg ár.“ Vangaveltur um nýtt vegstæði upp úr Jökuldal        /#M/, =$/ A>/&%< , =$/          #  & '                      !"" Sandgerði | Ólafur Þór Ólafsson, bæjarfulltrúi Sandgerðislistans, varð efstur í prófkjöri Samfylking- arinnar í Sandgerði vegna komandi bæjarstjórnarkosninga. Ólafur Þór fékk 104 atkvæði í fyrsta sætið. Alls tóku 223 þátt í prófkjörinu um helgina sem er meiri þátttaka en áður hefur verið í prófkjöri vegna sveit- arstjórnarkosn- inga í bænum, að því er fram kem- ur í fréttatilkynn- ingu. Í öðru sæti varð Guðrún Art- húrsdóttir með 115 atkvæði í fyrst og annað sætið og í því þriðja varð Sturla Þórðarson með 125 atkvæði í þrjú efstu sætin. Niðurstaðan er bindandi hvað varðar þrjú efstu sæt- in. Í næstu sætum urðu Sigríður Jónsdóttir, Þráinn Maríusson og Júlíus Einarsson. Samfylkingin hefur ekki áður boð- ið fram í Sandgerði en við síðustu kosningar átti flokkurinn aðild að K- lista óháðra borgara og Samfylking- arinnar. K-listinn býður fram eins og undanfarna áratugi og hefur birt framboðslista. Ólafur Þór var hins vegar oddviti Sandgerðislistans sem bauð fram við síðustu kosningar.    Oddviti Sandgerðis- listans efstur hjá Samfylkingu Ólafur Þór Ólafsson Stapinn til Fasteignar | Reykja- nesbær, Ungmennafélag Njarðvík- ur, Kvenfélag Njarðvíkur og Skátafélagið Víkverjar hafa sam- þykkt að breyta eignarhaldsfélagi Stapans í rekstrarfélag og leggja sinn eignarhluta að húsi og lóð til Fasteignar hf. vegna undirbúnings að tónlistarhúsi og svæði eldri borg- ara. Verðið er 121 milljón kr. alls. Keflavík | Mikill meirihluti fulltíða íbúa í Keflavík- urprestakalli hefur skrifað undir áskorun á netinu þar sem lýst er yfir stuðningi við séra Sigfús B. Ingvason og niðurstöðu valnefndar um nýjan sókn- arprest mótmælt. Síðdegis í gær höfðu um 4.600 af um 5.500 fulltíða sóknarbörnum skrifað undir listana. Fulltrúi hópsins hefur ritað biskupi Íslands og kirkjumálaráðherra bréf þar sem farið er fram á að tekið verði tillit til vilja sóknarbarna við skipan í embættið. Tveir prestar hafa starfað við Keflavíkurkirkju. Ólafur Oddur Jónsson sóknarprestur, sem lést und- ir lok síðasta árs, og séra Sigfús Baldvin Ingvason. Séra Sigfús var einn af tíu umsækjendum um emb- ætti sóknarprests þegar það var auglýst á dögun- um. Allir umsækjendur voru kallaðir til viðtals hjá valnefndinni og voru metnir hæfir. Valnefndin er skipuð fimm fulltrúum sem sóknarnefnd tilnefnir og vígslubiskupnum í Skálholti sem stýrði fundi hennar. Meirihluti nefndarinnar mælti með séra Skúla S. Ólafssyni sem gegnir embætti sóknar- prests á Ísafirði í forföllum skipaðs sóknarprests. Fimm fulltrúar skipuðu meirihlutann en einn fulltrúi greiddi séra Sigfúsi atkvæði sitt. Býr yfir styrkleika og þrótti Séra Sigurður Sigurðarson vígslubiskup segist vera bundinn trúnaði um starf nefndarinnar og geti ekki tjáð sig um þau mótmæli sem fram hafa komið við niðurstöðu hennar. Fram kemur í fundargerð frá valnefndarfundinum 5. apríl sem fékkst hjá Biskupsstofu að meirihlutinn rökstuddi val sitt á séra Skúla S. Ólafssyni með því að segja að umsókn hans og framkoma á valnefndarfundi hafi borið vott um vöndun sem skaraði fram úr því sem fram hafi komið hjá öðrum umsækjendum. „Séra Skúli býr yfir fjölþættri reynslu sem prestur og hefur sýnt fram á að hann er vel fær um að fóta sig í nýjum að- stæðum. Röksemdir hans fyrir því hvernig hann geti uppfyllt kröfur þær sem gerðar eru í auglýs- ingu virðast sannfærandi. Þar er átt við [...] um víð- tæka reynslu af kirkjulegu starfi, færni í predikun og helgiþjónustu, leiðtogahæfileika og samstarfs- vilja. Valnefndarfólki þessu sýnist að séra Skúli búi yfir þeim styrkleika og þrótti sem þörf er á til að leiða starfið í kröfuhörðu prestakalli sem þessu,“ segir meðal annars í rökstuðningi meirihlutans sem skipaður var Halldór Leví Björnssyni, Önnu Jóns- dóttur, Ragnheiði Ástu Magnúsdóttur, Birgi Guðnasyni og Sigurði Sigurðarsyni vígslubiskupi. Þau lýsa jafnframt þeim einlæga vilja sínum að séra Sigfús Baldvin gegni áfram embætti prests við Keflavíkurkirkju. Gunnar Sveinsson gerði ágreining við valið og vildi mæla með séra Sigfúsi B. Ingvasyni. Hann rökstuddi afstöðu sína með því að segja að Sigfús hafi þjónað sem prestur í Keflavíkurkirkju sl. þrett- án ár af einstakri trúmennsku og skyldurækni, oft við mjög erfiðar aðstæður. Hann væri vinsæll með- al sóknarbarna og ætti mjög létt með mannleg sam- skipti. Hann væri trúaður og samvinnuþýður og gott með honum að vinna. Þá getur hann þess að Sigfús hafi á ferli sínum sinnt meira en helmingi af þjónustuþörfum í sókninni, að beiðni sóknarbarna. Niðurstaða valnefndar var afhent biskupi Íslands sem lýsti því yfir að hann myndi gera tillögu til kirkjumálaráðherra um að farið yrði að vilja meiri- hluta valnefndar. Málið er því til ákvörðunar hjá Birni Bjarnasyni, dóms- og kirkjumálaráðherra. Ráðning Sigfúsar rökrétt framhald „Við teljum að það hafi verið gengið fram hjá séra Sigfúsi, að ráðning hans í þetta embætti hefði verið rökrétt framhald af starfi hans hér. Hann hefur þjónað hér í þrettán ár og fólk er ánægt með störf hans. Við erum ósátt við að honum skuli ekki vera gefið tækifæri til að taka við embætti sóknar- prests,“ segir Falur Jóhann Harðarson, einn af að- standendum undirskriftasöfnunarinnar til stuðn- ings séra Sigfúsi B. Ingvasyni. Í bréfi hópsins til biskups og kirkjumálaráðherra er farið fram á það að tekið verði tillit til vilja sókn- arbarna í Keflavíkursókn og ráðning séra Sigfúsar staðfest með vísan til rökstuðnings minnihluta val- nefndar. „Við teljum augljóst að vilji meirihluta val- nefndar endurspegli alls ekki vilja mikils meirihluta sóknarbarna eins og undirskriftarlisti sem hefur verið á netinu í tvo sólarhringa ber með sér,“ segir meðal annars í bréfinu. Sagt er að séra Sigfús njóti víðtæks stuðnings í sókninni eftir þrettán ára far- sælt starf. „Séra Sigfús er mjög alþýðlegur, maður sátta og hefur verið til taks hvenær sem á þarf að halda. Þá hefur hann tekið mikinn þátt í starfi eldri borgara. Séra Sigfús hefur ásamt konu sinni, Lauf- eyju Gísladóttur, sinnt barnastarfinu af einstakri natni svo athygli hefur vakið.“ Bréfinu sem Falur Harðarson undirritar fyrir hönd stuðningshópsins lýkur með þeim orðum að hópurinn sætti sig ekki við að gengið sé fram hjá séra Sigfúsi við ráðningu í starf sóknarprests. Síðdegis í gær höfðu liðlega 4.600 ritað nöfn sín undir stuðningsyfirlýsinguna á netinu. Falur sagði að eftir væri að fara yfir nöfnin og fella út tvískrán- ingar og nöfn fólks sem býr utan prestakallsins. Hann taldi þó að talan væri nokkuð nálægt lagi, bjóst við að hópur fólks sem hefði skrifað undir áskorunina á pappír myndi fyllilega vega upp það sem þyrfti að fella út vegna tvískráningar og ann- ars. Sætta sig ekki við að gengið sé fram hjá séra Sigfúsi Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is Morgunblaðið/Helgi Barnason
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.